Þjóðviljinn - 03.07.1987, Page 6

Þjóðviljinn - 03.07.1987, Page 6
Þórarinn Hjartarson skrifar Undanhald samkvæmt áætlun? Stríð okkar í fimmtán ár Ég vænti ekki mikils af verka- lýðsforystunni eða „verkalýðs- flokkunum". Samt þykir mér það merkilegt að þegar Steingrímur Hermannsson, Þorsteinn Páls- son og álíka menn halda því fram - í kosningaræðum og öðrum ræðum - að „kaupmáttur ráð- stöfunartekna heimilanna" hafi aldrei verið meiri, þá heyrist hvorki hósti né stuna frá verka- lýðsforystunni eða flokksforingj- um „félagshyggju og verkalýðs". Mér gafst færi á því í vor að halda 1. maí-ræðu á fundi verka- lýðsfélaga. Ég fór þá að dæmi stjórnmálaleiðtoga og þjóð- skörunga, ég leit yfir farinn veg. Ég setti mér það fyrir að gera út- tekt á árangri baráttunnar þau 15 ár sem ég, með stuttum hléum, hef verið starfandi launamaður innan vébanda ASÍ. Mér varð fyrst hugsað til fyrstu kjarasamninganna sem ég man eftir að hafa greitt atkvæði um. Það voru samningarnir í febrúar 1974, þá var ég í verkalýðsfé- laginu Einingu. Þeir samningar gáfu reyndar allgóða kauphækk- un eftir því sem gerðist, það var „góðæri" í landinu (Sú kauphækkun rýrnaði að vísu fljótt, en það er önnur saga). Nú fletti ég upp í gömlu blaði og skoðaði tölurnar. Framfærslu- kostnaður vísitölufjölskyldunnar á mánuði var þá rétt tæpar 50.000 kr. Og fjölmennasti taxti (4. taxti) gaf eftir samningana tæpar 34.000 kr., þ.e.a.s. um 2/3 hluta framfærslukostnaðar. Mér skilst að framfærslukostnaðurinn hafi í apríl-maí sl. verið u.þ.b. 90.000 kr. en þá gaf fjölmennasti taxti Einingar 27.000 kr., þ.e. tæpan þriðjung! Öfugþróun kaupmáttar Eftir þessa óglæsilegu útkomu fór ég að leita mér traustari heim- ilda í opinberum tölum. Ég studdist þá við Fréttabréf Kjara- rannsóknarnefndar og Hagtölur mánaðarins frá Hagstofunni. Ég skoðaði tímabil mitt í verkalýðs- hreyfingunni, árin 1972-1986. Ég leitaði að tveimur stærðum: a) þjóðartekjur á mann, b) kaupmáttur kauptaxta mið- að við vísitölu framfærsluk- ostnaðar. Þess ber að geta að hér er um vísitölur að ræða sem sýna aðeins þróun þjóðartekna og kaupmátt- ar milli ára en ekki tölulegar stærðir. Því sem næst fullt sam- ræmi er á milli þróunar þjóðar- tekna og þjóðarframleiðslu. Fyrst er mæit tímabilið 1972-82, og síðan tímabilið 1982-86 með breyttum vísitölum. Tölurnar eru teknar beint úr skýrslum. Gleggra væri að umreikna allt til samræmis við vísitöluna 100 fyrir árið 1972, en þetta ætti að vera nógu skýrt. Skoðað er fyrir verkamenn og iðnaðarmenn. Þjóðartekjur á mann: 1972: 104,1 1982: 140,2 1982: 102,2 1986: 106,0 Kaupmáttur kauptaxta: Verkamenn: 1972: 109,5 1982: 106,3 1982: 99,8 1986 75,3 Iðnaðarmenn: 1972: 106,9 1982: 96,9 1982: 101,1 1986: 73,1 Tölurnar sýna: í fyrsta lagi hraðvaxandi þjóðartekjur árin 1972-82 („framsóknaráratugur- inn“) en síðan hægan vöxt - þær lækkuðu reyndar um nærri 6% milli áranna 1982 og 1983. En í, heild blasir við 38,4% aukning þjóðartekna. í öðru lagi má sjá fyrst hæga rýrnun kaupmáttar en síðan dramatískt hrap eftir 1982. Þróunin er nógu slæm fyrir verka- menn, 26,8% fall, en þó er hún enn hrapallegri fyrir okkur iðn- aðarmenn, 36% fall. Hluti um- rædds launafólks af vaxandi þjóðartekjum hefur augljóslega minnkað enn meir en kaupmátt- urinn. Það heitir á marxísku að arðránið hafi aukist, og það mikið, og var það þó nóg fyrir. Það er jú verkefni verkalýðs- hreyfingarinnar að minnka (og afnema) arðránið, svo eitthvað hefur farið verulega úrskeiðis. Hér ber þess að geta að í árslok 1986 var hætt að mæla framfærslu vísitölu. Reyndar hafði ég aðeins tölur fram á mitt ár 1986, og árið 1987 er ekki með. En þegar talað er um góðæri og góð kjör nú má vel hafa í huga að það eru miklir fjármunir sem launafólk þarf að ná aftur til þess eins að halda í horfinu. Það eru vissulega fleiri atriði en stærð kauptaxta sem ákvarða „kaupgetu ráðstöfunartekna heimilanna". Stærsta atriði þar er vinnumagn. Meðalvinnuvika karlmanna innan ASÍ undanfar- inn áratug hefur heldur styst en það er svo lítið að það telst varla. Hitt er aftur ekkert smáræði sem atvinnuþátttaka kvenna hefur aukist. Eftirfarandi tölur eru teknar upp úr bókinni „Konur, hvað nú?“ Breyting upp 36,1 stig upp 3,8 stig niður 3,2 stig niður 24,5 stig niður 10,0 stig niður 28,0 stig Heildaratvinnuþátttaka kvenna (20-60 ára) hefur aukist úr 31,4% árið 1960 í 88,2% árið 1983. Ef talin er aðeins sk. virk þátttaka - unnar 13 vikur eða meira á ári - er aukningin úr 43,9% árið 1963 í 69,3 árið 1983. Sé skoðuð sérstaklega virk þátt- taka giftra kvenna er aukningin sama tímabil úr 28,6% í 68,3%. Þróunin er hröðust síðustu árin. Á átta árum, frá 1976 til 1984 hef- ur atvinnuþátttaka giftra kvenna aukist úr 53,9% í 75,9%. Af félagsmönnum í ASÍ vinnur karlmaður að meðaltali rúma 50 tíma (1986) en kona rúma 40 tíma. Þegar sumarvinna unglinga er talin með er vinnuvika miðl- ungs alþýðuheimilis líklega ekki langt frá 100 tímum. Hún hefur aldrei í sögu verkalýðshreyfing- arinnar verið meiri - fyrir utan það að vera Evrópumet og lík- lega heimsmet á vorum dögum. Það mark virðist a.m.k. vera alllangt undan að 40 stunda vinn- uvika einnar fyrirvinnu nægi til framfærslu. Það er með þessu vinnumagni sem eyðsla vísitölufjölskyldunn- ar fer upp í 90 þúsund á mánuði. Það er sá „kaupmáttur ráðstöfun- artekna heimilanna" sem Steingrímur og félagar guma af. Á þann hátt verður hér mikil neysla miðað við önnur lönd. Það háa neyslustig kemur líka til af því að tiltölulega stór hluti lands- manna býr við kjör sem eru gjörólík kjörum almenns launa- fólks. Á hinn bóginn er sá hluti líka stór sem býr við fátækt. ís- lenskir fátæklingar reyna eftir megni að láta ekki bera á fátækt sinni. Þeir bæta á sig allri auka- vinnu sem þeir komast yfir til að halda uppi þeim lífskjörum og neysluvenjum sem eiga að heita almenn í landinu. íslenskir fátæk- lingar eru ekki atvinnuleysingjar eins og venjulegt er hjá öðrum iðnvæddum þjóðum heldur fólk í launavinnu. Líklega er út- breiddasta form fátæktar frítím- afátækt. Hún birtist bæði sem tímaskortur á háu stigi og sem vankunnátta að fara með frítíma þá sjaldan hann gefst. Hver bjargi sér Höfuðbölið í kjaramálum hér- lendis er þessi þróun til lækkandi launa hjá fjöldanum - láglauna- stefnan. Annað böl er sú ójafna þróun lífskjara innan raða launa- fólks sem orðið hefur síðustu árin. Eftir kjaradóminn mikla 1983 tóku laun meirihlutans ört að rýrna sem kunnugt er. En samtímis því voru allstórir hópar sem iiéldu sínum hlut eða jafnvel stækkuðu hann, einkum fólk með sérkunnáttu í ýmsum greinum sem eru að þenjast út og þurfa aukinn mannafla. En kjarabætur þessa fólks komu yfirleitt ekki gegnum kjarasamning stéttarfé- lags heldur sem launaskrið, þ.e. ýmsar yfirborganir og sposlur sem menn slást um á eínstaklings- grundvelli eða í smáhópum - eða sem atvinnurekandi réttir að mönnum eftir geðþótta. Síðan öðlast þær e.t.v. löggildingu í samningum, eftirá. Svona barátt- uaðferðir, þar sem hver bjargar sér, sýna einfaldlega að samtaka- hefðum og stéttvísi hrakar innan hreyfingarinnar eftir því sem hún gegnir hlutverki sínu verr. Onnur aðferð launafólks til að svara óhagstæðri þróun kaup- taxta og ná aftur upp launum er að taka við þeim afkastahvetj- andi Iaunakerfum sem atvinnu- rekendur bjóða ljúfmannlega og af rausn. Útkoman úr því er svo bæði aukin vinnuharka og enn minni áhersla á en ella á að hækka tímakaup.'Það sést best á dæmi iðnaðarmanna hvernig þessi kerfi virka á launin. í þeirra hópi er uppmæling og bónus mest notað og þar er þróun kauptax- tanna verst. Og það verður að segjast að gagnvart aukinni útbreiðslu af- kastahvetjandi kerfa hefur verkalýðshreyfingin verið nánast stefnulaus þar til í óefni var kom- ið, svo sem hjá fiskvinnslufólki. í þeim málum hefur verkalýðurinn m.ö.o. verið forystulaus. Einnig það vitnar um gjaldþrot ríkjandi verkalýðsmálastefnu. Nú (19. júní) er mikið þjarkað í stjórnarmyndun. Engu ætla ég að spá um þau mál. „Við þurfum vinsamlega ríkistjórn" segja verkalýðsforingjar að vanda - og Þjóðviljinn. Ýmsir verkalýðsfor- kólfar gefa í skyn að kjarabarátt- an sé vonlaus og fyrirfram töpuð ef ekki situr „vinsamleg ríkis- stjórn". Hugsanleg kjarabót hverfi bara með aðgerðum ríkis- ins o.s.frv. Sú hugmyndafræði um ríkis- valdið sem verkalýðsforystan (og „verkalýðsflokkarnir") aðhyllist er eitthvað á þessa leið: Ríkis- valdið er hlutlaus stærð sem rokkar til, pólitískt séð, eftir því hverjir sitja í stjórn. Það verður verkalýðssinnað ef réttir menn setjast í stólana. Jafnframt því hefur ríkisvaldið kjör okkar í hendi sér og það stendur ekki í okkar valdi að hindra það í gerð- um sínum. Fráfarandi ríkisstjóm hefur, auk þess að afnema verð- bætur á laun, áreiðanlega stöðv- að með lagaboði fleiri verkföll en nokkur fyrri stjórn. Hvernig hafa verkalýðsforingjarnir svarað því? Þeir hafa kyngt hverjum hland- sopanum af öðmm og í mesta lagi tuldrað einhver mótmæli á milli sopa. „Gamlar baráttuaðferðir duga ekki lengur,“ segja þeir svo. Og stríð mitt er nútímastríð,en ekki af því taginu / að standa til lengdar í tvísýnum vopnabrýn- um, ein sog Steinn sagði Bjarg- ræðið liggur í „vinsamlegri ríkis- stjorn". I framhaldi af hugmyndinni um „hlutlaust“ ríkisvald er hug- myndin um að ríkisvaldið beri ábyrgð á að leiða kaupdeilur til lykta. VSÍ og ASÍ-forysta sam- einast um þá skoðun. Og við horfum uppá símeiri íhlutun ríkisins í samningagerð. Ríkis- stjórn og Þjóðhagsstofnun leggja fram tölur um hver sé staða at- vinnuvega og þjóðarbús og „eðli- lega stærð launakökunnar" út frá því. Hlutverk verkalýðshreyfing- arinnar er þá ekki að stækka þá köku heldur aðeins að slást inn- byrðis um stærð sneiða. Auka- hækkun eins hóps er á kostnað annarra. VSÍ og ASÍ-forysta sameinast einnig um þá skoðun. Það er bágt að þurfa að minna lesendur Þjóðviljans á að ríkis- valdið er kyrfilega stéttbundið. Vaxandi ríkisforsjá í kjaramálum er draumastaða eignastéttarinn- ar. Hvort skyldi Þjóðhagsstofnun hafa betri tengsl við atvinnurek- endur eða verkafólk? Afskipti ríkisstjórna af gerðum kjarasamningum hafa þessi ár mín sem launamaður verið mis- hörkuleg, enda hefur árað misvel í atvinnulífinu. En afskiptin hafa alltaf verið sama eðlis: Til skerð- ingar, einkum sem skerðing verð- bóta á laun. Það sem sérlega hef- ur einkennt þessi 15 ár í samning- amálum er hin síaukna ríkisfor- sjá. Og áðurnefnd launaþróun ber „hlutleysi" ríkisins glöggt vitni! Það eru gömlu aðferðirnar sem gilda. Dugandi verkalýðshreyf- ing lætur ekki bara hrifsa af sér verðbætur og eyðileggja samn- inga strax að þeim loknum. Hún segir samningum upp og fer í slag um leið og ríkisvaldið dirfist að hrófla við þeim. En til að svo geti orðið þarf fyrst að endurreisa verkalýðshreyfinguna. Þórarinn Hjartarson - Höfundur er stálsmiöur á Akureyri .. Það er bágt aðþurfa að minna les- endur Þjóðviljans á að ríkisvaldið er kyrfilega stéttbundið. Vaxandi ríkisfor- sjá í kjaramálum er draumastaða eigna- stéttarinnar. Hvortskyldi Þjóðhags- stofnun hafa betri tengsl við atvinnurek- endur eða verkafólk?... “ 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. júlí 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.