Þjóðviljinn - 11.07.1987, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 11.07.1987, Blaðsíða 4
1EIÐARI Afleitir stjómarskattar Ríkisstjórnin hefur feril sinn á því að ákveða nýja skatta, og við því er raunar ekkert að segja eftir stjórn ríkisfjármála í höndum Þorsteins Pálssonar. Það hefur hinsvegar vakið athygli að undir fjármál- aforystu Jóns Baldvins Hannibalssonar, sem er fæddur í Alþýðuhúsinu á ísafirði, hafa ráðherrarnir ellefu ekki fundið sér annan sjóð girnilegri en mat- arpeninga heimilanna. Matarskatturinn hefur mælst afar illa fyrir. Helstu samtök launafólks hafa mótmælt harðlega og bent á að matarskatturinn komi verst niður þar sem síst skyidi, og forystumenn verkalýðshreyfingarinnar hljóta þessa dagana að sitja á rökstólum um það hvernig þessari kjaraskerðingu skuli svarað. Þeim hefur raunar gefist mikilsverður tími til þeirra verka, því að í 73 daga stjórnarmyndunarþreifingum flokkanna þriggja gleymdist að athuga hvernig skatt- urinn skyldi lagður á. Þrátt fyrir allt skjalaflóðið láðist skriffinnum stjórnarmyndunarmannanna, undir for- ystu Jóns Sigurðssonar fyrrverandi yfirmanns á Þjóðhagsstofnun, að taka með í reikninga sína hinn eðlilega skriffinnskugang skattheimtukerfisins, og almenningur getur því hamstrað sér matvöru út júl- ímánuð. Matarskatturinn virðist ásamt þungaskattinum á bíla einskonar forspá um virðingu hinnar nýju ríkis-* stjórnar fyrir kjörum alls almennings. Og á sama hátt virðist tölvuskatturinn sýna afstöðu stjórnarinnar til uppbyggingar og nýsköpunar í atvinnulífi. Stjórnmálamennirnir Ragnar Arnalds og Albert Guðmundsson bjóða af sér svo ólíkan pólitískan þokka að þeir verða vart bornir saman. Þeir hafa þó báðir í sæti fjármálaráðherra sýnt þá framsýni að greiða fyrir tölvuöld á íslandi. Ragnar Arnalds felldi á sínum tíma niður aðflutningsgjöld á tölvum, og Albert Guðmundsson sló af þann söluskatt sem ríkisstjórn Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks hefur nú ákveðið að taka upp aftur til að bæta hag ríkissjóðs á kostnað framþróunar í atvinnulífi. Og raunar verður einnig að líta á þennan söluskatt sem toll af almennum neytendum, því eitt af séreinkenn- um í upphafi íslenskrar upplýsingaaldar hefur verið mjög útbreidd tölvueign einstaklinga. Skýrslutæknifélagið hefur mótmælt tölvuskattin- um, iðnrekendur hafa mótmælt tölvuskattinum, og meira að segja Alþýðublaðið hefur risið gegn eigendum sínum og bent á þversögnina milli fjár- heimtu af tölvum og bókfestra yfirlýsinga stjórnarinn- ar um að efla nýtækni. Vitmenn um verslun og viðskipti segja um aðra skatta stjórnarinnar, þá sem við fyrstu sýn beinast að verkfræðistofum, auglýsingum, veitingahúsum, lögfræðistofum og svo framvegis, að skattgreiðend- um muni reynast einkar auðvelt að koma af sér tollinum útí verðlagið. Um þetta stendur í ályktun frá þingflokki Alþýðu- bandalagsins og framkvæmdastjórn frá því á fimmtudaginn að „í stað þess að sækja fjármggn til Kveðja til Ungmennafélögin halda landsmót sitt á Húsavík þessa helgi, hið 19. í röðinni. Ungmennafélögin eiga sér merka sögu, og þrátt fyrir allar samfélags - :bireytingar halda þau enn ákveðinni félagslegri sér- stöou með sitt „unga íslands merki“. Landsmót UMFÍ er þannig ekki einasta merkur íþróttaviðburður heldur fjölskyldusamkoma, hátíð, stóreignamanna, stórfyrirtækja og Ijármagns- eigenda, einsog Alþýðuflokkurinn boÓaÓi fyrir kosningar, eru lagðar auknar byrðar á almenning með neyslusköttum og hækkun vaxta.“ Það hafi komið í Ijós að launafólki sé ætlað að greiða óráðsíu- skuldir fyrri stjórnar, gróðastéttirnar sleppi sem fyrr. Fyrstu aðgerðir nýgömlu stjórnarinnar eru afleitar. Þar er farin sú gamalkunna aðferð að seilast í vasa launafólks þegar vandi steðjar að, og þær lýsa einn- ig daufingjalegu skilningsleysi um vaxtarmegn í atvinnulífi og nauðsyn þess að hlynna að þeim nýju sprotum sem orðið gætu burðarásar samfélagsins á 21. öldinni. Dómur Félags íslenskra iðnrekenda um þetta brambolt allt er síðan sá að skattahækkanirnar muni að vísu færa ríkissjóði tekjur, - nema hvað? - en það sé „ólíklegt að þær muni hafa mikil áhrif á viðskipta- hallann", muni „fyrst og fremst valda aukinni verð- bólgu og skerða samkeppnisstöðu atvinnulífsins", að þær vinni gegn þeim markmiðum að örva hagvöxt og framfarir í atvinnulífinu og bæta lífskjör. Var þetta inntakið í fundaherferð Alþýðuflokksins undir spurningunni „Hver á ísland?“? Húsavíkur þar sem starf og skemmtun fjöldans skipar ekki lægri sess en árangur afreksmanna. Þjóðviljinn sendir Landsmótsgestum öllum kveðju sína, og ekki síst húsvískum gestgjöfum, sem nú sýna enn einu sinni að Þingeyingum er ekkert um megn. -m Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Rltatjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéðinsson. Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson. Biaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, , Hrafn Jökulsson, Hjörleifur Sveinbjömsson, Ingunn Ásdísardóttir, Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Beramann Eiðsson (íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁmason, OlafurGíslason, RagnarKarlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, StefánÁsgrfmsson, Vil- borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri). Handrtta- og prófarfcaioatur: Elías Mar, HildurFinnsdóttir. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlftstaiknarar: Sœvar Guðbjömsson, Garðar Sigvaldason. Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifatofuatjórl: Jóhannes Harðarson. Skrifatofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson. Auglýaingaatjóri: Sigríður Hanna Sigurbjömsdóttir. Augiýaingar: Baldur Jónasson, Olga Clausen, Guðmunda Kristins- dóttir. Sfmvarala: Katrín Anna Lund, Sigrfður Kristjánsdóttir. Húamóðir: Soffía Björgúlfsdóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbrelöslu-og afgrelðslustjórl: HörðurOddfríðarson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjömsson. Útkeyrsla, afgreiðala, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Síöumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setnlng: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð f lausasöiu: 55 kr. Helgarblöð:60kr. Áskriftarverð á mánuði: 550 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 11. júlí 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.