Þjóðviljinn - 08.08.1987, Blaðsíða 6
Kennarar - Kennarar
Kennara vantar að Gagnfræðaskóla Selfoss:
Kennara í samfélagsfræði - heil staða - og kenn-
ara í erlendum málum - heil staða.
Upplýsingar gefa Óli Þ. Guðbjartsson í síma 99-
1178, Jón Ingi Sigurmundsson í síma 99-1273 og
Sigríður Matthíasdóttir í síma 99-2409.
Skólanefnd
Þroskaþjálfar
Missið ekki af einstæðu tækifæri til fjölbreyttra
þroskaþjálfastarfa við skemmtilegar aðstæður.
Laus er til umsóknar staða þroskaþjálfa við með-
ferðarheimilið Lambhaga á Selfossi. Upplýsingar
gefur forstöðukona í síma 99-1869.
Meðferðarheimilið Lambhagi
Lambhaga 48, Selfossi
Frá Grunnskóla
Njarðvíkur
Laus er staða kennara við grunnskóla Njarðvíkur
næsta skólaár. Óskað er eftir kennara í raun-
greinum en annað kemur þó til greina. Skólinn er
aðeins í 40 km fjarlægð frá Reykjavík og er þægi-
legt að fara á milli daglega. Fargjöld verða
greidd. Upplýsingar veitir Gylfi Guðmundsson
skólastjóri í heimasíma 92-14380 eða í skólanum
í síma 92-14399.
Skólastjóri
£
Leyfi til daggæslu
í heimahúsum
SÍNE félagar athugið!
Sumarráðstefna.
Sumarráðstefna SÍNE verður haldin í Félags-
stofnun stúdenta v/Hringbraut laugardaginn 8.
ágúst kl. 14.00.
MÆTUM ÖLL
Stjórnin
Félagsmálaráð vekur athygli á að leyfi til dag-
gæslu í heimahúsum eru veitt á tímabilinu 1.
ágúst til 15. október ár hvert.
Skilyrði fyrir leyfisveitingu er að viðkomandi sæki
námskeið á vegum Félagsmálastofnunar sem
haldin eru árlega. Ennfremur þarf að skila
læknis- og sakavottorði og samþykkt húsfélaga
ef um slíkt er að ræða.
Upplýsingar um starfið veitir umsjónarfóstra í
síma 45700.
Félagsmálastofnun Kópavogs
REYKJKJÍKURBORG
JíctuMVi Stodun-
Dagvist barna
í Reykjavík
tilkynnir opnun leyfis-
veitinga fyrir daggæslu
á einkaheimilum '
á tímabilinu 1. ágúst til 31. október.
Nánari upplýsingar veita umsjónarfóstrur með
dagvist á einkaheimilum á skrifstofu Dagvista í
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, s. 27277.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á afgreiðslu
Dagvista.
Lausar stöður
dýralækna
1. Embætti héraðsdýralæknis í Norðausturlands-
umdæmi.
2. Embætti héraðsdýralæknis í Barðastrandar-
umdæmi.
3. Staða dýralæknis hjá Sauðfjárveikivörnum á
Keldum.
Laun eru samkvæmt hinu almenna launakerfi
starfsmanna ríkisins.
Umsóknir sendist landbúnaðarráðuneytinu fyrir
20. september 1987.
Landbúnaðarráðuneytið
6. ágúst 1987.
Kennari góður
Við grunnskóla Vestmannaeyja vantar nokkra
almenna kennara og kennara á sviði líffræði,
mynd- og handmenntar, tónmenntar (mikið starf
t.d. við tónlistarskólann á fiðlu og þverflautu),
enskukennara og sérkennara. Margs konar fyrir-
greiðsla svo sem flutningur á búslóð til
Vestmannaeyja, útvegun húsnæðis og barna- og
leikskólaaðstöðu.
Uppl. í símum: Barnaskóli 98-1944, 98-2586,
Hamarsskóli 98-2644, 98-2703, skólafulltrúi 98-
1088.
Starfsmaður við
íþróttamannvirki
Starfsmaður óskast að íþróttamannvirkjum
Kópavogs.
Starfið felst m.a. í umsjón með kvennaböðum.
Vaktavinna. Upplýsingar hjá tómstunda- og
íþróttafulltrúa í síma 45700 milli kl. 9 og 10 eða
rekstrarstjóra í síma 42230 milli kl. 12 og 13.
Umsóknum skal skila í Félagsmáiastofnun Kópa-
vogs, Digranesvegi 12 ekki síðar en 21. ágúst á
eyðublöðum sem þar fást.
Auglýsing
Laus staða
Staða skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu,
qreiðslu- og eignasviði, er laus til umsóknar.
Askilin er viðskiptafræði-, hagfræði- og/eða lög-
fræðimenntun,
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf
sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 20. ágúst 1987.
Fjármálaráðuneytið, 31. júlí 1987
TTTT
Kennarar - kennarar
Okkur vantar enn nokkra kennara á Akranes.
Við Grundaskóla:
Kennara yngri barna, sérkennara og kennara á
bókasafn. Upplýsingar veita skólastjóri, Guð-
bjartur Hannesson, sími 93-12723 og Ólína
Jónsdóttir, yfirkennari, sími 93-11408.
Við Brekkubæjarskóla
Sérkennara við deild fjölfatlaðra. Upplýsingar
veita yfirkennari, Ingvar Ingvarsson, sími 93-
12820, heimasími 93-13090, og formaður skóla-
nefndar, Elísabet Jóhannesdóttir, sími 93-12304.
Við aðstoðum við útvegun húsnæðis.
Skólanefnd
BÚ’87
Níræð jarð-
vinnsiutæki
Margt gamalt og gott á
landbúnaðarsýningunni
Gamlar búvélar skipa virðu-
legan sess á landbúnaðarsýning-
unni. Þeirra á meðal verða herfí
og plógur, sem smíðuð voru í
Bændaskóíanum í Ólafsdal um
aldamótin síðustu.
Þá verða þarna tvær dráttarvél-
ar frá þriðja áratugnum, af gerð-
inni International WF, önnur á
járnhjólum. Ennfremur:
International 10/20, frá 1930,
eitt besta eintak sem til er hér-
lendis.
Caterpillar beltadráttarvél frá
1936.
Hestasláttuvél og önnur hesta-
tæki, þar á meðal tékknesk snún-
ingsvél, sem hét því táknræna
nafni „Hænan“ - og sparkaði aft-
ur fyrir sig.
Landrover með blæju, frá
1948, einn sá fyrsti, sem hingað
kom. Sennilega elsti Willys-jeppi
landsins. John Deere dráttarvél
frá 1946.
Fróðlegt er að bera þessar vél-
ar saman við þær nýjustu, sem nú
eru til sýnis og sölu.
-mhg
BÚ’87
Fyrsta,
annað og
þriðja...
Hestamarkaður í
Reiðhöllinni
Einn þáttur þeirrar starfsemi
sem gert er ráð fyrir að fram fari í
Reiðhöllinni á komandi árum eru
hestamarkaðir. Til hins fyrsta
verður efnt nú á landbúnaðarsýn-
ingunni.
Hver landshlutadeild Félags
hrossabænda sendir tvö hross á
uppboðið eða 14 alls. Tilboðum
skal skilað í innsiglaðan kassa í
húsinu, þar sem hrossin verða
geymd. Seljendur eru skuld-
bundnir til að taka einu af þremur
hæstu tilboðum. Þau verða síðan
opnuð sunnudaginn 23. aprfl, kl.
21.30. Einhver ætti að geta farið
vel ríðandi heim.
Umsjón með hestamarkaðin-
um hafa þeir sr. Halldór Gunn-
arsson í Holti og Þórir ísólfsson,
Lækjamóti.
-mhg
Listabraut
Nýljós
í dag kl. 14.00 verða tekin í
notkun ný umferðarljós á gatna-
mótum Kringlumýrarbrautar og
Listabrautar og gatnamótum
Listabrautar og Kringlunnar.
Ljósin voru tengd fyrir nokkru
og látin blikka gulu til að vekja
athygli vegfarenda á hinum nýju
umferðarljósum.