Þjóðviljinn - 24.07.1987, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 24.07.1987, Qupperneq 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þJÓÐVIUINN Föstudagur 24. júlf 1987 159. tölublað 52. drgangur ;• LQON AÐ FARS€LLI SKÓLACÖNCU 0 SAMVINNUBANK! ÍSLANDS HF. Austfirðir Jarðgöng gegn byggðakreppu Hugmyndir um að jarðgöng tengi byggðakjarna saman. Seyðisfjörður -Norðfjörður-Hérað? Ásgeir Magnússon: Góðar samgöngurforsendafyrir raunsœrri byggðastefnu x Eina raunhæfa leiðin til að af- stýra byggðakreppu hér á Austfjörðum er að byggja jarð- göng sem sameini helstu byggð- akjarna fjórðungsins samgöngu- lega hver við annan. Fólk flytur héðan þrátt fyrir næga atvinnu og góðar tekjur, einungis vegna þess að því fínnst samgöngurnar ó- tryggar meirihlutann af árinu og því fínnst einnig að sú þjónusta sem því er boðið upp á sé ekki nægilega fjölbreytt. Þessu er hægt að breyta með samtengingu helstu byggðakjarnanna með jarðgöngum,“ segir Ásgeir Magnússon bæjarstjóri í Nes- kaupsstað. Að sögn Asgeirs eru uppi ýms- ar hugmyndir meðal sveitar- stjórnarmanna á Austurlandi hvar best sé og hagkvæmast að ráðast í gerð jarðganga. í þessu sambandi hafa menn bent meðal annars á jarðgangagerð á milli Seyðisfjarðar-Norðfjarðar og Mjóafjarðar við Hérað, beint frá Seyðisfirði uppá Hérað, eða Barnsfœðingar Bama- sprenging í fyrra Samkvæmtspám voru fœðingar sjaldanfleiri en ífyrra. 66 fœðingum fœrra en metárið 1960. 1985 höfðufœðingar ekki verið fœrri síðan 1942 Gangi spá Hagstofunnar eftir um fjölda barnsfæðinga í fyrra, hefur fjöldi fæðinga ekki verið meiri síðan 1960. Samkvæmt bráðbirgðatölum Hagstofunnar var fjöldi lifandi fæddra í fyrra 4850, eða aðeins 66 fæðingum færra en 1960, sem er gjöfulasta árið hvað viðkemur fjölda fæð- inga. Samkvæmt bráðabirgðaspá Hagstofunnar fjölgaði fæðingum töluvert í fyrra frá árinu á undan en fjöldi lifandi fæddra hafði þá ekki verið lægri síðan 1948. Spá Hagstofunnar gerir ráð fyrir að fjöldi barnsfæðinga í fyrra hafi verið 4850, en 1986 var fæðing- artalan ekki nema 3856 börn. Fæðingar hafa flestar verið 1960, eða 4916 börn lifandi fædd. Frá 1960 hefur dregið svo til jafnt og þétt úr tíðni bamsfæðinga. Arið 1980 fæddust 688 færri böm en 1960, þegar bamsfæðingar voru flestar, en 1985 voru fæðing- ar rúmlega 1000 færri en 1960. Frá 1980 til 1985 vom fæðingar í Reykjavík flestar 1983, eða 1479 talsins. Á þessu tímabili vom fæðingar fæstar í höfuðborginni 1985, eða 1300 að tölu. Tölur um fæðingar í Reykjavík í fyrra liggja ekki á lausu enn. -rk Norðfjörður-Eskifjörður við Hérað. Engar athuganir hafa enn verið gerðar á því hvaða valkost- ur sé bestur, en mikill vilji er meðal sveitarstjórnarmanna að það verði gert sem fyrst. Hafa þeir meðal annars farið til Fær- eyja til þess að kynna sér jarð- gangagerð þar. „Þetta mál þolir enga bið. f þeirri áætlun um jarðgangagerð sem til er í dag eru Vestfirðirnir næstir á eftir Ólafsfirðingum, og því erum við sammála að Vestfirðirnir em enn verr í sveit settir en við í samgöngumálun- um, en við þurfum að þrýsta á stjórnvöld til að taka vandamál okkar fjórðungs í samgöngumál- um til endurskoðunar og að þau fallist á okkar hugmyndir um að eina raunhæfa lausnin á sam- gönguvandamálum okkar sé að byggja jarðgöng sem tengi helstu byggðakjarna fjórðungsins sam- an. Aðrar lausnir sjáum við ekki,“ sagði Ásgeir bæjarstjóri í Neskaupstað. grh Léttlyndar pólitfskar sumarbúðir. I þessari viku hefur hópur Alþýðubanda- lagsmanna brugðið undir sig betri fætinum og dvalið á Laugarvatni í sumarbúð- um sem flokkurinn hefur skipulagf af kunnu kappi. Þjóðviljinn brá sér austur, og afraksturinn má sjá á síðum 5 og 6. Og svo hér að ofan... (Mynd: Ari). Lyfjaframleiðsla Gjaldeyrissparandi lyf Óli Sigþórsson, hjá Lyfjagerð ríkisins: Innlend lyfjaframleiðsla svarar til um 20% af lyfjanotkuninni. Lyfjaframleiðendur áætla að á næstu fímm árum fullnægi innlend Iyfjaframleiðsia tæpum helmingi allrar lyfjanotkunar í landinu, í stað 20 af hundraði í dag. Ljóst er að mikill sparnaður er í því fólginn fyrir þjóðarbúið, að efla innlenda lyfjagerð. Lyf framleidd hér á landi, standa inn- fluttum lyfjum ekki á sporði, hvað verð og gæði áhrærir. Allt að helmingi ódýrari en þau inn- fluttu, segja lyfjaframleiðendur. - Ég ætla að innlend lyfjafram- leiðsla í dag svari til um 20% af allri lyfjanotkuninni. íslensk lyf eru oftastnær um helmingi ódýr- ari en innflutt lyf og það er því ljóst að það væri mikill akkur fyrir þjóðarbúið að innanlands- framleiðslan ykist. Með því móti væri hægt að spara stórfé í gjald- eyri árlega, sagði Óli Sigþórsson, hjá Lyfjaverslun ríkisins. - Það verður vitanlega aldrei unnt að fullnægja eftirspum eftir lyfjum, með innlendri fram- leiðslu eingöngu, en það er flest sem mælir með því að á næstu fimm árum eða svo, geti innlend lyfjafrasmleiðsla svarað til 40% af allri lyfjanotkuninni, sagði Óli Sigþórsson. - Innlend lyfjaframleiðsla ætti næstu áriri .að geta numið 40% af lyfjamarkaðnum, í stað þess að 20-25% í dag, sagði Sindri Sindrason,\ framkvæmdastjóri lyfjafyrirtækisins Pharmaco. i- Það er mjög erfitt að segja til um það hversu mikið sparaðist með því að auka innlenda lyfja- framleiðslu, en það er þó ljóst að hér er um talsverðar upphæðir að tefla. Lyf semn eru framleidd hér á landi standast fyllilega samari- burð við innflutt lyf, - bæði hvað verð og gæði áhrærir, sagði Sindri Sindrason. i -RK Matarskatturinn Heiklsalar hækka vöruverð Heildsalar notfœra sér matarskattinn til þess að hœkka heildsöluverð. Verslunarstjóri: Þeir ætla sér aðfela hækkanir í matarskattinum. mánaðamót. Þeir bjuggust hins Heildsalar virðast í auknuin mæli notfæra sér væntan- legan 10% matarskatt ríkis- stjórnarinnar til þess að hækka heildsöluverð sitt til verslana. Þessar upplýsingar fengust hjá verslunarstjóra í einum af stór- mörkuðum borgarinnar. „Þeir ætla sér að fela hækkanir sínar í hækkuninni sem kemur í kjölfar matarskattarins og blekkja þannig neytendur,“ sagði viðmælandi. Nokkrir verslunarstjórar í mat- vöruverslunum sem Þjóðviljinn talaði við sögðu að lítið væri farið að bera á því að fólk væri byrjað að hamstra vörur vegna hækkun- arinnar sem skellur á um næstu vegar allir við að á því færi að bera í næstu viku og í fram undir mánaðamót. „Umræðan um mat- arskattinn hefur legið niðri að undanförnu þannig að ég held að fólk sé ekki enn farið að átta sig á væntanlegum hækkunum," sagði einn verslunarstjórinn. -K.Ól.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.