Þjóðviljinn - 11.07.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 11.07.1987, Blaðsíða 1
j Alþjóðahvalveiðiráðið Ursögn enn á dagskrá / Meirihlutinn íráðinu brautgegn stofnskráþess, segirArni Kolbeinsson ráðuneytisstjóri Ursögn íslands úr Alþjóða hvalveiðiráðinu er enn á dag- skrá í sjávarútvegsráðuneytinu, og ráðuneytið túlkar það ekki sem brot á Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna vegna þess að Hvalveiðiráðið hefur að mati ráðuneytisins brotið gegn eigin stofnskrá með samþykkt sinni um hvalveiðar íslendinga í vísinda- skyni. Þetta kom fram í samtali Pjóð- viljans við Árna Kolbeinsson ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs- ráðuneytinu, þegar hann svaraði spurningum okkar um viðbrögð ráðuneytisins við hótunum 20' náttúruverndarsamtaka um refsi- aðgerðir gegn hvalveiðum ís- lendinga. Árni svaraði í fjarveru sjávarútvegsráðherra og sagðist því miður ekki hafa haft tækifæri til að lesa bréf náttúruverndar- samtakanna. Aðspurður um hvort hann óttaðist ekki um fisk- markaði íslendinga vegna þessa máls sagði ráðuneytisstjórinn að hugsanleg úrsögn íslands úr Al- þjóða hvalveiðiráðinu hefði ekki grundvallarþýðingu í því sam- bandi. Aðspurður um það hvort ríkis- stjórnin óttaðist dóm Hvalveiði- ráðsins eða vísindanefndar þess um vísindalega þýðingu hval- veiðanna sagði Árni: „Við höfum aldrei verið því andvígir að vís- indanefnd Hvalveiðiráðsins fjall- aði um rannsóknaáætlanirokkar. Það sem við gátum hins vegar ekki sætt okkur við var sú ákvörðun að leggja mat vísinda- nefndarinnar undir atkvæða- greiðslu hins pólitíska ráðs, eins og gert var í þessu tilfelii. Við teljum ekki að hið pólitíska ráð geti eða eigi að leggja mat á vís- indalegt gildi rannsókna, og allra Síst að það verði gert með póli- tískri atkvæðagreiðslu um vís- indalegan ágreining innan nefnd- arinnar eins og hér var gert. Það stríðir meðal annars gegn 8. grein stofnskrár Hvalveiðiráðsins, þar sem veiðar í vísindaskyni eru undanskildar öðrum samþykkt- um ráðsins um skipulagningu veiða. -ólg Alþýðublaðið Matar- skatturinn slæmur Kemur mest niður á láglauna- og barnafjöl- skyldum. Jón Baldvin: Skiljanleg viðbrögð - Matarskatturinn er vont fyrirbaeri sem Alþýðublaðið tekur afstöðu gegn. Biaðið tekur undir þá gagnrýni að skattur þessi kemur verst niður á lág- launafjölskyldum og barn- mörgum íjölskyldum og er ekki í anda jafnaðarstefnunnar, segir í leiðara Alþýðublaðsins í gær. Þá leggst leiðarahöfundur einnig gegn söluskatti á tölvur og segir hann beinan neysluskatt. - Þetta eru ósköp skiljanleg viðbrögð. Það er alltaf hægt að gagnrýna alla skattheimtu. Það verður hins vegar að setja málin í heildarsamhengi og það gerir leiðarahöfundur Alþýðublaðsins ekki, sagði Jón Baldvin Hanni- balsson fjármálaráðherra um skrif Alþýðublaðsins í gær. - K.ÓI. E r wPi Landsmótið á Húsavík hófst formlega í gær og þá var m.a. keppt í línubeitingu. Sjá bls. 15. Kjarsamningar Viðræður hefjast fljótlega Gunnar Friðriksson VSÍ: Viljum samninga útnœsta ár. Ásmundur Stefánsson ASÍ: Viljum leiðrétta launamisvœgið áður en gengið verð- ur til samninga til lengri tíma Margt bendir til þess að samn- ingaviðræður vinnuveitenda og ASÍ um endurskoðun á launa- liðum jólaföstusamninganna og samninga fyrir næsta ár hefjist á næstu vikum, þrátt fyrir ágreining samningsaðila um þær leiðir sem fara skuli í viðræðun- um. Fulltrúar vinnuveitenda hafa lagt mikla áherslu á að skilyrði fyrir því að hefja viðræður séu þau að Alþýðusambandið sættist á, að endurskoðun launaliða jól- aföstusamninganna og samning- ar fyrir árið 1988 verði gert í ein- um pakka. „Við sjáum enga á- stæðu til þess að gera samninga fyrir nokkra mánuði í senn. Það tekur því ekki,“ sagði Gunnar J. Friðriksson formaður Vinnuveit- endasambandsins. „Það hefur skapast mikið mis- vægi á milli launafólks í ASÍ og annarra hópa launafólks á árinu og þetta misvægi viljum við fá leiðrétt áður en gengið er til samninga fyrir árið 1988,“ sagði Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ. „Við lítum á endurskoðun samninganna fyrir árið í ár og samningagerð fyrir næsta ár sem tvö aðskilin mál, “ sagði Ás- mundur. Hann sagði að endur- skoðun jólaföstsamninganna væri í höndum sérsambandanna og hann vildi ekki útiloka að ein- hver þeirra vildu semja til lengri tíma svo framarlega sem forsend- ur fyrir árið 1988 lægju fyrir. Grundvallarkrafa sambandanna hlyti þó að vera kaupmáttartryg- ging launa og viðunandi kaupmáttur þeirra. Aflabrögð Stefnir í metár Heildaraflinn orðinn tœp 900þúsund tonn. A sama tíma ífyrra varhann rúm 730 þúsund tonn Það má búast við því að árið í ár verði metár í aflabrögðum og ennfremur að aflinn í ár sé sá verðmætasti sem komið hefur upp úr sjó hingað til, samkvæmt bráðabirgðatölum frá Fiskifélagi Islands um afla fyrstu sex mánuði ársins. Þá var júní mjög góður og varð aukning í afla í svo til öllum landshlutum. Heildaraflinn fyrstu sex mánuðina er orðinn tæp 900 þúsund tonn, en á sama tíma í fyrra var hann rúm 730 þúsund tonn. Þar munar mestu um loðnuaflann sem er tæpum 150 þúsund tonnum meiri í ár en í fyrra, 492.358 tonn á móti 345.222 tonnum í fyrra. Þorskur er um 220.620 tonn á móti 213.619 tonnum í fyrra og annar botnflskafli í ár er 164.168 tonn á móti 151.378 í fyrra. Sé litið á aflatölur í júnímánuði í ár þá hefur þorskaflinn aukist úr 31.363 þúsund tonnum í fyrra í 39.485 þúsund tonn í ár. Ánnar botnfiskafli jókst úr 21.292 tonn- um í fyrra í 24.378 tonn í ár. Þá hefur rækjaflinn aukist úr 2.344 tonnum í fyrra í 4.265 tonn í ár. grh Helgarveðrið Bjart fyrir norðan Utlit er fyrir hægviðri um allt landið um helgina. Hæg suð- austan átt leikur um landið og það þýðir að bjart verður norð- anlands og austan og allt upp í 17-18 gráðu hiti. Lands- mótsgestir verða því áfram í góða skapinu. Á Suður- og Suðurvesturlandi verður skýjað veður en úrkomu- laust að mestu og hitinn frá 10-14 gráður á celsíus. Af þessu er ljóst að ekki kemur til með að væsa um landann þessa helgi. - gsv.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.