Þjóðviljinn - 03.07.1987, Page 4

Þjóðviljinn - 03.07.1987, Page 4
___________LEIÐARI________ Aumur Alþýðuflokkur Samkvæmt síöustu véfréttum úr stjórnar- myndunarfarsanum verður Þorsteinn Pálsson forsætisráöherra þríflokkastjórnarinnar nú um helgina eftir tæplega tíu vikna þóf. í stjórnarmyndunarviðræöunum hefur gangur mála í stórum dráttum verið sá að fyrst reyndi Steingrímur Hermannsson að fá þriðja flokk til liðs við stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, næst reyndi Þorsteinn Páls- son að fá einhverja tvo flokka til liðs við Sjálf- stæðisflokk, og að síðustu reyndi Jón Baldvin Hannibalsson að fá þriðja flokk til liðs við stjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. í aprílkosningunum urðu sexföld tímamót, og þjóðin úthlutaði hverjum þingflokkanna nýju og óvæntu hlutverki í stjórnmálunum. Það var Ijóst að stjórnarmyndun yrði snúið verk, og nýjar aðstæður kröfðust þess af forystusveit allra flokka að þeir brygðust við með pólitískri ný- hugsun. í sex flokka kerfi gilda ekki lengur gömlu lögmálin, til dæmis þau frá 1938 eða 1946. Á þessu hafa margir vakið athygli, og Þjóðviljinn benti á það skömmu eftir kosning- arnar að í þeim grannlöndum okkar sem búa við svipaðan flokkafjölda hafa í áratugi tíðkast önnur stjórnarform en meirihlutastjórnir tveggja og þriggja flokka. í Finnlandi situr nú fjögurra flokka meirihlutastjórn, í Danmörku fjögurra flokka minnihlutastjórn, í Svíþjóð og Noregi minnihlutastjórnir eins flokks. Og þótt flestir reyni að túlka kosningaúrslitin í apríl sjálfum sér eins haganlega og hægt er breytir engin túlkun þeirri söulegu staðreynd að aldrei í íslenskri stjórnmálasögu hefur Sjálf- stæðisflokkurinn riðið megurra hrossi frá kosn- ingum. Sjötíu og þrjú prósent kjósenda lögðu í apríl lið öðrum stjórnmálasamtökum en Sjálf- stæðisflokknum. Forystumenn Framsóknarflokks og Alþýðu- flokks hafa ekki viljað tileinka sér þennan augljósa lærdóm frá 25. apríl. Þeir hafa staðið í vegi fyrir öllum tilraunum til annars en sam- stjórnar með Sjálfstæðisflokknum. Þeir hafa lýst fjögurra flokka stjórn vonlausa án þess að láta á það reyna á hverju slitnaði, hvaða flokkur hlypi útundan sér í viðræðunum, um hvað sam- staða gæti orðið. Þeir hafa heldur ekki haft pólitíska djörfung til að íhuga minnihlutastjórn, til dæmis með þeim hætti sem Guðrún Helgadóttir hefur kynnt; að Alþýðubandalagið veitti minnihlutastjórn Al- þýðuflokks og Framsóknarflokks eins árs stuðning að uppfylltum ákveðnum skilyrðum um efnahagsstefnu. Slík stjórn hefði getað var- ist vantrausti á þingi, og það hefði verið á ábyrgð þriggja ósamstæðra stjórnarandstöðu- flokka að fella sameiginlega einstök frumvörp slíkrar stjórnar. Eftir árið hefðu kostir og gallar slíkrar stjórnar verið íhugaðir og sest niður í rólegheitum uppá nýtt. Það bjóst sosum enginn við frumlegum pólit- ískum glímutökum af framsóknarmönnum, sem með einu stuttu hléi hafa setið í ráðherrastólum í sextán ár og eru nánast orðnir að mubblum uppí stjórnarráði. Hinsvegar fylgdist almenningur með því af nokkurri eftirvæntingu hvað stæði á bakvið gleiðan málflutning Alþýðuflokksins síð- ustu misserin. Nú, þegar verið er að taka umbúðirnar utanaf Alþýðuflokknum, kemur svarið í Ijós: Ekki neitt. Jón Baldvin og félagar hafa í stjórnarfýst sinni gefið uppá bátinn hvert málefnið af öðru, og ganga nú án nokkurra skuldbindinga til liðs við gömlu ríkisstjórnina. Og Alþýðuflokkurinn hefur sætt sig við að vera áhrifalaus í þessari ríkisstjórn. Síðustu fréttir herma að af ráðherrum hans þremur muni skrifstofumaður úr Þjóðhagsstofnun setjast í fjármálaráðuneytið, án þess að flokkurinn ráði atvinnuvegaráðuneyti og geti þannig haft áhrif á hið raunverulega gangvirki efnahagsmálanna. Annar ráðherra á að setjast í félagsmálaráðu- neytið, bundinn í báða þá skó sem þar skipta mestu, í húsnæðismálunum. Þriðji ráðherrann, að sögn flokksformaðurinn sjálfur, á svo að stjórna viðskiptaráðuneytinu hálfu. Eftir að búið er að taka undan því mikil- vægasta málaflokkinn, utanríkisviðskipti, er ekki mikið annað eftir en bankamálin, og þeim stjórnar hvorteðer hinn eilífi skuggaráðherra allra íslenskra ríkisstjórna síðustu áratugi, seðlabankastjórinn Jóhannes Nordal. Sá sami og formaður Alþýðuflokksins hét kjósendum að reka úr starfi fyrir nokkrum mánuðum. Þetta er eymd Alþýðuflokksins í verki. Og almenning furðar í raun ekki á þeim sögusögn- um að Jón Baldvin Hannibalsson íhugi nú að standa utan þeirrar ríkisstjórnar sem hann á sjálfur mestan þátt í að koma á legg. -m KUPPT OG SKORID Á 30. norræna bindindisþing- inu sem haldið var á Akureyri á dögunum flutti Nicolay S. Tchernykh frá Sovétríkjunum fróðlegan fyrirlestur um hina nýju bindindisstefnu stjórnvalda þar í landi. Erindið var birt í laus- legri þýðingu Þorsteins Jónatans- sonar í Degi á Akureyri og koma þar ýmsar athyglisverðar stað- reyndir fram. Tchernykh segir aðalástæðuna fyrir mikilli áfengisneyslu í Sov- étríkjunum nú á síðari árum vera fyrst og fremst þá að fjöldi fólks sé flæktur í drykkjusiðum. „Að baki liggja engar félagslegar eða sálfræðilegar hvatir aðrar en þær að fólk telur neyslu áfengis hluta af eðlilegum lifnaðarháttum sín- um. Drykkjuskapur blómstrar vegna þess að fólk veit ekki hve miklar hætturnar eru, skilur ekki hversu skaðlegt áfengi getur ver- ið, ekki einungis hverjum ein- staklingi heldur og þjóðfélaginu í heild, vegna þess að í hugsunar- leysi hefur endalaust verið japlað á skaðleysi og nauðsyn drykkju- siða og hefða.“ Ný áfengisstefna Mjög miklar hömlur hafa verið settar á sölu áfengis í Sovétríkj- unum samkvæmt hinni nýju á- fengisstefnu stjórnvalda. Áfengir drykkir eru ekki lengur seldir fólki undir 21 árs aldri. Sölutím- inn takmarkaður, áfengisversl- unum fækkað snarlega en í öllum hlutum Sovétríkjanna eru áfeng- isverslanir nú þrisvar sinnum færri en áður var. Á sama tíma hefur framleiðsla á áfengi í Sovétríkjunum verið dregin saman. Um það bil 2000 um, í skemmtigörðum eða öðrum opinberum stöðum. Fólk, sem brýtur þessar reglur eða sést mjög drukkið á opinberum stöð- um, hlýtur áminningu eða sekt. Sé um endurtekin brot að ræða, er hægt að senda það í vinnubúðir og í alvarlegum tilfellum jafnvel í fangelsi. Drykkjumenn sektaðir Drykkja er stranglega bönnuð á vinnustöðum, í verksmiðjum, á fundum, í opinberum stofnun- og samtök launþega beiti enn- fremur þeim aðferðum að taka bónusgreiðslur af drykkju- mönnum, einnig eftirsóttar ferðir til hvfldarstaða og önnur forrétt- indi. Þá er ábyrgð lögð á hendur þeim, sem koma unglingum til að drekka. Sektum er beitt gagnvart foreldrum, sem valda því að börn fara að drekka, og ennfremur ef börn þeirra hafa verið tekin fyrir drykkju á opinberum stöðum eða á almannafæri. Alvarlegri refs- ingar bíða þó þeirra, sem koma unglingum til að drekka. Áður voru þeir dæmdir í eins árs fang- elsisvist eða betrunarvinnu; stundum var þó sekt látin duga, ef ekki var um alvarleg atvik að ræða. Nú hefur sektarupphæð verið þrefölduð og fangelsisvist getur orðið allt að tveimur árum. Ótvíræður árangur Tchernykh er ekki í vafa um að þessar aðgerðir hafi skilað árangri. Hugarfarsbreyting hefur átt sér stað segir hann og um 23% þeirra sem áður stunduðu áfeng- isdrykkju hafa lýst sig bindindis- menn. Á síðasta ári var alkóhóln- eysla í Sovétríkjunum aðeins helmingur þess sem hún var tveimur árum áður, hafði minnkað úr 8.7 lítrum af hreinum vínanda á mann í 4.4 lítra. Dán- artíðnin lækkaði á sama tíma úr 10.6 í 9.7 á hverja þúsund íbúa en slíkt hafði ekki gerst í fjölmörg ár. Fæðingartíðni óx og í fyrsta skipti í 10 ár hækkaði meðalaldur Sovétmanna og komst í 69 ár. -•g verksmiðjur og framleiðslustöðv- ar hafa hætt. Sumar þeirra hafa verið endurbyggðar til fram- leiðslu á ávaxtasafa, kryddvör- um, sælgæti eða frystum ávöxtum - og aðrar hafa verið teknar til framleiðslu á skepnufóðri. Hin nýja baráttustefna gegn á- fenginu gerir ekki aðeins ráð fyrir takmörkunum á framleiðslu og sölu áfengis heldur og strangara eftirliti með neyslu þess. Þannig er t.d. í samþykkt frá Æðsta ráði Sovétríkjanna, sem kom til fram- kvæmda 1. júní 1985, bannað sér- staklega að drekka áfenga drykki á götum úti, á íþróttaleikvöng- um, skólum, veislum og mót- tökum. Það hefur alltaf verið illa séð, að menn væru drukknir við vinnu. Nú er hægt að beita sekt- um, ef slíkt kemur fyrir. Dugi þetta ekki til, á viðkomandi á hættu að missa vinnuna. Og annað þýðingarmikið atr- iði. Það eru ekki bara drykkju- mennirnir, sem verða sektaðir, heldur einnig þeir yfirmenn, sem hafa það viðhorf til drykkju, að þeir láta hana viðgangast á vinnu- stað. Þá gerir hin nýja bindindis- stefna kröfu til þess, að stjórnvöld, opinberar stofnanir þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéðinsson. Frétta8tjórl: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjörnsson, IngunnÁsdísardóttir, Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason, Ragnar Karlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, StefánÁsgrímsson, Vil- borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri). Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlltstelknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrif 8tofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson. Auglý8inga8tjóri: Sigríður HannaSigurbjörnsdóttir. Auglyslngar: Unnur Ágústdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Kristins- dóttir. Sfmvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Husmóðlr: Soffía Björgúlfsdóttir. Bílstjórl: Jóna Sigurdórsdóttir. Utbrelðslu-og afgrelðslustjóri: HörðurOddfríðarson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafurBjömsson. Útkeyr8la, afgroiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, síml 681333. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verö í lauaasölu: 55 kr. Helgarblöð:60kr. Áskrtftarverð á mánuði: 550 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. júlf 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.