Þjóðviljinn - 08.08.1987, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 08.08.1987, Blaðsíða 9
I - ' Leiklistarblaðið Ot er komið júlíhefti Leiklist- arblaðsins en það er gefið út af Bandalagi íslenskra leikfélaga og fjallar eingöngu um áhugaleik- list. í þessu hefti tímaritsins er að finna greinar og umfjöllun um ýmis málefni áhugaleikhúss og er þar meðal annars skýrsla aðal- fundar Bandalagsins sem haldinn var í Húsabakkaskóla í Svarfað- ardal í maí síðast liðnum og frá- sögn af ráðstefnu í tengslum við aðalfundinn. Á aðalfundinum lét Einar Njálsson, Leikfélagi Húsavíkur, af formennsku Bandalagsins eftir 8 ár og Guðbjörg Ámadóttir frá Skagaleikflokknum tók við for- mennsku. í kveðjuræðu sinni sagði Einar m.a.:„...áhugaleik- húsið er stór og mikilvægur þátt- ur í íslenskri menningu. Áhugal- eikhúsið er viðurkennt sem leikhús af atvinnufólki, af yfir- völdum ríkis, af stjómendum sveitarfélaga og ekki síst fólkinu í landinu. Við skulum halda því.“ Hópvinna var mikil á aðal- fundinum og þema hennar var Verkefnaval leikfélaganna og tengsl þeirra við aðrar listgreinar. Var fjailað um áhuga áhorfenda á verkefnum leikfélaganna, sam- vinnu við önnur menningarfélög og skóla, leiksýningar á óhefð- bundnum stöðum, heimasamdar dagskrár og möguleg tengsl leiklistarinnar og myndbandsins svo eitthvað sé nefnt. Þema ráðstefnunnar var: Hvaða gagn hef ég af norrænu og alþjóðlegu samstarfi. Sagt var frá stofnun og starfi Norræna áhug- aleikhúsráðsins sem verður æ öflugra, leikhringjum milli landa og norrænu samstarfi í tengslum við þá og leiklistarhátiðir, fjallað var um hve leiksýningar áhuga- leikfélaga erlendis væm kjörinn vettvangur til kynningar á ís- lenskri menningu, og heiðurs- gestur ráðstefnunnar John Ytte- berg sagði frá starfi IATA (Int- ernational Amateur Theatre Association). Á ráðstefnunni var einnig unnið í hópum út frá fram- söguerindum. í blaðinu er einnig skemmtileg frásögn af ferð Gamanleikhúss- ins á fyrstu alþjóðlegu bamaleik- húshátíðinni í Almelo í Hollandi um síðustu páska. Var Gamanl- eikhúsinu vel tekið á hátíðinni og athygli vakti æska leikstjórans Magnúsar Geirs en hann er þrettán ára og sennilega yngsti leikstjóri í heimi. Loks er í ritinu úttekt á nám- skeiði eða workshop sem haldið var á Akureyri í júní síðast liðn- um og komu þar saman um þrjá- tíu manns, íslendingar og Þjóð- verjar til að læra hvernig mögu- legt væri að vinna leikhús á göt- unni. Námskeiðið nefndist Þjóð- sagan á götunni, og sagan sem unnið var út frá var ævintýrið Karlssonur, Lítill, Trítill og fugl- arnir. Unnið var í þremur hóp- um, tónlistarhóp, hreyfingahóp og grímuhóp og í lok námskeiðs- ins var haldin sýning í göngugöt- unni á Akureyri. Þessi leiklistar- samvinna íslendinga og Þjóð- verja er sú fyrsta sinnar tegundar meðal áhugaleikhópa þessara landa. Ýmislegt fleira fróðlegt er að finna í blaðinu og er áhugaleikfé- lögum mikill styrkur að blaði sem þessu þar sem þau eru dreifð vítt og breitt um landið. Hér gefst tækifæri til samvinnu og skoðana- skipta sem ella væru mun minni, blaðið miðlar upplýsingum til fé- lagsmanna sinna um hvað önnur leikfélög eru að fást við. Það er í þessu samhengi ekki fráleitt að kasta fram spurningu um hvers vegna ekkert tímarit er til hér á landi um atvinnuleikhús þar sem fram færi fagleg umfjöll- un um leikhús á breiðum grund- velli. í þessu efni eru áhuga- leikfélögin mun betur sett. Fagtímarit áhugaleikfélaga Ijúlíhefti Leiklistarblaðsins er sagt frá ráðstefnu um norrænt og al- þjóðlegt samstarf áhugaleikfélaga, ferð Gamanleikhússins á barnal- eiklistarhátíð í Hollandi og hópvinnu á aðalfundi Bandalags íslenskra leikfélaga um verkefnaval leikfélaganna Götuleikhús á Akureyri í samvinnu íslenskra og þýskra áhugaleikara. Loftur Atli í sýningarsalnum í Menningarstofnun Bandaríkjanna þar sem hann sýnir Ijósmyndir gerðar á síðustu tveimur árum. (mynd sig) Ljósmyndun Rölt inn í augna- blikið Loftur Atli Eiríksson sýnir 36 ljómyndir í Menningarstofnun Bandaríkjanna við Neshaga í menningarstofnun Banda- ríkjanna við Neshaga er Loftur Atli Eiríksson nýbúinn að opna ljósmyndasýningu. Loftur Atli sýnir þar 36 ljósmyndir, fjórtán litmyndir og tuttugu svart/hvítar. Allt eru þetta myndir sem teknar eru á síðustu tveimur árum. Loftur Atli lauk lokaprófi í ljósmyndun frá Iðnskólanum í Reykjavík 1986 og stundar nú framhaldsnám við Pratt Institute í Brooklyn í New York með ljós- myndun sem aðalgrein og lista- sögu sem aukagrein. Til þessa náms hlaut hann listamannastyrk Fulbrightstofnunarinnar á ís- landi árið 1986. Loftur Atli hneigist að tilraun- aljósmyndun með hugmynda- fræðilegu ívafi og stemmningsljósmyndun. „Augnablikið er mér mikilvægt og oft sem ég ekki Ijósmyndir mínar fyrirfram. Hornsteinninn er að maður er að reyna að skapa eitthvað og oftar en ekki röltir maður óvart inn í einhver augna- blik þar sem sköpunin gerist í höfði manns sjálfs í gegn um myndavélarlinsuna. Þessi sýning er eins konar úrdráttur úr þeim augnablikum sem mér fannst skipta mig mestu máli og vildi helst segja frá. Eins reyni ég að segja jafn mikið um sjálfan mig og umhverfið og túlka þannig ytri og innri stemmningu sem ég upp- lifi.“ Aðspurður segir Loftur Atli sýninguna í Menningarstofnun- inni koma í beinu framhaldi af Fulbrightstyrknum, salurinn sé góður og dýrt að sýna í galleríum. „Ljósmyndin hefur lengi átt erfitt uppdráttar á íslandi og sum gall- eríin sýna alls ekki ljósmyndir." -ing Dagh/leiksk. FÁLKABORG v/Fálkabakka Dagh/leiksk. FOLDABORG v/Frostafold Frá og með l.sept.'87. Frá og með l.sept.'87. Leiksk. ARBORG v/HlaQbæ Dagheim. VALHÖLL v/Su8urgötu Leiksk. LEIKFELL v/Æsuíell Dagh. MÚLABORG v/Ármúla Um er að ræða 9 mánaða starf vegna námsleyfis forstöðumanns. Umsóknorfrestur er til 17. ágúst n.k. DAGVIST BARNA ÓSKAR AÐ RÁÐA FORSTÖÐUMENN Til starfa á eftirtalin dagvistarheimili Reykjavíkurborgar: Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri og umsjónarfóstrur í síma 27277

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.