Þjóðviljinn - 02.07.1987, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 02.07.1987, Blaðsíða 3
FRETTIR Loðdýramarkaðurinn Metsala á loðskinnum Verð á loðskinnum hefur hækkað um 30%. Árleg framleiðsla á minkaskinnum, 33-34 milljónir skinna, seldust upp á uppboðum ífyrra og í ár. Einnig5 milljónirskinnafráþvíárinu á undan. Á Böggvisstaðabúinuá Dalvík: Mikilfrjósemi og lítill hvolpadauði. Meðalþyngd minkahvolpa 6% meiri en ífyrra ■"ÖRFRÉTTIR^ Hlíðargarðshátíð Vinnuskólans í Kópavogi verður haldin í dag. Hátíð þessi er fastur liður í starfi vinnuskólans og jafn- an haldin fyrri hluta júlímánaðar. Lögð er áhersla á að ungir sem aldnir geti unað í Hlíðargarði þessa dagsstund. Þar verða tí- volíbásar, leiktæki, minigolf og farið verður í leiki og þrautir. Veitingar verða á staðnum og rennur ágóði af hátíðinni til fatl- aðra ungmenna úr Kópavogi, sem fara í sumarbúðir seinna í sumar. Létt Sólblóma nefnist nýtt íslenskt viðbit, sem inniheldur bara 40% fitu. Landssamband hjartasjúklinga fær eina krónu af hverju seldu kílói af viðbitinu, auk þess sem hjartasjúklingar fá einnig eina krónu af hverju kílói Sólblóma- smjöriíkis. Eldri borgarar geta á laugardögum sótt opið hús i Sigtúni. Frá og með 1. júií verður húsið opið frá kl. 14 til „Hér hjá okkur á Böggvisstaða- búinu hefur frjósemi verið mikil í minkum og lítill hvoipadauði. Miðað við árið í fyrra hafa hvolp- arnir aukið þyngd sína um 6% að meðaltali og fleiri hvolpar komið undan hverri læðu. Þetta ásamt háu verði á minkaskinnum gefur okkur byr í seglin og framtíðin er björt,“ sagði Geir Guðsteinsson á Böggvisstaðabúinu á Dalvík sem er stærsta loðdýrabú á landinu. Eru þeir með 18-19 þúsund minka og rúmlega 6 þúsund refí. Sala á loðskinnum hefur verið með eindæmum góð að undan- förnu þrátt fyrir mikið framboð af skinnum. Hefur verðið að meðaltalihækkaðum30%. 1986- 1987 seldist upp öll framleiðsla á minkaskinnum, eða 33-34 milljónir skinna sem framleitt er á ári hverju. Að auki seldust upp 5 milljónir skinna frá árinu áður. Sérfræðingar uppboðsfyrirtækja komust að þeirri niðurstöðu með því að skoða tölurnar frá 1985- 1986 og einnig með því að styðj- ast við sölu á uppboðum það sem af er þessu ári. Aðalástæða fyrir þessari miklu þenslu á sölu loð- skinna er talin vera meiri hlut- deild Bandaríkjamarkaðarins í kaupum á skinnum. „Við reynum að vera raunsæir þrátt fyrir velgengni þessa stund- ina því reynslan hefur kennt okk- ur að ofmetnast ekki í góðæri sem þessu. Það varð til að mynda verðhrun á loðskinnum 1985, um það bil 30%, og mátti rekja það til samdráttar á Bandaríkjamark- aði. Loðskinnamarkaðurinn er mjög viðkvæmur og það þarf ekki annað en að öfgamenn í röðum náttúruverndarmanna, með dyg- gri aðstoð fjölmiðla, fjölyrði um það að illa sé farið með dýrin að loka þau inni f búrum, til þess að samdráttur í sölu geti átt sér stað,“ sagði Geir Guðsteinsson að lokum. grh 22.30. Gula bókin nefnist skrá yfir fyrirtæki, stofn- anir og þjónustu á höfuðborgar- svæðinu og næstu þéttbýlisstöð- um í nágrenni þess, auk Akur- eyrar, sem bókaforlagið Svart á hvítu vinnur að um þessar mund- ir. Áður hefur forlagið gefið út Borgarskrána, sem náði yfir höf- uðborgarsvæðið, en nú er ætlun- in að bæta við þéttbýlisstöðum á Suðurnesjum, Selfossi, Hverag- erði, Akranesi og Akureyri. Gula bókin verður prentuð í 110 þús- und eintökum. Aðalskipulag Reykjavíkur eða tillaga að því er til sýnis í Byggingaþjónustunni, Hallveig- arstíg 1. Sýningin var opnuð í gær. Á sýningunni verða einnig kynntar nokkrar skipulagstil- lögur, sem unnar hafa verið í tengslum við aðalskipulagsvinn- una. Meðal þess sem sýnt er eru frumdrög að hverfaskipulagi fyrir Norðurbæinn, skipulag við Meistaravelli, skipulag að nýju hverfi í Grafarvogi, skipulag í Rauðarárholti, deiliskipulag Vesturhafnar, tillaga að íbúðum aldraðra við Skúlagötu, skipulag að Laugardal og tillögur um gamla bæinn. Plöntuhandbókin eftir dr. Hörð Kristinsson grasa- fræðing er komin út í epskri út- gáfu hjá Erni og Örlygi. í bókinni eru Ijósmyndir í lit af meginþorra íslensku flórunnar í sínu rétta um- hverfi. Þá hefur Örn og Örlygur einnig sent frá sér rit Björns Th. Björnssonar um Þingvelli í enskri útgáfu. Geysisgos verður að öllum líkindum í Haukadalnum á laugardag, en Geysisnefnd hefur ákveðið að sett verði sápa í hverinn kl. I5.00 og ætti hann þá að gjósa myndarlega nokkru síðar. Blönduóshreppur hefur lýst yfir stuðningi við hug- myndir Þróunarfélagsins um stofnun þróunar- og fjárfesting- arfélaga í öllum kjördæmum landsins. Hefur hreppsnefndin lýst yfir áhuga sínum að greiða fyrir framgangi þessa máls. Hákon Ólafsson forstjóri Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna burðar- þolsmálsins þar sem hann segir að eitt þeirra húsa sem lentu í margumræddu úrtaki, Skipholt 50c, sé vandað og standist fylli- lega kröfur sem gerðar séu um burðar- og jaröskjálftaþol. Verðkönnun Mikill munur á grænmeti Verðmunur á innfluttu kínakáli tœp 300%. A innfluttum púrrulauk er munurinn á hœsta og lægsta verði 217% Mikill verðmunur er jafnt á innfluttu sem innlendu grænmeti í verslunum. Sem dæmi kostar innflutt kínakál 49.30 krónur hvert kfló þar sem það er lægst en 195 krónur kflóið þar sem það er hæst. Verðmunurinn er hvorki meira né minna en 295%. Þetta kemur fram í verð- könnun Verðlagsstofnunar sem gerð var í síðasta mánuði í 88 verslunum á höfuðborgarsvæð- inu og á ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Sauðarkróki, Egils- stöðum, Eskifirði og Reyðarfirði. í könnuninni kemur meðal annars fram að púrrulaukur kost- aði til dæmis 158.05 krónur hvert kíló, þar sem það var lægst, en 501.20 krónur hvert kíló þar sem verðið var hæst. Mismunurinn á hæsta og lægsta verði 217%. Á íslensku grænmeti var mesti munur á hæsta og lægsta verði á steinselju, en búntið af henni kostaði 18 krónur þar sem það var ódýrast, en dýrast kostaði það 50 krónur sem er 178% hærra verð. Á grænni papriku munaði 155% á lægsta og hæsta verði og 106% á blaðsalati. Mikill verðmunur var á ís- lensku og innfluttu grænmeti. Þannig var meðalverð á inn- lendum gulrótum 88% hærra en meðalverð á innfluttum gulrót- um. Meðalverð á innlendu kína- káli var 67% hærra en meðalverð á innfluttu. Dæmið snýst hins vegar við þegar borið er saman meðalverð á innlendum gul- rófum og innfluttum, en þær síðarnefndu eru 90% dýrari að meðaltali. Þarer um nýjaerlenda uppskeru að ræða. grh Það skiptir miklu hvar landsmenn kaupa grænmetið sitt, verðmun- urinnerallt að 300% ámilliein- stakra verslana. Mestur er verð- munurinn á þeim tegundum sem hún Berglind í Glæsibæ sýndi Ijósmyndara, innfluttu kínakáli, jöklasalati og steinselju. Mynd: E.ÓI. Mosfellssveit 7 íbúðir í verkamannabústööum Kristbjörn Árnason, formaður stjórnar Verkamannabústaða: Hvergi jafn fáar íbúðir og í Mosfellssveit. Salóme Þorkelsdóttir, fyrrverandiformaður Verkamannabústaða, mótfallin slíkum byggingum Hvergi á landinu eru jafn fáar íbúðir í verkamannabústöð- um og í Mosfellssveit. Hér eru bara 7 íbúðir í 3.800 manna byggðarlagi, eða 542 íbúðir á móti hverri verkamannabústað- aríbúð. í Rcykjavík er hlutfallið hinsvegar einn verkamannabú- staður á 30 íbúðir og í Hafnar- firði, sem hefur þótt aftarlega á merinni, er verkamannabústaður á fertugustu hverja íbúð, sagði Kristbjörn Árnason, formaður stjórnar Verkamannabústaða í Mosfellssveit. Hann sagði að í sjálfu sér þyrfti þetta ekki að koma í óvart í ljósi þess að Salóme Þorkelsdóttir, fyrrverandi formaður stjórnar Verkamannabústaða sveitarfé- lagsins, hefði lýst því yfir að hún væri andvíg íbúðum í verka- mannabústöðum. Hin nýja stjórn Verkamanna- bústaða berst fyrir því að fleiri verkamannabústaðir verði reistir í Mosfellssveit og flutti fulltrúi Alþýðubandalagsins í hrepps- nefnd tillögu þar að lútandi í vet- ur, en henni var hafnað. í vor auglýsti stjórn Verka- mannabústaða eftir umsóknum að verkamannabústöðum og bár- ust 18 umsóknir. Hefur stjórnin lagt til að fjórum aðilum verði útvegað leiguhúsnæði hið bráð- asta og að ellefu umsækjendur geti keypt íbúðir í verka- mannabústöðum. Kristbjörn sagði að i Mosfells- sveit byggi fjöldi manns sem ætti í húsnæðiserfiðleikum, enda væri meirihluti starfa í byggðarlaginu láglaunastörf hjá Álafossi og Reykjalundi. Þá er töluverður fjöldi þess fólks, sem fór illa út úr misgengisárunum, búsettur í Mosfellssveit. -Sáf Kísilmálmur Verksmiðjan úr sögunni Akveðið hefur verið að hætta viðræðum við Rio Tinto Zink um rekstur Kísilmálmvinnslunn- ar á Reyðarfirði. Þetta var sam- dóma niðurstaða viðræðunefnda íslenska ríkisins og RTZ á fundi 22. júní. Aðalfundur Kisilm- álmvinnslunnar staðfesti þessa niðurstöðu sl. þriðjudag. Ástæða þess að ekkert verður úr verksmiðjunni er að hag- kvæmnisathuganir leiddu í ljós að arðsemi af fyrirtækinu er ekki nægjanleg. OU aðföng að verksmiðjunni, ofnar og annar tæknibúnaður, er keyptur frá Evrópu og því greiddur í þýskum mörkum og öðrum Evrópugjaldmiðlum sem hafa hækkað að undanförnu en afurðir yrðu seldar í dollurum og þróun dollarans hefur verið niður á við. -Sáf Flmmtudagur 2. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.