Þjóðviljinn - 03.07.1987, Blaðsíða 1
Föstudagur 3. júlí 1987 141. tölublað 52. örgangur
Stjórnarmyndun
Piiringur hjá kratum
Karvel gekk afþingflokksfundi. Neitar að styðja stjórnina.
Kratar æfir út íJónana. Þorsteinnfœr umboð.
Ráðherravandinn heldur áfram innanflokkanna.
Guðmundur G. vill stól
rátt fyrir að líkur bendi til að
ný stjórn, undir forsaeti Þor-
steins Pálssonar sem fékk form-
legt stjórnarmyndunarumboð i
gær, fæðist um og eftir helgi, er
mikill óróleiki innan þingflokk-
anna. Landsbyggðarþingmenn
Alþýðuflokksins eru með hvað
mesta ólund og gagnrýna harð-
lega hlutskipti Alþýðuflokksins,
verði stjórn þríflokkanna að
veruleika. Svo Iangt gekk í fyrra-
kvöld að Karvel Pálmason gekk
af þingflokksfundi Alþýðuflokks-
ins og tilkynnti Jóni Baldvin að
hann gæti ekki stutt slíka stjórn
að óbreyttu.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans beinist óánægja margra
þingmanna Alþýðuflokksins að
eftirgjöf Jóns Baldvins og nafna
hans Sigurðssonar í málefnum,
auk þess sem þeir telja ráðuneyt-
in léleg, þar sem í hlut flokksins
fellur ekkert atvinnuráðun-,
eytanna og ekkert ráðuneyti sem
tengist landsbyggðinni sérstak-
lega. Að auki eru landsbyggðar-
þingmenn krata óhressir með að
hafa alla ráðherrana úr Reykja-
vík, og hefur Jón Baldvin Hanni-
balsson hugleitt að vera utan
stjórnarinnar til að leysa þau mál.
í Sjálfstæðisflokki er enn ekki
útséð um ráðherra, og hafa til-
lögur um Ólaf G. Einarsson vak-
ið furðu innan þingflokksins,
bæði Matthíasar Á. og lands-
byggðarmanna. Áhugi virðist
meðal margra þingmanna að
stilla Halldóri Blöndal upp gegn
Ólafi G. Framsóknarflokkurinn
hefur hingaðtil átt við minnstan
vanda af þessu tæi að stríða en í
gær krafðist Alfreð Þorsteinsson,
formaður fulltrúaráðs flokksins í
höfuðborginni, þess að Reykja-
víkurþingmaðurinn Guðmundur
G. Þórarinsson yrði ráðherra, og
er því framboði stefnt gegn Jóni
Helgasyni.
Enn á eftir að hnýta lausa enda
milli flokkanna, og voru töluverð
fundahöld í gær. Friðrik Sophus-
son og Jóhanna Sigurðardóttir
hittust til að fjalla um kaupleigu-
íbúðir, en talið er að þær deilur
stöðvi ekki stjórnarmyndunina.
Formennirnir þrír hittust síðan í
gærkvöldi til að reyna að ná loka-
samkomulagi og ákveða form-
lega viðtöku stjórnarinnar.
-m/RK
Laxnessþingið
Fullt hús
Tæplega 200 hafa
skráð sig, fólk
komið á biðlista
Það verður fullt hús á málþing-
inu um HaUdór Laxness á
Hótel Esju á morgun. Tæplega
200 geta setið þingið og eru komn-
ir biðlistar hjá Vöku-Helgafelli
sem stendur fyrir þinginu ásamt
Félagi áhugamanna um bók-
menntir.
Þingið er haldið í tilefni 85 ára
afmælis skáldsins, og
heiðursgestur verður hinn þekkti
sænski fræðimaður Peter Hall-
berg.
Verið er að athuga hvort hægt
sé að auka húsrými á Esju til að
hleypa að fleiri Laxnessaðdáend-
um, sem að sögn Vökufólks eru
ekki síst úr hópi ungs fólks.
-m
Veltuaukningin
Kaupmönnum
að óvörum
Þjóðhagsstofnun segir
yfir40% veltuaukningu í
verslun.
Guðjón Oddsson,
formaður Kaupmanna-
samtakanna: Kemurmér
áóvartefrétter.
Þetta eru tölur, sem mér dettur
ekki i hug að vefengja. En það
fyrsta sem mér dettur í hug er
hvar í ósköpunum er um þessa
miklu veltuaukningu að ræða í
verslun. í þeim greinum verslun-
ar þar sem ég þekki best til, getur
maður ekki merkt slíka
aukningu, sagði Guðjón Odds-
son, formaður Kaupmannasam-
takanna, um þær upplýsingar
Þjóðhagsstofnunar að heildar-
velta verslunar og þjónustu hefði
aukist um rúm 40% á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs.
„Ég ætla mér ekki að draga
þessar upplýsingar í efa, en ég vil
fá að skoða þetta betur. Það kann
að vera að veltan hafi aukist
svona mikið í innflutningi á bflum
og bflasímum, en að þetta sé það
almenna í versiun, það kemur
mér mjög á óvart,“ sagði Guðjón
Oddsson.
„Þessar upplýsingar eru unnar
upp úr söluskattsframtölum sem
berast til ríkisskattstjóra og þær
ættu því að vera endanlegar.
Reyndar er mismunandi hversu
fljótt og vel söluskattsskýrslurnar
berast ríkisskattstjóra, þannig að
niðurstöðurnar eru samtala úr
þeim skýrslum sem þegar hafa
borist,“ sagði Maríanna Jónas-
dóttir, viðskiptafræðingur hjá
Þjóðhagsstofnun.
Samkvæmt úttekt Þjóðhags-
stofnunar var veltuaukningin
mismunandi milli hinna ýmsu
greina verslunar. Þannig jókst
veltan í sölu bfla og bflavörum um
90.4% á fyrsta ársfjórðungi árs-
ins, meðan veltuaukning í örðum
greinum verslunar var all nokkru
lægri, eða frá 26.7% í smásölu-
verslun, upp í 44% í verslun með
byggingavörur. -RK
Siglt af kappi á Kópavogi. (mynd: EÓI)
Fullvirðisréttur
Yfir 500 hafa samið
Milli 10-15% bœndastéttarinnar hafa selt eða leigt
framleiðslurétt sinn til Framleiðnisjóðs. Fjárútlát sjóðsins
nœr300 milljónir
AIIs hafa yflr 500 bændur gert
samning við Framleiðnisjóð
landbúnaðarins um sölu eða leigu
á fulivirðisrétti sínum frá því slík
viðskipti voru tekin upp á verð-
lagsárinu 1985-1986. Samkvæmt
upplýsingum frá Stéttarsam-
bandi bænda hefur Framleiðni-
sjóður keypt framleiðslurétt sem
nemur 1,5 mil|jónum lítra af
mjólk, eða um það bil 8,600 ærg-
ildum.
Það lætur því nærri að 10-15%
bændastéttarinnar hafi skrifað
undir samning við sjóðinn um
annað hvort sölu eða leigu á
fullvirðisrétti. Þegar um sölu er
að ræða er rétturinn ýmist seldur
að fullu eða að hluta, en leigu-
samningar gilda til 6 ára.
Tölur um kaup á fullvirðisrétti
sauðfjárbænda liggja ekki fyrir,
en Framleiðnisjóður stefndi að
því að kaupa eða leigja fram-
leiðslurétt sem nemur um 43,500
ærgildum fyrir 1. september n.k.
og er talið að sjóðurinn verði ekki
langt frá því marki.
Þá stefnir sjóðurinn að því að
kaupa upp réttinn til þess að
framleiða um 3 milljónir lítra af
mjólk fyrir lok næsta verðlagsárs,
en ekki er talið líklegt að það
muni takast.
Fjárútlát sjóðsins vegna þess-
ara kaupa hljóða upp á 260-300
milljónir króna að sögn Árna
Jónassonar hjá Framleiðnisjóði
landbúnaðarins. -gg
Stúlkumar
jafnokar
r
IKópavogi er þessa dagana siglt
af miklu kappi á námskeiðum
sem orðin eru árlegur viðburður.
Danskur þjálfari, Henrik Rye
Möller, er nú staddur hérlendis
og hefur þjálfað krakkana á
námskeiðinu í Skerjaflrðinum frá
því á föstudag.
Henrik ætlar einnig til Akur-
eyrar og Egilsstaða til að þjálfa.
„Krakkamir standa sig vel og
við höfum nú æft frá því í maflok
og þetta er lokahnykkurinn fyrir
íslandsmótið sem verður um
næstu helgi.
Stúlkumar eru jafnokar dreng-
janna á þessum námskeiðum og
gefa þeim í engu eftir, sagði
Henrik. Og áhuginn er mikill.
-gsv