Þjóðviljinn - 24.06.1987, Síða 2
FRETTIR
Stjórnarmyndunarannáll
Hægagangur í þríhjólinu
Tveir mánuðirfrá kosningum. Jón Baldvin haftumboðið Í20 daga.
Enn getur brugðist til beggja vona með þríhjólið
Þorsteinn Pálsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrimur Hermannsson heilsast að japönskum sið áður en farið er
að bítast um ráðherrastóla, aðgerðir í efnahagsmálum og breytingar á stjórnkerfinu.
■SPURNINGINhh
Áttiröu von á aö stjórnar-
myndun myndi taka svo
langan tíma?
Benedikt Sigurðsson,
lögfræðingur:
Nei, ég átti nú ekki von á því. Mér
hefði fundist eðlilegt að gefa
þeim í hæsta lagi mánuð til þess
að koma þessu saman. Ég á nú
samt von á að þessi tilraun sem
nú er í gangi takist að lokum.
Vaigerður Kristjánsdóttir,
verkakona:
Nei, ég hélt að þetta þyrfti ekki að
taka svona langan tíma. Ég á
ekki von á að það verði stjórn úr
þessum viðræðum sem nú
standa yfir, enda líst mér ekkert á
jetta stjórnarmynstur.
Guðmundur Sigurjónsson,
ellilífeyrisþegi:
Pað er náttúrlega alltaf erfiðara
að ná samkomulagi þegar fleiri
koma saman. En ég átti ekki von
á að þessir flokkar færu saman í
viðræður. Þetta tekst þó sjálfsagt
úr þessu.
Ottó Hafiiðason,
skrifstofumaður:
Já, alveg eins og ég er frekar á
því að þessi tilraun muni takast,
enda væri það langbesti kostur-
inn.
Vilborg Guðmundsdóttir,
sjúkraþjálfari:
Ég átti nú bara alls ekki von á að
það tækist að mynda stjórn, bjóst
jafnvel við kosningum aftur í
haust. En ef marka má fréttir virð-
ist þessi tilraun ætla að takast
þótt mér lítist ekki nema mátu-
lega á þetta stjórnarmynstur.
Ymsum er farið að leiðast
stjórnarmyndunarþófið og
telja tíma tii kominn að Jón Bald-
vin myndi stjórn eða skili umboð-
inu af sér svo hægt sé að kanna
aðra möguleika en þá sem þrí-
hjólið hefur verið að þrátta um að
undanförnu. Nú eru liðnir tveir
mánuðir frá kosningum og enn er
óvíst hvort af stjórnarmyndun
verður í þessari lotu.
Þetta er þó ekkert einsdæmi að
svo langan tíma taki að mynda
stjórn. 1979 liðu 66 dagar frá
kosningum þar til ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsens var mynd-
uð. Þá hafði Geir Hallgrímsson
haft umboðið í 38 daga en þegar
hann loksins skilaði af sér tók það
Gunnar fjóra daga að mynda
ríkisstjórnina.
Árið 1974 liðu 58 dagar þar til
samstjórn framsóknar og íhalds
var mynduð. t>á hafði Ólafur Jó-
hannesson haft stjórnarmyndun-
arumboðið í 34 daga. 1978 liðu 45
dagar frá kosningum og þar til
vinstri stjórnin leit dagsins ljós
eftir að Ólafur Jóhannesson hafði
haft umboðið í sjö daga. 1983 liðu
32 dagar frá kosningum og þar til
ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar hóf kjaraskerðingar
sínar.
Kvennaviðreisn
eða þríhjól
En rifjum upp annál þessara
stjórnarmyndunarviðræðna sem
nú eru í gangi. Það var kosið 25.
apríl. Daginn eftir var ljóst að sig-
urvegarar kosninganna voru
Borgaraflokkurinn sem fékk 7
þingmenn kjörna, Kvennalist-
inn, sem fékk 6 þingmenn og
Stefán Valgeirsson, sem fékk
mjög góða kosningu á Norður-
landi - eystra. Sjálfstæðisflokkur-
inn beið mikið afhroð og fékk
eingöngu 18 þingmenn, sömu-
leiðis tapaði Alþýðubandalagið í
kosningunum og fékk 8 þing-
menn. Kratar náðu sameigin-
legum þingmannafjölda Alþýðu-
flokks og BJ eða 10 þing-
mönnum. Steingrímur vann per-
sónulegan sigur á Reykjanesi, en
Framsókn hélt annars í horfinu
og fékk 13 þingmenn.
Strax var farið að tala um tvö
hugsanleg stjórnarmynstur, Al-
þýðuflokk, Sjálfstæðisflokk með
annaðhvort Kvennalista eða
Framsóknarflokki. 28- aprfl biðst
Steingrímur lausnar en stjórnin
situr áfram sem starfsstjórn.
Fyrstu vikuna eru í gangi óform-
legar viðræður á milli flokkanna
og er það einkum Jón Baldvin
sem er iðinn við kolann. Það
kemur í ljós samstarfsvilji á milli
íhalds og krata og vilja þeir kanna
hug kvenna, en Kvennalistinn fer
dult með sínar skoðanir.
5. maí virðast línur örlítið farn-
ar að skýrast. Jón Baldvin útilok-
ar ekki lengur erkióvininn Fram-
sókn og Albert Guðmundsson
lýsir því yfir að borgarar verði í
stjórnarandstöðu. Konurnar
segjast leggja málefnin til grund-
vallar, Svavar telur að sigurveg-
arar kosninganna, miðjuflokk-
arnir eigi að mynda ríkisstjórn og
Þorsteinn vill ekkert varahjól
undir fráfarandi stjórn.
Endasleppt
hjá Steingrími
og Þorsteini
6. maí kemur svo greinargerð
frá Þjóðhagsstofnun þar sem tal-
að er um að viðskiptahallinn
muni aukast á árinu og að verð-
bólgan sé að sleppa úr böndum.
7. og 8. maí kallar Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, for-
menn flokkanna til sín og í fram-
haldi af því felur hún Steingrími
Hermannssyni umboð til stjórn-
armyndunar 10. maí.
Steingrímur hélt umboðinu
bara í fjóra daga og eftir að ljóst
var að Þorsteinn Pálsson var ekki
til í þríhliða viðræður við Fram-
sókn og Kvennalista skilaði
Steingrímur umboðinu 13. maí.
14. maí veitir forsetinn Þor-
steini Pálssyni umboðið. Hann
byrjar á því að kanna grundvöll-
inn fyrir þríhjólið með því að
ræða við Jón Baldvin og
Steingrím í einrúmi. Síðan ræðir
Þorsteinn við formenn annarra
flokka og 19. og 20. maí ræðir
hann við fulltrúa Kvennalistans..
22. maí hefjast svo formlegar við-
ræðurSjálfstæðisflokks, Kvenna-
lista og Alþýðuflokks. Kvenna-
listinn setur lágmarkslaunin á
oddinn og eftir að Björn Björns-
son, hagfræðingur ASÍ og Vil-
hjálmur Egilsson, fyrrverandi
hagfræðingur VSÍ hafa skilað af
sér Mesapódamíuskýrslunni
slitnar upp úr viðræðunum. 29.
maí skilar svo Þorsteinn umboð-
inu til forseta.
Jón Baldvin reynir
1. júní notar Jón Baldvin til að
leita hófanna hjá Kvennalista og
Alþýðubandalagi um samstjórn
annars þessara flokka með kröt-
um og íhaldi. Undirtektir eru
dræmar. 2. júní fær svo Jón Bald-
vin stjórnarmyndunarumboð og
4. júní hefjast viðræður Alþýðu-
flokks, Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks.
Strax í upphafi viðræðnanna er
ljóst að helsta ágreiningsmálið í
viðræðunum verða fyrstu aðgerð-
ir í efnahagsmálum. Þorsteinn
neitar að fallast á að viðskilnaður
sinn við ríkissjóð sé slæmur og
Sjálfstæðisflokkurinn er á móti
aukinni skattheimtu, einkum þó
skattheimtu á stóreignamenn og
fyrirtæki. Þá kemur upp á yfir-
borðið í flokknum óánægjan með
hvernig Þorsteinn stendur að við-
ræðunum og þeir Sverrir Her-
mannsson og Matthías Bjarnason
gefa stórorðar yfirlýsingar sem
þeir éta svo aftur ofan í sig eftir að
hafa verið skammaðir á þing-
flokksfundi.
Jón Baldvin gefur stórar yfir-
lýsingar á blaðamannafundum og
þegar líður að miðjum mánuði
þykist hann vongóður um að
stjórn sé að myndast. Segir hann
að samkomulag hafi náðst um
fyrstu aðgerðir, en þau orð
reynast síðar marklaus. Menn
búast jafnvel við nýrri stjórn fyrir
þjóðhátíð.
Sú varð þó ekki raunin og
Steingrímur flytur ávarp forsætis-
ráðherra. 18. júníseturÞorsteinn
Pálsson viðræðurnar í hnút með
tillögu sinni um uppstokkun
ráðuneyta og ljóst er að þær til-
lögur muni tefja viðræðurnar að
minnsta kosti um viku. Þá setti
skýrsla OECD um horfur í efna-
hagsmálum íslendinga strik í
reikninginn og ljóst var að grípa
þurfti til mun meiri aðgerða en
Þorsteinn hafði látið í veðri vaka.
í þriðja lagi var von á sænsku
konungshjónunum og búið að
prenta boðskort.
Á síðustu dögum hefur svo
komið upp pirringur víða í þess-
um þrem flokkum með viðræð-
urnar. Kratar eru hundóánægðir
með að hafa þurft að kokgleypa
allt, en munu þótt sættast á þrí-
hjólið fái Jón Baldvin að sitja við
stýrið. Framsókn heimtar að
Steingrímur verði forsætisráð-
herra en íhaldinu virðist standa á
sama hver fái þann stól, þó Þor-
steinn renni eflaust hýru auga til
hans. íhaldið vill fá sem flesta
ráðherra, tala þeir um fjóra með
fimm ráðuneyti, þannig hyggjast
þeir geta sætt sem flesta í flokkn-
um. Kratar og Framsókn eru
ekkert yfir sig hrifnir með stóla-
græðgi íhaldsins og vilja að allir
hafi jafn marga ráðherra og tala
um þrisvar sinnum þrjá. Þannig
standa málin í grófum dráttum er
þessi orð eru rituð og virðist því
geta brugðist til beggja vona enn
með hvort þríhjólið verður til um
næstu helgi. -Sáf
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 24. júní 1987