Þjóðviljinn - 02.07.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 02.07.1987, Blaðsíða 2
FRETTIR "■SPURNINGIN--1 Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu þínu? Danival Finnbogason bifvéla- virki: Ég er nú í sumarfríi og ætla aö ferðast innanlands. Ég er þegar búinn aö fara til Vestmannaeyja og ætla mér að reyna að komast vítt og breitt um landið. Kristín Dýrfjörð fóstra: Ég ætla að nota fríið til að ferðast innanlands og ég er ákveðin í þvi að komast til Siglufjarðar. Guðjón Björnsson, kennari á Eskifirði: Ég er í sumarfríi og er búinn að vera viku hérna í Reykjavik. Síðan kem ég til með að vera aðra viku á Flúðum í Árnessýslu í orlofshúsum kennara. Guðmundur Þór Ásmunds- son, skólastjóri í Húnaþingi: Ég ætla að ferðast innanlands. Ég verð í Reykjavík fyrstu 2-3 vikurnar en verð svo í leiðsögn í laxveiði í Mið- fjarðará. Inglbjörg Sveinbjörnsdóttir, húsmóðir og verslunarmaður: Ég ætla að fara til Evróþu. Við fljúgum til Lúxemborgar og keyrum niður Evr- óþu. Þetta kemur til með kosta 200- 250 þúsund kr. Neyðarathvarf RK Aðsókn eykst enn Liðlega 200 börn og unglingar hafa leitað til athvarfs Rauða krossins frá stofnun þess. Sigríður Sumarliðadóttir: Sum þeirra sem koma eru á götunni Hingað koma börn og unglingar af mismunandi ástæðum, en oftast er það vegna samskiptaörð- ugleika við foreldra og aðra for- ráðamenn, sagði Sigríður Sumarliðadóttir uppeldisráðgjafi í neyðarathvarfi barna og ung- linga sem Rauði krossinn hefur rekið frá því í árslok 1985. Að sögn Sigríðar hafa liðlega 200 börn og unglingar leitað til athvarfsins á þessum tíma og að- sóknin hefur verið stöðug og jöfn aukning frá upphafi. Aldur barn- anna og unglinganna, sem koma sjálfviljug í RK-húsið, er allt frá 12 ára uppí 18 ára. Sigríður sagði að aðstæður barnanna væru mjög mismunandi. Sumir hefðu lent í slæmu rifrildi við forráðamenn sína og aðrir væru hreinlega á götunni og vildu vinna að því að gera eitthvað í sínum málum. Þá eiga nokkrir við fíkniefnavanda- mál að stríða. Sigríður sagði að kynjaskipting þeirra sem sækja í athvarfið virtist nokkuð jöfn, en það gengi í bylgjum hvort stúlkur eða drengir væru í meirihluta. Alls er hægt að vista 6 börn og unglinga í RK-húsinu og sagði Sigríður að í einstaka tilfellum hefði þurft að vísa fólki frá vegna plássleysis. Þá sagði Sigríður að athvarfið væri ekki meðferðar- stofnun og því væri aðeins ætlast til að gestirnir dveldu þar í skamman tíma. Reynt er að fylgja börnunum eða unglingun- um úr hlaði þannig að þau fari í öruggt umhverfi. Oft eru málin leyst í samvinnu við foreldra en einungis í samráði við barnið eða unglinginn. „það hefur fyllilega sýnt sig að það er þörf á neyðarathvarfinu," sagði Sigríður. Starfsemin fékk enda viðurkenningu frá síðustu ríkisstjórn sem ákvað, að tillögu framkvæmdanefndar hennar í fíkniefnamálum, að veita starf- seminni 2.5 miljóna kr. styrk á þessu ári og því næsta. f neyðarathvarfinu starfar bæði fagfólk og ófaglærðir, en þeir síðarnefndu hafa sótt nám- skeið vegna starfsins. Þá starfa í RK-húsinu sjálfboðaliðar, en þeir vakta neyðarsíma athvarfs- ins. Neyðarsíminn er 622260 og athvarfið er að Tjarnargötu 35. -K.ÓI. Viðbyggingin við barnaskólann er meginverkefni bæjarins í ár, en að sögn Kristjáns Jóhannessonar má gera ráð fyrir að leggja þurfi í 10 milljóna króna aukakostnað ef takast á að hýsa gagnfræðaskólann þar í haust. Mynd Sig. Gagnfrœðaskólinn í Hveragerði Skólahúsnæðið á uppboði að ríkir talsverð óvissa um húsnæðismál gagnfræða- skólans. Við höfum núverandi skólahúsnæði á leigu til 1. sept- ember en í dag vitum við ekkert hvað tekur við að því loknu, sagði Kristján Jóhannesson, bæjar- stjóri í Hveragcrði, í samtali við Þjóðviljann í gær. Gagnfræðaskólinn í Hvera- gerði hefur að sögn Kristjáns ver- ið í leiguhúsnæði í eigu Trésmiðju Hveragerðis, en trésmiðjan hætti starfsemi í vor vegna rekstrarerf- iðleika og í síðustu viku var hús- næðið boðið upp. Enn er þó ekki ljóst hver verður nýr eigandi bússins. Aðalverkefni bæjarins á þessu ári og þeim næstu er viðbygging við barnaskólann og verður hún fokheld nú í júlí. Ráðgert var að flytja starfsemi gagnfræða- skólans í nýja húsnæðið haustið 1988 og sameina skólana þá um leið í Grunnskóla Hveragerðis, en nú gæti farið svo að leggja þyrfti meira fjármagn í fram- kvæmdir og starfrækja gagnf- ræðaskólann í viðbyggingunni frá og með næsta hausti. Kristján sagði í gær að leggja þyrfti í 10 milljóna króna auka- kostnað ef takast ætti að hýsa gagnfræðaskólann í viðbygging- unni í haust. Þar að auki mætti reikna með að skólahald myndi frestast um einn mánuð. Ekki liggur ljóst fyrir að sögn Kristjáns hvernig á að mæta þessum auka- kostnaði, en þess má geta að ríkið skuldar bænum um 5 milljónir króna vegna framkvæmdanna. -gg Kvennanámskeið Um konu, frá konu Hansína B. Einarsdóttir, námskeiðshaldari fyrir konur: Mikilþörfá að gera konur meðvitaðri um stöðu sína. Mikill áhugi áþessum námskeiðum. Námskeið vítt um landið „Ahuginn á þessum námskeið- um leynir sér ekki, ef marka má þátttökuna í Stykkishólmi, en þar var ég að Ijúka námskeiði,“ sagði Hansína B. Einarsdóttir, nemi í afbrotafræðum, en hún gengst fyrir námskeiðum fyrir konur, vítt og breitt um landið á næst- unni, undir yfirskriftinni: „Kona í dag. Kona í framtíð.“ „Námskeiðin standa í tvö kvöld. Fyrra kvöldið ræði ég stöðu kvenna gagnvart byggða- þróun, konur á vinnumarkaði í náinni framtíð, unglingavanda- mál, vímuefnaneyslu og vændi. Seinna kvöldið tala ég um hvern- ig konur geta byggt upp sjálfs- traust og eflt eigin sjálfsvirð- ingu,“ sagði Hansína B. Einars- dóttir. Að sögn Hansínu er þörfin mikil fyrir svona námskeið. „Konur hafa lengi þurft að bæla langanir sínar og ekki getað talað opinskátt um stöðu sína í samfé- laginu. Þessi námskeið eru ekki síður hugsuð til að fá konur til að tjá sig og vera virkar, en að veita beina fræðslu," sagði Hansína B. Einarsdóttir. Á næstunni verða kvennanám- skeið haldin á Blönduósi, Akra- nesi, Búðardal, Egilsstöðum, Neskaupstað, Höfn, Hólmavík og víðar. * Ég vissi ekki að þú værir ] H farin að ganga i I stælpeysum með merki. rff. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. júlí 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.