Þjóðviljinn - 28.06.1987, Blaðsíða 18
BRIDGE
KROSSGÁTA
NR. 574
1 z 5 5 s H (d 7 8 9 __ ío 17 // Q
12 w~ /y /5 /6 17 11 10 0? 1? 18 9
9 /2 13 19 15 18 10 V 20 8 15 3 op 27
/ 15 /3 22 15 S? 15 y é> 2 ío Q 23 2 73
7 /3 s? 8 15 Í9 S? 6 7 3 25 28 72 75
2? 22 22 15 8 15 2 9? 2? 77 8 70 V
H 15- /y * 7 10 1É 0? 4 3 19 15 3
2Z 9 g /5 3 19 10 78 9? /y 25 3 75 Qp 28 '
/5 é V 8 15 3 é ? 10 /2 V nL 2
9? /5 /3 25 19 15 2 78 2Y 8 4 18
2H 2V 8 /9 3o 8 18 70 3 /6 /y é
1Z 3 1 /5 /y 7o 73 10 17 73 75 £2 12
3 // 3/ 15 15 18 75 73 73 sy 29 9 3 10
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á götu í Reykjavík. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla6, Reykjavík, merkt: „Krossgátanr. 574“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
■i JónThorotidsen TJ
H 25 10 3 11 1 15 8 10 . ' / • '' | ... ' '*<-&** IU )4>
\ (225% 5 h
Stafirnir mynda ísienskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort se.n lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á pða öfugt.
Hanna Jónsdóttir, Hólmgarði 54, Reykjavík fékk verðlaun fyrir
krossgátu númer 571. Lykilorðið var Víglundur. Hún fær senda
bókina Rásir dægranna eftir Málfríði Einarsdóttur.
Verðlaun fyrir krossgátuna að
þessu sinni eru Flugur eftir
Jón Thoroddsen. Bókaforlag-
ið Flugur gaf út.
AÁBDÐEÉFGHltJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
SKYRT OG SKORINORT:
Norðmenn
a
útopnu
Norðurlandamót yngri spilara
sem haldið er í Hrafnagilsskóla í
Eyjafirði lýkur í dag. Norðmenn
(eldri flokkur) virðast vera með
yfirburðalið (er þetta er skrifað) en
eldra liðið okkar á alla möguleika á
verðlaunasæti. Eftir 5 umferðir (af
9) var staða efstu sveita þessi: Norð-
menn 121, Svíþjóð 94, Danmörk
(yngra lið) 82 og ísland (eldra),
Noregur (yngra), Finnland (yngra)
höfðu 76. Þess ber að gæta að Norð-
menn og Svíar mætast í síðustu um-
ferð og gæti það orðið hreinn úrs-
litaleikur.
Yngra liðið okkar á hins vegar við
ramman reip að draga og rekur le-
stina. Það lið er ákaflega ungt að
árum, vel undir mörkunum og
skipað reynslulitlum spilurum.
Reynsla sem þessi ætti að koma
þeim til góða er fram í sækir. Víst er
að ekki skortir efniviðinn.
Nánar verður fjallað um mótið í
næsta þætti.
I Dregið verður í þriðju umferð Bik-
arkeppni Bridgesambandsins fljót-
lega í júlí. Allmörgum leikjum er
þegar lokið í annarri umferð og
öllum leikjunum í 1. umferð er lok-
ið (þeir síðustu voru spilaðir sl.
fimmtudag í Reykjavík). Ekki virð-
ist vera vanþörf á því að minna
keppendur á að mót þetta er fram-
kvæmt alfarið á ábyrgð þeirra
sjálfra og ætlast er til að fyrirliðar
komi sér saman um spiladag, án af-
skipta BSÍ. Ef hins vegar reynist
illmögulegt að finna spiladag innan
gefinna tímamarka, er ekkert sjálf-
sagðara en viðkomandi aðilar hafi
samband við skrifstofu BSÍ og leiti
sér ráða.
helgi í september í haust. Ævar Jón-
asson á Tálknafirði veitir allar nán-
ari upplýsingar um mótið.
Eins og fram hefur komið mun
bridge verða sýningargrein á lands-
mótinu á Húsavík sem fram fer um
aðra helgi f júlí. Sýningargrein
nefnist það er viðkomandi íþrótt er
kynnt með það f huga að taka hana
inn á næsta Iandsmóti til frambúð-
ar. í beinu framhaldi væri það ekki
úr vegi að ítreka þá gömlu umsókn
bridgemanna um aðild að ÍSÍ. Ef í
hart fer má alltaf hafa samflot við
ÓLAFUR
LÁRUSSON
risann á brauðfótunum (þ.e. skáks-
ambandið). Eða einfaldlega stofna
Hugaríþróttasamband íslands. Ve-
gurinn á milli er nefnilega styttri en
margur hyggur.
Þeim félögum/svæðasamböndum
sem koma til með að standa fyrir
mótshaldi næsta keppnistímabil er
bent á að hafa samband við skrif-
stofu BSÍ til að tímasetja keppnir
miðað við keppnisdagskrá sam-
bandsins. Keppnisdagskrá mun
liggja fyrir í september fyrir tímabil-
ið 1987-1988.
Þátttaka í sumarbride fer vaxandi
með hverjum spiladegi. Sl. þriðju-
dag mættu til að mynda 62 pör til
leiks og var spilað í 5 riðlum.
Heildarþátttaka á viku er því komin
vel yfir 100 pör sem er langmesta
aðsókn að sumarbridge frá upphafi.
Er það vel.
Vestfjarðamótið í tvímenning
verður spilað á Patreksfirði aðra
Fæstir upplifa það í bridge spila-
mennsku að fá svona hendur;
AKD
ÁKDx
ÁKG
ÁDG
Þessi hönd kom upp í sumar-
bridge um daginn. Samtals 33 há-
punktar ... Mest er hægt að fá 37
hápunkta, eða öll háspil nema Jón
Bald ...
Niður með konunginn!
i.
íslendingar eru höföingjasleikjur.
Ekkert finnst þeim eins dásam-
legtog þegarútlendingi líkarviö
„land og þjóð“. Og ef viökomandi
útlendingurhefurfengið mynd af
sér í útlen^ku blaði, - er m.ö.o.
heimsfrægur, - þá dekrar litli
landinn aldeilis við hann.
Þettaervitaskuld hin annálaða
íslenskagestrisni. Carrington lá-
varður var snortinn yfir þessari
gestrisni. Og auðvitað tökum við
markáCarrington. Hannerfræg-
urútlendingur.
I.
Svo kom kóngsi um daginn. Og
þá var nú aldeilis hátíð í bæ!
Kóngareru nefnilega mun merki-
legri en annað fólk. Það skiptir
engu þótt þessi tiltekni kóngur sé
frekar leiðinlegur og sænskur í
onálag. Forsíður, opnurog heilu
fréttatímarnirvoru lagðirundir
frásagnir af því hvað kóngsi og
kona hans voru að bedríva. - Ætli
blöðin segöu f rá því ef einhver
Nonni útí bæ færi beint úr flugvél-
inni á sjúkrastöðina Vog?
En kannski hef ur vorað lítið eitt
í lífi Karls XVI. Gústafs, Konungs
af Svíþjóð og Lapplandi.
III.
íslendingar höfðu kóng, en voru
svd fyrirhyggjulausir að afskaffa
hann. Það var heimskulegt því
almúginn þarf kóngafólk að tala
um, dást að og hneykslast á.
Kóngar og drottningar eru fyrir-
bæri í þjóðlífinu sem þegnarnir
nærast á. Veita þessa dægilegu
tilfinningu að þrátt fyrir allt sé eitt
sem allireiga saman. Kóngareru
sameign þjóðarsinnar. Þess
vegna er maðurinn aldrei einn í
þeim útlöndum sem eiga kónga.
Það skiptir í raun engu höfuð-
máli þótt kóngurinn sé illa gefinn
og kunni varla að skrifa nafnið
sitt.
IV.
En við eigum ekkert með að
púkka uppá útlenska kónga sem
fara beint í meðferð. Það skiptir
engu máli þótt drottningin sé sæt,
- kóngsi er það alls ekki. Og það,
hvernig hans hátign líst á Vest-
mannaeyjar; hvort hann pissar
utaní húsvegg eða klappar smá-
börnum á kollinn, — það kemur
okkur ekkert við. Það eru vonandi
önnur mál sem brenna heitar á
fóiki en eitt stykki kóngur úti í
mýri.
V
Ef Gústaf litli heföi ekki fæðst inní
kóngafamílíu væri hann sjálfsagt
samviskusamurfélagsfræðingur
núna og öllum væri sama hvort
honum þætti fallegt á Þing-
völlum. Og blöðin gætu notað
forsíðurnar í einhver önnur áhug-
amál en að snobba fyrir útlend-
ingum.
Við afsköffuðum semsagt okk-
ar eigin kóng og þykjumst harla
góð með það. Sjálfstæð þjóð í
eigin landi, ropaði einhverfyrir-
maðurinn áþjóðhátíðardaginn.
Hvers vegna þá að eltast við
kónga sem koma okkur hreint
ekkertvið?
íslendingar eru semsagt höfð-
ingjasleikjur. Nær hefði verið að
ala Gústaf á vellingi og hákalli og
senda hann síðan með fullan
bakpoka af harðfiski uppá há-
lendið. Athuga síðan hvort hon-
um þóknaðist landið takk-
bærilega.
VI.
En auðvitað er þetta bissness:
Allskyns sænskir kaupahéðnar
blómstra og það er mál manna
að leiðrétta þurfi vöruskiptahal-
lann á viðskiptunum við Svíþjóð.
Kóngsi er fyrirtaks sölutrix. Og
náttúrlega einkum og sérílagi
vegna þess að fjölmiðlarnir kokg-
leypa hanshátign.
VII.
Undirritaður Snati lýsir þvf yfir að
honum leiðist þessi kóngurog
bægslagangurinn útaf honum.
Það er hér með gert að tillögu að
kóngum og drottningum verði
framvegis ekki hleypt inní landið
en aðöðrum kosti lýstóalandi,
óferjandi og óráðandi öllum
bjargráðum.
Niðurmeð kóngsa!
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 28. júní 1987