Þjóðviljinn - 24.07.1987, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 24.07.1987, Blaðsíða 5
■ ; • Hún Melkorka Sigurðardóttir er fimm ára og búin að koma í Sumarbúðirnar í fjögur ár. „Það er gaman hér og ég fór í sund áðan og í gær fór ég á bát út á vatnið stóra og ég sá fisk og við vorum alveg að drukkna, en ég var ekkert hrædd og skældi ekkert og báturinn fór bara alveg niður og ég er alltaf á stuttbux- um og svo fór ég líka í heita pottinn." Ekkert aðskafa utan af því sú stutta. Ólafur Eggert Guðmundsson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir eru í fimmta sinn á Laugavatni og sagði Eggert þetta vera þestu vikuna á árinu. Þorbjörg vildi nú ekki alveg fallast á það. „Það er bara af því að hún fer oftar í svona frí heldur en ég, hún fer nefnilega líka í húsmæðraorlof," sagði Eggert og gaf henni olnbogaskot. Þau sögðu veðrið auðvitað ráða miklu um dvölina og væri það búið að vera gott það sem af væri þó að komið hefði ofurlítil rigning á mánudeginum. „Yfirleitt taka allir þátt í þeirri dagskrá sem boðið er upp á og fólk hefur alltaf verið mjög ánægt eftir dvölina hér.“ Þau sögðust bæði mundu koma aftur að ári ef heilsan leyfði. Sumarbúðir Alþýðubandalagsins á Laugavatni Gufa og gönguferðir í góðu veðri Hátt í 90 manns, börn ogfullorðnir, eru á Laugavatni, allir önnum kafnir við afslöppun og skemmtan Það var hress og fríður hópur sem var að leggja af stað í göngu- ferð þegar blaðamaður Þjóðvilj- ans og Ijósmyndari komu á þriðjudaginn til að heimsækja Al- þýðubandalagsfólk í sumarbúð- um á Laugavatni. Hátt í níutíu manns er í búðun- um í sumar og fyllir sá fjöldi Hér- aðsskólann og þrjú nærliggjandi hús. Hafa sumir komið nánast á hverju ári þau sex ár sem Alþýðu- bandalagið hefur starfrækt búð- irnar. Allir aldurshópar eiga þar fulltrúa og sögðu þær Margrét Frímannsdóttir og Sigríður Karlsdóttir, umsjónarmenn búð- anna, að eldra fólk og fjölskyldu- fólk væri í meirihluta og nokkuð væri um að afar og ömmur væru með barnabörnin með sér. Á Laugavatni er paradís fyrir börnin, þau eru í gufu og sundi alla daga og stundum oft á dag, reyna sig á seglbrettum og fara út á vatn á bátum, snúsnú, bolta- leikir og flugdrekar er vinsælt og í veðri eins og var á þriðjudaginn sjást þau ekki í húsi fyrr en langt er liðið á kvöld. Vikudvöl í góðu yfirlæti Blaðamanni og ljósmyndara var boðið í kaffi með hópnum að gönguferð lokinni og virtist eng- inn skortur á bakkelsinu, sama hvað menn röðuðu í sig. Létt var yfir fólki enda búið að ganga um allan staðinn undir leiðsögn Hreins Ragnarssonar kennara á Laugavatni. Sumarbúðirnar á Laugavatni er vikudvöl í Héraðsskólanum en um hann sjá Elísabet Jensdóttir og Rúnar Hjaltason og mátti sumarbúðafólk vart mæla fyrir aðdáun á þeim hjónum hvað varðaði góðan mat og aðbúnað allan. Mikil dagskrá er í boði fyrir Ásta Kristjánsdóttir hefur verið fjórum sinnum á Laugavatni og sagði að eitt af því besta við dvölina væri hve ellin og ungdómurinn tengdist vel þessa viku. Annars sagðist hún fyrstu árin hafa komið sem krati en væri nú komin með réttan pólitískan lit. „Hér er ekki farið í manngreinarálit eftir pólitík og maður er ekki látinn gjalda þess ef maður er ekki á réttum stað. En svo geta þessar sumarbúðir alveg tvímælalaust stuðlað að aukningu flokksins eins og dæmi mitt sannar." sumarbúðafólk þessa viku sem framámennflokksinsíheimsókn, dvölin er bæði fyrir börn og full- halda fyrirlestra og spjalla við orðna, þar á meðal koma ýmsir fólkið. Von var á Kristínu Á. Ól- Verið að leggja af stað í gönguferð um staðinn. Hreinn Ragnarsson kennari leiðsegir hópnum um sögu staðarins en hann stendur við flaggstöngina. afsdóttur sem ætlaði að spjalla og syngja og Guðrúnu Helgadóttur sem ætlaði að ræða um og útskýra tryggingamál og réttindi fólks í þeim geiranum. Ásmundur Stef- ánsson var búinn að koma og tala um kjaramál og gerðu menn góð- an róm að, köstuðu fram stökum til Ásmundar en í hópnum er hag- yrðingur einn góður, Eyjólfur R. Eyjólfsson af Hvammstanga. Sagði hann blaðamanni sögu af því er hann var eitt sinn rukkaður tvisvar fyrir Þjóðviljann, en gat rekið seinni rukkunina til baka því kvittunina fyrir þá fyrri hafði hann geymt. Ég fyrir greiðann gerði skil því glöggt til haga er haldið. En blessunin hún tók sig til og tvöfaldaði gjaldið. Eyjólfur var á Laugavatni í fyrra líka og kvartaði yfir því að menn héldu litlum tengslum eftir sumarbúðadvölina. Því orti hann þessa vísu: Vináttan í vaskinn fer, velgjörð árin blinda. Þó að ennþá ylji mér eldur fornra synda. Ferðir, bingó og bridge Ýmsar ferðir eru farnar á með- an á dvölinni stendur, ferð til Stokkseyrar og Eyrarbakka með leiðsögumanni, svo og göngu- ferðir um nágrenni Laugavatns. Þeir sem vilja komast upp á hross og eru börnin þar ekki eftirbátar hinna fullorðnu. Félagsvist er spiluð á kvöldin og barnabingó og góð verðlaun í boði, en einnig eru forfallnir bridgespilarar í v hópnum sem jafnvel fórna guf- Föstudagur 24. júlí 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.