Þjóðviljinn - 24.06.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVIUINNl
Miðvikudagur 24. júní 1987 133. tölublað 52. árgangur
rt'Tr-i#-;...iff-
LEON
AÐ FARSCm
SKÓLACÖNGU
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDSHF.
Fellaskóli
Asbesb'ð
burt
Borgarráð ákvað í gær að hei-
mila fímm milljóna króna auka-
fjárveitingu í það verkefni að
Qarlægja asbestklæðningu úr
lofti Fellaskóla.
Klæðingin verður fjarlægð í
sumar, þannig að börn og kenn-
arar ættu að geta andað léttar
þegar þau mæta í skólann í haust.
Heilbrigðiseftirlitið hefur lagt
hart að borgaryfirvöldum um all
langt skeið að fjarlægja þessa
klæðningu, enda er talið að tals-
verð mengunarhætta stafi af
henni. -gg
Hrossarœkt
Sæðingar á Hvanneyri
Gunnar Örn Guðmundsson dýralœknir á Hvanneyri gerir tilraunir með
hrossasœðingar annað áriðíröð. Tók sœði úr Ófeig 818 og Ófeig 882
Enn sem komið er er þetta ein-
ungis á tilraunastigi. Ég sæddi
20-30 merar nú í júní og vonast til
þess að geta fengið niðurstöður
þeirra tilrauna innan skamms. Ég
reyndi þetta lítillega í fyrra, en
það gafst ekki nógu vel, sagði,
sagði Gunnar Örn Guðmundsson
héraðsdýralæknir á Hvanneyri í
samtali við Þjóðviljann í gær, en
Gunnar gerði nú í júnímánuði til-
raunir með hrossasæðingar.
Ekki hafa áður verið gerðar til-
raunir með hrossasæðingar á ís-
landi, ef frá er talin tilraun Gunn-
ars fyrir ári síðan. Að þessu sinni
tók hann sæði úr stóðhestunum
Ófeigi 818 frá Hvanneyri og Ó-
feigi 882 frá Flugumýri og sæddi
20-30 merar úr Borgarfirði og af
Suðurlandi. Bændaskólinn á
Hvanneyri lagði til alla aðstöðu.
Tilraununum lauk í fyrradag.
Að sögn Gunnars er það mun
meiri erfiðleikum háð að sæða
merar en ýmis önnur dýr. í fyrsta
lagi er erfiðara að geyma sæði úr
stóðhestum og í öðru lagi er erfið-
ara að átta sig á hvenær merar
hafa egglos.
Erlendis hafa verið gerðar til-
raunir með að djúpfrysta sæði úr
stóðhestum með þolanlegum ár-
angri og sagði Gunnar ekki úti-
lokað að það yrði næsta skrefið í
þessum efnum hérlendis.
Aðspurður um gildi þessara til-
rauna sagði Gunnar að með sæð-
ingum væri hægt að nýta bestu
stóðhestana betur, auk þess sem
þær gætu veitt afskekktari hér-
uðum betri aðgang að bestu
stóðhestunum.
-gg
Bjarni Thors framkvæmdastjóri hins nýja fiskmarkaðs og starfsmaður hans leiðbeina viðskiptavini á fyrsta uppboðinu í Reykjavík. Mynd Sig,
Fiskmarkaður
Faxa
markaður
opnaði
í gæmr
Fiskmarkaður var formlega
opnaður í Reykjavík í gær og
voru boðin upp 60 tonn af þorski
úr togaranum Sléttanesi frá Þing-
eyri. Þá kom bóndi akandi úr Dal-
asýslunni með um 50 kg af silungi
sem boðinn var upp.
Faxamarkaðurinn er nafn hins
nýja fyrirtækis sem er hlutafélag
fiskverkenda og fiskseljenda á
SV-Iandi. Að sögn Ágústs Ein-
arssonar formanns hlutafélagsins
eru undirtektirnar mjög góðar.
„Ég hef þá trú að þetta eigi eftir
að breiðast frekar út um landið í
einni eða annarri mynd. Menn
munu koma sér upp fjarskipta-
markaði, það er bjóða í fisk í
gegnum fjarskiptakerfið," sagði
Ágúst að lokum.
-gsv
Hvalveiðiráðið
íslendingar
hóta úrsögn
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, ítrckaði í gær,
að sterklega kæmi til greina að
íslendingar segðu sig úr Alþjóða
hvalveiðiráðinu, ef tillaga Banda-
ríkjamanna um að vísindaráðið
þurfí að fjalla um vísindahval-
veiðar, verður samþykkt.
Halldór vísar því til næstu ríkis-
stjórnar að taka ákvörðun um
slíkt, en hvalfriðunarsinnar
benda á að Halldór hafi margoft
áður hótað þessu.
í dag munu umræður um til-
lögu Bandaríkjanna hefjast aftur
og koma til atkvæðagreiðslu ann-
aðhvort í dag eða á morgun.
Mjög líklegt er talið að tillaga
Bandaríkjamanna verði sam-
þykkt enda eingöngu fimm þjóðir
lýst stuðningi við málflutning ís-
lendinga.
-Sáf
Fjórhjól
Leigunum fjölgar stöðugt
Eitthjólkostar 110-230þúsundkr. Leiguverð er um 2000 kr. ífjórar klst.
Það hefur vakið athygli margra
að fjórhjólaleigurnar eru að
spretta upp og sffellt má sjá fleiri
auglýsingar í blöðum um dá-
semdir þessara tækja. Leigurnar
spretta upp vegna þcss að fjórhjól
eru dýr tæki. Þau kosta frá 110-
230 þúsund krónur, allt eftir vél-
arstærð, drifmöguleikum og öðr-
um slíkum mismunandi eigin-
leikum.
Samkvæmt upplýsingum frá
fjórhjólaleigum er leiguverð
hjólanna nokkuð svipað frá einni
leigu til annarrar. Á einni kostar
hjól í 2 klst. eitt þúsund kr. með-
an önnur leigir þér hjólið á 1800
kr. í 4 klst. Leigurnar bjóða líka
kerrur undir hjólin og sumar taka
leigugjald fyrir þær líka en aðrar
ekki. Á einni leigu eru frá 4 og
upp í 10 hjól. Mismunandi
reglur virðast gilda hjá þessum
leigum um það hverjir geti tekið
hjól á leigu. Tuttugu ára aldurs-
takmark og bílpróf er skilyrði hjá
einni en einungis bflpróf hjá ann-
arri. Samkvæmt reglugerð frá því
vetur mega hins vegar 14 ára og
eldri aka fjórhjóli svo framarlega
sem þeir hafa próf á dráttarvél,
bifhjól eða annað sambærilegt
farartæki.
-gsv
Vegagerðin
Maraþonfundur hjá sáttasemjara
Pað ber enn nokkuð mikið á
milli deiluaðila, en frekar hef-
ur þó þokast í áttina í dag. Ég býst
fastlega við að við munum funda
fram eftir nóttu, sagði Guðlaugur
Þorvaldsson, ríkissáttasemjari,
um sáttafund í deilu ríkisvaldsins
við starfsmenn Vegagerðarinnar,
sem eru margir hverjir í verkfalli
og starfsmenn Skógræktarinnar.
Áttust deiluaðilar við fram eftir
nóttu án árangurs.
Á miðnætti kom verkfallsboð-
un vegagerðarmanna á Húsavík,
Akureyri og Sauðárkróki til
framkvæmda og eru þá alls 14 fé-
lög vegagerðarmanna í verkfalli.
Takist samningar ekki fyrir helg-
ina bætast vegagerðarmenn í Vík
í Mýrdal og á Austurlandi í verk-
fallshópinn.
Að frátaldri kjaradeilu ríkis-
valdsins við starfsmenn Vega-
gerðarinnar og Skógræktarinnar,
hefur eitt félag boðað verkfall til
sáttasemjara á næstunni, en það
er Vélstjórafélag Suðurnesja,
sem á ósamið við Hitaveitu
Suðurnesja um launamál vél-
fræðinga í orkubúinu í
Svartsengi.
-RK