Þjóðviljinn - 11.07.1987, Qupperneq 2
Uppblástur
-SPURNINGIN-
Hvað ætlar þú að taka
þér fyrir hendur um helg-
ina?
Sigrún Jóhannsdóttir,
nemi:
Ég verö heima mestanpart. Ég er
hérna heima í stuttan tíma, þar
sem ég er í námi í Bergen og
reyni því að fara í heimsóknir til
ættingja og kunningja.
Guðríður Sigurjónsdóttir,
húsfrú:
Ég verö heima. Veðurútlitiö er
ekki þannig að vilji sé fyrir hendi
að fara út úr bænum um helgina.
Silja Þorsteinsdóttir,
átta ára:
Ég ætla í útilegu upp í Gíslholt.
Þetta er fyrsta útilegan sem ég
fer í í sumar, - ég ætla að vera í
tjaldi.
Benedikt Hjartarson:
Ekkert, ég verð heima. Ég ætla
ekkert að vera að þeytast um
þessa helgi, enda er ég búinn að
fara í sumarfrí.
Guðmundur Guðmundsson,
framkvæmdastjóri:
Ætli ég verði ekki mestmegnis
heima. Ef veður leyfir verð ég
eitthvað að stússast í garðinum -
annars ætla ég að slappa af.
Moldryk byrgir sýn
Sveinn Runólfsson: Vitum að land er að eyðast. Einnfjórði af
framkvœmdagildi þjóðargjafarinnar til landgrœðslu árlega
að vakti athygli fólks á höfuð-
borgarsvæðinu að land fauk á
haf út sunnan við Esjuna í austan
áttinni í fyrradag. Moldrok þetta
virtist safnast saman úr jarð-
vegssárum á Mosfellsheiðinni.
Samvæmt upplýsingum frá Land-
græðslu ríkisins stafar slíkt
moldrok af lélegu ástandi gróður-
lendna og samfara miklum
þurrkum sem verið hafa að und-
anförnu hefur ástandið víða verið
viðkvæmt á landinu.
„Það vildi svo heppilega til að
ég keyrði einmitt í gegnum þetta
moldrok í fyrradag og þetta var á
mjög afmörkuðum geira. Við
höfum haft miklar áhyggjur af
ástandinu að undanförnu vegna
þurkkanna en veður hefur verið
svo kyrrt og átakalaust. Nú hefur
víða rignt talsvert um landið og
við erum komnir yfir versta hjall-
ann. Um stöðuna í land-
græðslumálunum almennt má
segja að mikið hafi unnist frá
1974 með þjóðargjöfinni. En nú
fáum við 1/4 af framkvæmdagildi
þjóðargjafarinnar á ári. í góðæri
græðum við meira upp en eyðist
en á kuldatímabilum eins og árin
1979-83 þá blæs meira upp en á
vinnst.
Alvarlegast er ástandið í Þing-
eyjarsýslum og á afréttum
sunnan- og suðvestanlands. Nú
er land að gróa upp í Austur-
Frá lagningu Ijósleiðarans í Melasveit í Borgarfirði,
Símakerfið
Ljósleiðari til Borgamess
Þessa dagana er vcrið að Ijúka
við uppsetningu á nýrri staf-
rænni símstöð í Borgarnesi og
einnig er verið að setja upp nýtt
stafrænt radíósamband mili
Reykjavíkur og Akraness og
leggja Ijósleiðarstreng milli Akra-
ness og Borgarness.
Með tilkomu þessara nýju
stafrænu kerfa eykst símaum-
ferðargetan á Borgarfjarðar-
svæðinu og mun auðveldara
verður að ná sambandi við
Reykjavíkursvæðið og aðra
landshluta.
Gæði sfmakerfa og þjónustu-
kostir aukast verulega með staf-
rænu símasambandi og truflanir
minnka.
Ljósleiðarinn sem verið er að
leggja milli Akraness og Borgar-
ness er fyrsti áfangi í nýju stafr-
ænu sambandi milli Reykjavíkur
og Akureyrar. Næsti áfangi sem
einnig verður lagður í sumar nær
frá Blönduósi til Sauðárkróks og
fæst að honum loknum varaleið
fyrir Skagafjarðarsvæðið.
Stefnt er að því að Ijúka við
leiðina Reykjavík-Akureyri í lok
ársins 1988.
Á þessu ári verður einnig hafin
lagning ljósleiðara frá Egilsstöð-
um til Reyðarfjarðar og áfram
þaðan til Eskifjarðar og Nes-
kaupstaðar. Milli þessara staða
vantar varaleið.
í ljósleiðarastrengjunum sem
nú er verið að leggja eru sex ljós-
leiðarar og geta tveir slíkir flutt
2000 símarásir eða fjórar sjón-
varpsrásir með þeim búnaði sem
nú er fáanlegur. Með nýjum bún-
aði verður hægt að margfalda
flutningsgetuna á sama streng.
Fiskvinnslan
Opinber tækniþróun
Rannsóknarráð ríkisins: 60 miljónir árlega nœstu 3 ár til
tœkniþróunar í fiskvinnslu
Rannsóknaráð ríkisins hefur
lagt tO við stjórnvöld að á
næstu þremur árum verði varið
60 mi|jónum króna árlega af op-
inberri hálfu til aðstoðar við
tækniþróun í fískvinnslu. Leggur
ráðið til að helmingi þessa fjár
verði veitt í Rannsóknasjóð til að
styðja rannsókna- og þróunar-
verkefni sem sótt verði sérstak-
lega um.
Hinum helminginum verði
veitt í Fiskimálasjóð, sem misst
hefur tekjustofn sinn, en sjóður-
inn myndi veita fyrirtækjum
áhættulán eða styrki til vöruþró-
unar, vinnslutilrauna og mark-
aðssetningar. Rannsóknaráð
reiknar með að á móti þessum
opinbera stuðningi komi eigið fé
fyrirtækja og fjármagnsfyrir-
tækja uppá a.m.k. 120 miljónir á
ári.
->g-
Skaftafellssýslu en við vitum ekki
hvað sú sjálfgræðsla er mikil. Við
vitum heldur ekki hve mikið er
grætt upp af Landgræðslunni,
Landsvirkjun, Vegagerðinni og
öðrum stofnunum og samtökum.
En eitt vitum við og það er, að
land eyðist. Það er heilög skylda
þessarar þjóðar að stöðva þá
jarðvegseyðingu sem á sér stað í
landinu núna,“ sagði Sveinn Ru-
nólfsson að lokum,
-gsv
ísafjörður
Hornstrandir
vinsælar
Framkvœmdastjóri
Djúpbátsins h/f: Erum
með áœtlanaferðir á
Hornstrandir þrisvar í
vikuísumar. Ferða-
mannastraumurinn íár
tnjög svipaður undan-
förnum árum
Ferðamannastraumurinn á
Hornstrandir í sumar er mjög
svipaður og hann hefur verið
undanfarin sumur. Djúpbáturinn
er með áætlanaferðir þangað þri-
svar í viku, á mánudögum,
fímmtudögum og á föstudögum.
Ekki er einungis farið í Hornvík,
heldur er líka að komast með
bátnum til Grunnavíkur og Hest-
eyrar. Þá verða farnar þrjár ferð-
ir til Reykjafjarðar og Furufjarð-
ar í júlí, segir Kristján Jónasson.
Núverandi Djúpbátur sem
heitir í reynd Fagranes ÍS er 25
ára gamall stálbátur, með fimm
manna áhöfn á veturna en sex á
sumrin, og tekur eitt hundrað
farþega og fimm fólksbfla á dekk-
ið. Útgerðin er styrkt af ríkinu,
en er í eigu ísafjarðarsýslna, ís-
afj arðarkaupstaðar, sveitarfé-
laga og um 200 einstaklinga. Á
veturna er að sjálfsögðu engar
áætlanir á Hornstrandir en því
meira farnar fastar áætlanaferðir
um ísafjarðardjúpið og hefur
báturinn um áraraðir verið eitt
aðalsamgöngutæki bænda við
Djúp.
Þrátt fyrir að nú sé búið að
leggja akfæran veg um ísafjarð-
ardjúp sagði Kristján að töluvert
væri um það í sumar að bfleigend-
ur tækju sér far með bátnum inn í
Djúp vegna þess að vegurinn væri
svo slæmur að menn reyndu að
komast hjá því að keyra hann.
„Útgerðin hefur gengið alveg
áfallalaust undanfarin ár og engin
óhöpp orðið. Það hefur oft kom-
ið til tals að endurnýja skipið, því
hann er kominn til ára sinna, en
eins og er hafa engar ákvarðanir
verið teknar um það,“ sagði
Kristján Jónasson að lokum.
- grh
2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 11. júli 1987