Þjóðviljinn - 11.07.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 11.07.1987, Blaðsíða 11
ERLENDAR FRETTIR Eyjaálfa Aslralir kjósa til þings Búist við sigri Verkamannaflokksins þóttnið- urstöður glænýrrar skoðanakönnunar hafi valdið sviða í brjósti Bobs Hawkesforsœtis- ráðherra r Idag ganga tíu og hálf miljón at- kvæðisbærra Astrala að kjör- borði og velja sér 148 þingmenn. í boði eru þrír fýsilegir kostir. Verkamannaflokkur Bobs Hawk- es forsætisráðherra sem hefur hreinan meirihluta á þingi eða 82 þingmenn. Hinn íhaldssami Frjálslyndi flokkur undir leið- sögn helsta keppinautar Hawkes, Johns nokkurs Howards, en hann hefur nú umráð yfir 45 þingsæt- um. Og að endingu er það Þjóð- arflokkurinn sem á 21 fulltrúa á þingi. Síðastnefndu flokkarnir tveir kosta, sem skiljanlegt er, kapps um að ná völdum úr hönd- um Verkamannaflokksins. Frá því kosningabaráttan hófst hafa allar spár lagst á eitt um að gleðja hjarta Bobs Hawkes. Hann nýtur mikils persónufylgis í Ástralíu og hefur getið sér gott orð á alþjóðavettvangi þau tvö kjörtímabil sem hann hefur vermt stól forsætisráðherra. Hin- ir ýmsu þjóðfélagshópar eru hæstánægðir með stjórn hans, verkalýðshreyfinguna hefur hann á sínu bandi, enda fyrrum leið- togi hennar, og bissnessmenn eru einnig veikir fyrir honum. Flestir fjölmiðla landsins hvetja lands- menn til að veita honum brautar- gengi í dag. En blikur eru á lofti og í gær Þegar Ástralíu ber á góma hvarflar hugur margra gjarna til pokadýrs nokkurs sem býr yfir miklum stökkkrafti. Færri vita að þar er Bob nokkur Hawke forsætisráðherra. fékk Hawke óvænta harmafregn. Glæný skoðanakönnun gaf sterk- lega í skyn að andstöðuflokkarnir tveir hefðu dregið verulega á valdaflokkinn og að kosningarn- ar yrðu næsta tvísýnar. Af 1400 aðspurðum kváðust 46 af hundr- aði styðja Verkamannaflokkinn en 44 hundraðshlutar hugðust ljá Howard og félögum atkvæði sitt. Howard var í sjöunda himni, svo sem vænta mátti, og var alveg Kanamórall Forseti, þingmaður eða filmstjama Hœgrimenn í Repúblikanaflokknum telja Oliver North koma til greina sem forsetaefni flokksins í framtíðinni Oliver North ofursti hefur vak- ið slíka lukku nieðal banda- rískra hægrimanna að þeir vilja ólmir og uppvægir fela honum ábygðarstörf! samfélaginu, gera hann að öldungadeildarþing- manni eða jafnvel forseta. Ástæðan er einföld, hann tekur sig svo fjári vel út í sjón- varpi. North hefur mætt upp á hvern dag í yfirheyrslur þing- nefndarinnar sem fer oní saumana á írans/ Kontrasvínaríinu í fullum her- skrúða með allskyns dinglum- dangl á brjóstinu. Hann hefur verið öryggið uppmálað, svarað skjótt öllum fyrirspurnum og á stundum hafið gagnsókn og sak- að nefndarmenn um að efna til þórðargleði með framferði sínu. North hefur að eigin sögn ætíð látið hagsmuni föðurlandsins sitja í fyrirrúmi, aldrei óhlýðnast yfirboðurum sínum og ekki kom- ið til hugar að taka fram hjá ást- kærri eiginkonu sinni með föngu- legum einkaritara. Og viti menn, landar hans halda vart vatni né vindi af hrifn- ingu. Þekktur hægrimaður og Reaganvinur vestra útskýrir sjónvarpsvelgengni Norths: „Það eru ekki orðin sem blífa heldur músíkin“ og sérfræðingur um sápuóperur, Merideth einhver Brown, lætur sitt ekki eftir liggja: „Ollí North er hin fullkomna hetja úr sápuóperu, hann er við- kvæmur með stór brún augu.“ Þótt North hafi játað á sig lygar, skjalafals og eyðingu sönnunargagna þá varpar það ekki skugga á mannorð hans því hann gerði það allt í þágu banda- rísku þjóðarinnar og frelsishetj- anna í Kontrahreyfingunni. „Það eru ekki orðin sem blífa...“ En ef örlagadísirnar leika OIlí það grátt að honum verði gert að sæta ábyrgð afbrota sinna þá er Kvöldstund með Oliver North er að minnsta kosti 20 000 dala virði. stjórnmálaframi úr sögunni. Um þetta eru ákvæði í bandarískum lögum. En þá opnast önnur leið. „Hollywood gæti orðið Ollíwo- od“ segir aðdáandinn og sjón- varpsgagnrýnandinn Howard Rosenberg. Hann telur miklar líkur á að kvikmynd verði gerð um „amerísku hetjuna Oliver North" sem að auki fengi senni- lega mörg tilboð um að leika aukahlutverk í sjónvarpsþáttum á borð við Dallas og Dynasty. Enn er ónefnd drjúg tekjulind fyrir North í framtíðinni. Banda- ríkjamenn greiða frægum ein- staklingum vænan skilding fyrir að flytja fyrirlestra um störf og hugðarefni sín og má þá einu gilda hvort þeir eru frægir að endemum. Nokkrir af helstu með það á hreinu hví örlagadís- irnar voru honum allt í einu svo hliðhollar. „Við höfum verið málefna- legir, boðið uppá hugsjónir, rætt um framtíðarskipan mála og, síð- an en ekki síst, bent á lausnir út úr áströlskum vanda.“ -ks. skúrkum Watergatehneykslisins, þeir Gordon Liddy, John Erlich- mann og Bob Haldemann hafa í gegnum árum rakað saman fé á fundahaldi og taka enn þann dag í dag um 7,500 dali fyrir að heiðra samborgara með nærveru sinni. Þar sem North er nýr og fersk- ur skúrkur ásamt því að vera „þjóðhollur" kani með brún augu, trúr spúsu sinni og býsna músíkalskur, má vera ljóst að hann getur krafist hærri upphæð- ar en fyrrnefndir kollegar hans. Fundaspekúlantar vestra skatt- yrðast nú um verðgildi Norths. Ýmsir kveða nærveru hans 15000 dala virði en aðrir setja markið hærra og fullyrða að frásagnir af afreksverkum Oliver Norths séu að minnsta kosti 20000 dala virði. -ks. Sovéskir andófsmenn Frelsi með skilyrðum Náðaðir andófsmenn fá ekki atvinnu og eru í húsnæðishraki. Umbótastefna Gorbatshovs hefur sín takmörk Sovéskir andófsmenn virðast hafa farið í ýmsu varhluta af umbótastefnu Mikjáls Gorbats- hovs, aðalritara sovéska Komm- únistaflokksins, ef mark er haf- andi á umkvörtunum andófs- manna. Þrátt fyrir um margt góð- an ásetning Gorbatshovs við að draga úr hömlum í sovésku samfélagi, sem meðal annars hef- ur komið fram í náðun fjöl- margra fangelsaðra andófs- manna, hefur „Glasnost“ og „Perioka“ aðalritarans sín tak- mörk. Sovéskir andófsmenn, hafa trekk í trekk lent í útistöðum við lögreglu og embættiskerfi, vegna þess að þeim hefur fæstum tekist að útvega sér fasta vinnu og finna sér íverustað, en samkvæmt so- véskum félagsmálaklásúlum er iðjuleysi og hverskyns vandalismi talið til verri lasta. Að sögn kristins strangtrúar- manns, Alexanders Ogorodnik- ov, sem var slepp úr haldi í febrú- ar s.l. ásamt 150 öðrum andófs- mönnum, fyrirskipuðu fangelsis- yfirvöld honum að búa í Bolshe- vo, rétt utan við Moskvu. Þar sem Ogorodnikov, hafði ekki í höndunum heimild, - „prop- iska“, til þess að setjast að í bæn- um, fékk hann hvergi inni. „Embættismenn meinuðu mér um „propiska", á þeirri forsendu að ég væri ekki heimilisfastur í Bolshevo og fyrst ég hafði ekki fastan samanstað, fékk ég hvergi vinnu,“ sagði Ogorodnikov við fréttamenn. „Án „propiska" er maður með öllu réttlaus - maður er í rauninni ekki til,“ sagði Ogorodnikov og bætti því við að þótt það væri ekki ólöglegt að vera heimilislaus og hafa ekki vinnu, ættu menn yfir höfði sér allt að tveggja ára betr- unarvist, gætu þeir ekki sýnt fram á að þeir gætu séð sér farborða. Vestrænir fréttaritarar gera að því skóna að stjórnvöld í Sovét- ríkjunum hafi í lengstu lög von- að, að með því að náða slatta af andófsmönnum slægju þau tvær flugur í einu höggi: annars vegar keyptu þau sér frið fyrir gagnrýni vestrænna ríkja fyrir mannrétt- indabrot og skoðanakúgun og hins vegar yrðu náðaðir andófs- menn svo fegnir frelsinu að þeir héldu sér framvegis á mottunni. Reyndin hefur orðið önnur. Um tuitugu manna hópur and- ófsmanna, sem hlaut náð fyrir augum yfirvalda í febrúar s.l. og var sleppt úr haldi, hafa sett á laggirnar umræðuklúbb og tíma- rit, sem þeir kenna við „Glas- nost“: Sumir félaganna hafa að undanförnu fengið heimsókn lög- reglu, sem hefur varað þá við að hafa sig frekara í frammi og hafa ættingjar og vinir verið strang- lega áminntir um það að veita þeim ekki húsaskjól. -RK Frá menntamálaráðuneytinu Laus staða Embætti forstöðumanns Unglingaheimilis ríkisins er laust til umsóknar. Forstöðumaður skal hafa lokið háskólaprófi á sviði uppeldismála og hafa auk þess reynslu og/eða menntun í stjórnunarstörfum. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendast menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. ágúst næstkomandi. Laugardagur 11. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.