Þjóðviljinn - 08.08.1987, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 08.08.1987, Qupperneq 1
■KSl Laugardagur 8. ágúst 1987 171. tölublað 52. árgangur Norðurtanginn hf. Ensím á smokkinn Norðurtanginn hf. á ísafirði hefur tekið líftœknina ísína þjónustu. Gerasmokkfisk mýkri undir tönn með plöntu- ensímum Það er enginn vafi á því að notkun líftækni í fiskiðnaði á eftir að verða nokkuð almenn, en þróunin verður þó ekki eins hröð á þessu sviði og t.d. örtölvubylt- ingin, sagði Kristján Jóakimsson sjávarútvegsfræðingur hjá Norð- urtanganum á ísafirði í samtali við Þjóðviljann i gær, en Norður- tanginn er eitt örfárra íslcnskra fiskvinnslufyrirtækja sem tekið hefur líftæknina í sína þjónustu. „Það hefur verið vandamál með smokkfisk úr Norður- Atlantshafi, að við holdið á hon- um er gegnsæ himna, sem herpist saman við hitameðferð, suðu eða steikingu. Það gerir það að verk- um að fiskurinn verður ólseigur. Við eyðum þessari himnu með ákveðinni tegund plöntuensíma, þannig að fiskurinn verður mun mýkri undir tönn,“ sagði Krist- ján. Smokkfiskurinn frá Norður- tanganum fer að mestu leyti til hótela og veitingastaða á höfuð- borgarsvæðinu, þannig að sæl- kerar höfuðstaðarins njóta mjög góðs af þessari vinnsluaðferð ís- firðinganna. -gg Ægilegur gítarleikur Eyjólfur Kristjánsson fékk að grípa í gítarinn á útitón- leikum Bítlavinafélagsins við útvarpshúsið í hádeginu í gær, og þóttu félögum hans hljóðin ekki fögur eins og sjá má. Frá vinstri: Rafn Jónsson, Eyjólfur, Jón Ólafsson, Haraldur Þorsteinsson og Stefán Hjörleifsson eigandi gítarsins. Leigumiðlun LeigjenduTsnuðaðir Leigjendur greiða 3300fyrir að komast á skrá leigumiðlara. Óheimil gjaldtaka. Sólveig Kristjánsdóttir, hjá Húseigendafélaginu: Veit ekki um neina leigumiðlun sem hefurstarfsleyfi að kostar 3300 krónur að láta skrá sig á lista hjá okkur. Vit- anlega getum við ekki tryggt það að menn fái húsnæði til leigu þótt þeir láti skrá sig, sagði Hilmar Karlsson, hjá Leigumiðluninni, sem auglýst hefur í smáauglýsing- um eins dagblaðanna að undan- förnu. Samkvæmt lögum um húsaleigusamninga, er aftur á móti tekið fram að leigumiðlara sé óheimilt að taka gjald fyrir skráningu eða þóknun af ieigu- taka fyrir miðlunina. - Leigumiðlanir taka meira fyrir gerð leigusamnings heldur en lögfræðingar mega taka sam- kvæmt taxta. Ég get ekki bent á neina leigumiðlun sem hefur til- skilin leyfi og þar af leiðandi vísa ég ekki fólki sem leitar til okkar á þær. Við höfum bent á þetta fyrir nokkru í bréfi til lögreglustjóra- embættisins í Reykjavík, sagði Sólveig Kristjánsdóttir hjá Hús- eigendafélaginu. Að sögn Hilmars Karlssonar hjá Leigumiðluninni, er greiðsla fyrir gerð leigusamnings sam- komulagsatriði milli leigusala og leigutaka, þó oftast taki leigusali á sig kostnað vegna leigusamn- ings. í húsaleigulögunum er skýrt tekið fram að leigusala beri að greiða leigumiðlara þóknun fyrir að koma á leigumála. Sökum sumarleyfa hjá lögregl- ustjóraembættinu í Reykjavík fékkst ekki upplýst, hversu marg- ar leigumiðlanir væru starfandi í borginni með tilskilin leyfi, en það er Iögreglustjóra að gefa út leyfisbréfin. -rk Akranes Gæludýrafóður í Hafemi Þorsteinn Ingason íStokkfiski kaupir Haförninn hf. áAkranesi. Hefðbundinni fiskvinnslu haldið áfram. Úrgangurinn í ýmsar gerðir gœludýrafóðurs Helgarveðrið Sólog híti að verður hæg norðan- og norðaustan átt ríkjandi á landinu um helgina og bjart veður. Hætt er við þoku við norður og austur strönd landsins fyrst á morgnana sem leysist upp með hækkandi sól. Hitinn fyrir norðan verður frá 8-14 stig en heitara fyrir sunnan. Par getur hitinn komist upp í 15- 20 stig að jafnaði. Það er hæðar- hryggur fyrir vestan land sem ors- akar þetta bjarta veður og hæga norðlæga átt, segir Guðmundur Hafsteinsson veðurfræðingur, á veðurspádeild Veðurstofu ís- lands. Það'érú því allar líkur á bjartri og sólríkri helgi um nær allt land og góðu hitastigi. grh orsteinn Ingason, eigandi Stokkfisks á Laugum í Reykjadal og hluthafi í Hólma- drangi á Hólmavík, gekk frá kaupum á fiskvinnslufyrirtækinu Haferni hf. á Akranesi í vikunni. Þorsteinn sagðist i gær ekki vilja gefa kaupverð hlutabréfanna upp. Þorsteinn hyggst halda áfram hefðbundinni fiskvinnslu í fyrir- tækinu, en ætlar að auka vinnsl- una með því að kaupa hráefni á fiskmörkuðum og framleiða gæl- udýrafóður úr úrganginum. Stokkfiskur hefur um skeið framleitt fiskstauta í gæludýra- fóður. Nú hyggst Þorsteinn hins vegar flytja þá framleiðslu til Akraness og auka hana. Hann sagði í samtali við Þjóðviljann í gáer að framleiðsla á gæludýra- fóðri á Akranesi gæti væntanlega hafist innan fárra vikna. „Við munum halda áfram framleiðslu á fiskstautum en ætlum auk þess að framleiða fiskræmur og sér- staka tegund gæludýrafóðurs úr steiktu roði. Gæludýrafóðrið frá Stokkfiski er komið í 4,800 versl- anir í Englandi og svo víðar í Evr- ópu, en framleiðsla okkar er og verður einnig í boði í verslunum innanlands," sagði Þorsteinn í gær. Engar uppsagnir fylgja í kjöl- far eigendaskiptanna á Haferni og sagðist Þorsteinn heldur stefna að því að fjölga starfsfólki en hitt. Fjórir af fimm fyrri eigendum munu starfa áfram hjá fyrirtækinu og verður Guðmund- ur Pálmason eftir sem áður for- stjóri. „Ég hef ástæðu til þess að vera ánægður með þetta því Akranes er góður staður til fiskvinnslu og starfsfólkið hér er mjög gott,“ sagði Þorsteinn Ingason, nýbak- aður eigandi Hafarnarins. -gg Stjórnarsamstarf Jón Baldvin lær dembu ,JHefði ekki verið nær að leggja skatt á vitleysuna í þjóðfé- laginu?“ spyr Þorlákur H. Helga- son í lok greinar um eðalkrata og matarskatt í síðasta tölublaði Selfossblaðsins Dagskrár. Þorlákur Helgason var í þriðja sæti á framboðslista Alþýðu- flokksins á Suðurlandi í vor, og var einn af þeim sem gengu til liðs við flokkinn úr BJ. I greininni í Dagskrá kemur ekki fram mikil hrifning á stjórnarsamvinnunni og fyrstu aðgerðum Jóns Bald- vins Hannibalssonar: „Jafnaðarmenn stökkva í stjórn með landbúnaðarfræðing- um til lands og sjávar. Eðalkrat- inn boðar einföldun skattakerfis og verður fjármálaráðherra með þeim afleiðingum að kerfið verð- ur flóknara.“ „Kryddlegni grillbitinn slepp- ur, en hamborgarinn sem lendir ofan á og undir ostinum er skatt- lagður 10% ofan á eldra útsölu- verð. Harðfiskurinn hans Bóasar verður 10% dýrari en áður vegna þess að hann er ekki heill, flakað- ur, hakkaður, bútaður, saltaður, siginn, frosinn, reyktur, grafinn, kryddleginn eða kæstur. Hvað þá að hann sé í brauðraspi??“ Bílastæðin við Kringluna nýju í Reykjavík kosta álíka og áætlað- ar tekjur ríkisins af matarskattin- um, segir Þorlákur og segir nær að skattleggja vitleysu en mat. -m

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.