Þjóðviljinn - 04.04.1987, Qupperneq 7
Umsjón:
Óiafur
Gíslason
Tjáning og tilraunir
Nóg að skoða í sýningarsölum borgarinnar
Ekkert láteráframboði ánýrri
myndlist í höfuðborginni. Um
þessa helgi opna að minnsta
kosti 6 sýningar, þar af þrjár
Veröld
eykur
umsvif sín
Bókaklúbburinn Veröld efnir
til ýmissa nýjunga í starfsemi
sinni. Ber þar hæst heimsókn óp-
erusöngkonunnar Renötu Scotto
á næstunni og rithöfundarins Isa-
ac Bashevis Singer í haust. Ren-
ata Scotto mun syngja í Háskóla-
bíói með undirleik Sinfóníu-
hljómsveitarinnar laugardaginn
11. apríl. Renata Scotto þykir
meðal fremstu sópransöngvara í
heiminum í dag. Singer mun hins
vegar koma fram á sérstakri bók-
menntakynningu Veraldar í
haust. Þá hyggst bókaklúbburinn
gangast fyrir listsýningum og
kynningum á listamönnum auk
þeirrar fjölbreyttu bókaútgáfu og
hljómplötuútgáfu, sem klúbbur-
inn hefur staðið að. Þá hefur
klúbburinn einnig veitt félögum
sínum afslátt af ýmis konar þjón-
ustu. Sjö bókaforlög standa að
bókaklúbbnum, en fram-
kvæmdastjóri er Kristín Björns-
dóttir.
-ólg.
að Kjarvalsstöðum. En þar
opna þau Sóley Eiríksdóttir,
Steinunn Þórarinsdóttirog
Bragi Ásgeirsson sýningar á
laugardag kl. 14.
Sóley Eiríksdóttir hefur sett
upp í anddyri Kjarvalsstaða
bráðfallega sýningu á skúlptúrum
úr steinleir. Skúlptúrar þessir
sýna okkur ýmsar kynjaverur er
taka á sig hin furðulegustu form,
þar sem húmor og hugmyndaflug
listakonunnar nýtur sín til fulls.
Þetta er fyrsta einkasýning Sól-
eyjar, og verður ekki annað sagt
en að hún sé listakonunni til mik-
ils sóma. Sóley lauk námi frá
MHÍ 1981 og hefur síðan tekið
þátt i samsýningum hér og er-
lendis. Skúlptúrar Sóleyjar eru
gerðir á þessu og síðasta ári, en
þá naut hún 6 mánaða starfslauna
frá ríkinu, sem greinilega hafa
skilað góðum árangri.
Steinunn Þórarinsdóttir leggur
undir sig allan austursal Kjar-
. valsstaða með skúlptúra sína og
veggmyndir, en hún notar bæði
jám, steinleir, gler og blý við
myndgerð sína. Á sýningunni em
26 verk, og er þetta stærsta sýning
sem Steinunn hefur haldið til
þessa. Steinunn er menntuð í
höggmyndalist frá Bretlandi og
Ítalíu, en hún kom heim frá námi
1980 og hefur síðan haldið 5
einkasýningar og tekið þátt í
fjölda samsýninga, auk þess sem
hún er nú formaður Mynd-
höggvarafélagsins. Flest verkin á
sýningunni em unnin á síðasta
ári, en þá naut Steinunn starfs-
I launa Reykjavíkurborgar.
I Steinunn heldur nú áfram að
1 þróa það persónulega myndmál,
sem hún hefur áður sýnt, og sýn-
ingin ber vott um mikið vald list-
Skúlptúr úr
steinleir eftir
Sóleyju
Eiríkisdóttur
akonunnar á viðfangsefninu.
Frístandandi skúlptúrar úr jámi
og blönduðu efni sýna leiftrandi
frjálsa teikningu í jáminu og
veggmyndir úr leir, sem sýna haf-
gúur, andlit og líkamsparta búa
yfir kynngimögnuðum krafti,
sem stafar ekki hvað síst af sjálfri
efnisáferðinni. Steinunn sýnir
einnig veggmyndir úr gleri, sem
hún hefur mótað með því að
bræða það yfir gipsmót. Glerm-
.yndimar verða því eins konar
slæður, sem gefa meira til kynna
en þær sýna, en em þó glærar í
gegn. Þessi tvíræðni gerir glerm-
yndimar áleitnar fyrir augað og
gefur þeim aðdráttarafl.
Sýning Steinunnar nýtur sín vel
í þessum stóra sal og er vottur um
þá fjölbreytni og endumýjun sem
nú á sér stað í íslenskri högg-
myndalist.
Bragi Ásgeirsson sýnir mikinn
fjölda málverka sem fylla allan
vestursal Kjarvalsstaða, og er
þetta 9. einkasýningin sem hann
hefur haldið. Flestar em mynd-
imar unnar á síðasta ári og bera '
vott um talsverða breytingu sem
nú virðist í gerjun í myndsköpun
hans. Bragi notar nú minna til-
búna aðskotahluti í myndum sín-
um og byggir ekki á relief-áferð
eins og áður. Hið hreina og hefð-
bundna olíumálverk virðist vera
að ná yfirhöndinni hjá Braga á
nýjan leik, og jafnvel bregður
fyrir expressíónískum tilraunum,
sem ýmist minna á Svavar
Guðnason eða formleysu-
málarana. í heild sinni er sýning-
in nokkuð sundurlaus eða brokk-
geng, og margar myndanna bera
það með sér að þær em hreinn
leikur eða tilraunir. Síst vildi ég
lasta slíkar tilraunir, en engu að
síður finnst mér sýningin í heild
líða fyrir stefnuleysi. Bragi virðist
hafa tekið upp hætti fuglsins, sem
hann málar gjaman, og syngja
með sínu nefi án þess að spyrja
kóng eða prest um stefnu eða
markmið, að syngja fyrir radd-
böndin og nefið ef ekki vill betur.
Slíkt kann að vera ágætur leikur
og veita nokkra fullnægju, en
söngfuglinn býður jafnframt upp
á það að valda þreytu og tórnl-
eikatilfinningu með sínu einhæfa
hjali, ef ekki er hugað að mar-
kvissari mótun og miðlun
reynslunnar.
Mímir
Himnesk
rotnun
„Af rotnun leggur himneska
angan“ heitir fyrirlestur um
raunsæi sem Halldór Guðmunds-
son bókmenntafræðingur og út-
gáfustjóri Máls og menningar
flytur í dag.
Fyrirlesturinn flyst á vegum
Mímis, félags stúdenta í íslensk-
um fræðum, tími: 14.00, staður:
stofa 101, Odda, hugvísindahúsi
háskólans.
Laugardagur 4. apríl 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7