Þjóðviljinn - 24.07.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.07.1987, Blaðsíða 1
Föstudagur 24. júlí 1987 159. tölublað 52. örgangur Vaxtaverkir Hausnum stungið í sandinn Fjármálaráðherra vill gefa út spariskírteini til skemmri tíma með hœrri vöxtum og sölu með afföllum. Lengri bréfverði með lœgri vöxtum. Ragnar Arnalds: Sala með afföllum sama og hœrri vextir Með því að selja spariskírteini rfkissjóðs á aflollum er ein- faldlega verið að bjóða skírteinin á hærri vöxtum en þau eru skrif- uð fyrir. Þetta heitir á gömlu máli að stinga hausnum í sandinn, sagði Ragnar Arnalds þingmaður og fyrrverandi fjármálaráðherra um þær vaxtatillögur sem Jón Baldvin Hannibalsson fjármála- ráðherra hyggst leggja fyrir ríkis- stjórnarfund í næstu viku. Tillögur Jóns Baldvins hljóða Geitabúskapur Krakkar og kið r AVorsabæ á Skeiðum báru 9 geitur í vor og þær Emilía og Karen í Vorsabæ kunna vel að meta félagsskapinn með kiðun- um. Geiturnar í Vorsabæ eru ætt- aðar frá Neistastöðum eins og húsfreyjan á bænum, Stefanía Sigurðardóttir, en hún tjáði fréttamanni Þjóðviljans, sem kom í Vorsabæ í vikunni, að geitur væru vágestur í görðum og ekki hafandi nema innan raf- magnsgirðingar. Geitabúskapur- inn í Vorsabæ er meira til skemmtunar og menningarauka en vegna afurðanna. Stefanía sagði að reyndar væri kiðlinga- kjötið hin Ijúffengasta fæða og ullin væri í sjálfu sér verðmæt ef hér á landi væri nægiiegt framboð og tækni til að nýta hana. Þau í Vorsabæ hafa ekki geflð sér tíma til að mjólka geiturnar og gera osta vegna tilkostnaðar, en sem kunnugt er þykir geitarostur lost- æti víða um heim. - ólg uppá það að spariskírteini ríkis- sjóðs verði gefin út til skemmri tíma en áður, eða til tveggja, þriggja og tíu ára með vöxtum á bilinu 7-8,2%. Bréfin verði seld með afföllum, en hversu mikil þau verða ákvarðist af framboði og eftirspurn hverju sinni. Með því að fara þessa leið vonast fjár- málaráðherra til þess að að vaxta- hækkun spariskírteina leiði ekki til hækkunar húsnæðislána og al- mennrar vaxtahækkunar á fjár- magnsmarkaði. Ljóst er þó að sala bréfanna með afföllum eru illa dulbúnir vextir og erfitt er því að sjá hvernig fjármálaráðherra hyggst, með þessari leið, koma í veg fyrir almennar vaxtahækkan- ir. Augljóst er að afföll jafngilda vaxtahækkun þannig að t.d. 1% afföll á tveggja ára bréfi jafngilda u.þ.b. 1/2% vöxtum. Auk skammtíma bréfanna hyggst fjármálaráðherra halda áfram að gefa út bréf til lengri tíma og á lægri vöxtum. Þessi bréf eru af þeirri tegund sem Iífeyris- sjóðirnir hafa keypt af ríkinu, en með þessu móti á að reyna að koma í veg fyrir að vextir Hús- næðismálastofnunnar hækki að ráði. Hrafn Magnússon fram- kvæmdastjóri SAL sagði í samtali við Þjóðviljann að lífeyrissjóð- irnir komi til með að skoða þróun mála mjög vel áður en gengið verði til samninga. „Við munum væntanlega láta á það reyna hvernig skuldabréfin seljast áður en við göngum til samninga. Ef salan verður mjög dræm verður væntanlega að endurskoða málið í heild sinni,“ sagði Hrafn. í fjármálaráðuneytinu hefur það verið áætlað að komi tillögur fjármálaráðherra til fram- kvæmda gæti það þýtt að vextir af húsnæðislánum hækki úr 3.5% í 4.5%. —K.ÓI. Þaar Emilía og Karen í Vorsabæ með einn kiðlinginn í geitahjörðinni. Ljósm. ólg. Tölvuháskóli V.í. Notadrjúgt nám Sverrh^iermajmssornÉg erekkifær um að metaþað hvortþetta nám skuli nefnast háskólanám Hválaviðræður Bíða með bann Bandaríkjastjórn bíður með að setja bann á innflutning ís- lenskra sjávarafurða til Banda- ríkjanna, svo lengi sem vísinda- hvalveiðar liggja niðri. íslensk stjórnvöld munú fresta frekari veiðum meðan ekki er fullreynt að samkomulag náist, en seinni lota viðræðnanna hefst fljótlega. íslenska sendinefndin, sem fór utan til viðræðna við Bandaríkja- menn kemur heim í dag og verður ríkisstjóminni og utanríkismála- nefnd alþingis kynntur gangur viðræðnanna, áður en viðræður við Bandaríkjamenn verða tekn- ar upp að nýju. rk -Sjá yfirlýsingu Náttúruvernd- aráðs á bls. 3. Eg veitti Verzlunarskólanum sjálfsagt leyfí til þess að reka námskeið fyrir tölvuiðkendur. Þetta er notadrjúgt nám, sem fólk í nútímaþjóðfélagi þarf á að Margeir Pétursson hreppti norðurlandameistartitilinn í skák í gær á Norðurlandamótinu í Þórshöfn í Færeyjum. Sextán ár eru liðin síðan Islendingar hafa haldið titlinum. Margeir hlaut 8 vinninga af II mögulegum. Frammistaða annarra ís- lenskra skákmanna í landsliðs- flokki var með miklum ágætum og hafnaði Helgi Ólafsson í 2-4 sæti, ásamt Hansen og Morten- sen, með 7 vinninga. Jón L. halda. Mig minnir að talað hafl verið um þrjú kennslumisseri. Ég hef ekki vit til að meta það hvort rétt sé að ræða um háskóla- menntun í þessu sambandi, sagði Árnason hlut 4 vinninga íslendingar röðuðu sér einnig í efstu sætin í meistarflokki og opnum flokki og áttu menn í efsta sæti í báðúm flokkum. Jóhann Hjartarson er í fyrsta sæti á millisvæðamótinu í Szirak í Júgóslavíu, eftir frækinn sigur gegn Túnisbúanum Bouazis í gær. Jóhann hefur hlotið fjóra og hálfan vinning eftir fimm umferð- Sverrir Hermannsson, fyrrver- andi menntamálaráðherra, en eitt af síðustu embættisverkum hans var að veita Verzlunarskól- anum heimild til stofnunar tölv- uháskóla. - Ég hef ekkert um þetta að segja, annað en það að það er mjög mikilvægt að Verzlunar- skólinn geti gefið nemendum sín- um kost á framhaldsnámi í tölvuf- ræðum. Ég veitti þetta leyfi fyrir mitt leyti og það er allt sem ég hef um málið að segja. Mér leist þetta mál mikilvægt og gagnlegt og gaf ásamt fjármálaráðherra mitt leyfi og uppáskrift að þessi námskeið yrðu þreytt. Mínir vits- munir og þekking ná ekki svo langt að mér sé unnt að meta það hvort eitt kenslumisseri til við- bótar við eins og hálfs árs nám nægi til að veita nemendum BS- gráðu. Vafalaust er skólastjóri Verzlunarskólans fær um að meta þetta, sagði Sverrir -RK ír. -rk Skák Margeir meistari Þrefaldur íslenskur sigur Blönduós Hörmulegt flugslys Lítil eins hreyflls flugvél, TF- PRT, fórst laust eftir hádegið í gær, skammt frá Blönduósi. Fernt var með vélinni og voru all- ir látnir er komið var á slysstað. Flugvélin, sem var frá Reykja- vík, fórst skömmu eftir flugtak frá flugvellinum á Blönduósi. Nærstaddir urðu þess brátt áskynja að eitthvað væri að vél- inni strax og hún var komin á loft og heyrðu menn skömmu síðar að vélin skall til jarðar. Vélin hrapaði skammt frá bænum Röðli, í svo nefndum Hnjúkum. Þoka var niður í miðjar hlíðar þegar vélin fórst. Menn frá Loftferðaeftirlitinu og slysarannsóknanefnd héldu norður á slysstað um leið og til- kynning um slysið barst og vinna þeir nú að rannsókn á tildrögum þess. Að svo stöddu er ekki unnt að greina frá nöfnum hinna látnu. -rk

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.