Þjóðviljinn - 23.07.1987, Qupperneq 6
FLÓAMARKAÐURINN
Tjald með himni
til sölu. Verð kr. 8.000.- Upplýsing-
ar í síma 34868.
Til sölu
Ævagamalt píanó á góðu verði.
Þarfnast stillingar. Hringið í síma
99-1659.
Til sölu
gamall vel með farinn tveggja dyra
stofuskápur 99 cm á hæð og 1,18 m
á breidd á kr. 2.000.- Uppl. í síma
21903.
Barnarúm
Stórt barnarúm með dýnu til sölu á
kr. 2.500-. Upplýsingar í síma
72072.
Veiðileyfi
Veiðileyfi í Langavatni. Góð að-
staða í húsum og traustir bátar.
Einnig hægt að fá aðstöðulaus
veiðileyfi. Nánari upplýsingar gefur
Halldór Brynjólfsson í síma 93-
7355.
Til sölu
Borðstofuhúsgögn: Stækkanlegt
borð (upp í 12 manna), 6 stólar með
rauðu plussi, buffetskápur á
tveimur hæðum. Kringlótt sófa-
borð. Unglingasvefnbekkur með
skápum fyrir ofan og skúffum undir.
Lítil „Lundia" kommóða með 6
skúffum. Jóla- og mæðraplattar frá
Bing og Gröndal (árin 1970-1980).
Og ýmislegt fleira smálegt. Upplýs-
ingar síma 37045 eftir kl. 17.
Mazda 818 station '78
til sölu. Skoðaður '87. Fer á stað-
greiðslu á kr. 35.000.-. Uppl. í síma
40693.
Starfsmann Þjóðviljans
vantar litla íbúð. Skilvísum
greiðslum og mjög góðri umgengni
heitið. Uppl. í síma 35236.
Sósíalískt neyðarkall
Miðaldra komma vantar nú þegar
3-4 herbergja íbúð í 6-12 mánuði.
Erum 3 í heimili (á götunni). Fækkið
ekki geirfuglunum frekar. Uppl. í
síma 72399, Sigurur.
2 í íbúðarleit
Tvær skólastúlkur utan af landi til
fyrirmyndar bæði til orðs og æðis,
óska eftir 2-3 herbergja íbúð í
Reykjavík frá 1. september n.k.
Meðmæli og fyrirframgreiðsla.
Hverjir eru svo þessir fyrirmyndar-
leigjendur? Jú, allt um það í síma
23089 á kvöldin og í síma 93-
71337.
Óskast keypt
Óskum eftir sófasetti, hillum eða
hillusamstæðu, eldhúskollum og
kommóðum sem ódýrast. Má vera
gamalt. Uppl. í síma 18356 milli kl. 5
og 8.
Húsnæði óskast
Óska eftir að taka á leigu 1 -2 her-
bergja íbúð. Góðri umgengni og
reglusemi heitið. Helst á Seltjarnar-
nesi eða í vesturbæ. Uppl. í síma
621884, eftir kl. 17.
íbúð óskast
Hjón með eitt barn óska eftir 3-4
herbergja íbúð í Reykjavík, Kópa-
vogi eða í Hafnarfirði. Óruggar
greiðslur. Uppl. í síma 18583.
Til sölu - fæst gefins
Gamall Hoover þurrkari fæst gef-
ins. Þarfnast viðgerðar. Til sölu 2
stólar og bekkur úr Lödu og aftur-
rúða úr Lödu. Selstá kr. 4.500.- allt
saman. Uppl. í síma 10991.
Til sölu
Wartburg '82 á kr. 40.000.- Uppl. í
SÍma 72894.
Rúm gefins
Heimasmíðað en vandað hjónarúm
(sökkull) 1,50 x 2 m fæst gefins.
Uppl. í síma 35441.
Góð kaup
Til sölu ný brún Electrolux eldavél
með 25-30% afslætti. Einnig nýtt
klósett og vaskur á fæti með 25-
30% afslætti. Uppl. í síma 17482.
Til sölu
fyrir lítið: 1.9 hansahillur á kr. 800,-
2. 6 gardínustangir á kr. 200.- 3. 2
rúllugardínur á kr. 200.- 4. Ljós á kr.
0.-5 4. Innihurðir á kr. 1.000.- sam-
tals. 6. 3 borðstofustólar á kr.
1.000.- samtals. 7. 2 sólstólar á kr.
500,- 8. Gamall Ijósalampi á kr.
1.000,- 9. Gott ullargólfteppi á kr.
2.000.-10. 4 VW bjöllu felgur á kr.
500.-. Sími 17482.
Veiðimenn
Lax- og silungsmaðkartil sölu. Sími
34627.
ísakápur gefins
Gamall amerískur ísskápur í góðu
lagi fæst gefins að Tjarnargötu 47,
miðhæð eftir kl. 17, sími 12426.
Búslóð til sölu
Vegna flutnings er til sölu búslóð
(allt innan við 6 mánaða gamalt)
t.d.: Philco þvottavél kr. 25 þús.
Snowcap ísskápur á 16 þús. kr.
IKEA fataskápur á 2 þús. kr. IKEA
eldhúsborð á 16 þús. kr. ryksuga á
3.500 kr. kaffivél, brauðrist, ýmis
konar búsáhöld, glænýr Britax
barnabílstóll fyrir framsæti og ýmis-
legt fleira. Verð heima í kvöld og á
morgun. Bý á Amtmannsstíg 5,
Hjördís, sími 19842.
Klassískur gítar
(flamenco) til sölu, stórgóður gripur
og vel með farinn. Tegund: Hag-
ström Isabella. Gott verð. Uppl. í
kvöld eftir kl. 19 í síma 79001.
ALÞÝÐUBANPALAGIÐ
Alþýðubandalagið Vesturlandi
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi verður farin um verslun-
armannahelgina. Fyrirhuguð ferðaáætlun er þannig:
Laugardagur 1. ágúst: Brottför frá Skaganesti á Akranesi kl. 9.00 og frá
Borgarnesi kl. 10.00. Ekið norður í land og gist í Edduhótelinu á Hrafnagili í
tvær nætur. Sunnudagur 2. ágúst: Ekið um Eyjafjörð og farið út í Hrísey.
Mánudagur 3. ágúst: Heimferð. Svefnpokagisting og gisting í tveggja
manna herbergjum.
Skráningu annast: Garðar, Akranesi s. 12567, Halldór, Borgarnesi s.
71355, Skúli, Hellissandi s. 66619, Jóhannes, Ólafsvík s. 61438, Matthild-
ur, Grundarfirði s. 86715, Þórunn, Stykkishólmi s. 81421 oq Siqurjóna
Búðardal s. 41175.
Stjórn kjördæmisráðs
Sumarhátíð Alþýðubandalagsins
Norðurlandi eystra
verður í Bárðardal dagana 7.-9. ágúst. Tjaldað verður við barnaskólann en
möguleikar eru á gistingu í svefnpokaplássi eða herbergjum á sumarhóteli
sem rekið er í skólanum. Þar er einnig hægt að fá ýmsa aðra þjónustu.
Reiknað er með að mótsgestir komi í hlað á föstudag en á laugardag verður
dagsferð á rútu (eða rútum) upp á norðanverðan Sprengisand, og verða þá
ýmsir markverðir staðir skoðaðir með leiðsögn kunnugra og sögufróðra. Á
laugardagskvöld verður svo að venju glatt á hjalla, og á sunnudag, eftir að
mótinu lýkur, geta menn skoðað sig um í Bárðardal áður en haldið er heim.
' Það er mjög brýnt að fólk láti skrá sig til þátttöku, og þeir sem það gera
ekki geta ekki treyst á að komast með í laugardagsferðina. Eins þurfa þeir
sem vilja gistingu innandyra að panta hana sérstaklega.
Athugið: Alþýðubandalagsfólk og stuðningsmenn Alþýðubandalagsins
ásamt fjölskyldum er hvatt til að mæta. Gestir úr öðrum kjördæmum og
félagar á ferðalagi um norðanvert landið eru boðnir sérstaklega velkomnir.
Þátttaka tilkynnist hjá Brynjari og Sigrúnu í síma 22375, hjá Benedikt
Bragasyni í síma 22430, og einnig, frá og með 4. ágúst í síma Norðurlands
21875.
Stjórn kjördæmisráðs
LANDSBYGGÐIN
Tímarit
Þetta var gott saman
Drepið á efni Eiðfaxa
Guðmundur frá Eiríksstöðum á Sindra.
Undirrituðum hefur borist
tímaritið Eiðfaxi nokkuð reglu-
lega, þótt eitt og eitt tbl. kunni að
hafa borið eitthvað af leið hér
innanhúss. Oft hef ég haft löngun
til þess að geta blaðsins ýtarlegar
en orðið hefur, en á litlu blaði er
þröngt í högum og það bitnar
gjarnan á góðum áformum.
Nú hefég héráborðinuó. tbl. í
ár. Þar er úr mörgu að moða. En
eins og fyrri daginn verður að
fara yfir það á hundavaði líkt og
Björn á Löngumýri gerði er hann
synti yfir Blöndu forðum daga.
Forystugreinina skrifar Sigurð-
ur Sigmundsson. Bendir hann
þar á álag á dómnefndarmönnum
kynbótahrossa vegna tímaskorts
og fjölda þeirra hrossa, sem færð
eru til dóms, sé orðið óhæfilegt.
Segir Sigurður að þegar jafnvel
yfir 100 hross séu dæmd á einum-
degi, stefni í óefni. Setja þurfi
hámarksreglur um fjölda þeirra
hrossa, sem dæmd séu yfir dag-
inn.
Vænt þótti mér að sjá þarna
viðtal þeirra Hjalta Jóns Sveins-
sonar og Svölu Jónsdóttur við
fornvin minn, Guðmund Sigfús-
son á Eiríksstöðum. Ég man fyrst
eftir Guðmundi í Stafnsrétt fyrir
fjöldamörgum árum. Þá vakti
hann einkum athygli mína fyrir
tvennt: afburða góða söngrödd, -
það var mikið sungið í Stafnsrétt í
þá daga - og svo það, hvað hann
var vel ríðandi. Guðmundur frá
Eiríksstöðum var um áratuga
skeið einn þekktasti hrossarækt-
armaður landsins. í viðtalinu vík-
ur hann að sjálfsögðu að ræktun-
arstarfi sínu en af þeirri hógværð,
sem honum er eiginleg, segir frá
ýmsum hesta- og ræktunar-
mönnum, sem hann hefur kynnst
og skemmtilegum atvikum, sem
fyrir hann hafa komið á langri
ævi. Við Guðmundur sátum um
árabil saman í stjórn Hrossarækt-
arsambands Norðurlands. Það
var ánægjulegt samstarf. Ekki
veit ég hvort Guðmundur sér
þessar línur en ég bið að heilsa
honum samt.
En það segir þarna meira af
Húnvetningum. Sigurður Sig-
mundsson hefur t.d. tekið sig upp
og heimsótt allmarga húnvetnska
hestamenn og segir nú frá þeirri
för, í máli og myndum. Leggur
Sigurður leið sína til þeirra Her-
dísar og Indriða í Grafarkoti, Ar-
inbjörns Jóhannssonar á Brekku-
læk og Jóhanns Albertssonar frá
Skógum, sem nú er kennari á
Laugabakka. Hann lítur við hjá
þeim Sigrúnu Magnúsdóttur og
Elísari Guðmundssyni á Stóru-
Ásgeirsá, Sigríði Hermannsdótt-
ur og Einari Svavarssyni á Hjalla-
bakka, Bryndísi og Einari á Mos-
felli og Ægi Sigurgeirssyni í
Stekkjardal.
Sigurður hefur einnig stungið
við fótum í Enni, þar sem sá
hressi hrossabóndi, Ævar Þor-
steinsson, „lætur móðan mása“.
Segir hann svo frá upphafinu að
hrossarækt sinni „að ég fékk
jarpskjótta-hryssu með konunni
minni í búið, Ingibjörgu Jósefs-
dóttur, framan úr Svartárdal, frá
Torfustöðum. Sumir gárungarnir
héldu þvf þá fram, að ég hafi gifst
merinni en ekki konunni. Ég veit
nú ekki hvort það er alveg rétt en
ég skal fúslega viðurkenna að
þetta var gott saman“. Og þessi
jarpskjótta hryssa var dótturdótt-
ur Fengs frá Eiríksstöðum svo
þarna eru Eiríksstaðahrossin enn
á ferð. Og því má svo bæta hér
við, að Ingibjörg, kona Ævars, er
bróðurdóttir Guðmundar frá
Eirkísstöðum. Ævar heldur sig
við ættina á hvorn veginn sem er,
og mun naumast hafa orðið fyrir
vonbrigðum. Víða er komið við í
spjalli þeirra Sigurðar og er Ævar
ómyrkur í máli að venju.
Ég sé nú að farið er að togna úr
þessu en margs er þó enn ógetið
af efni Eiðfaxa, svo sem frásagna
af ýmsum hestamannamótum og
sýningum inanlands og utan
ásamt fleiru. Á myndirnar þarf
ekki að minna.
- mhg
Frœðslufundur
í minningu dr. Halldórs Pálssonar
Fundurinn verður 18. og 19. ágúst
Dr. Halldór Pálsson er ógleym-
anlegur öllum þeim, sem af hon-
um höfðu einhver kynni. Gildir
þá einu hvort þau kynni tókust í
sambandi við störf dr. Halldórs
að sauðfjárrækt og öðrum áhuga-
og hagsmunamálum bænda eða
utan þess vettvangs. Þegar dr.
Halldór féll frá, fyrir aldur fram,
eins og því miður gerist stundum
með þá menn, sem aldrei kunna
að hlífa sér, söknuðu margir vin-
ar í stað.
Nú greinir búnaðarblaðið
Freyr frá því, að fyrir „frumkvæði
nokkurra velunnara og fyrrum
samstarfsmanna dr. Halldórs
Pálssonar verður minning hans
heiðruð með alþjóðlegum fræða-
fundi 18. og 19. ágúst n.k., í
tengslum við 150 ára afmæli bún-
aðarsamtaka á íslandi“. Jafn-
framt verður stofnaður minning-
arsjóður um dr. Halldór.
Þrír þekktir fyrirlesarar frá
Bretlandi og írlandi munu sækja
fundinn, auk vísindamanna víðar
að. Þá munu og 5 íslendingar
flytja erindi. Á fundinum verður
fjallað um hinar gagnmerku
rannsóknir dr. Halldórs hér
Dr. Halldór Pálsson
heima en einnig erlendis, enda
var hann heimsþekktur vísinda-
maður á sviði sauðfjárrann-
sókna. Hugmyndin er að á næsta
ári komi öll erindin út í bók,
ásamt ritgerð um ævi og störf dr.
Halldórs og skrá um fræðiritgerð-
ir hans. Verður sú útgáfa væntan-
lega á vegum Búnaðarfélags ís-
lands og Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins.
Fyrri daginn fer fundurinn
fram í Ráðstefnusal á 2. hæð ný-
byggingar Bændahallarinnar og
lýkur með kvöldverði þar. Dag-
inn eftir verður farið upp í Borg-
arfjörð. Komið við á Hesti og
Hvanneyri en að kvöldi á Land-
búnaðarsýningunni í Reykjavík,
þar sem m.a. verður sýning á
kindakjöti. Ferðin er einkum ætl-
uð erlendum þátttakendum.
Undirbúningsnefnd fundarins
er skipuð þeim Hjalta Gestssyni,
Leifi Kr. Jóhannessyni, dr. Olafi
R. Dýrmundssyni og dr. Sigur-
geiri Þorgeirssyni.
Fundurinn er einkum ætlaður
þeim, sem vinna við leiðbeining-
ar og rannsóknir en er að sjálf-
sögðu opinn öllum þeim, sem
áhuga hafa á sauðfjárrækt. Al-
mennt þátttökugjald fyrir
fræðslufundinn 18. ágúst er kr.
3000 en 1500 kr. fyrir búvísinda-
menn. Þátttöku skal tilkynna
Ólafi R. Dýrmundssyni, Búnað-
arfélagi íslands, sem allra fyrst.
Gefur hann nánari upplýsingar
um minningarfundinn.
-mhg
6 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. júlí 1987