Þjóðviljinn - 11.07.1987, Page 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími1
681348
Helgarsími
681663
þlÓÐVIUINN
Laugardagur 11. júlí 1987 148. tölublað 52. örgangur
IfíEHN
AÐ FARSCLLI
SKÓLACÖNCU
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
1
Fiskvinnslufólk
Stríðshanska kastað
Vaka á Siglufirði: Kaldar kveðjur frá Sambandi fiskvinnslustöðva. Ummœli
Soffaníasar ná engri átt. Baldur á ísafirði:Fiskvinnslufólkfái sömu hlutfallslegu
hœkkun ogsjómennirnir. Fiskvinnslufólk: Lýsir yfir furðu oggremju.
Þetta eru kaldar kveðjur scm
fískvinnslufólkið fær frá Sam-
bandi fiskvinnslustöðva og nær
auðvitað engri átt að láta svona
lagað út úr sér. En það er líka
alveg á hreinu að afkoma margra
fiskvinnslufyrirtækja er og hefur
verið mjög góð, þrátt fyrir að
fiskverðið hafi hækkað að undan-
förnu, því þessar hækkanir hafa
viðgengist lengi en eru fyrst að
koma fram í dagsljósið í dag,“
segir Hafþór Rósmundsson, for-
maður Verkalýðsfélagsins Vöku
á Siglufirði.
Mikil gremja er meðal fisk-
vinnslufólks út af mmælum for-
manns Sambands fiskvinnslu-
stöðva Soffaníasar Cecilssonar í
Þjóðviljanum í gær þar sem hann
sagði að það væri því miður ekk-
ert svigrúm fyrir kauphækkanir
fyrir fiskvinnslufólkið þar sem
allt góðærið hjá vinnslunni hafi
farið í að hækka fiskverð til sjó-
manna. Af því tilefni hafa margir
haft samband við Þjóðviljann og
lýst furðu sinni á þessum ummæl-
um og sumir hafa viljað ganga svo
langt að þarna hafi atvinnurek-
endur kastað stríðshanskanum
og nú sé komið að fiskvinnsluf-
ólkinu að svara fyrir sig á við-
eigandi hátt.
„Það eru nú flestir á þeirri
skoðun að sjómennirnir séu ekk-
ert of vel launaðir, en fyrst það er
hægt að hækka við þá er ekki
nema sanngjarnt að fiskvinnslu-
fólkið fái þá sömu hlutfallslegu
hækkun á sitt kaup,“ segir Pétur
Sigurðsson, formaður Verka-
lýðsfélagsins Baldurs á ísafirði og
forseti Alþýðusambands Vestf-
jarða.
Sagði Pétur að fiskvinnlsufólk-
ið hafi fórnað nógu miklu í síð-
ustu kjarasamningum og hann
trúi ekki öðru fyrr en á reynir, en
að það fái sína leiðréttingu í
næstu samningum.
-grh
Sigurbjörn Bárðarson á fullri ferð á sýningunni í hinni nýju reiðhöll í gærkvöldi. Mynd Loftur Atli.
Surtsey
Fjölbreytt
líf við eyna
Vísindamenn rannsaka
þörunga og hryggleys-
inoin íSnrtvpv
Tilgangurinn með ferð okkar til
Surtseyjar var að rannsaka
þörunga og hryggieysingja á
hörðum botni, safna sýnum og
taka myndir,“ segir Erlingur
Hauksson, sjávarlíffræðingur.
Að sögn Erlings voru með hon-
um í ferðinni þeir Sigurður Jóns-
son þörungafræðingur og Aðal-
steinn Sigurðsson fiskifræðingur
sem hafa stundað þessar rann-
sóknir í Surtsey frá byrjun, en
Karl Gunnarsson þörungafræð-
ingur og Erlingur komu í hópinn
seinna.
Sagði Erlingur að nokkuð fjöl-
breytt líf væri á grunnsævi eyjar-
innar, en það seinkar nokkuð
þróuninni þar hversu mikið
landbrot á stað í eyjunni af völd-
um brims. Við það skúrar sand-
urinn sumar lífverur í burtu og
aðrar koma í staðinn. Þá er ekki
eins mikið um þaraskóga í
Surtsey og er til dæmis við Vest-
mannaeyjar. — grh
Efnahagsaðgerðirnar
Vaxtahækkuninni frestað
Bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar tóku gildi ígœr. Vaxta-
hœkkun á ríkisskuldabréfumfrestað. Akvörðun um reglurá
greiðslukortaviðskiptum frestað
Bráðabirgðalög ríkisstjórnar-
innar tóku gildi í gær, en
ríkisstjórnin hefur frestað að
taka ákvörðun um reglur um
notkun greiðslukorta og vaxta-
hækkun ríkisskuldabréfa.
Bráðabirgðalögin snerta
fjármálaráðuneyti, sjávarútvegs-
ráðuneyti og landbúnaðarráðu-
neyti. Bráðabirgðalög fjármála-
ráðuneytisins miða að fjárm-
ögnun ríkissjóðshallans með
söluskattsálagningu á matvörum,
öðrum en kjöti, fiski, grænmeti
ávöxtum og mjólk, á ýmsar þjón-
ustugreinar, meðbílaskatti, ríkis-
ábyrgðargjaldi og lántökugjaldi á
erlend lán.
Bráðabirgðalög sjávarútvegs-
ráðuneytisins eru tvíþætt, en til-
gangur þeirra er að draga úr þen-
slu og jafna aðstöðu milli greina í
sjávarútvegi. í fyrsta lagi kveða
lögin á um að endurgreiðslur
söluskatts til sjávarútvegs verði
frystar vegna útflutnings sem á
sér stað efir lok júlímánaðar.
Eftirstöðvarnar sem að líkindum
verða um 200 miljónir króna
verða látnar renna til Verðjöfnu-
narsjóðs fiskiðnaðarins og féð
fryst til ársloka 1988. í öðru lagi
fjalla bráðabirgðalögin um sérs-
takt gjald til Verðjöfnunarsjóðs
fiskiðnaðarins af ísfiski sem flutt-
ur er óunninn á erlendan markað
eftir 15. júlí n.k. Þessu gjaldi er
ætlað að jafna stöðu íslenskra
fiskvinnslufyrirtækja í samkepp-
ninni við fiskkaupendur í öðrum
löndum.
Loks fjalla bráðabirgðalögin
frá landbúnaðarráðuneytinu um
viðbótarskatt á innflutt kjarn-
fóður, en aðgerðunum er ætlað
urs.
Færeyjar
RekaNATO-
herskip burt
Færcyska landsstjórnin óskaði
í gær eftir því við yfirmenn á
bandarísku NATO-herskipi sem
hafði viðdvöl á Þórshöfn á leið til
Skotlands, að það færi út úr fær-
eyskri lögsögu ef yfirmennirnir
staðfestu ekki að nein kjarnorku-
vopn væru um borð í herskipinu.
NATO hefur það fyrir reglu að
neita hvorki né játa tilvist kjarna-
vopna í skipum og flugvélum og
þau sömu svör fengu Færeyingar í
gær.
Færeyska landsstjórnin vísar til
samþykktar landsþingsins frá
1984 um að Færeyjar skuli vera
kjarnorkuvopnalaust svæði.
Bandaríska herskipið mun fara
frá Færeyjum nú árdegis.
-•g-
að draga úr notkun erlends fóð-
-K.ÓI.
Hestamennska
Reiðhölh
vígð með
viðhöfn
Reiðhöllin í Víðidal var vígð
með mikilli viðhöfn í gærkvöldi
og um leið hefur gamall draumur
íslenskra hestamanna ræst. Að
vígslunni lokinni fór fram fyrsta
hestasýning í reiðhöll á íslandi,
glæsileg sýning sem náði há-
punkti þegar iandslið íslands í
hestaíþróttum kom fram undir
lokin.
Sigurður Líndal stjórnarfor-
maður Reiðhallarinnar og helsti
forvígismaður um byggingu
hennar vígði mannvirkið, sem er
um 3000 fermetrar að flatarmáli
og hefur kostað 50-60 milljónir
fram til þessa.
Að ávörpum loknum tók við
sýning með þátttöku Félags
tamningamanna, Reiðskólans í
Geldingaholti, Stóðhestastöðv-
arinnar í Gunnarsholti, glæfra-
reiðmanna, landsliðsins, sem
keppir á FIM í Austurríki í ágúst,
og fleiri. Sýningin verður endur-
tekin í dag kl. 13.30.
Fyrsta verkefni hallarinnar
verður landbúnaðarsýningin sem
haldin verður í ágúst í tilefni 150
ára afmælis Búnaðarfélagsins, en
framtíðarsýn hestamanna er sú
að þarna verði stofnaður Reið-
skóli íslands, sem starfræktur
verði allt árið. Spurningin er að
sögn ekki hvort, heldur hvenær
og af hverjum sá langþráði skóii
verður stofnaður. _gg
Þjóðhagsstofnun
Spáir19%verðbólgu
Hagfrœðingar segja verðbólguna verða hærri
Þjóðhagsstofnun hefur áætiað
að efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar leiði til 19% verð-
bólgu á árinu, en samkvæmt spá
stofnunarinnar frá því í febrúar
var verðbólgan áætluð um 12%
og í óopinberri spá sem stofnunin
gerði í maí var spáin 15-17%
verðbólga.
Hagfræðingar sem Þjóðviljinn
talaði við ber saman um að verð-
bólgan verði hærri en spá Þjóð-
hagsstofnunar gefur til kynna, en
inn í spána er t.d. ekki tekið tillit
til endurskoðun samninga ASÍ
við vinnuveitendur þar sem
leitast verður við að leiðrétta það
misgengi launa sem orðið hefur á
milli ASÍ og annarra launahópa.
-K.ÓI.