Þjóðviljinn - 24.07.1987, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 24.07.1987, Qupperneq 3
FRETTIR Ljósleiðarar Þarf samþykki sveitarstjóma Skipulagsstjórn ríkisins: Tekur undir sjónarmið skagfirskra bœnda. Endanlegur úrskurður íhöndumfélagsmálaráðuneytisins. „Skipulagsstjórn ríkisins sam- þykkti í umsögn sinni til félags- málaráðuneytisins að það þyrfti samþykki sveitarstjórna í Skaga- firði fyrir lagningu ljósleiðara sem Póstur & sími voru í þann veginn að byrja á þar. Við mun- um síðan senda ráðueytinu um- sögn okkar og það mun síðan kveða upp um sinn úrskurð í mál- inu,“ segir Stefán Thors, skipu- lagsstjóri ríkisins. Byggingarfulltrúi Skagafjarð- arsýslu skrifaði félagsmálaráðu- neytinu bréf í fyrra mánuði vegna beiðni skipulagsnefnda og sveitarstjórna nokkurra hreppa í Skagafirði, þar sem farið var fram á að úrskurð ráðuneytisins um hvort ekki þyrfti samþykki viðkomandi yfirvalda í þeim hreppum sem Póstur & sími hef- ur ráðgert að leggja ljósleiðara í jörðu frá Sauðárkróki til Blöndu- óss. Tilefnið fyrir beiðni bygging- arfulltrúans til ráðuneytisins er tilkomið vegna hugsanlegra bóta- krafna sem bændur geta átt von á ef eitthvert tjón eða skemmdir verða á ljósleiðarastrengnum á þeirra landi. Bótakröfur vegna þess geta numið nokkur hundr- uðum þúsunda króna. Ef ráðu- neytið fer alfarið eftir umsögn Skipulagsstjórnar ríkisins verður ljósleiðarinn væntanlega settur inn í teikningar hjá viðkomandi skipulagsyfirvöldum þar nyrðra og ætti þá að vera lítill möguleiki á því að hann verði grafinn í jörðu þar sem hætt er við einhverju jarðraski sem gæti skemmt hann. „f þessu tilfelli stangast á ann- ars vegar fjarskiptalög og lög um skipulagsmál. í fjarskiptalögum segir að Póstur & sími eigi að hafa samráð við sveitarstjórnir, en sveitastjórnir þurfi að samþykkja skipulagslög kveða á um að hlutinn, sem er dálítið annað en að hafa samráð,“ Thors að lokum. sagði Stefán grh Gatnamálastjóri Gatnakerfið spmngið Framkvœmdir hefjast íhaust við Bústaðaveg og Hringbraut. Bílaeign borgarbúa tvöfaldastál5 árum. 120 milljónum varið til að lagfœra slit á götum. Óþarfi að vera með nagladekk í vetur r I haust verða hafnar byrjunar- veginum frá Öskjuhlíð inn á Snorrabraut og einnig verður hafíst handa við að flytja Hring- brautina niður fyrir hús Tann- læknadeiidar Háskólans og Um- ferðarmiðstöðvarinnar. Þessar framkvæmdir hljóða upp á 120- 130 miiyónir króna. En það er Ijóst að vegna hinnar gífurlegu aukningar sem orðið hefur á bfla- eign borgarbúa á síðustu árum að það verður að gera enn meira átak { stofnanakerfinu, aðalum- ferðargötunum, breikka þær og stækka til að umferðin geti fengið þrautalaust fyrir sig í framtíð- inni, segir Ingi Ú. Magnússon, gatnamálastjóri. Að sögn Inga hefur bflaeign borgarbúa tvöfaldast á síðustu 15 árum og hefur orðið sannkölluð bflasprenging. Bflar í Reykjavík eru orðnir 50 þúsund en gatna- kerfið í heild sinni er aðeins um 300 kflómetrar. Með því að hugsa sér að hver bfll hafi um 6 metra fyrir sig á götu þá myndu allir bflar höfuðborgarbúa fylla allt gatnakerfið ef þeir færu út á göt- umar allir í einu. Ingi sagði að á þessu sumri yrði varið um 120 milljónum til að lag- færa slit á gatnakerfinu vegna nagladekkjanna og vonaðist Byggingarvísitalan Verðbólgan á skrið Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað 17.6%. A síðustu þrem- ur mánuðum hefur vísitalan hækkað um 4.5%, sem jafngildir um 19.3% verðbólgu á ári. Samkvæmt útreikningum Hag- stofunnar er byggingarvísitalan 0.3% hærri í júlí en í júnímánuði. Hækkun vístölunnar á milli júní og júlí stafar af 0.2% hækk- un gatnagerðargjalda og 0.1% 1 hækkun ýmissa efnisliða. hann til þess að herferð sú sem borgarstjórn hefur samþykkt að kosta á aðra milljón króna til áróðurs gegn nagladekkjum myndi skila sér í vetur. Sagði Ingi að lögmannanefnd tryggingarfé- laganna hefðu samþykkt að bflar sem væru með snjóhjólbarða í staðinn fyrir nagladekk væru í fullum rétti við umferðaróhapp, þrátt fyrir það að þeir væru ekki með nagladekk, sem þó er í um- ferðarlögum að svo skuli vera. „Ég vona bara að ökumenn taki við sér í vetur og hætti með öllu að keyra um á nagladekkj- um, því það sparar geysimikið fé,“ sagði gatnamálastjori að lok- um. grh Fimleikafólk á höndum. Hópur fimleikafólks úr Ármanni brá á það óvanalega ráð í gær til að afla fjár til æfingaferðar til Danmerkur að ganga all góðan spöl á höndum. Krakkamir gengu alla leið ofan úr Sigtúni niður á Lækiartorq á höndunum. Handsterkt fólk það. Mynd E.ÓI. Náttúruverndarráð Rök skortir fyrir hvalafjöldann Náttúruverndarráð: Afstaðan til hvalveiða má ekki rýra traust okkarsem ábyrgrar þjóðar um náttúruvernd og auðlindanýtingu. Rök skortir fyrir fjölda veiddra hvala Náttúruverndarráð segir að nægileg líffræðileg rök skorti fyrir að nauðsynlegt sé að veiða 120 hvali á ári í vísindaskyni, og ráðið telur að hvalveiðarnar nú gefí ekki nema að litlu leyti þær upplýsingar um hvalastofnana sem mest þörf er á. í fréttatil- kynningu frá ráðinu segir enn- fremur að íslendingar verði að gæta að því að hvalveiðarnar rýri ekki það traust sem við njótum og þurfum á að halda í samvinnu um að nýta auðlindir sem deilt er með öðrum þjóðum. Fréttatilkynning ráðsins, sem send var út í gær, hijóðar svo: „í tilefni af þeim umræðum sem orðið hafa í fjölmiðlum að undanförnu um hvalveiðar í vís- indaskyni, þar sem m.a. hefur verið vikið að afstöðu Náttúru- vemdarráðs til þessara veiða, þykir ráðinu rétt að taka fram eftirfarandi: Undanfarin ár hefur Náttúru- vemdarráð oft fjallað um hval- veiðar á fundum sínum og álykt- að um þær. Á síðastliðnu ári hef- ur undirnefnd ráðsins, skipuð líf- fræðingum, einnig haldið fjöl- marga fundi vegna hvalveiðanna. Þá hefur Náttúmverndarráð boð- ið sérfræðingum Hafrannsókna- stofnunar á sinn fund til að kynna og ræða rannsóknaáætlunina um hvalveiðar í vísindaskyni. Ráðið hefur ávallt verið á þeirri skoðun að líta beri á hvali sem nýtanlega auðlind innan þeirra marka sem stofnar örugglega þola. Þetta kemur m.a. fram í ályktunum ráðsins í mars 1981, október 1982 og í bréfi sem ráðið skrifaði sjáv- arútvegsráðuneyti í júní 1985 vegna áætlunar um Átak í hvala- rannsóknum árin 1986-1989. í þessu bréfi, svo og í bréfum til sjávarútvegsráðuneytisins í ágúst 1985 og desember 1986, kemur jafnframt skýrt fram að Náttúru- verndarráð telur skorta nægileg líffræðileg rök fyrir því að nauðsynlegt sé að veiða þann fjölda hvala sem áætlunin gerði ráð fyrir. Þá var m.a. haft í huga að Álþjóðahvalveiðiráðið hafði samþykkt að stöðva skyldi hval- veiðar frá 1986 og ísland ekki mótmælt þeirri samþykkt. Náttúruvemdarráð telur að hvalveiðar nú í vísindaskyni séu því aðeins réttlætanlegar að þær séu örugglega langt innan þeirra marka sem stofnarnir þola og þá einungis ef með þeim fást upplýs- ingar sem ekki er hægt að afla með öðrum hætti. Bent skal á, að þau gögn sem nú skortir einna mest til að bæta mat á stofnstærð eru upplýsingar um ferðir og hegðun hvalastofnana, og þau gögn fást ekki nema að litlu leyti með veiðunum. Þá er ljóst að mjög mikilvægra upplýsinga um stærð hvalastofnana er unnt að afla með hvalatalningum á sjó og úr lofti. íslendingar byggja lífsafkomu sína á auðlindum sjávar og eiga allra þjóða mest undir skynsam- legri nýtingu hafsvæðanna um- hverfis landið. Að því verður að hyggja að afstaða okkar til hval- veiða rýri ekki traust okkar sem þjóðar með ábyrga afstöðu til náttúruvemdar og nýtingar auð- linda sem við verðum í flest öllum tilvikum að deila með öðrum þjóðum. Náttúruverndarráð bendir líka á, að eigi síðar en 1990 mun Alþjóðahvalveiðiráðið taka ákvörðun um veiðistöðvun til endurskoðunar, og fer þá fram alhliða mat á áhrifum veiðistöðv- unarinnar á hvalastofnana. Hyggja verður vel að því, að ís- lendingar geri ekki slíkt mat erf- iðara með veiðum á meðan á þessari veiðistöðvun stendur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.