Þjóðviljinn - 06.06.1987, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 06.06.1987, Blaðsíða 3
tmÖRFRÉTTIR Sjómannafélag Reykjavíkur hefur lýst undrun sinni á afstöðu Verkamannasambandsins til út- flutnings á ferskum fiski. Bendir félagið á að 85% flotans séu nú í eigu fiskvinnslunnar og því hæg heimatökin fyrir þá aðila að breyta til, vilji þeir vinna meira úr aflanum innanlands. Hugmyndasamkeppni um nýja atvinnustarfsemi í sveit- um stendur nú yfir á vegum land- búnaðarsýningarinnar BÚ “87, sem verður opnuð síðar í sumar, og Framleiðnisjóðs landbúnað- arins. Veitt verða þrenn peninga- verðlaun; 1. verðlaun'150 þús. kr. Skilafrestur hugmynda er til 1. ágúst n.k. Stjórn Flugleiða samþykkti á hátíðarfundi sínum á Akureyri [ vikunni að færa Akur- eyrarbæ að gjöf útilistarverk til minningar um upphaf flugstarf- semi á íslandi en fyrsta íslenska flugfélagið, Flugfélag Akureyrar var stofnað fyrir réttum 50 árum. Áburðarverksmiðjan hefur gert nýjan rafmagns- kaupsamning við Landsvirkjun. Rafmagnsverðið fylgir ekki lengur verðinu til ÍSAL eins og áður, heldur verði á innfluttu ammoníaki á hverjum tíma. Þá lækkar lágmarksverð úr jafngildi 12.5 í 8.7 mill á kwst. og hámarksverð úr 22.3 í 18.5 mill. Nýi samningurinn gildir frá 1. jan- úar sl. til ársloka 1989. Bókasamband íslands fagnar stóraukinni bókaútgáfu á fyrri hluta þessa árs miðað við síðustu ár. Stóraukning hefur orðið á bókaútgáfu í kiljuformi og Bókasambandið telur að öflug vorbókaútgáfa verði lands- mönnum hvatning til aukinna bókakaupa og bóklesturs. FRETTIR Borgarstjórn Burt með nagladekk Páll Gíslason: Kostnaður vegna slits á malbiki afvöldum nagladekkja er 60 - 70 miljónir árlega. Samþykktað verja 1,1 miljón íáróðurgegn negldum dekkjum Oflug kynning gegn skaðsemi nagladekkja verður hafin í haust, og meðal annars er fyrir- hugað að gera stutta sjónvarps- mynd um cfnið. Þetta var sam- þykkt í borgarstjórn á flmmtu- dagskvöld, að frumkvæði Páls Gíslasonar, Sjálfstæðisflokki. Allir borgarfulitrúar voru til- lögunni sammála. Páll benti í framsögu sinni á að skemmdir á malbiki vegna nagla- Sjóminjasafni íslands við Vesturgötu 8 í Hafn- arfirði vex fiskur um hrygg með ári hverju. í dag kl. 14 verður opnuð sýning sem kölluð er Árabátaöldin og byggir hún áverki Lúðvíks Kristjánssonar íslenskirsjávar- hættir sem komið er út í fimm bindum. Á myndinni sést hluti af líkani hákarlaskipsins Ófeigs sem Helgi Vígfússon smíðaði. Það er á sýningunni ásamt fleiri skipslíkönum. Þau sem hafa borið hitann og þungann af uppsetningu sýningarinnar eru frá vinstri: Gyða Gunnarsdóttir, for- stöðumaður Sjóminjasafnsins, Glls Guðmundsson, rit- höfundur, formaður stjórnar safnsins, og Póll V. Bjarna- son arkitekt. dekkja næmu árlega um 50 - 60 miljónum króna, en tæp 70 pró- sent bfla í borginni eru með negldum dekkjum að vetrinum. Jafnframt væri allsendis óvíst að veruleg slysavörn væri að þeim í hálku. Hann taldi þó ekki rétt að fara leið V-Þjóðverja, sem hafa alfarið bannað notkun nagladek- kja. Heiga Jóhannsdóttir, Sjálf- stæðisflokki, benti á að á votu malbiki drægju naglar úr hemlun- argetu bifreiða og ykju því slysa- hættu. Hún taldi mögulegt að fækka nöglum í dekkjum, og draga þannig úr sliti af þeirra völdum. Hún varpaði fram þeirri hugmynd að ef til vill mætti stytta leyfilegan notkunartíma nagla- dekkja án þess endilega að banna notkun þeirra alfarið. „Framsóknarflokkurinn hefur áður flutt svipaða tillögu, og ekki annað að sjá en Sjálfstæðisflokk- urinn hafi tekið okkar tillögu upp,“ sagði Sigrún Magnúsdóttir frá Framsóknarflokki og lýsti stuðningi við tillöguna. Össur Skarphéðinsson benti auk þess á að nagladekkin ryfu yfirborð malbiksins, mynduðu rásir, og erlendar kannanir sýndu að þetta orsakaði slysahættu í rigningu. í Reykjavík væru rign- ingar tíðar, og því vafasamt að nagladekkin væru af hinu góða. Samþykkt var að verja 1,1 miljón króna í kynninguna. -•g- Stjórnstöðin Sverrir Haukur Gunnlaugsson skrifstofustjóri utanríkis- ráðuneytisins hefur óskað eftir að fá birtar eftirfarandi athuga- semdir vegna fréttar Þjóðviljans í gær um kostnað við byggingu ný- rrar stjórnstöðvar hersins á Kefla víkurflug vclli. 1. Kostnaður við nýja stjórn- stöð varnarliðsins samkvæmt ný- gerðum samningi við íslenska að- alverktaka er um 9 millj. dollara eða 360 millj. króna, ef miðað er við að gengi Bandaríkjadollars sé 40 ísl. kr. Þetta var haft eftir mér í Þjóðviljanum miðvikudaginn 3. júní s.l. og er rétt upphæð. í Þjóðviljanum 5. júní er sagt, að kostnaður samkvæmt áætlun Bandaríkjahers frá 1985 sé 660 millj. króna og að rangt hafi verið farið með staðreyndir af minni hálfu. Athygli Þjóðviljans skal vakin á því, að svipuð upphæð og blaðið tilgreinir var til umræðu í undirnefnd Bandaríkjaþings árið 1983. Sú upphæð var áætlaður kostnaður við bygginguna meðan ekki var búið að ganga frá hönnun hennar. Það er því með öllu útilokað fyrir Þjóðviljann að Hreinsibúnaður vegna efnavopna Athugasemdirfrá Sverri Hauki Gunnlaugssyni skrifstofustjóra utan ríkisráðuneytisins halda því fram, að það séu rang- færslur þegar gefin er upp upp- hæð um endanlegt samningsverð í dag samanborið við þá upphæð sem rædd var í undirnefnd Bandaríkjaþings, þegar málið var þar til umfjöllunar fyrir nokkrum árum. 2. Því er haldið fram í föstu- dagsútgáfu Þjóðviljans, að stjórnstöðin sé neðanjarðar. í viðtali við blaðamann Þjóðvilj- ans var lesinn kafli úr skýrslu utanríkisráðherra frá 1985 um stjórnstöðina, sem er svohijóð- andi: „Stiórnstöð. Áform eru fyrir hendi um byggingu styrktrar stjórnstöðvar í stað núverandi, sem er í járng- rindarhúsi með mjög ófull- kominni aðstöðu að öllu leyti. Staðhæft hefur verið að stjórns- töðinni yrði komið fyrir neðan- jarðar, hún væri gerð til að þola kjarnavopn. Hið rétta er, að hér er um að ræða tveggja hæða byggingu, gluggalausa, sem er hönnuð til að hýsa ýmsa stjórn- unarþætti, er verið hafa til staðar á Keflavíkurflugvelli frá því að varnarliðið kom fyrst til landsins. Endurnýjun stöðvarinnar hefur því ekki í för með sér neina eðlis- breytingu á þeirri stjórnunar- starfsemi, sem Bandaríkin reka til varnar íslandi og svæðunum umhverfis landið. Byggingin á að vera útbúin sérstökum hreinsi- búnaði vegna hugsanlegrar mengunar frá efnavopnum og á þannig að geta hýst starfsmenn þess í allt að eina viku. Slíkt er í samræmi við NATO-staðla, enda byggingin að miklu leyti greidd af mannvirkjasjóði Atlantshafs- bandalagsins úr þeim verkefna- flokki sjóðsins, sem greiðir kostnað við flugvelli og flugvall- armannvirki. Viss hætta er talin vera til staðar, að slík vopn kynnu að verða notuð, ef árásir yrðu gerðar á bækistöðvar Atlants- hafsbandalagsins. Því er ekki um neina sérstöðu að ræða hvað ís- Iand varðar í þessum efnum. Væntanlega yrði hafist handa um byggingu stöðvarinnar á næsta ári.“ Athugasemdir biaðamanns Iyfirheyrslum ijárlaganefndar fulltrúadeildar Bandaríkja- þings, yfir aðmírál Zobel vegna hernaðarframkvæmda Bandaríkjahers fyrir árið 1983, kemur fram að áætlaður kostn- aður við stjórnstöðina er 15,8 milijónir dollara, eða 632 miiljónir íslenskra króna, miðað við að gengi dollarans sé 40 kr. íslenskar. I kostnaðaráætlun yfir sömu stjórnstöð frá 1985 hefur þessi upphæð hækkað í 16,5 milljónir dollara, eða í 660 milijónir íslenskra króna. í yfirheyrslunum yfir aðmíráln- um segir Zobel orðrétt: „It is not quite underground, but it is well below the surrounding terrain. In order to protect it from blast. There is a lot involved in the bu- ilding and a lot of climatic control inside, because we are able to seal it off. All of those things contribute to the extra cost. It is a very hardened facility, very thick concrete walls, and that contri- butes, certainly to the cost of it.“ Stjómstöðin er semsagt ekki öll neðanjarðar samkvæmt full- yrðingu aðmírálsins en vel undir umhverfinu í kring. Hvernig er hægt að skilja þetta öðru vísi en að hún sé að stórum hluta niður- grafin. Hér virðist því stangast á full- yrðing bandarísks hershöfðingja og það sem kemur fram í skýrslu utanríkisráðherra árið 1985. Ályktunin um að hér sé um kjarnorkubirgi að ræða er dregin út frá notkuninni á orðinu blast, einnig er sagt að stöðin sé mjög styrkt og að veggir hennar séu mjög þykkir. Virðingarfyllst, SigurSur A. Fríðþjófsson. Keflavíkurganqan 6. júní 1987 Sjá auglýsingu bls. 3 Sunnudagsblaði Þjóðviljans

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.