Þjóðviljinn - 24.07.1987, Blaðsíða 7
Afvopnunarmál
Aukafundur
í Genf
ígœr lögðu Sovétmenn tilboð sitt um
eyðingu Asíuflaugaformlegafram í
Genf ítreka kröfur um að 72 vestur-
þýskum Pershing-A flaugum verði eytt
Aaukafundi samninganefnda
risaveldanna í Genf í gær
lögðu Sovétmenn formlega fram
tilboð Mikjáls Gorbatsjofs um
eyðingu allra skamm- og meðal-
drægra kjarnflauga, í Asíu jafnt
sem Evrópu.
Fundurinn tók rúma klukku-
stund og að honum ioknum sagði
fyrirliði Bandaríkjamanna að
þeir myndu taka tilboðið til íhug-
unar og senda afrit til yfirboðara
sinna í Washington.
Formaður sovésku nefndar-
innar, Alexei Obukhof, ræddi við
fréttamenn eftir fundinn og sagði
miklar líkur á því að samkomulag
næðist bráðlega. „Eg vil leggja
áherslu á að þetta nýja tilboð
okkar Sovétmanna eykur mjög
líkurnar á því að við getum komið
okkur saman um drög að samn-
ingi um eyðingu allra meðal- og
skammflauga."
Skömmu áður en fundurinn
hófst hafði Obukhof einnig tekið
fréttamenn tali og þá hafði hann
ítrekað þá afstöðu stjórnar sinnar
að hún setti það sem algert skil-
yrði samkomulags að 72 Pershing
1-A flaugum Vestur-Þjóðverja
yrði komið fyrir kattarnef um leið
og bandarískum og sovéskum
flaugum í EvrÓDu.
5* .
-'3, r 1* V-
¥:}
Reagan og Gorbatsjof með túlkum sínum. Sér loks fyrir endann á þófinu?
Flaugar þessar eru gamlar og
skammdrægar og án kjarnodda
sinna en þeir eru geymdir í
bandarískum herstöðvum í
Vestur-Þýskalandi. Bandaríkja-
stjórn neitar að eyða oddunum
hvernig sem samningum kann að
reiða af og fullyrða að þeir séu
eign Bonnstjórnarinnar. En
hvort sem þeir eru bandarískir
eða þýskir krefjast Sovétmenn
þess að þeim verði eytt. Flvort
tveggja sé jafn óviðunandi að
Bandaríkjamenn skjóti 72 kjarn-
oddum undan eða að Vestur-
Þýskaland verði kjarnveldi.
-ks.
George Shultz:
Ofursti og aðmíráll lugu
George Shultz var í gær yfir-
heyrður af þingnefndinni sem
kappkostar að komast að hinu
sanna í Irans/Kontramálinu.
Hann endurtók fyrri fullyrðingar
sínar um að hann hefði fyrst kom-
ist á snoðir um vopnasölu til Irans
þegar hann kveikti á útvarpinu
sínu snemma morguns í öndverð-
um nóvembermánuði. Shultz
sagði engan fót vera fyrir aðdrótt-
unum Norths ofursta og Poindex-
ters aðmíráls þess efnis að hann
hafi vitað það sem hann vildi vita
um vopnasöluna og fjórstreymið
til Kontraliðanna.
Hann kvað hugmyndir um sölu
háþróaðra vopna til írans hafa
borist í tal síðla árs 1985 en þá hafi
hann lýst sig algerlega andvígan
henni og taldi síðan málið úr sög-
unni.
Utanríkisráðherrann greindi
ennfremur frá því að síðastliðið
haust hefði hann frétt að North
ofursti og samverkamenn hans
hefðu staðið í makki við íranska
ráðamenn og boðið þeim fleiri
vopn gegn lausn fimm gísla sem í
haldi voru í Líbanon. Og ekki
nóg með það. Jafnframt hefðu
þeir heitið Persunum því að
Bandaríkjastjórn myndi grafa
undan stjórnvöldum í Bagdað,
reyna að fá stjórnvöld í Kuwait til
að leysa 17 hryðjuverkamenn úr
haldi og segja Sovétmönnum
stríð á hendur ef þeir réðust inní
íran.
Daginn eftir bar hann Reagan
þessar fréttir og „forsetinn var
sem þrumu lostinn og ég hef
aldrei séð hann j afn reiðan. Hann
gnísti tönnum og augun skutu
gneistum."
-ks.
Bangladesh
Hörð
átök
Ekki var þátttaka minni í gær í
alisherjarverkfallinu í Bang-
ladesh. Allt athafnalíf lá niðri í
stærstu borgum og víða um
landið sló í brýnu milli stjórnar-
andstæðinga og stjórnarsinna og
lögreglusveita. Harkan var mun
meiri en í fyrradag og munu lög-
reglumenn hafa skotið að
minnsta kosti átta manns til bana,
þar af fimm í höfuðborginni
Dhaka. 200 slösuðust.
í höfuðborginni búa fjórar
miljónir manna og þar var barist í
flestum hverfum. I miðborginni
voru átökin hvað hatrömmust
milli andstæðinga og stuðnings-
manna Ershads forseta. Þegar
bardaginn stóð sem hæst hófu
lögreglumenn skothríð á hóp
stjórnarndastæðinga og myrtu
fimm. í borginni Khalispur í suðri
féll einn og tveir síðla í gærkveldi
í borgunum Sirajganj og Chitta-
gong.
Það var 20 stjórnarandstöðu-
flokkar sem boðuðu til verk-
fallsins er standa á í þrjá sólar-
hringa og er stefnt til höfuðs Ers-
had forseta. Landsmenn virðast
vera áfram um forsetaskipti því
verkfallið er þegar orðið hið víð-
tækasta og lengsta í 16 ára sögu
Bangladesh.
-ks.
Líbanon
Verkfall gegn örbirgð
og óðaverðbólgu
Kristnir jafnt sem múslimskir
þegnar hlýddu í gær kalli Al-
þýðusambands Líbanons og
lögðu niður vinnu til að mótmæla
gífurlegri fátækt og óðaverð-
bólgu.
Kennsla lá niðri í skólum,
bankar, verslanir og opinberar
stofnanir voru lokuð og ekki ein
einasta flugvél hóf sig til flugs af
flugvellinum í höfuðborginni
Beirút.
Tólf ára borgarastríð hefur lagt
Andrei Gromyko forseti og fyrrum
utanríkisráðherra. Sinnir nú ýmsum
innanríkismálum af kappi.
fyrrum blómlegan efnahag lands-
ins í rúst. Líbanska pundið hefur
hrapað að verðgildi um 97 pró-
sent frá því sem var um miðbik
síðasta áratugar og meðal árs-
tekjur á mann úr 212 þúsund
krónum á ári í 24 þúsund. Vöru-
verð hækkar að meðaltali um 200
prósent á ári hverju.
Örbirgðin og stríðsþreytan er á
svo háu stigi að fjöldi Líbana vill
allt til vinna að komast úr landi
eða í öllu falli koma börnum sín-
um burt.
Fayez Awarki, 38 ára gamall
bankastarfsmaður, og kona hans
eru reiðubúin til að skilja við
börn sín þrjú fyrir fullt og allt ef
þeim býðst bjartari framtíð er-
lendis.
„Þau eru stríðsfangar. Þau eru
alltaf hrædd og óttast um líf sitt.
Það er þeim fyrir bestu að komast
á gott heimili einhversstaðar í
Evrópu þar sem meiri virðing er
borin fyrir mannslífum en hér.“
-ks.
Kröfur Krímtatara
Gromyko í málið
Andrei Gromyko, forseti So-
vétríkjanna, hefur verið skip-
aður formaður ncfndar sem á að
fjalla um vanda Krímtatara.
Alkunna er að um 200-250 þús-
und Tatarar voru fluttir nauðugir
frá Krím til Mið-Asíulýðveld-
anna rétt fyrir lok síðari
heimstyrjaldar að fyrirmælum
Jósefs Stalíns. Stóð hann á því
fastar en fótunum að þeir hefðu
lagt þýsku nasistunum lið.
Að undanförnu hafa þeir hvað
eftir annað efnt til mótmæla í
Moskvu og krafist þess að fá að
flytja aftur á fornar heimaslóðir.
Þeir hafa ennfremur vakið at-
hygli miðstjórnar kommúnista-
flokksins á óskum sínum. Margir
þekktir Sovétmenn hafa lagt
þeim lið í baráttunni, til að
mynda ljóðskáldið Évgeny Évt-
ushenko og söngvarinn grúsíski
Bulat Okudzhava.
Hin stjórnskipaða nefnd sem
Gromyko er í forsvari fyrir á „að
fara ofaní saumana á öllum þeim
vandamálum sem Tatarar hafa
vakið máls á og vilja að verði
Ieyst“, einsog fram kemur í frétt
frá Tass.
-ks.
Svíþjóð
Aukið
kynþátta-
hatur
Ingvar Karlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, hyggst skera
upp herör gegn kynþáttahatri
sem hann segir hafa aukist veru-
lega þarlendis að undanförnu.
Hann kveður ýmsum hægri öfga-
flokkum og nýfasistasamtökum
hafa aukist ásmegin nýverið og
gegn þeirri þróun verði að
sporna.
„Það hefur verið deilt um það
uppá síðkastið hvort banna eigi
nýfasistasamtök. Þótt tjáningar-
frelsi og umburðalyndi séu horn-
steinar lýðræðisins þá megum við
ekki umbera kynþáttafordóma.“
í Svíþjóð búa fjölmargir flótta-
menn frá þriðjaheimslöndum og
á síðustu vikum hafa margir
þeirra þrásinnis orðið fyrir að-
kasti svonefndra „skalla“, of-
beldisfullra hægriöfgamanna sem
einhverra hluta vegna raka hvert
einasta stingandi strá af höfði sér.
=ks.
íranir
Gjalda
Ifloi líkt
Utanríkisráðherra klerka-
stjórnarinnar i Teheran, Ali
Akbar Velayati, sagði á blaða-
mannafundi í Bonn í gær að íran-
ir myndu láta af öllum árásum á
olíuflutningaskip á Persaflóa ef
Irakar gerðu slíkt hið sama. Að
öðrum kosti myndu þeir gialda
Iflku lfkt.
Velayati sagði ennfremur að
Iranir gætu ekki fallist á að slíðra
sverðin og hætta styrjöldinni við
nágrannann í vestri, einsog Ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna
hefur krafist, nema þjóðir heims
sameinuðust fyrst um að for-
dæma Bagdaðstjómina fyrir að
hafa átt upptökin að stríðinu.
-ks.
Föstudagur 24. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7