Þjóðviljinn - 13.06.1987, Síða 4
LEIÐARI
Nýjar leiðir - næstu skref
Sjálfstæðisflokkurinn á nú við erfiðan innri vanda
að glíma. Það kemur fram í vaxandi óeiningu innan
flokksins. Þannig er nú komið á daginn að sjálfur
formaðurinn virðist ekki hafa í eigin röðum þann
stuðning sem æskilegur væri fyrir mann, sem gerir
tilkall til embættis forsætisráðherra.
Dæmi um það er sú sérkennilega staða, að
innan Sjálfstæðisflokksins eru forystumenn af tölu-
verðum þunga farnir að vinna gegn Þorsteini
Pálssyni. Þannig er sagan frá 1980 farin að endur-
taka sig, en þá unnu þungavigtarmenn í flokknum
leynt og Ijóst gegn því að Geir Hallgrímsson yrði
forsætisráðherra.
Vegna þessa innra ástands er Ijóst, að í flokkn-
um geta menn ekki komið sér saman um lausnir á
þeim vanda sem við þjóðarbúinu blasir. Flokkurinn
kemur fram af vaxandi ábyrgðarleysi - formaður-
inn er pólitískt ónýtur.
Það er einföld staðreynd, að viðskilnaður Þor-
steins Pálssonar við ríkisfjármálin er mjög slæmur.
Hallinn á ríkissjóði er á bilinu 3 - 5 miljarðar, og það
er augljóst að fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar - hver
sem hún verður - verður að moka flórinn eftir frá-
farandi fjármálaráðherra, sem enn er formaður
Sjálfstæðisflokksins. Róttækar aðgerðir til umtals-
verðrar tekjuöflunar hljóta að verða morgunverk
næstu ríkisstjórnar.
Andsþænis þessari staðreynd fer hins vegar for-
manni Sjálfstæðisflokksins einsog ástralska
strútnum: hann stingur höfðinu í sandinn og neitar
að viðurkenna vandann.
í viðræðum um myndun nýrrar stjórnar hefur
komið skýrt fram, að Þorsteinn Pálsson og Sjálf-
stæðisflokkurinn hafa ekki pólitískan kjark til að
grípa til nauðsynlegra ráðstafana til tekjuöflunar.
Þeir vilja bersýnilega frekar láta þjóðarbúið taka á
sig þá óeðilegu þenslu sem óhjákvæmilega siglir í
kjölfar halla af þeirri stærðargráðu sem Þorsteinn
skilur eftir.
Um það er aðeins eitt að segja: Flokkur, sem
getur einungis efnt til útgjalda en ekki aflað tekna,
er flokkur án ábyrgðar. Þannig flokkur dæmir sig
sjálfur úr leik.
Geti Sjálfstæðisflokkurinn ekki komið sér saman
um tekjuöflunarleiðir sem duga til að greiða niður
hinn hrikalega viðskilnað Þorsteins Pálssonar við
ríkissjóð, hljóta viðræðuaðilarnir að leita annarra
leiða til myndunar stjórnar.
Næsta skref þeirra hlyti því að verða tilraun til
myndunar ríkisstjórnar A-flokkanna, Framsóknar-
flokks og Kvennalista.
Slíkri ríkisstjórn gætu misvitrir menn vafalaust
fundið ýmislegt til foráttu. Hún yrði eigi að síður
líkleg til að ná saman um aðgerðir sem eru
nauðsynlegar til að draga úr þeirri óeðlilegu þenslu
efnahagslífsins, sem stafar af hallarekstri Þor-
steins Pálssonar á ríkissjóði. Það verður ekki gert
öðru vísi en með álögum á breiðu bökin, - fyrir-
tækin og stóreignafólkið. Til þess hefur hins vegar
Sjálfstæðisflokkurinn ekki pólitískt þrek.
Jafnframt ríkir í þessum flokkum fjórum skilning-
ur á þeim vandamálum, sem ný, ábyrg ríkisstjórn
þyrfti að snúast gegn hið fyrsta.
Þannig eru flokkarnir sammála um, að nauðsyn-
legt sé að bæta kjör aldraðra og öryrkja verulega
umfram það sem nú er.
Þeir eru sammála um að nauðsynlegt sé að gera
sérstakt átak í kjarabótum handa hinum lægst
launuðu, - og má í því sambandi minna á hugmynd
Þrastar Ólafssonar um sérstaka afkomutryggingu.
Þeir eru sammála um að nauðsyn þess, að átak
verði gert til að gera sérlegar úrbætur á kjörum
kvenna og aðstöðu barna og unglinga.
Þeir eru sammála um að stytting vinnutíma sé
ein brýnasta og tímabærasta kjarabótin fyrir launa-
fólk í dag.
Þeir virðast líka vera sammála um, að ísland eigi
að vera aðili að kjarnorkuvopnalausum Norður-
löndum.
Það er vert að árétta, að Kvennalistinn hefur sett
fram kröfu um lögbindingu lágmarkslauna sem
skilyrði fyrir þátttöku í ríkisstjórn. Sú krafa hefur
mætt andstöðu, en hins vegar er fullur vilji til að
bæta verulega kjör hinna verst settu. Það kunna að
vera aðrar leiðir verðar skoðunar en einungis bein
lögbinding ríkisins.
I Ijósi ofangreindra atriða hlýtur þessi kostur að
skoðast mjög grannt af flokkunum fjórum, fari svo
að slitni upp úr viðræðunum sem nú eru í gangi.
Fyrir núverandi viðræðuaðila hlýtur hins vegar
að vera álitamál, hvort það svari kostnaði að setjast
í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum við núverandi
heilsufar. Hversu lengi er slík stjórn líkleg til að
sitja? Þorsteinn Pálsson veikist með degi hverjum,
og innan þingflokksins er komin upp opinber and-
staða við hann. Það er ekki ólíklegt, að boðað verði
með litlum fyrirvara til landsfundar, þar sem skipt
verður um forystu og mótuð ný stefna, sem miðar
að því að draga Borgaraflokkinn innfyrir borðstokk-
inn aftur.
Fyrir Alþýðuflokkinn sérstaklega hlýtur að vera
áhorfsmál, hvort það borgi sig að láta reyta af sér
hvert málið á fætur öðru til þes )ins að komast í
ráðherrastóla með flokki sem er tæpast stjórn-
tækur í dag. _ös
» a i I LJ IÓS o p 1 1 1 Ð Mynd: Sigurður Mar
uiu
iUJ
þlÓÐVILIINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fréttaatjórl: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjÖrnsson, IngunnÁsdísardóttir,
Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson
(íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason,
RagnarKarlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, StefánÁsgrímsson, Vil-
borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrlta- og prófarfcalestur: Eltas Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljóamyndarar: Einar ólason, Siguröur Mar Halldórsson.
Útltt8teiknarar: Sœvar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvœmdastjórl: Guörún Guðmundsdóttir.
Skrlfatofuatjórl: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson.
Auglýaingaatjórl: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Baldur Jónasson, Olga Clausen, Guðmunda Kristins-
dóttir.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, SigríðurKristjánsdóttir.
Húamóðlr: Soffía Björgúlfsdóttir.
Bllatjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Utbrolðslu- og afgrolðslustjórl: HörðurOddfríðarson.
Afgrelðala: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson.
Utkeyrsla, afgrelðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavfk, aími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 68" 331 og 681310.
Umbrotog setnlng: Prentamiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 55 kr.
Helgarblöð:60kr.
Áskrlftarverð á mánuði: 550 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. júnf 1987