Þjóðviljinn - 24.07.1987, Blaðsíða 15
Knattspyrna
Mútur á
Halíu
Empoli sein leikur í 1. deild á
Ítalíu byrjar með fimm stig í mín-
ús þegar kcppni hefst á Ítalíu.
Þá var Triestina, sem leikur í 2.
deild dæmt til sömu refsingar.
Forsetar beggja liða voru
dæmdir í bann í þrjú ár.
Þeir reyndu að semja um að
láta leik liðanna, fyrir tveimur
árum, enda með jafntefli. Em-
poli vann annan leikinn og Trie-
stina hinn og hafa bæði liðin neit-
að þessum ásökunum. Þetta
sama ár vann Empoli sér sæti í 1.
deild.
f fyrra var Udinese dæmt til að
hefja keppni með níu stig í mínus.
Það reyndist félaginu ofviða og
það hafnaði í neðsta sæti 1.
deildar. -Ibe/Reuter
2. deild
Enn tapa
Víkingar
Fjórða tap Víkinga í
röð
Víkingur-UBK 0-2 (0-2 ) ★ *
Blikar unnu sigur á slöku liði
Víkinga á Valbjarnarvellinum 2-
0 í miklum baráttuleik.
Víkingar byrjuðu leikinn af
miklum krafti og fyrstu tíu mínút-
urnar fór leikurinn eingöngu
fram á vallarhelming Breiða-
bliks.
Jón Bjami Guðmundsson fékk
sendingu innfyrir vörn Breiðab-
liks á 6. mínútu, en náði ekki
valdi á boltanum og skaut fram-
hjá.
Blikar skoruðu á 16. mínútu
þvert gegn gangi leiksins. Það var
Jón Þórir Jónsson sem skoraði
með hörkuskoti sem Páll Guð-
mundsson átti ekki möguleika á
að verja.
Blikar hresstust mjög við þetta
mark og leikurinn fór hægt og síg-
andi að færast meira og meira yfir
á vallarhelming Víkinga.
Skömmu fyrir leikhlé skoraði
Ingvaldur Gústafsson annað
mark Breiðabliks með góðu skoti
úr teignum eftir sendingu frá
Rögnvaldi Rögnvaldssyni.
Víkingar hófu síðari hálf-
leikinn með miklum látum og á 7.
mínútu síðari hálfleiks átti
Trausti Ómarsson gott skot beint
úr aukaspyrnu að marki Breiða-
bliks, en Sveinn Skúlason náði að
bjarga í horn.
Víkingar sóttu nær látlaust í
síðari hálfleik án þess þó að ná að
skapa sér nein virkilega hættuleg
færi.
Maður leiksins: Rögnvaldur
Rögnvaldsson Breiðabliki.
-Ó.St
Staðan
f 2. deild karla
Leiftur..
Víkingur
Þróttur..
UBK...
Selfoss.
Einherji
(R....
KS....
Markahsastir:
HeimirKarlsson, (R...............10
Trausti Ómarsson, Víkingi..........9
HafþórKolbeinsson, KS..............7
Jón Gunnar Bergs, Selfossi.........6
Sigfús Kárason, Þrótti.............5
SigurðurHallvarðsson.Þrótti........5
Kristján Daviðsson, Einherja.......5
BergurÁgústsson, IBV...............5
Heimir Bergsson, Selfossi..........4
páll Rafnsson (R...................4
Óskar Ingimundarson, Leiftri.......4
10 7 1 2 15-7 19
11 6 1 4 19-17 19
10 5 1 4 21-17 16
115 15 12-12 16
10 4 3 3 19-19 15
10 4 3 3 11-14 15
10 4 2 4 18-15 14
10 4 2 4 18-19 14
10 3 4 3 15-17 13
10 1 0 9 12-23 3
Eitt af ótal dauðafærum Vals. Birgir Skúlson bjargar á línu frá Njáli Eiðssyni. Á innfelldu myndinni tryggir Ingvar Guðmundsson Valsmönnum sigur úr
síðustu vítaspyrnunni. Mynd:E.ÓI.
Knattspyrnal bikar
101 leið til að skora ekki!
Valsmenn klúðruðu fjölda dauðafæra ogsigruðu í vafasamri vítaspyrnukeppni
Það var ótrúlegt hverning Vals-
mönnum tókst að komast hjá því
að skora gegn Völsungum. Þrátt
fyrir að hafa verið í nánast stans-
lausri sókn í 120 mínúturtókst
þeim ekki að skora. Þeir náðu þó
að knýja fram sigur í vítaspyrn-
ukeppni, 4-3, og eru því komnir í
undanúrslit.
Fyrri hálfleikurinn var líklega
með því leiðinlegasta sem sést
hefur á Valsvellinum. Valsmenn
spiluðu þokkalega sín á milli, en
þegar komið var að vítateig
Völsunga fór allt í vaskinn. Valur
Valsson átti gott skot í stöng úr
þröngu færi á 8. mínútu og var
það nánast eina færi fyrri hálf-
leiks. Sævar og Valur áttu þó
ágæt skot, en Þorfinnur varði.
Síðari hálfleikuirnn var blátt
áfram ótrúlegur. Valsmenn sóttu
látlaust, en tókst á yfirnáttúru-
legan hátt og komast hjá því að
skora. Þorfinnur átti stórleik í
marki Völsunga og þrívegis
björguðu varnarmenn á línu.
Valur átti gott skot sem Þorfinn-
ur varði mjög vel. Skömmu síðar
mátti þó ekki miklu una að Völ-
sungar næðu forystunni. Sigurð-
ur Illugason komst einn í gegn og
skaut að marki. Guðmundur
Baldursson sló boltann yfir sig og
hann stefndi inn, en á síðustu
stundu tókst Guðmundi að
bjarga í horn.
Það sem eftir var af síðari hál-
ffeik fór að mestu fram á vallar-
helmingi Völsunga. Ingvar átti
gott skot beint á Þorfinn, Magni
með þrumuskot rétt yfir og Eirík-
ur Björgvinsson bjargaði svo á
línu frá Hilmari. Þorfinnur varði
mjög vel frá Jóni Grétari og
skömmu síðar bjargaði Birgir
Skúlason á línu.
Það væri of langt mál að telja
upp öll færi Valsmanna. Völs-
ungar komust einu sinni nálægt
því að skora. Þorgrímur Þráins-
son ætlaði að gefa á Guðmund í
markinu, en sendingin ónákvæm.
Guðmundi tókst þó að bjarga á
síðustu stundu.
Framlengingin var Valsmanna
í orðsins fyllstu merkinu. Ingvar
átti skot í stöng og Guðni var
aleinn á markteig, en skaut yfir
og skömmu síðar björguðu Völs-
ungar á línu.
Þá var komið að vítaspyrnu-
keppninni. Jónas Hallgrímsson
tók fyrstu spyrnu fyrir Völsung
og skoraði af öryggi. Næstur var
Hilmar fyrir Valsmenn, en hann
skaut yfir. Björn Olgeirsson
skoraði svo fyrir Völsunga. Þá
var komið að Guðna Bergssyni
Það er engu líkara en að Vfðis-
menn hafi tök á KR-ingum. Þeir
gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér
sæti í undanúrslitum með sigri
gegn KR-ingum í gær, 2-0 í
skemmtilegum leik.
Víðismenn voru með vindinn í
bakið í fyrri hálfleik og nýttu sér
það mjög vel.
KR-ingar fengu þó fyrsta tæki-
færið. Það kom á 14. mínútu þá
átti Gunnar Skúlason þrumuskot
í þverslá Víðismarksins.
Víðismenn sóttu nú mjög stíft
að marki KR og á 38. mínútu var
Grétar Einarsson öllum að
óvörum staddur fyrir innan vörn
KR-inga með boltann og gat
hreinlega ekki gert annað en
skorað hjá Páli Ólafssyni. KR-
ingar vildu nú halda því fram að
Grétar hefði verið rangstæður,
en svo var nú ekki.
Víðismenn bökkuðu nú aðeins
eins og þeir byggjust við að KR-
fyrir Valsmenn. Þorfinnur varði
frá honum, en Friðgeir Hall-
grímsson lét endurtaka spyrnuna
og þá skoraði Guðni. Nokkuð
vafasamt því að Guðmundur
varði næstu spyrnu frá Helga
Helgasyni og ekki að sjá að hann
hefði hreyft sig minna en Þorfinn-
ur. Helgi fékk þó ekki annað tæk-
ifæri.
Sævar jafnaði fyrir Valsmenn
úr næstu spyrnu og Skarphéðinn
náði foruystunni að nýju fyrir
Völsunga, 2-3. Ólafur Jóhannes-
son skoraði úr næstu spyrnu fyrir
Val og Guðmundur varði svo frá
Birgi Skúalsyni. Það var svo Ing-
var Guðmundsson sem tryggði
ingar mundu strax ná að jafna, en
það skeður iðulega ef Víðismenn
komast yfir að andstæðingurinn
jafnar. Þegar KR-ingar virtust
ekki ætla að nýta sér það sóttu
Víðismenn þó í sig veðrið og
sóttu að marki KR-unga en náðu
þó ekki að skapa neina hættu.
Víðismenn hófu síðari hálf-
leikinn af miklum krafti og á 47.
mínútu átti Vilberg Þorvaldsson
gott skot að marki KR, en einn
vamarmannana náði að bjarga á
marklínu.
KR-ingar tóku nú öll völd á
vellinum og á 55. mínútu fengu
þeir aukaspyrnu rétt fyrir utan
vítateig Víðis. Pétur Pétursson
renndi boltanum aðeins til hliðar
á Andra Marteinsson sem skaut
föstu skoti rétt yfir markið.
Skömmu síðar var Andri nán-
ast á sama stað með gott skot að
marki Víðis, en þá varði Jón Örv-
ar Arason glæsilega.
Valsmönnum sigur í síðustu
spyrnunni.
Valsmenn áttu sigurinn skilið.
Þeir voru betri aðilinn í leiknum,
en vítaspymukeppnin var vafa-
söm. Þó er erfitt að segja að lið
eigi skilið að sigra, sem tekst ekki
að skora úr svo miklum fjölda
dauðafæra.
Það má kalla Völsunga „mór-
alska sigurvegara". Þó að legið
hafi á þeim gáfust þeir aldrei upp
og börðust mjög vel. Þá vantaði
ekki mikið uppá að stela sigrin-
um, en það hefði líklega verið ó-
sanngjarnt þegar á heildina er
litið.
Lánið lék svo sannarlega ekki
við KR-inga því á 70. mínútu tók
Jón Örvar útspark sem hafnaði
beint á Gunnari Skúlasyni sem óð
upp völlinn og skaut föstu skoti
að Víðismarkinu sem fór í stöng
og barst út í vítateiginn, þar varð j
mikill darraðardans, en inn vildi
boltinn ekki.
Víðismenn bættu svo við öðm
marki úr skyndisókn á 88. mín-
útu. Þá var það Grétar Einarsson
sem lék upp kantinn fór framhjá
tveimur KR-ingum gaf góða
sendingu inn í vítateig KR-inga.
Þar var Hlíðar Sæmundsson
staddur og átti hann ekki í
neinum vandræðum með að
skalla boltann í netið.
Leikurinn var skemmtilegur og
áhorfendur í Garðinum vel með á
nótunum, enda í fyrsta sinn sem
Víðismenn ná í undanúrslit.
-SÓM/Suðurnesjum
-Ibe
Knattspyrna/bikar
KR lá í Garðinum
Föstudagur 24. júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15