Þjóðviljinn - 04.04.1987, Qupperneq 16
HEIMURINN
Pýskaland
Geislavirkur sunnudagur í Hessen
Plútóníumverksmiðjurnar helsta kosningamálið íHessen á sunnudag, en þar er líka kosið um
rauðgrœnt samstarf, framtíð Bonn-stjórnarinnar og stefnuátök í flokki krata
Þær fjórar milljónlr Hessen-
búa sem ganga að kjörborðinu
á sunnudag að velja sér fylkis-
þing skera fyrst og fremst úr
um hvort haldið skuli áfram
plútóníumvinnslu í verksmiðj-
unum í Hanau, sem urðu fyrri
fylkisstjórn að falli. En til úr-
slita í Hessen er horft með mik-
illi athygli annarri. Þær eru
fyrstar fimm fylkiskosninga á
árinu og aðstæður allar gera
að verkum að kosningarnar
geta gefið mikilvægar vís-
bendingar um framtíðarþróun
í vesturþýskri pólitík.
Hessen liggur í miðju landi, og
er fjármálamiðstöðin Frankfurt
þar stærst borga, aðrar Darm-
stadt, Kassel og fylkishöfuðborg-
in Wiesbaden. Hessen hefur frá
stríðslokum verið eitt af höfuð-
vígjum krataflokksins SPD, en í
síðustu fylkiskosningum náðu
þeir ekki meirihluta og tóku sam-
an við græningja í sögulegri sam-
steypustjóm, hinni fyrstu þessara
afla í þýsku fylkjunum.
Sú stjórn sprakk í febrúar þeg-
ar forsætisráðherrann Börner rak
hinn græna umhverfismálaráð-
herra Joschka Fischer úr stjórn-
Hans Krollmann; enn ein niðurlæging
SPD eða upphaf nýrrar sóknar?
inni vegna ágreinings um starfs-
leyfi fyrir plútóníumverksmiðju í
Hanau nálægt Frankfurt.
Stjómarslitin í Hessen vom á
sínum tíma áfall fyrir þær fylking-
ar innan græningja og krata sem
stefna að samstarfi þessara
flokka annarsstaðar og allra helst
um landstjórnina í Bonn, en
veður snemst skjótt í lofti. For-
sætisráðherrann Bömer, sem
telst til hægrikrata, var settur í
helgan stein, við forystunni er
tekinn Hans nokkur Krollman,
dPAiv
*IS\+
Innkaupastofnun rfkisins f.h. menntamálaráöuneytisins óskar eftir tilboðum (
að ganga frá hluta byggingar 7 á Landspítalalóð. Innanhússfrágangur, hlutar
4. og 5. haaðar ásamt stigahúsi f kjama á öllum hæðum ofl.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, gegn skilatryggingu
kr. 10.000.-
Tilboðum skal skila eigi sfðar en kl. 11.00 f.h. 28. aprfl n.k. og verða þau þá
opnuð f viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844
Forstöðumann
vantar að leikskóla Hvammstanga. Umsækjandi
jjarf að geta hafið störf 1. júní nk. Nánari upplýs-
ingar gefa forstöðumaður í síma 95-1343 og
sveitarstjóri í síma 95-1353.
Sveitarstjóri Hvammstangahrepps.
Byggingarfélag verkamanna
Reykjavík
Aðalfundur
félagsins verður haldinn í Domus Medica við Eg-
ilsgötu miðvikudaginn 8. apríl, kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
önnur mál
Félagsstjórnin.
Þökkum auðsýnda vináttu og samúð við fráfall Þóris Bergssonar
Björg Hermannsdóttir
Hjatti Þórisson Guðrún Björk Tómasdóttir ‘
Hermann Þórisson Rannveig Sigurðardóttir
Lilja Þórisdóttir Torfi Magnússon
Bergur Þórisson Sigríður Bergsdóttir Laufey Kristinsdóttir
Jón Bergsson Vilhelmína Jónsdóttir Beck og barnabörn Þórdís Pálsdóttir
Joschka Fischer; í tyrsta sinn rauð-
græn samstaða í kosningum
meö þeim afleiðingum að bæði
kratar og græningjar stefna á
samvinnu að unnum meirihluta á
sunnudag, og hafa sameinast
gegn plútóníumframleiðslunni.
Kratar benda að vísu óspart á
að það er ekki fylkisstjórnarinnar
einnar að leggja niður verksmiðj-
una í Hanau og hafna þeim sem
koma áttu í kjölfarið, heldur
þurfi til þess samþykki Bonn-
stjórnarinnar og sérstaklega um-
hverfísmálaráðherra hennar,
Walter Wallman.
Wallman þessi er reyndar for-
sætisráðherraefni kristilegra
demókrata, CDU, í Hessen, og
hefur tekið eindregna afstöðu
með plútóníumvinnslunni og
gegn rauðgrænu samstarfí.
Rautt og grænt
eða Bonnarmynstur
í Hessen takast á skýrar blokk-
ir, annarsvegar SPD og græningj-
ar, hinsvegar CDU og frjáls-
lyndir demókratar, FDP, og
segja skoðanakannanir blokkirn-
ar nú hnífjafnar að fylgi. í síðustu
fylkiskosningum ‘83 fékk SPD 46
prósent, CDU 40, FDP 7,5,
græningjar 6, en í landskosning-
unum í janúar var rauðgræna
blokkin í Hessen í minnihluta
með samtals 47,8 prósent.
Enginn þorir að spá um úrslitin
á sunnudag. Búast má við að
hvellurinn kringum stjórnarslitin
sé græningjum og krötum í óhag,
en stjórn þeirra hefur þó af ýmsu
að státa, og kannski fyrst og
fremst því að hrakspár hægri-
manna um stjórnarsamstarfið
gengu ekki eftir. Fyrirtæki hafa
ekki flúið fylkið og síður en svo
skapast það efnahagsöngþveiti
sem boðað var. Framleiðni hefur
haldist meiri en annarstaðar í
Sambandslýðveidinu, laun hærri,
atvinnuleysi hefur minnkað.
Nýmæli rauðgrænu stjórnar-
innar í Wiesbaden hafa notið
hylli. Græningjar hafa unnið sér
inn pólitísk prik fyrir velheppn-
aða orkuáætlun þarsem áhersla
er lögð á lítil orkuver, á aðra
orkumöguleika en olíu og kjam-
orku, og á að nýta umframorku.
Stjórnin hefur líka stutt við bakið
á smábændum, og rekið frjáls-
legri stefnu gagnvart innflytjend-
um en í öðrum fylkjum. Og kann-
anir sýna aukið fylgi græningja
Walter Wallmann; sigur styrkti Bonn-
stjórnina
undir forystu hins litríka Fisc-
hers.
Fylgi krata er allt í meiri óvissu.
Þeir töpuðu í landskosningunum
í janúar og hafa síðan deilt um
flokksforystu og flokksstefnu og
urðu þær deilur forsíðuefni um
allan heim þegar hinn virti
Brandt sagði af sér fyrir skömmu,
á versta tíma fyrir félaga sína í
Hessen.
Það hjálpar þó krötum að
íhaldsmenn eiga líka við vanda að
stríða. Kristilegir fóru flokka
verst útúr janúarkosningunum,
og síðan gekk á með langdregn-
um stjórnarmyndunarviðræðum í
Bonn þarsem ágreiningsmál
stjórnarflokkanna vom til sýnis
uppá hvern dag. Þá hafa skatta-'
hann sætt ámæli innanflokks og
utan fyrir að bjóða sig fram nú án
þess að segja af sér ráðherrastöð-
unni í Bonn. Raddir í CDU segja
að Wallmann muni engan veginn
staðnæmast við æðstu vegtyllur í
Wiesbaden, heldur yrði sigur í
Hessen aðeins áfangi að kanslar-
avirðingu í Bonn.
Tónninn gefinn
Plútóníum er heista kosning-
amálið, og það er í sjálfu sér mik-
ill sigur fyrir græningja sem þann-
ig hafa beint umræðunni í sinn
farveg. En kosningarnar í Hessen
gefa einnig tóninn um pólitíska
þróun í landinu öllu. Sigur
rauðgrænu fylkingarinnar og vel-
gengni slíkrar stjórnar í Wiesba-
den mundi til dæmis ýta mjög
undir Oskar Lafontaine, senni-
legt kanslaraefni SPD í næstu
landskosningum, og veita þessari
nýju gerð af vinstristjórn trúverð-
ugleik um landið allt.
Sigur CDU og FDP gæfi hins-
vegar Bonnstjórninni beggja
skauta byr og hlæði mjög rökum
að þeirri staðhæfingu hægriafl-
anna að SPD sé ekki lengur ár-
eiðanlegur kostur í vesturþýskum
stjórnmálum.
Og kosningarnar í Hessen gefa
einnig tóninn fyrir fernar tvísýnar
fylkiskosningar síðar á árinu. Um
miðjan maí er stjórn kristilegra í
Rínarlöndum í hættu og á sama
Kosningamál númer eitt; Plútóníumfabrikkan í Hanau
„ Kæru landar, hór talar Wallman um-
hverfismálaráðherra. Við vitum ekki
alveg ennþá hvað hefur komið fyrir,
en það er alls engin ástæða til ótta... “
Skopmynd af Walter Wallman úr
„Stern“.
breytingar Bonnstjórnarinnar
ekki vakið kristilegum vinsældir
nema í hópi efnamanna, og þótt
frambjóðandi þeirra í Hessen,
Walter Wallmann, njóti vin-
sælda, - hann var til skamms tíma
borgarstjóri í Frankfurt -, hefur
tíma reyna kratar í Hamborg að
tryggja veldi sitt. í september
verður sótt hart að íhaldsmeiri-
hluta í Slésvík og Holtsetalandi,
og einnig kosið í Bremen, þarsem
kratar ættu reyndar að vera
allvissir um rótgróin völd.
í þessum fylkiskosningum er
ekki einungis tekist á um heima-
stjórn. Hver fylkisstjórn skipar
fulltrúa sína í Sambandsráðið,
„Bundesrat“, sem er einskonar
yfírþing landsins alls, og getur
tafið verulega þingstuddar á-
kvarðanir Bonn-sjómarinnar og
jafnvel hafnað þeim.. Staðan í
því ráði er nú 23-18 stjórnarliðum
í vil, en skammtímatakmark SPD
er að hnekkja þeim meirihluta á
árinu. Til þess þurfa þeir að vinna
annaðhvort Rínarlönd eða
Slésvík-Holstein af íhaldinu, en
tap í Bremen, Hamborg eða
Hessen mundi setja krata með
öllu útaf laginu.
Úrslitin í Hessen á sunnudag
hafa því ýmis geislunaráhrif í
Vestur-Þýskalandi.
-m
16 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 4. apríl 1987