Þjóðviljinn - 24.06.1987, Síða 3
FRÉTTIR
Kjötútflutningurinn
Algjör neyðarráðstöfun
Tæp tvöþúsund tonn af kindakjöti tilJapans. Skilaverð fyrir dilkakjöt 19% afheildsöluverði innanlands.
Magnús Friðgeirsson hjá SÍS: Það besta sem bauðst. Útflutningur ekki vœnlegur kostur
Það er auðvitað algjör
neyðarráðstöfun að flytja út kjöt
á þessu lága verði, en þetta var
engu að síður besti kosturinn sem
bauðst. Aðstæður á heimsmark-
aði bjóða einfaldlega ekki upp á
hærra verð. Og fyrst ekki er hægt
að selja þetta kjöt innanlands var
um þrennt að ræða: flytja þetta út
á þessu verði, selja þetta í minkaf-
óður á 5 krónur kflóið eða henda
þessu, sagði Magnús Friðgeirsson
framkvæmdastjóri Búvöru-
deildar SÍS í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær, en í fyrrdag voru stað-
festir samningar um útflutning á
1800-1950 tonnum af kindakjöti
til Japans.
Annars vegar er um að ræða
sölu á 800-850 tonnum af ærkjöti
á 15 krónur kílóið, en hins vegar
1000-1100 tonnum af dilkakjöti á
55 krónur kílóið. Verðið á dilk-
akjötinu nær aðeins 19% af ónið-
urgreiddu heildsöluverði innan-
lands og greiða Japanir alls 73
milljónir króna fyrir þetta magn.
Útflutningsbætur nema hins veg-
ar um 400 milljónum króna.
Magnús sagði í gær að í raun og
veru ætti engum að koma á óvart
hversu lágt verðið er ef tekið er
tillit til stöðunnar á heimsmark-
aði. „Það er rétt að menn hafi það
til samanburðar að í löndum
Efnahagsbandalagsins liggja 750
þúsund tonn af úrvals nautakjöti í
frystigeymslum. Sömu lönd sitja
uppi með 100 þúsund tonn af ós-
eljanlegu fyrsta flokks svínakjöti.
Þessar staðreyndir sýna svo
ekki verður um villst að við
eigum að leggja alla áherslu á að
breyta neysluvenjum hér innan-
lands og auka kindakjötssöluna.
Útflutningur er ekki raunhæfur
kostur til þess að losna við um-
fram framleiðsluna," sagði
Magnús Friðgeirsson.
-gg
Bifreiðaeftirlitið
Nær þúsund bílar
bíða skráningar
Deilan í Bifreiðaeftirlitinu dregur dilk á eftirsér
í samtölum við nokkur helstu
bflaumboðin i landinu kom í Ijós
að mikill fjöldi nýrra bíla er að
hrúgast upp hjá umboðunum
vegna deilunnar í Bifreiðaeftirlit-
inu.
„Þetta er farið að draga stóra
dilka á eftir sér og veldur okkur
öllum óþægindum ekki hvað síst
viðskiptavinum okkar. Það verða
margir að bíða lengi en fólk held-
ur áfram að panta sér bíla,“ sagði
Jón V. Guðjónsson hjá Ladaum-
boðinu. í svipaðan streng tóku
aðrir viðmælendur blaðsins hjá
stærstu bflaumboðunum.
Að sögn Jóns Þóris Steingríms-
sonar framkvæmdastjóra Bfl-
greinasambandsins veldur þetta
stopp miklum vandræðum.„En
menn funda stíft og við verðum
að vona að þetta leysist sem allra
fyrst. Það er komin vika í þessu
stoppi og það er meiri toppur í
nýskráningu bfla seinni hluta vik-
unnar þannig að áhrifin fara að
verða miklu meiri núna,“ sagði
Jón Þórir.
Það er því ljóst að deila þessi
mun valda mörgum talsverðum
óþægindum og langan tíma tekur
að ná jafnvægi aftur í allri starf-
semi Bifreiðaeftirlitsins.
-gsv
Ekkert lát er á bílainnflutningi til
landsins. Þessar vikurnar hrannast
þeir upp hjá bílaumboðunum vegna
deilunnar í i Bifreiðaeftirlitinu.
Mynd Sig.
Gosdrykkjaokrið
Af hálfu dómsmálaráðuneytis-
ins hefur ekkert verið fylgst með
verðlagningu á óáfengum dryk-
kjum á skemmtistöðum og það
hefur enn sem komið er ekki verið
rætt hvort brugðist verður við
þeim upplýsingum sem koma
fram í verðkönnun Verðlagss-
tofnunar, sagði Ólafur Walter
Ejgendur krafnir skýringa
Stefánsson hjá
dómsmálaráðuneytinu í samtali
við Þjóðviljann í gær, en þegar
vínveitingarleyfl eru gefín út er
það sett sem skilyrði að viðkom-
andi hafl á boðstóium úrval óá-
fengra drykkja við hóflegu verði.
Niðurstöður verðkönnunar
Verðlagsstofnunar, sem skýrt var
frá í Þjóðviljanum fyrir helgi,
leiða í ljós að álagning á gos-
drykki á skemmtistöðum er allt
að 950%. í áfengislögunum segir
þó að þeir sem fá vínveitingaleyfi
skuli bjóða upp á óáfenga drykki
við hóflegu verði.
Að sögn Ólafs er óljóst hvort
og þá hvernig dómsmálaráðu-
neytið bregst við þessum upplýs-
ingum Verðlagsstofnunar, en hjá
Verðlagsstofnun fengust þær
upplýsingar í gær að stofnunin
hyggst leita eftir skýringum hjá
eigendum skemmtistaðanna á
háu gosdrykkjaverði og miklum
hækkunum á verði aðgöngumiða
á undanförnum árum. -gg
UMHVERFISFRÆÐSLA
Náttúruverndarráö og fræðslunefnd alþjóða náttúruverndar-
samtakanna IUCN halda ráðstefnu um umhverfisfræðslu 26. og 27.
júní n.k. í umhverfisfræðslusetrinu ALVIÐRU, Ölfushreppi
Dagskrá:
Föstudagur 26. júní kl. 14.00:
1. Ráðstefnan sett.
2. Framsöguerindi:
a) Hans Köpp: Þjóðgarðar við strönd Norðursjávar í
Norður-Þýskalandi.
b) John Smyth: Horft til hafs.
c) Kathleen Blanchard: Menn og verndun sjófugla í
Quebec.
d) Ingunn Fjörtoft: Áhrif útivistar á strandlengju Oslo-
fjarðar.
e) Þorleifur Einarsson: Umhverfisfræðsla og áhuga-
mannasamtök um náttúruvernd.
f) Hrefna Sigurjónsdóttir: Umhverfisfræðsla og
menntun kennara.
g) Jakob Jakobsson: Rannsóknir á hvölum.
Laugardagur 27. júní kl. 9.00:
1. Umræður um framsöguerindi.
2. Starfshópar.
3. Kynning á skýrslum og útgefnu fræðsluefni
þátttökuþjóðanna.
4. Ráðstefnuslit kl. 18.00.
Ráðstefnustjóri: Lára G. Oddsdóttir.
Framsöguerindi og umræður fara fram á ensku.
Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir.