Þjóðviljinn - 06.06.1987, Qupperneq 4
_____________LEPARI _________
Pess vegna göngum við
Forystumenn flokkanna þriggja sem nú ætla sér að
klambra saman nýrri ríkisstjórn til að verða alveg eins og
gamla ríkisstjórnin hafa undanfarna daga andvarpað í fjöl-
miðlum yfir þeim stefnuáherslum sem eiga að vera ólíkar
milli þrihjólsflokkanna. Þeir hafa nefnt skattheimtu og líf-
eyrissjóði, fiskveiðikvóta og landbúnaðarvanda og húsn-
æðismál, og segir þó Moggi í leiðara að öllum sé Ijóst að á
milli flokkanna þriggja séu í rauninni engin ágreiningsmál.
Enda er hinn þríhliða menúett niðrá Lindargötu einkanlega
stiginn til að skera úr um ofurviðkvæmar sálarfiækjur
kringum stólinn við endann á fundarborði ríkisstjórnarinn-
ar. Fyrstu þættirnir í sjónleiknum eru aðeins settir upp til
undirbúnings þeim síðasta þegar prímadonnurnar fara að
bítast um hver þeirra skuli standa fremst á sviði.
Það er athyglisvert að um eitt virðist hin þríeina forysta
sammála. Svokölluð utanríkismál þarf ekki að ræða í
stjórnarmyndunarviðræðunum. Erlend herseta á Islandi
er þessum höfðingjum sjálfsagt mál, sífelld útþensla
þessa hers hringinn um landið skiptir þá litlu. Sú kjarnorku-
ógn sem að okkur steðjar veldur þeim engu angri.
Þrátt fyrir að meðal stuðningsmanna, félaga og jafnvel
kjörinna fulltrúa þessara flokka þriggja séu fjölmargir and-
stæðingar hersetu og hernaðarútþenslu ríkir þögnin ein
um þessi mál á fundum þeirra Jóns Baldvins. Þrátt fyrir að
um 90 prósent (slendinga viiji samstarf við aðrar norrænar
þjóðir um kjarnorkuvopnalaust svæði er ætlunin að vonar-
stjórn þríflokkanna haldi áfram að lúta forystu bandarískra
hershöfðingja og íslenskra minnihlutahauka í þeim efnum.
Um miðja næstu viku, þegar leiksýningin á Lindargötu-
nni ætti að vera farin að nálgast hástig, verður haldinn
annar höfðingjafundur í Reykjavík. Þá safnast hingað
fimmtán Nató-ráðherrar til að ráða ráðum sínum. Þarfara
menn í þeim skringilega vanda að þora ekki, geta ekki eða
vilja ekki hlíta þeirri kröfu meirihluta þjóða sinna að draga
úr vígbúnaði, að fjarlægjast, þótt ekki sé nema um hálft
skref, þann voða sem stafar af útrýmingarvopnum í Evr-
ópu, þótt höfuðandstæðingurinn i „ríki hins illa“ i austri hafi
hvað eftir annað boðist til samstarfs og jafnvel gert gamlar
tillögur Nató-veldanna að sínum.
Ráðherrarnir fimmtán sækja heim þann sextánda, ís-
lenska utanríkisráðherrann, en að fenginni reynslu vita
þeir að af honum þarf ekki að hafa áhyggjur. Þaðan koma
engar tillögur, engin rök, engin svör, - afstaða íslenska
utanríkisráðherrans er hverju sinni aðeins endurómur af
síðustu stefnumótun utanríkisráðuneytisins í Washington.
Þjóðviljinn og Alþýðublaðið hafa nú í vikunni sagt fréttir
af sérkennilegum íbúðarbyggingum á Keflavíkurflugvelli. í
október í fyrra var af einhverjum ástæðum samþykkt í
herstöðinni í Norfolk vestur í Ameríku að byggja á Keflavík-
urflugvelli 250 nýjar íbúðir, byggð sem ein og sér jafngildir
meðalstóru íslensku sjávarplássi. Fram kemur að kostn-
aður við þessar byggingarframkvæmdir er áætlaður um
tveir milljarðar króna, eða um átta milljónir á hverja íbúð.
Svipaðar íbúðir í Reykjavík kosta hinsvegar um þrjár og
hálfa milljón stykkið, og sú spurning vaknar hvað verður
um mismuninn. Stór hluti svársins er opinbert leyndarmál
á allra vitorði. Voldugum yfirstéttarmönnum á Islandi er
greidd leiga af herstöðvarlandinu með ýmsum beinum og
óbeinum hætti.
Til dæmis er áætlað að hönnunarkostnaður af íbúðun-
um 250 nemi um 60 milljónum króna, og talið er að það fé
muni renna í vasa íslensks arkítekts, sem af einskærri
tilviljun er skólabróðir og samstarfsmaður húsameistara
ríkisins, sem af einskærri tilviljun er sonur stjórnarfor-
manns í hermangsfyrirtækinu íslenskum aðalverktökum.
Forstjóri þess fyrirtækis er svo af einskærri tilviljun mágur
sérfræðings varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
um byggingar og skipulagsmál á hersvæðinu.
Stjórnarmyndunarviðræður herstöðvaflokkanna,
Reykjavíkurfundur Natóráðherranna, bullandi hermang
yfirstéttarinnar, - allt er þetta ofarlega í huga þeirra þús-
unda sem í dag ganga frá herstöðinni á Miðnesheiði niðrá
Lækjartorg í Reykjavík. Keflavíkurgangan á sér nægar
forsendur í íslenskum samtíma hér og nú. En við göngum
einnig gegn áþján styrjalda, við göngum gegn útrýmingar-
hættu voðavopnanna, gegn hinu myrka valdi samtengdra
hernaðar- og iðnaðarhagsmuna. Við göngum þó fyrst og
fremst undir merki íslenskrar reisnar, fyrir sjálfstæði þjóð-
arinnar og fyrir framhaldi þeirrar menningar sem hún á sér
dýrasta eign. Við göngum vegna þess að við vitum að
Snorri Hjartarson hefur rétt fyrir sér: „frelsið er falið þar/
sem fólkið berst“. Þessvegna göngum við.
-m
LJOSOPIÐ
Mynd: Ari
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandl: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Rltatjórar: Ámi Bergmann, Þráinn Bertelsson, Össur
Skarphóðinsson.
Fréttaatjórl: Lúövík Geirsson.
Blaöamenn: Garöar Guðjónsson, Guömundur Rúnar Heiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörfeifurSveinbjðmsson, IngunnÁsdísardóttir,
Kristln Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiösson
(Iþróttir), Magnús H. Glslason, Mörður Árnason, ÓlafurGíslason,
Ragnar Kartsson, Siguröur Á. Friöþjófsson, Stefán Ásgrfmsson, Vil-
borg Davlösdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrlta- og prófarkalaatur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
yóamyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Utlttataiknarar: SœvarGuöbjömsson, Garöar Sigvaldason.
Framkvæmdaatjórl: Guðrún Guömundsdóttir.
Skrtf stofuatjóri: Jóhannes Haröarson.
Skrlfstofa: Guðrún Guövaröardóttir, Guðbergur Þorvaldsson.
AuglýslngastjórhSigriður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýalngar: Baldur Jónasson, Olga Clausen, Guömunda Kristins-
dóttir.
Sfmvarala: Katrin Anna Lund, Sigrföur Kristjánsdóttir.
Húamóölr: Sofffa Björgúlfsdóttir.
Bflatjórl: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbrelðalu-ogafgralöslustjórhHörðurOddfrföarson.
Afgrelösla: Bára Siguröardóttir, Kristfn Pétursdóttir.
lnnhalmtumann:BrynjólfurVilhjálmsson,ÓlafurBjömsson
Útkeyrsla, afgreiösla, rltatjórn:
Slðumúla 6, Reykjavfk, afml 681333.
Auglýslngar: Sföumúla 6, sfmar 681331 og 681310.
Umbrot og setnlng: Prentsmlðja Þjóövlljans hf.
Prentun: Blaöaprent hf.
Vorö I lausasölu: 55 kr.
Helgarblöö: 60 kr.
Áakrlftarverö á mánuöi: 550 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. Júní 1987