Þjóðviljinn - 04.04.1987, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 04.04.1987, Blaðsíða 9
Við opnun sýningarinnar f Galleri Suzanne Biderberg um síðustu helgi: til vinstri er Jan Voss, þýskur myndlistarmaður sem oft hefur dvalið hér á landi, en fremst er Hreinn á tali við dömu sem við þekkjum ekki. Hreinn sýnir í Amsterdam Nokkrir starfsmenn Þjóðvilj- ans voru í helgarferð í Amster- dam um síðustu helgi og létu sig ekki vanta þegar það fréttist að Hreinn Friðfinnsson myndlistar- maður væri að opna þar sýningu. Sýningin er í Gallerí Suzanne Bi- derberg í miðbænum, skammt frá ráðhúsinu, og sýnir Hreinn þar fá en vel unnin verk, sem njóta sín vel í þrem sölum gallerísins. Á sýningunni eru 4 veggmyndir unnar úr tré og 2 grafíkmyndir. Veggmyndirnar eru gerðar úr fleiri einingum sem eru festar á vegginn, og eru þær ýmist litaðar eða í náttúrlegum viðariit. Mynd- ir Hreins Friðfinnssonar verða ekki túlkaðar með orðum, en í þeim felst myndræn hugsun, sem byggir á hárfínni tilfinningu og þar sem afstaða formanna sín á milli myndar eina ljóðræna heild. Stundum minna þessi verk á eins konar galdrastafi, en önnur grafíkmyndin sem Hreinn sýnir er einmitt trérista með galdra- stöfum. Hreinn hefur haft mikið að gera undanfarið, og hefur hann sýnt bæði í Frakklandi og Sviss á þessum vetri fyrir utan sýninguna í Amsterdam. Fjöl- menni var við opnun sýningar- innar, og voru margir íslendingar meðal sýningargesta. -ólg. Ragnheiður í Norrænahúsinu í kjallara Norræna hússins hef- ur Ragnheiður Jónsdóttir hengt upp grafíkmyndir sínar, 27 að tölu, sem flestar eru unnar á síð- asta ári. Þetta eru allt ætingar, sem eru unnar á málmplötu og þrykktar á pappír. Sýningin skiptist í nokkrákafla eða megin- þemu, og stór hluti hennar ber vott um að Ragnheiður er að þró- ast frá þeim hlutbundnu og stundum hugmyndafræðilegu til- vísunum, sem áður einkenndu myndir hennar, yfir í óhlutbund- nara og frjálsara myndmál. Ragnheiður hefur áður sýnt að hún hefur graffktæknina fullkom- lega á valdi sínu og það kemur einnig glöggt fram á þessari sýn- ingu. Stundum finnst manni jafnvel að tæknileg fullkomnun myndanna verki truflandi, að orkan hafi farið í tæknina á kostn- að innihaidsins. „Veislumyndim- ar“ með afþrykktum diskum, göfflum og öðrum leifum veislu- borðsins verða að skrautflúri í tæknilegri úrvinnslu Ragnheiðar og ég á erfitt með að upplifa í myndum þessum annað en skreytigildið. Sama má réyndar segja um myndir þær sem hún hefur gert af fataleifum. Myndir þessar virka eins og röntgen- myndir, þar sem flibbar, líningar og hnappagöt verða yrkisefni í áferðarfallega grafík. En ég get ekki fundið að hún risti djúpt eða miðli mikilli reynslu. En þar sem Ragnheiður hverfur frá hinum hlutbundnu viðmíðunum verða myndir hennar sterkar í forminu og átakamiklar og bera vott um það að sjálf myndgerðin hefur veitt listaiconunni annað og mik- ilvægara viðnám en það sem feíst í tækninni einní saman. -ólg. Laugardagur 4. apríl 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 UTHLUTUN HOFUNDARLAUNA í LANDSBANKANUM ER MEÐ HEFÐBUNDNUM HÆTTI: KJÖRBÓKAREIGENDUR FENGU TÆPAR 69 MILLJÓNIR NÚ UM MÁNAÐAMÓTIN Kjörbókareigendur hafa gilda ástæöu til þess að vera ánægðir með uppáhaldsbókina. Nú um mánaðamótin fengu þeir greiddar tæpar 69 milljónir í uppbót á innstæður sínar fyrir síðustu 3mánuði vegna verðtryggingarákvæðis Kjörbókarinnar. Nafnvextir Kjörbókar eru 20% á ári. 1. þrep (16 mánuðir) 21,4% 2. þrep (24 mánuðir) 22% Ársávöxtun á Kjörbók miðað við fyrstu 3 mánuði ársins er 25% og enn hærri á þrepunum. Svo má ekki gleyma því að Kjörbókin er óbundin. Kjörbók Landsbankans er góð bók fyrir bjarta framtið. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.