Þjóðviljinn - 24.06.1987, Qupperneq 7
MENNING
Framkvæmdastjóri hátfðarinnar er Knut Ödegrd forstjóri Norræna hússins en stjóm hennar skipa Ámi Sigurjónsson ritstjóri, Einar Kárason rithöfundur, Halldór Guðmundsson útgáfustjóri, Ingi-
björg Björnsdóttir fulltrúi, Sigurður Valgeirsson útgáfustjóri, Thor Vilhjálmsson rithöfundur, Knut ödegrd forstjóri og Örnólfur Thorsson bókmenntafræðingur.
j Bókmenntahátíð
Obundið mál og erlendir gestir
Margir þekktir erlendir rithöfundar koma og lesa úr verkum sínum á bókmenntahátíð sem haldin
verður í Reykjavík í haust. Stefnt að því að halda slíka hátíð með tveggja ára millibili
Dagana 13. -19. september
næstkomandi ber vel íveiði
fyrir bókmenntafólk og lestr-
arhesta, en þá verður haldin
hér bókmenntahátíð af svip-
aðri gerð og var fyrirtveimur
árum. Þá komu hingað Ijóð-
skáld og hátíðin var Ijóðahátíð
en í haust verður áherslan
lögð á óbundið mál. Verndari
hátíðarinnar er frú Vigdís
Finnbogadóttir.
lega ætlunin að láta hátíðina
flakka milli Norðurlandanna, en
þátttakendurnir vildu hafa hana
hér, sögðu að bókmenntir ættu
heima á íslandi, og við ætlum að
reyna að festa slíka hátíð í sessi
hér á tveggja ára fresti. Reykja-
vík á að verða bókmenntaborg
þessa viku sem hátíðin stendur
yfir.“
Margir merkir rithöfundar
koma á hátíðina, flestir frá
Norðurlöndunum, en einnig er
fulltrúum ýmissa annarra landa
boðið á hátíðina til þess að
styrkja bókmenntasamskipti
Norðurlanda og umheimsins. Af
norrænum rithöfundum sem
koma má nefna Klaus Rifbjerg
frá Danmörku, Söru Lidman frá
Svíþjóð, Herbjörg Wassmo frá
Noregi en hún hlaut sem kunnugt
er bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs í ár, og Johan Bargum
frá Finnlandi en hann er annar af
höfundum leikritsins Eru tígris-
dýr í Kongó? sem Alþýðuleik-
húsið hefur sýnt í vetur við góðar
undirtektir. Fjórtán rithöfundar
frá Norðurlöndunum hafa þegar
þegið boð um að koma á hátíðina
og einnig nokkrir frá öðrum
löndum og má þar nefna Isabel
Allende frá Chile en bók hennar
Hús andanna kemur út í íslenskri
þýðingu í haust, Luise Rinser frá
Vestur-Þýskalandi og Alan
Robbe-Grillet frá Frakklandi en
hann er talinn einn þekktasti
brautryðjandi nýstefnunnar í evr-
ópskri skáldsagnagerð.
Enn eru ókomin svör frá rit-
höfundum í Bandaríkjunum,
Bretlandi og Sovétríkjunum en
stjórnarmenn segjast fastlega
reikna með að á hátíðinni verði
fulltrúar þessara landa.
-ing.
„Við ætlum að halda slíkar há-
tíðir annað hvert ár,“ sagði Thor
Vilhjálmsson rithöfundur en
hann er í stjórn hátíðarinnar, „og
þá það árið sem ekki er Listahá-
tíð. Upphaflega var þessi hátíð
hugsuð sem ljóðlistarhátíð ein-
göngu eins og var fyrir tveim
árum, en það vantar prósakynn-
ingu og því var ákveðið að hafa
hana núna. Það var líka upphaf-
Betri bækur
Nýjar
bóka-
fréttir
Nýlega komu út fyrstu bóka-
fréttir bókaféiagsins Betri bœkur.
I þeim er að finna kynningar á
bók mánaðarins sem er Hávamál
og Völuspá, auk valbókanna;
Ragnar í Smára sem Lögberg gef-
ur út, Skaftáreldar frá Máli og
menningu og Grámosinn glóir,
metsölubók frá Svörtu á hvítu.
Meðal annars efnis er skáld
mánaðarins Samuel Beckett,
grein um bókmerki (ex libris) og
spakmæli. Næstu bókafréttir
munu koma út í byrjun septem-
ber.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
PÍANÓLEIKAR í NH
Örn Magnússon, píanóleikari frá
Ólafsfirði, hélt einleikstónleika í
Norræna húsinu s.l. sunnudags-
kvöld. Þó hann hafi lokið námi
fyrir uþb. ári, voru þetta langt í frá
hans fyrstu sjálfstæðu tónleikar
og mun hann reyndar hafa „de-
búterað" í Borgarbíói á Akureyri
1981.
Örn stundaði fyrst nám í tón-
listarskóla á Ólafsfirði, en var svo
lengi á Akureyri, þar sem Soffía
Guðmundsdóttir var hann aðal-
kennari. Síðan lá leið hans til
Bretlands og Þýskalands, þar
sem hann naut tilsagnar frægra
manna, t.d. Dennis Mathews og
Louis Kentner. Hann þótti
snemma mjög efnilegur í skóla á
Akureyri, og heyrði undirritaður
hann á nemendatónleikum þar í
bænum. Síðan eru sjö eða átta ár
og voru endurfundir þama í Nor-
ræna húsinu mjög ánægjulegir...
piltinum hefur vissulega farið
mikið fram, hann hefur notað
tímann vel og vandlega.
Því miður var ég tepptur ann-
arsstaðar fram að hléi og heyrði
því ekki Örn leika Bach og Beet-
hoven, þ.e. ítalska konsertinn og
Sónötu op. 27 nr. 1. Hinsvegar
kom ég í tæka tíð fyrir Chopin og
Debussy, og þar mátti heyra
margt fallegt. Impromptu op. 36
og Berceause op. 57 eftir Chopin
voru flutt af mikilli skynsemi og
næmni þó stundum hefði ég kosið
að heyra öllu meira PP þar sem
við átti. En Ballaðan í F dúr eftir
sama var ekki alveg eins
sannfærandi, sérstaklega voru
hröðu kaflarnir, sem eru reyndar
frægir fingurbrjótar, einsog úti á
þekju... það vantaði snerpuna.
Sama má segja um flugeldaprel-
údíu Debussys, sem var loka-
stykkið, þar vantaði herslumun-
inn. En aðrar prelúdíur eftir snill-
inginn franska, Pokur, Sölnuð
lauf og þó sérstaklega Vínhliðið
(La puerta del vino), voru leiknar
með þeirri „ljósbrota tilfinn-
ingu“, sem fáir hafa eðlilega á
valdi sínu.
Það er vissulega ástæða til að
fagna þessum unga píanista og
óska honum góðs gengis á
grýttum vegi listarinnar. LÞ