Þjóðviljinn - 04.04.1987, Side 5
Afriddurum Ijóssinsog
prinsum myrkursins
Habakúk og Jeremía
„Kristilegt blað, Þjóðviljinn,”
sagði hann.
„Á, var það?” sagði ég.
„Nema hvað?” sagði hann,
„Ykkur var gefíð á hann. Hvað
ætlið þið að gera í því? Á ég
að útlista nútímann þá verður þú
að hjálpa til,” sagði ég.
„Það er ekki laust við að ég sé
dálítið ringlaður í svipinn,” sagði
hann. „Ég var að lesa um skoðan-
akönnun. Nú er málum svo kom-
ið að Steingrímur Hermannsson,
vinsælasti stjómmálamaður
kannski að taka í hann fyrir ykk-
ur?”
„Nei, þakka þér fyrir,” sagði
ég. „Skamma stund verður hönd
höggi fegin.”
„Kristilegt blað, Þjóðviljinn,”
sagði hann. „Má ég vitna í Ha-
bakúk?”
„Gerðu svo vel.”
„Habakúk segir: Vei þeim sem
sækist eftir illum ávinningi fyrir
hús sitt til þess að geta byggt
hreiður sitt hátt uppi, til þess að
geta bjargað sér undan hendi
ógæfunnar.”
„Segir Habakúk þetta virki-
lega?”
„Já, og spámaðurinn Jeremía
segir: Meðal lýðs míns eru óguð-
legir menn; þeir liggja í fyrirsát,
eins og þegar fuglarar húka; þeir
leggja snörur til að veiða menn.
Eins og fuglabúr fullt af fuglum,
svo eru hús þeirra full af svikum;
á þann hátt eru þeir orðnir miklir
og auðugir. Þeir em orðnir feitir,
það stimir á þá.”
Ég skildi ekki alveg hvað hann
var að fara: „Viltu að Þjóðviljinn
snúi sér að því að leggja út Gamla
testamentið?” spurði ég.
„Kannski við tækifæri,” sagði
hann. „En eins og stendur fer ég
nú bara fram á að hann taki að sér
að leggja út nútímann.”
„Þú biður ekki um lítið,” sagði
þjóðarinnar, kemst ekki á þing.
Og Jón Baldvin Hannibalsson
halastjarna Alþýðuflokksins er
útbranninn. Sjálfstæðisflokkur-
inn er klofnaður í tvennt út af
hundrað þúsund krónum - og
það em kosningar eftir tæpan
mánuð.”
„Það er þó altént bót í máli,”
sagði ég.
„Hvað þá?”
„Að kosningamar skuli vera í
nánd.”
„Þú segir það,” sagði hann.
„Vonandi verður fólk búið að
átta sig.”
„Átta sig á hverju?”
„Á því að nú heitir serían ekki
lengur „Valdatafl í Valhöll.” Sú
sería er búin, enda voru allir
orðnir leiðir á henni. Nú fáum við
að fylgjast með næstu seríu sem
heitir „Á valdi tilfínninganna.”
, Og það hefur verið hætt við að
sýna heldur ómerkilega þætti um
Jón Baldvin sem áttu að heita
„B j argvætturin”. ”
„Segðu mér af þessari nýju ser-
íu.”
„Jú. „Á valdi tilfinninganna”
er væmin sápuópera sem er skrif-
uð fyrir vinsælasta leikarann úr
„Valdatafl í Valhöll.” Síðasti
þátturinn í þeirri seríu fjallaði um
spennandi ráðagerðir um að
koma honum frá völdum. And-
„Þjóðviljinn er mitt blað,”
sagði hann.
Ég vissi að hann mundi segja
þetta, því hann segir mér í hvert
skipti sem hann hringir að Þjóð-
viljinn sé sitt blað. Og það er
auðvitað alveg hárrétt hjá hon-
um.
Nýr framhalds-
myndaflokkur
„Ef þú vilt að ég reyni að fara
stæðingar hans misnotuðu að-
stöðu sína til þess að grafa upp
plögg sem sýndu að honum hefðu
orðið á smávægileg bókhaldsmis-
tök. Með þetta í höndunum ætl-
uðu þeir að neyða hann í útlegð.
En ráðagerðin fór ut um þúfur.
Stórleikarinn neitaði að láta kúga
sig. Hann blés til orrustu gegn
samsærismönnunum. Hann kom
fram fyrir alþjóð og ýmist grét
eða barði frá sér. Og stendur nú
uppi studdur aðdáendum, og
þegar fyrsti þáttur hinnar nýju
séríu hefst er hann þess albúinn
að leggja til stórorrustu gegn hin-
um svikulu bandamönnum sín-
um.
Persónusköpunin í þessari
nýju seríu er mjög skemmtileg.
Aðalleikarinn, riddari ljóssins, er
venjulegur kolbítur sem hefur
risið úr öskustó og hefur nú
eignast hálft ríkið. Hann er í rík-
um mæli gæddur mannlegum til-
finningum og mannlegum veik-
leikum. En þrátt fyrir veikleika
sína er hann sterkur og ódrep-
andi. Hann er fullur samúðar
með öllu sem lífsanda dregur og
honum og fylgismönnum hans
eru allir vegir færir. Hann er góð-
ur í eðli sínu, jafnvel þótt honum
kunni annað slagið að verða á í
messunni. Og vegna þess að hann
er góður í eðli sínu þurfa stuðn-
ingamenn hans ekki að reiða sig á
neinar yfirlýsingar eða stefnur
heldur reiða þeir sig einvörðungu
á brjóstvit og brjóstgæði leiðtog-
ans.
Andstæðingar leiðtogans eru
prinsar myrkursins. Þeir gætu
sem best verið vélmenni, því að
þeir eru gersneyddir mannlegum
tilfiningum og vopn þeirra eru
tölvur og reiknistokkar. í síðustu
seríu náðu þeir tímabundnum
vinsældum á því að þeir virtust
geta reiknað velsæld og auðæfi í
garð fylgismanna sinna. En kuldi
þeirra og mislunnarleysi og blind
Mammonsdýrkun hefur skotið
mörgum stuðningsmönnum
þeirra skelk í bringu, ekki síst
vegna þess að þeir sjá að þeir liðs-
manna sem verða undir í barátt-
unni fá hvorki hjúkrun né að-
hlynningu. Þess vegna hafa marg-
ir hlaupist undan merkjum og að-
hyllast nú hinn mjúklynda
milljónera.
Ertu þarna ennþá?”
Hugsað
í sjónvarpsseríum
„Já,” sagði ég í símann. „Ég
fylgist spenntur með þessu. „Á
valdi tilfinninganna” segirðu,
verður þetta löng sería?”
„Það er ekki gott að segja,
sjáðu til. Það fer eftir því hvernig
áhorfendum líkar fyrsti þáttur-
inn. Það eina sem er komið í ljós
nú er að „Valhallarserían” er
ekki lengur vinsælust.”
„En þú minntist á einhverja
aðra þætti.”
Já. „Bjargvætturin.” Það eru
þættir sem var verið að reyna að
klambra saman um riddara hinn-
ar rauðu rósar. Þeir voru ekki
nógu spennandi. Eintómt kjaft-
aglamur - og svo gerðist ekki
neitt. Enda er það ekkert nýtt að
svona seríur nái ekki vinsældum.
Svo vom aðrir aðilar sem ætluðu
að slá í gegn með þáttum sem áttu
að heita „Fyrirmyndar landsfað-
ir,” en það fór allt út um þúfur.
Aðalleikarinn var svo sem ágæt-
ur, en handritið var alveg kol-
ómögulegt.”
„Heidurðu að það komi ekki til
greina að taka á dagskrá þætti um
Alþýðubandalag eða Kvenna-
lista?”
„Ég veit það ekki. Ætli fólki
þyki nokkuð fútt í svona almennu
puði venjulegs fólks? Hins vegar
gæti það náttúmlega gerst ef fólk
fær leiða á hasarmyndum að gerð
yrði sería sem héti „ Afl í sókn” og
segði frá undarlegu fólki sem vill
losna við berserki og mikilmenni
og kýs að lifa friðsömu lífi á
eyjunni sinni.”
„Hvernig er það með þig -
hugsar þú bara í sjónvarpsserí-
um?”
„Hvernig á annað að vera?“
sagði hann. „Ég vinn tíu tíma á
dag á vinnustað þar sem dægur-
lög eru spiluð inn í eyrun á
manni. Af þessu verð ég svo
þreyttur að ég hef ekki orku til að
melta kvöldmatinn nema ég liggi
fyrir framan sjónvarpið. Og þá
byrja ég á því að horfa á hálftíma
seríu um mikilmenni á Stöð 2 sem
svo er endurtekin í Sjónvarpinu
klukkan átta. Svo koma venju-
iega þættir þar sem fréttamenn
sitja og spjalla við mikilmennin
og reyna að fá þau til að segja
einhverja vitleysu. Og svo koma
útlendir framhaldsþættir um
venjuleg manndráp og af og til
íslensk sjónvarpsleikrit um stór-
kostleg vandamál og þá sofna ég
yfirleitt og rumska ekki einu sinni
þótt leikararnir séu famir að gera
hitt uppi á eldhúsborði. Og þegar
ég er sofnaður dreymir mig um
hvað lífið getur verið dásamlegt.
Svo vakna ég og fer aftur í vinn-
una.”
„Ertu að spauga?”
„Nei, ég er ekki spaugari. En
ég skal fúslega viðurkenna að ég
er farinn að hugsa í sjónvarpsserí-
um. Og þannig er um fleiri.”
„Hvað áttu við?”
Lukkuriddarar og
venjulegt fólk
„Ég á einfaldlega við það að öll
alþýða manna er búin að draga
sig í hlé frá atburðum líðandi
stundar, rétt eins og fólki komi
ekki við hvað er að gerast. Mér
finnst að fólkið í landinu fylgist
með pólitíkinni á hlutlausan hátt
rétt eins og hverri annarri sjón-
varpsseríu; eins og afþreyingu
sem hefur engin áhrif á daglegt líf
og er til þess eins að stytta
mönnum stundir.
Ég á við að fólk er hætt að tjá
sig um atburði líðandi stundar
nema þegar einhver
félagsfræðingurinn hringir í það
og er að gera skoðanakönnun til
að geta mælt vinsældir stjarnanna
í prósentum. Fólk liggur á melt-
unni og horfir á alls konar lukkur-
iddara vasast með líf þess, af-
komu og framtíð - og gerir sér
ekki ljóst að það þarf að skrúfa
fyrir allan þennan kjaftagang og
stöðva þetta viðbjóðslega valda-
brölt og snúa sér að þeim málefn-
um er varða fólkið í landinu, Það
vill frið, öryggi, atvinnu,
menntun og samhjálp, en sjón-
varpsseríurnareru búnar að rugla
okkur svo mikið í ríminu að við
kunnum ekki að halda fram rétti
okkar. Flestir láta sér nægja að
halda með einhverjum lukkur-
iddaranum í sjónvarpinu, þeir
segja sem svo: Þessi er að sækjast
eftir ábyrgð. Gott og vel ég afsala
mér ábyrgðinni til hans.
En þetta er ekki svona einfalt.
Það er ekki hægt að afsala sér
ábyrgð. Við berum ábyrgð á
þeim sem við felum völdin. Við
beram ábyrgð á þeim sem við
veljum til starfa. Við verðum að
slökkva á þessum væmnu sjón-
varpsseríum og taka atburðarás-
ina í eigin hendur. Við verðum að
kenna lukkuriddurunum að taflið
snýst ekki um völd þeirra og met-
orð - heldur snýst það um líf okk-
ar allra.
Halló eríu þarna ennþá?”
„Já,” sagði ég í símann.
„Skilurðu hvað ég er að reyna
að segja?”
„Ég held það.”
„Geturðu þá ekki sett það í
blaðið. Bara nafnlaust. Það
skiptir ekki máli hvað ég heiti. Ég
er bara venjulegur maður. En
það er kannski allt í lagi þótt
venjulegir menn láti í sér heyra af
og til. Eða finnst þér það ekki?”
„Jú,” sagði ég.
„Kristilegt blað, Þjóðviljinn,”
sagði hann. -Þráinn
Laugardagur 4. april 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 5