Þjóðviljinn - 24.06.1987, Qupperneq 10
Aðalskipulag
Reykjavíkur 1984-2004
Tillaga að Aðalskipulagi Reykjavíkur 1984-2004,
greinargerð og landnotkunarkort auglýsist hér
með samkvæmt 17. og 18. gr. skipulagslaga nr.
19/1964.
Tillagan ásamt þemakortum og öðrum
uppdráttum og skýringamyndum sem tengjast
aðalskipulaginu er almenningi til sýnis frá og með
24. júní til 5. ágúst 1987 í Byggingaþjónustunni
að Hallveigarstíg 1, frá kl. 9.00-18.00 alla virka
daga.
Einnig eru veittar upplýsingar um aðalskipulagið
á Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3 (3ju
hæð) frá kl. 9.00-16.00.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila
skriflega til Borgarskipulags eigi síðar en kl.
16.00, 19. ágúst 1987.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkir tillögunni.
Reykjavík, 24. júní 1987
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
Borgartúni 3, 3ju hæð,
105 Reykjavík
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir maímánuð 1987,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25.
þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. júlí.
Fjármálaráðuneytið 19. júní 1987
Auglýsið í Þjóðviljanum
Blaðburðarfólk ress.
Ef þú ert morgunh
Hafðu þá samband við afgreiðslu Þjoðviljans, sími 681333 Það bætir heilsu og hag að bera út Þjóðviqann
Mabel Sigurjónsson
Hátúni 10 B
sem andaðist á öldrunarlækningadeild Landspítalans 19.
júní s.l. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn
29. júní n.k. kl. 13.30.
Vandamenn
ERLENDAR FRÉTTIR
Gorbasjoff
Konurhlúa að
framrás lífeins
Aðalritarinn á Alþjóðaþingi kvenna: Skortur á neysluvarningigerir
sovéskum konum lífið leitt
Mikhael Gorbasjoff leiðtogi So-
vétmanna sagði á Alþjóða-
þingi kvenna í Moskvu í gær að
skortur á neysluvarningi og ýmiss
konar þjónustu gerði konum í
landinu á stundum lífið ieitt.
Gorbasjoff ávarpaði ríflega tvö
þúsund fulltrúa frá 150 löndum í
Ráðstefnuhöllinni í Kreml, og
sagði að sovéskar konur nytu
jafnréttis á við karla í menntun,
atvinnumálum, stjórnmálaþátt-
töku og á fleiri sviðum. Hann
bætti síðan við: „Getum við þá
sagt að allt sé í himnalagi?
Heiðarlegt svar við þeirri spurn-
ingu hlýtur að vera neikvætt."
„Þátttaka kvenna í fram-
leiðslustörfum og á sviði stjórn-
mála, vísinda og menningar hefur
aukið veg þeirra og virðingu og
stuðlað að því að þær eru nú
óháðari körlum. En oft hefur
staðið á nauðsynlegum breyting-
um sem þurfa að fylgja í kjölfarið
til að auðvelda þeim hin eðlis-
lægu hlutverk móður, eiginkonu
og uppalara. Á vissum sviðum
hafa vandamálin orðið erfiðari
viðfangs vegna ónógrar þjónustu
á sviði neyslu og smásölu," sagði
Gorbasjoff.
Þarna er vísað til skorts og til-
heyrandi biðraða til að næla sér í
ýmsar tegundir matvöru og
neysluvarnings, og bitna þessir
skavankar mjög á konum í
landinu þar sem þær bera ábyrgð-
ina á matseld, innkaupum og hús-
verkum heima fyrir.
Sovéskir karlar sæta nú eitr-
uðum glósum í dagblöðum lands-
ins fyrir að sinna slælega heimilis-
haldinu. Þá fjalla blöðin nokkuð
um það álag sem þeim konum er
ætlað að taka á sig sem vinna full-
an vinnudag og bera síðan ábyrgð
á störfunum heima fyrir.
Engin kvennahreyfing hefur
sprottið fram í Sovétríkjunum
sambærileg við nýlegar hræringar
á Vesturlöndum, og kvennablöð í
landinu leggja mika áherslu á
hlutverk eiginkvenna og mæðra.
Gorbasjoff sagði á þinginu að
samkvæmt gamalli sögn væri
þrennt mikilvægast í lífinu: dag-
legt brauð, vísdómur sá sem á
bækur er skrifaður, og „konan,
sem hlúir að framrás lífsins".
„Mestu andar allra tíma hafa
lagt áherslu á þá gáfu kvenna að
stilla til friðar, hæfileika þeirra til
að róa hina bráðlyndu og göfga
bitur hjörtu,“ sagði hann.
HS
Astralía
Kosninga-
baráttan hafin
Bob Hawke, forsœtisráðherra ogformaður Verka-
mannaflokksins, býður lágtekjufólki auknar barna-
bœtur. Verkamannaflokkurinn hefur aðeins 5pró-
sentaforskot á Frjálslynda þjóðarflokkinn sam-
kvœmt skoðanakönnun
Bob Hawke forsætisráðherra Ástral-
íu. Kjamrýr þrumuræða.
ann ellefta næsta mánaðar
ganga tíu miljón Ástralir að
kjörborðinu og kjósa sér þing-
menn. í gær hófst kosningabar-
átta Verkamannaflokks forsætis-
ráðherrans Bobs Hawkes form-
lega er hann messaði yfir 700 fyr-
irmönnum úr íþrótta- og menn-
ingarlífi landsins.
Að sögn fréttaskýrenda var
ræðan flutt með miklum glæsi-
brag en hafði fátt nýtt fram að
færa utan loforð forsætisráðherr-
ans um myndarlegar barnabætur
til handa láglaunafólki að kosn-
ingum loknum, sigri Verkamann-
aflokkurinn. Gylliboði þessu
mun ætlað að draga úr óánægju
alþýðu manna vegna þess hve
hlutur hennar var fyrir borð bor-
inn við gerð aukafjárlaga nýverið
og vegna skattalækkanna sem
taka eiga gildi þann fyrsta júlí.
Stjórnmálaumræðan í Ástralíu
hefur fyrst og fremst snúist um
skattamál en þar þykir helsti
stj órnarandstöðuflokkurinn,
Frjálslyndi þjóðarflokkurinn
undir forystu Johns Howards,
hafa farið illa að ráði sínu. Þeir
lögðu nýlega fram umfangsmikl-
ar tillögur í þeim málaflokki en
urðu að draga þær snarlega til
baka þar sem reikningsmeistur-
um flokksins höfðu verið mis-
lagðar hendur við útfærslu þeirra
og þær því sneisafullar af pín-
legum villum. Annað sem sem
staðið hefur Frjálslynda þjóðar-
flokknum fyrir þrifum er óeining
innan raða hans og djúpstæður
ágreiningur.
Forystumenn beggja stóru
flokkanna hafa eftir megni viljað
færa umræðuna í annan farveg.
Ýmsir framámanna Verkamann-
aflokksins hafa beint spjótum
sínum að tillögum Howards og
félaga í heilbrigðismálum sem
þeir fullyrða að beri keim af
niðurrifssjónarmiðum Margrétar
Thatchers á Bretlandi. Leiðtogar
Frjálslynda þjóðarflokksins vilja
hinsvegar að efnahagsmálin sitji í
fyrirrúmi.
Howard er nú óðum að jafna
sig eftir skattamistökin og nýjar
skoðanakannanir benda til að
flokki hans vaxi ásmegin. Sam-
kvæmt þeim mun Verkamanna-
flokkurinn geta gert sér vonir um
að hreppa um 50 prósent atkvæða
en Frjálslyndi þjóðarflokkurinn
um 45 af hundraði. Fyrir rúmri
viku var munurinn mun meiri
Verkamannaflokknum í hag eða
um 15 prósent.
-ks.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 24. ]úní 1987