Þjóðviljinn - 02.07.1987, Síða 10

Þjóðviljinn - 02.07.1987, Síða 10
ERLENDAR FRÉTTIR Suður-Kórea Chun gafel upp Almenningur lét engan bilbug á sérfinna og arfaprinsinn Roh venti sínu kvœði íkross. Forsetinn neyddist til aðfallast á allar meginkröfur stjórnarandstöðunnar Frjálsar forsetakosningar verða haldnar í Suður-Kóreu um áramótin, stjórnarandstöðu- leiðtoginn Kim Dae-Jung mun geta um frjálst höfuð strokið og þorri pólitískra fanga verður leystur úr haldi. Eftir margar „andvökunætur" tók Chun Doo Hwan forseti ákvörðun um að ganga að öllum helstu kröfum stjórnarandstöð- unnar í landinu. Hann boðaði þessi stórtíðindi ísjónvarpsræðu í gær og var daufur í dálkinn. Hann sagðist hafa miklar efasemdir um ágæti þessara ráðstafana en viðurkenndi að „almenningur er mjög áfram um að fá að kjósa forseta beinni kosningu." Hann sagði að ný stjórnarskrá yrði samin í því augnamiði að ryðja braut fyrir frjálsum kosn- ingum og „þann 25. febrúar mun ég víkja fyrir eftirmanni sem kjörinn verður löglegri kosn- ingu.“ Chun hefur setið í forseta- stóli frá því herinn hóf hann til valda árið 1980. Yfirlýsingar forsetans marka þáttaskil í stjórnmálasögu Suður- Kóreu og sigla í kjölfar mikilla óeirða í landinu sem staðið hafa yfir í þrjár vikur eða frá 10. júní. Þann dag hafði Chun látið ljós- mynda sig í bak og fyrir með Roh Tae-Woo sem hann fullyrti að myndi erfa forsetaembætti sitt. Að vísu átti að „kjósa“ forseta óbeinni kosningu en allir stjórn- arandstæðingar voru á einu máli um að kjörfyrirkomulagið væri beinlínis sniðið með það fyrir augum að arfaprinsinn Roh hreppti krúnuna. „Þetta er mikill sigur fyrir fólk- ið“, sagði Kim Dae-Jung eftir að hafa hlýtt á ræðu Chuns í gær. Félagi hans Kim Young-Sam tók miklu dýpra í árinni: „Þetta eru mikilvægustu tímamót í 5000 ára sögu lands okkar. Loksins sjáum við fram á friðsamlega pólitíska byltingu í kosningum. Mikill meirihluti þjóðarinnar vill að bundinn verði endi á stjórn hers- ins. Það voru fleiri en stjórnarand- stæðingar sem fögnuðu þessum málalyktum í gær. Eftir átökin undanfarnar vikur höfðu þær raddir gerst æ háværari erlendis sem efuðust um að unnt væri að halda ólympíuleikana í Suður- Kóreu næsta ár. Skipuleggjendur leikanna voru milli vonar og ótta en nú virðist leiðin greið. „Óneitanlega voru blikur á lofti en nú hefur þeim verið feykt í burtu í eitt skipti fyrir öll,“ sagði embættismaður úr íþróttamálaráðuneytinu og brosti sínu fegursta. Ljóst er að Roh Tae-Woo, skjólstæðingur forsetans og for- Auglýsið í Þjóðviljanum Starf sveitarstjóra Starf sveitarstjóra Súöavíkurhrepps í N-ísafjarð- arsýslu er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. júlí n.k. Upplýsingargefuroddviti, Hálfdán Kristjánsson, í síma 94-4969 eöa 94-4888. Sveitarstjóri Múrhúðun og pípulagnir í Sjúkrahúsinu á Blönduósi Tilboð óskast í framkvæmdir við Sjúkrahúsið á Blönduósi er ná til að skila nýbyggingunni tilbú- inni undir tréverk. Byggingin er nú fokheld. Húsið er kjallari, þrjár hæðir og ris. Heildarflatarmál er um 30002. Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 1. maí 1988. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borg- artúni 7, Reykjavík, gegn 10.000 kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri þriðjudaginn 21. júlí 1987 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS Aðþrengdir kylfusveinar Chuns. Þeir voru ofurliði bornir. Chun forseti tekur í hönd Kim Youngs-Sams skömmu áður en þeir hófu viðræður sínar á fimmtudaginn var. Þær báru engan árangur. maður Lýðræðislega réttlætis- flokksins, hefur Ieikið lykilhlut- verk í því að fá sveigt vilja hins „ósveigjanlega" Chuns og þykir mjög hafa vaxið af máli þessu. Roh er fyrrum hershöfðingi einsog forsetinn og var almennt litið á hann sem lítilfjörlega strengjabrúðu Chuns sem myndi eftir sem áður halda um valda- taumana þótt Roh yrði forseti að nafninu til. Reiði almennings Roh Tae-Woo sýndi mikla pólitfska slægð. Fyrrum var hann fyrirlitinn og forsmáður en nú nýtur hann virðingar fyrir að hafa sveigt járnvilja Chuns. beindist því ekki síður gegn hon- um en forsetanum. En Roh virðist hafa borið meira skynbragð á þýðingu at- burðanna en Chun. Fyrir níu dögum gat hann sannfært forseta sinn um að taka til endurskoðun- ar ákvörðunina um að aflýsa öllu samráði við stjórnarandstöðuna um umbætur á stjórnskipunar- lögunum, eiga viðræður við Kim Young-Sam um leiðir til að stöðva skálmöldina í landinu og aflétta umsátri lögreglunnar um heimili Kim Dae-Jungs sem stað- ið hafði yfir í 78 daga. En viðræður Kim Young-Sams og Chuns báru engan árangur og daginn eftir, á föstudag, fór allt í bál og brand á nýjan leik. Al- menningur lét sér ekki segjast. Á ný settist Roh við skriftir. Á mánudagsmorgun rak þjóðina í rogastans þegar hann lýsti því yfir að hann myndi leggja að Chun að efna til frjálsra kosninga, leysa Kim Dae-Jung úr haldi ( hann hafði aðeins notið frelsis í 31 klukkustund) og gefa öllum pólit- ískum föngum upp sakir. Féllist forsetinn ekki á þessar tillögur hans sæi hann sig knúinn til að draga framboð sitt til embættis forseta til baka og segja af sér formennsku í Lýðræðislega rétt- lætisflokknum. Nú var fokið í flest skjól fyrir Chun. Hann fór því að ráðum vopnabróður síns þótt honum væri það þvert um geð. Roh þykir hinsvegar hafa haldið mjög vel á spilunum og er nú talinn eiga góða möguleika á því að ná kjöri í frjálsum kosningum. Slíkt var tal- ið óhugsandi fyrir þrem vikum. -ks. Panama Niður með Kanann! Bandaríska sendiráðið grýtt í fjölmennum mótmælaaðgerðum. Neyðarástandslögin numin úrgildi Til mikilla mótmælaaðgerða kom í Panamaborg í gær, er mannfjöldi safnaðist saman við bandaríska sendiráðið. Fólkið kastaði grjóti og flöskum með rauðri málningu að byggingunni. Bfl var velt og á hann var mál- að: „Allur heimurinn fordæmir afskiptasemi Öldungdeildarinn- ar.“ Með þessu var vísað til sam- þykktar bandarísku öldunga- deildarinnar fyrir viku þess efnis að lýðræði skyldi komið á í landinu og yfirmanni hersins og stjórnanda landsins í raun, Ant- onio Noriega, velt úr sessi. AUnokkrar skemmdir voru unnar á sendiráðinu, en talsmað- ur þess var fámáll: „Við megum ekkert segja,“ sagði hún, en bætti við að útlitið væri ljótt. Aðgerðirnar komu í kjölfar þess að neyðarástandslögum var aflétt í Panama, en þeim var komið á fyrir þremur vikum vegna harkalegra mótmæla gegn stjórnvöldum. Götuóeirðir geisuðu þá í tvo daga, og hafði hið pólitíska andrúmsloft lands- ins ekki verið jafnófriðvænlegt í tuttugu ár. Lögreglan umkringdi sendi- ráðið um hálfri klukkustund eftir að mótmælaaðgerðirnar brutust út, en lét fólkið afskiptalaust. Fjöldi slagorða þakti veggi sendi- ráðsins um það er lauk, svo sem „Kanar, farið heim,“ og „Bind- um enda á yfirgang Gringó- anna.“ Fjölmargir báru þjóðfána Panama, og höfðu fest hann á prik af ýmsum stærðum og gerð- um. Aðgerðirnar komu í kjölfar útifundar sem boðað var til að undirlagi stjórnvalda. Málgagn stjórnarandstöð- unnar í Panama, La Prensa, kom út í gær, óritskoðað í fyrsta skipti í tuttugu daga, eða frá setningu neyðarástandslaganna. Blaðið birti leiðara á forsíðu og fagnaði framtaki öldungadeildar banda- ríkjaþings. „Bandarísk íhlutun Noriega hershöfðingi: sýnir klærnar í viðskiptum sínum við stóra bróður í norðri. hefur alltaf fallið í góðan jarðveg þegar hún hefur verið hliðholl stjórnvöldum. Núna, þegar íhlut- unin er í þá veru að andæfa mannréttindabrotum, vald- beitingu og yfirgangi hersins, þá kemur annað hljóð í strokkinn," stendur í leiðaranum. HS Borgartúni 7, sími 26844 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. júlí 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.