Þjóðviljinn - 06.06.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjómnuiNN
Laugardaour 6. júnf l987 120. tölublað 52. örgangur
Kefla víkurgangan
Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
Leiðar-
vísir
göngu-
manna
Fjölbreytt dagskrá hjá
göngufólki. Rútuferðir í
gönguna íallan dag
í dag ganga allir friðelskandi
menn og herstöðvaandstæðingar
gegn kjarnorkuvopnum, her og
NATO. Keflavíkurgangan hefst
við aðalhlið Keflavíkurflugvallar
strax í morgunsárið meðan enn er
dögg á grasi, kl. 8.30. Þeir sem
ætla að vera með frá upphafl er
boðið að notfæra sér rútuferðir
suður á Völl, frá Reykjavík og
nágrannas veitarfélögum.
Fyrsta áning verður við Voga-
stapa kl. 10.45, þar sem Ægir Sig-
urðsson mun segja göngu-
mönnum frá því helsta sem ber
fyrir augu, meðan þeir drekka
morgunsopann sinn.
í Kúagerði verður áð um tvö-
leytið. Boðið verður upp á léttan
málsverð, súpu og brauð.
Leikhópurinn Hugleikur mun
skemmta viðstöddum, lesin
verða ljóð og göngufólk mun lið-
ka raddböndin fyrir lokaáfang-
ann niður Laugaveginn. Miðdeg-
iskaffið drekka menn við Straum
kl. 16. Þar mun Sigurður G.
Tómasson segja frá jarðfræði og
sögu næsta nágrennis. í Hafn-
arfjörð verður komið kl. 18.30 og
í Kópavog hálfum öðrum tíma
síðar. Á þessum stöðum verður
gerður stuttur stans og farið með
laust og bundið mál í flutningi
valinkunnra manna.
Lokaáfanginn er síðan Lækjar-
torg, en þar mun staðnæmst kl.
22. Á útifundinum í lok göngu
verður flutt ávarp og Bubbi
Morthens mun þenja raddböndin
af sinni alkunnu snild.
Þeir sem ekki eiga heiman-
gengt fyrr en líða tekur á dag geta
komið til móts við gönguna þótt
síðar verði. Rútuferðir verða til
móts við gönguna frá BSÍ í allan
dag. Nánari upplýsingar er hægt
að fá í síma 17966 og 623170.
-RK
Einhugur um friðlýsingu
Norrœna þingmannanefndin
lýkur störfum með ályktun um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd.
Alþýðuflokkur bað fundinn um aðfresta ályktuninni
Iþessari viku lauk síðasta fundi
norrænu þingmannanefndar-
innar sem um nokkurt skeið hef-
ur unnið að hugmyndinni um
kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd. Á fundinum var samþykkt
ályktun f 12 liðum þar sem lögð er
áhersla á að lýst verði yfir kjarn-
orkuvopnalausum Norður-
löndum. Alþýðuflokkurinn sendi
skeyti á fundinn þar sem lagt var
til að lokaályktun frá nefndinni
yrði frestað.
Að sögn Kristínar Halldórs-
dóttur, fulltrúa Kvennalistans í
nefndinni, þótti ekki fært að taka
tillit til óska Alþýðuflokksins, en
ályktunin er ætluð sem innlegg í
starf norrænu embættismanna-
nefndarinnar sem utanríkisráð-
herrar Norðurlandanna sam-
þykktu að stofna á fundi sínum á
Islandi í mars sl. Kristín sagði
að samstaða hefði verið um all-
flesta liði ályktunarinnar utan
þess fyrsta þar sem hún ásamt Jo-
hannes Dalsgaard frá Jafnaðar-
mannaflokknum í Færeyjum
gerðu athugasemdir við. Vildu
Kristín og Johannes að kveðið
væri sterkar að orði um að öll
Norðurlöndin yrðu aðilar að yfir-
lýsingunni, en ályktunin er orðuð
á þann veg að stuðningur við slíka
yfirlýsingu frá nefndinni er fyrir
hendi jafnvel þótt þátttaka allra
Norðurlandanna sé ekki fyrir
hendi. Andstaða utnaríkisráð-
herra íslands, Matthíasar Á.
Mathiesen, tafði á sínum tíma
verulega fyrir stofnun embætti-
smannanefndarinnar og óljóst
þykir um þá afstöðu sem vænta
má frá íslendingum í þessu máli.
í öðrum liðum tillögunnar er
m.a. lögð áhersla á það að ekki
verði leyfð umferð með kjarn-
orkuvopn um svæðið og að fengin
verði raunhæf trygging frá kjarn-
orkuveldunum um að þau virði
yfirlýsingunár Þá er gert ráð fyrir
því að þau lönd sem eiga aðild að
yfirlýsingunni skuldbindi sig til
þess að þjálfa ekki hermenn í
meðhöndlun kjarnavopna og
hemaði. Á fundinum var jafn-
framt mikið rætt um samnorrænt
eftirlit á svæðinu og í ályktuninni
er gert ráð fyrir samningum við
alþjóðleg samtök í þeim tilgangi.
Fyrir hönd íslands sátu í nefnd-
inni fulltrúar frá öllum þingflokk-
unum utan Sjálfstæðisflokks, en
alls áttu sæti í nefndinni fulltrúar
frá 47 flokkum á Norðurlöndun-
um.
-K.Ól.
Það var létt yfir borgarbúum í gær enda lék veðrið við hvern sinn fingur og ekki spillti spilamennska Stuðmanna á Lækjartorgi fyrir sumarskapinu. Mynd -Ari.
Varaflugvöllurinn
Gengiö út frá 3000 m braut
Starfshópurinn sem skoðar staðsetningu varaflugvallar telur3000 m.
braut lágmark. Jóhann H. Jónssonflugmálastjórn: A að duga fyrir
bœði herflugvélar og stærstu Jumboþotur
Sérstakur starfshópur sem
vinnur að tillögugerð um hvar
heppilegast sé að koma upp vara-
flugvelli fyrir millilandaflug hér-
lendis, gengur út frá þeirri megin-
forsendu að flugvöllurinn hafi
minnst 3000 metra braut og sé þar
með fær um að taka á móti her-
flugvélum sem stærstu jumboþot-
um.
Jóhann H. Jónsson skrifstofu-
stjóri Fiugmálastjórnar sem er
formaður starfshópsins sem vinn-
ur á vegum sérstakrar nefndar
samgönguráðuneytisins staðfesti
þetta í samtali við Þjóðviljann í
gær. Hann sagði að gengið væri út
frá því að varaflugvöllurinn gæti
tekið á móti öllum gerðum flug-
véla og stærstu millilandavélum.
Sérfróðir menn um flugmál
hafa bent á að ástæðulaust sé að
hafa flugbraut á varaflugvellinum
stærri en 2.300 metra til að hún
geti tekið á móti öllum íslenskum
vélum, enda ætti að miða slíkan
varaflugvöll við íslenskar þarfir.
Jóhann sagði í gær að það væri
mjög umdeilanlegt hvort slík
braut dygði fyrir fullhlaðnar DC-
8 vélar og því væri gengið út frá
3000 metra braut. Þá miðar
starfshópurinn við að reist verði
húsnæði undir tækjageymslu og
öryggistæki sem hægt verði að
breyta í flugstöð, í þeim tilfellum
sem farþegaflugvélar þurfa að
lenda á vellinum.
6 staðir eru undir sérstakri
smásjá hjá starfshópnum sem
mögulegir fyrir varaflugvöll,
Sauðárkrókur, Akureyri, Að-
aldalur, Egilsstaðir og Horna-
fjörður en starfshópurinn mun
skila endanlegu áliti um hvaða
staður sé heppilegastur í haust.
-Ig-
ísafjörður
Góð
þorskveiði
„Það er búið að vera ágætis
fískirí í vikutíma í þorskinum.
Við þurftum að koma inn vegna
þess að það bilaði hjá okkur spilið
eftir þrjá daga á veiðum og við
erum að landa 120 tonnum og fer
það allt í vinnslu hér í landi. Aðal-
veiðisvæðið er á Kögurgrunni,
austan við Djúpálinn og einnig í
Þverálnum,” sagði Guðbjartur
Ásgeirsson, skipstjóri á Guð-
björgu ÍS.
Sagði Guðbjartur þorskihn
vera mjög góðan og væri nóg af
honum og sumarið lofaði góðu.
Þeir ættu nóg eftir af þorskkvót-
anum þar sem þeir hefðu verið á
grálúðu að undanföru og fiskað
vel. grh