Þjóðviljinn - 30.06.1987, Síða 10
Sovétríkin
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
garðyrkjudeildar Reykjavíkurborgar óskar eftir til-
boðum í leiktæki til uppsetningar á ýmsum
leiksvæðum í Reykjavík.
Verkið felst í smíði og uppsetningu á leiktækjum
sem samanstanda af köstulum 11 stk, bátum 11
stk, og strætó 21 stk.
Leiktæki þessi eru úr timbri að meginhluta, af-
hendast fullfrágengin og uppsett.
Innifalið í tilboði er smíði, gröftur og fylling, flutn-
ingur á staðinn og uppsetning.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5 þús. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
16. julí kl.11.00
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
Styrkir til háskólanáms í Grikklandi
Grísk stjórnvöld bjóöa fram í löndum sem aðild eiga að Evrópu-
ráðinu fimm styrki til háskólanáms í Grikklandi háskólaárið 1987-
88. Styrkir þessir eru ætlaðir til framhaldsnáms eða rannsókna-
starfa að loknu háskólaprófi. - Umsóknarfrestur er til 15. júlí n.k.
Umsóknum skal skila til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavík, sem jafnframt lætur í té tilskilin umsóknareyðublöð
og nánari upplýsingar.
Menntamálaráðuneytið,
25. júní 1987
Styrkur til háskólanáms í Japan
Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa Islendingi til háskólan-
áms í Japan háskólaárið 1988-89 en til greina kemur að styrktímabil
verði framlengt til 1990. Ætlast er til að styrkþegi hafi lokið há-
skólaprófi eða sé kominn nokkuð áleiðis í háskólanámi. Þar sem
kennsla við japanska háskóla fer fram á japönsku er til þess ætlast
að styrkþegi leggi stund á japanska tungu um a.m.k. sex mánaða
skeið. - Umsóknir um styrkinn, ásamt staðfestum afritum prófskír-
teina, meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu sendar mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. ágúst n.k.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
25. júni 1987
Berðu ekki við
tímaleysi
„ í umferðinni.
Það ert /bc sem situr undir stýri.
uÉUMFERÐAR
Uráð
Alfreð Flóki
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 2. júlí kl.
13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Guðrún Nielsen
Axel Darri Flókason
Ingibjörg M. Alfreðsdóttir
Alúðarþakkir færum við öllum sem heiðruðu minningu
Guðgeirs Jónssonar
bókbindára
við andlát hans og útför. Bestu þakkirtil starfsfólks Hrafnistu
í Hafnarfirði.
Guðrún Sigurðardóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Eiginmaður minn
Ólafur Þórður Þórarinsson
Kárnesbraut 111, Kópavogi
andaðist í Borgarspítalanum laugardaginn 27. júní.
Fyrir hönd aðstandenda
Ester Benedlktsdóttir
Stjóm efnahags-
mála úrelt
Götumynd frá Novosibirsk. „ Vandamálin á að leysa heima I héraði," segir
Ryzhkoff f orsætisráðherra.
Nikolai Ryzhkoff, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, segir að
stjórnun efnahagsmála í landinu
sé úrelt, og skorar á Æðstaráðið
að setja lög um róttækar efna-
hagsumbætur.
Ryzhkoff messaði í tvo tíma
yfir meðlimum Æðstaráðsins í
gær, og sagði að ofstjórn ráðu-
neytanna í Moskvu og léleg nýt-
ing á hráefnum yllu mestu um
það að 13% sovéskra fyrirtækja
hefðu verið rekin með tapi á síð-
asta ári.
Hann bætti við að almenningur
í landinu byggi við stórfelldan
húsnæðisskort, auk þess sem
matvælaframleiðsla væri mjög í
skötulíki, og fyrir bragðið
blómstraði neðanjarðarhagkerf-
ið. „Gamlar aðferðir við stjórn
efnahagsmála eru orðnar úreltar.
Þörfin á breytingum er orðin
augljós og brýn,“ sagði Ryzh-
koff.
Fimmtán hundruð manns
hlýddu á ræðuna, þeirra á meðal
Gorbasjoff aðalritari, en hann
gaf tóninn í síðustu viku er hann
1 reifaði efnahagsmálin í opin-
skárri ræðu á sama vettvangi.
Löggjöf sú sem Ryzhkoff boð-
ar, rammalöggjöf um ríkisfyrir-
tæki, tekur að líkindum gildi um
næstu áramót, en reiknað er með
að hún hljóti blessun Æðstaráðs-
ins. Samkvæmt henni er halla-
rekstur ekki á dagskrá. Fyrir-
tækin sjá sjálf um tekjur sínar og
gjöld, og er meiningin að laun
verði tengd væntanlegum gróða,
og þann veg stuðlað að auknum
vinnuafköstum starfsfólks. Pant-
anir frá ríkinu verða samkeppnis-
bitbein fyrirtækjanna. Segir
Ryzhkoff að þau fyrirtæki sem
engum arði skila verði látin fara á
hausinn.
Gosplan heitir stofnun sú sem
sér um áætlanagerð á vegum
ríkisins, og verður starfsemi
hennar stokkuð upp. Henni verð-
ur gert að vinsa úr brýnustu verk-
efnin á sviði efnahagsmála, frem-
ur en að stjórna verksmiðjum
beint með fimm ára áætlunum
eins og nú tíðkast.
í ræðu sinni hét Ryzhkoff á
sveitarstjórnir að hætta að reiða
sig á úrlausnir ofanfrá á brýnum
vandamálum heima í héraði.
„Matvælaskorturinn er ekki jafn-
afleitur nú og verið hefur að und-
anförnu,“ sagði hann, „en samt
vantar mikið upp á. Engu skárri
er húsnæðisskorturinn, en hann
veldur milljónum verkafólks
miklum búsifjum."
Ryzhkoff hafði hörð orð um
„efnahagslegt ólæsi“ margra
framkvæmdastjóra, og sagði að
mikið verk væri fyrir höndum að
endurhæfa þá. „Við höfum ekki
tíma til að velta vöngum,“ sagði
hann. „Breytingar þær sem fyrir-
hugaðar eru verða að gefa sósíal-
ismanum nýja ímynd.
HS
r Mengun
UraníumdalurUnion Carbide
Yfirgefinn bæroggeislavirktlandsvœði ber auðhringnum vitni
Draugabærinn Uravan í Colorado í Bandaríkjunum. Byggðin lagðist af þegar
Union Carbide hætti rekstri og sagði starfsfólkinu upp.
Uravan. Yfirgefinn smábær í
Coloradofylki í Bandaríkjun-
um. Uppi í fjallshlíð er risastór
verksmiðja í eigu Union Carbide,
en starfsemi hennar hefur verið
lögð niður.
Svæðið gekk undir nafninu Úr-
aníumdalurinn, og helgast það af
verksmiðjurekstrinum. Allmörg
ár eru liðin síðan síðustu íbúarnir
fluttu á brott frá Uravan, eða um
svipað leyti og verksmiðjurekst-
urinn var aflagður. Eftirspurn
eftir úraníumi hefur minnkað
upp á síðkastið, og mörgum nám-
um hefur verið lokað. Þennan
fróðleik er að finna í nýlegri grein
eftir Susan LaMont.
Námamennirnir voru ekki í
neinu verkalýðsfélagi. Það er
búið með vinnuna en þeir eru
ekki búnir að bíta úr nálinni með
afleiðingarnar. Þeir njóta ekki
sjúkratrygginga til að létta sér
baráttuna við sjúkdóma og þeir
hafa engin eftirlaun.
Það er staðreynd að úraníum-
vinnsla veldur lungnakrabba-
meini, en þrátt fyrir það nutu
verkamennirnir í Uravan ekki
heilsugæslu af neinu tagi.
Byrjað var að vinna úraníum
og radíum á þessum slóðum
snemma á öldinni, en bæði þessi
efni eru geislavirk. Seinna var
tekið til við að vinna vanadíum,
en það frumefni er þjáll, silfurlit-
aður málmur, einkum notaður í
stálblöndur til að auka þanþol.
Bærinn Uravan dregur nafn sitt
af þessu.
Árið 1928 hóf Union Carbide
námurekstur. í 56 ár losaði fyrir-
tækið sig við mengaðan úrgang
með því að gera lítið fjall fyrir
ofan bæinn að ruslahaug. Þessi
banvæni úrgangur var einnig not-
aður sem uppfyllingarefni í Ura-
van, og að hluta til var honum
fleygt í vötn. Geislavirkur úr-
gangur á þessu svæði er talinn
vera að minnsta kosti tólf milljón
tonn, og er geislavirknin sex sinn-
um meiri en leyfilegt er sam-
kvæmt stöðlum alríkisstjórnar-
innar.
Vegna þessa hefur Colorado-
fylki staðið í málaferlum gegn
Únion Carbide. Síðastliðið haust
féll loks dómur eftir tíu ára laga-
þras, og var fyrirtækinu gert að
hefja hreinsun á svæðinu. Áætlað
er að því verki verði ekki lokið
fyrr en að fimmtán árum liðnum
og muni kosta sem nemur hálfum
öðrum milljarði íslenskra króna.
Eins og kunnugt er kom fyrir-
tæki þetta, Union Carbide, við
sögu á Indlandi með ófögrum
hætti á Indlandi árið 1984, þegar
þúsundir manna létu lífið af völd-
um þess í Bhopal. Ekki höfum
við Islendingar heldur með öllu
farið á mis við þennan illræmda
auðhring.
í þeim hluta Bandaríkjanna
sem hér er til umræðu á sægur
fólks um sárt að binda vegna
kjarnavopnastefnu stjórnvalda.
Heilar fjölskyldur í suðurhluta
Utah hafa fengið krabbamein af
völdum geislavirks ryks frá
kjarnavopnatilraunum. Meðal
námaverkamanna sem vinna úr-
aníum er tíðni krabbabeins marg-
falt hærri en gengur og gerist
meðal þjóðarinnar.
í Uravan og nágrenninu er
ekki óalgengt að sjá fyrirtæki sem
bera nöfn á borð við „Atóm-
mótelið“ og „Úraníumbíó“. Þau
bera þeim tímum vitni þegar
verkafólk vissi ekki mikið um
geislavirk efni og var haldið í fá-
fræði um geigvænleg áhrif þeirra.
Núna vitum við betur. HS
14 SlÐA — ÞJÓÐVIUINN Þriðjudagur 30. júní 1987