Þjóðviljinn - 11.07.1987, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
Frá Landsmóti.
Um helgina
Það er að sjálfsögðu Lands-
mótið á Húsavfk sem ber hæst í
íþróttum um helgina. Það stend-
ur fram á sunnudag.
En það er einnig mikið um að
vera í knattspyrnunni. Tveir
leikir eru í dag, báðir í 2. deild
karla. ÍBV og ÍBf leika í Vest-
mannaeyjum og ÍR og KS á Val-
bjarnarvelli.
Á morgun eru svo fjórir leikir í
1. deild karla og hefjast þeir allir
kl.20.
KR og Víðir leika á KR-velli,
Skagamenn taka á móti KA á
Akranesi og Þór og FH mætast á
Akureyri. Loks er það Ieikur
Völsungs og Vals á Húsavík, en
hann er nokkurs konar lokapun-
ktur Landsmótsins. -Ibe
Húsavík
Mark Higgins dregur hér bát að landi i síðustu grein Víkingaleikanna. Jón Páll Sigmarsson fylgist með og gefur góð ráð.
Hann gat ekki keppt sökum meiðsla, en nýtur samt mikilla vinsælda á Húsavík. Mynd: E. 01.
Kamival-
stemmning
á Landsmóti
Sólbaðsveður og mikillfjöldifólks á vel heppnuðu
Landsmóti
Það ríkti svo sannarlega suð-
ræn karnivalstemming á Húsavík
í gær. Þá var 19. Landsmótið
formlega sett. Keppni hófst þó í
gær með Víkingaleikunum og
stendur fram á sunnudagskvöld.
Allar áhyggjur um slæmt veður
hurfu eins og dögg fyrir sólunni,
sem hefur skinið á lands-
mótsgesti. Mikill mannfjöldi er
samankominn á Húsavík og í gær
voru gestir á fimmta þúsund.
Keppendur eru hinsvegar tæp tvö
þúsund. Skipulagning hefur tek-
ist með eindæmum vel, en mótið
er mikið fyrirtæki. Starfsmenn
munu vera um 700.
Landsmótið hófst á fimmtu-
dag, en þá var keppt á Víkinga-
leikunum. Þeim var svo fram
haldið í gær. Það var Geoff Capes
sem sigraði með yfirburðum
hlaut 36 stig, Mark Higgins hafn-
aði í 2. sæti, með 22 stig, Hjalti
Ámason í 3. sæti með 19 og
Magnús Ver í því 4. með 14 stig.
Jón Páll Sigmarsson gat ekki
tekið þátt í keppninni, en var þó á
svæðinu og hnyklaði vöðva við
góðar undjrtektir. Greinilega
mjög vinsæll á Husavík.
á Húsavík
I gær hófst svo keppni í frjáls-
um íþróttum. íris Grönfeldt,
UMSB, setti nýtt landsmótsmet í
spjótkasti. Kastaði 52.62 metra.
Magnús Ólafsson, HSK, setti
nýtt landsmótsmet í 800 metra
skriðsundi á 9.02.97.
í gær var keppt í fjölda greina.
Margar af þessum greinum teljast
ekki til hinna hefðbundnu keppn-
isíþrótta, s.s. dráttarvélaakstur,
línubeiting, lagt á borð o.fl.
Mjög góð stemmning er á
Húsavflc. Landsmótsútvarpið út-
varpar úrslitum og léttu efni og
stuttar fjarlægðir gera mönnum
kleift að fylgjast með sem flestum
atburðum. Það er þó ómögulegt
að sjá allt, því samtímis er keppt í
mörgum greinum.
Lítið hefur verið um meiðsli,
en þó kláruðust birgðir af teygju-
bindum strax á fýrsta degi og
þurfti sjúkrahúsið að senda eftir
viðbót!
Landsmótið heldur svo áfram í
dag og lýkur á morgun. Utlit er
fyrir svipað veður og bendir allt
til þess að þetta Landsmót verði
það besta ♦ langan tíma.
-HS
Þeir litlu fengu einnig eitthvað við sitt hæfi. Þessi ætlar sér greinilega sigur í
kassabílarallinu. Mynd: E. Ói.
Svanhildur Kristjónsdóttir kemur hér fyrst í mark í 100 metra hlaupi. Mynd E. Ól.
FH-ingar
Luma á leynivopni!
Ian Fleming þjálfari FH skoraði mikið íSkotlandi
FH-ingum hefur ekki gengiS
sem best að skora mörk það sem
af er sumri - aðeins 5 í 1.
deildarkeppninní, og þau deilast
á jafnmarga leikmenn. Þá vantar
afgerandi markaskorara - en Ian
Fleming þjálfari lumar kannski á
einum - sjálfum sér!
Fleming á langan feril að baki í
skosku knattspyrnunni. Hann
hóf að leika með Kilmarnock
uppúr 1970, sem framherji, og
skoraði 50 mörk í 95 deilda-
leikjum fyrir félagið. Þar af 32
þegar liðið vann sér sæti í 1.
deildinni veturinn 1973-74.
Næsta keppnistímabil skoraði
Fleming 11 mörk í 1. deild og 11
að auki í deildabikarnum.
Kilmarnock var meðal stofn-
liða úrvalsdeildarinnar haustið
1975 en féll um vorið. Fleming
var seldur til Aberdeen um miðj-
an vetur en hafði skorað 5 mörk í
úrvalsdeildinni fyrir Kilmarnock
og bætti 2 við fyrir Aberdeen.
Með Aberdeen lék hann í 4 ár,
m.a. í Evrópukeppni, og skoraði
12 mörk í 64 deildaleikjum, og 11
bikarmörk að auki. Aberdeen
var á þessum árum yfirleitt í 2.-4.
sæti í skosku úrvalsdeildinni.
Hið fræga enska knattspyrnu-
élag Sheffield Wednesday keypti
Fleming í ársbyrjun 1979 en það
lék þá í 3. deild. Hann festi aldrei
rætur þar, lék 6 leiki og skoraði 1
mark þann vetur og 7 leiki haust-
ið eftir. Síðan var hann seldur til
Dundee í skosku úrvalsdeildinni
og lauk keppnistímabilinu 1979-
80 þar, skoraði þá 3 mörk í 16
leikjum.
Fleming lék tvö næstu tímabil
með Dundee í úrvalsdeildinni,
skoraði 1 mark í aðeins 8 leikjum
fyrra árið en 1 í 16 leikjum 1981-
82, og 4 mörk að auki í deildabik-
arnum.
Þá fór hann til Brechin í 1.
deild og lauk þar ferli sínum í
skosku knattspyrnunni, lék með
liðinu fjóra vetur, síðast 1985-86.
Annað árið gerði hann 10 mörk í
deildinni en alls 15 í 116 deilda-
leikjum þessi fjögur tímabil. Síð-
asta veturinn var Fleming kom-
inn í vörnina og gerði þá eitt mark
í 35 leikjum í 1. deild.
Fleming hefur þegar náð að
skora í íslensku 1. deildinni, hann
gerði mark FH í 1-4 tapleiknum
gegn Völsungi á Húsavík fyrir
skömmu. Hann leikur nú sem aft-
asti maður í vörn og hefur reynst
vel sem slíkur - en með þennan
feril að baki kæmi ekki á óvart þó
hann freistaði þess að færa sjálfan
sig framar á völlinn ef gengi FH-
inga uppvið mark mótherjanna
fer ekki að lagast.
-VS
Laugardagur 11. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15