Þjóðviljinn - 09.08.1987, Page 2

Þjóðviljinn - 09.08.1987, Page 2
V af jafnvœgi Þetta byrjaöi eiginlega allt á því aö hinn spaki maður (homo sapiens) hætti aö ganga á fjórum fótum, einsog hin húsdýrin, og reis uppá aftur- fæturna. Eftir þaö hafa flestir hlutir gengiö mannkyninu í óhag, eða einsog segir í máltæk- inu: „allt gengið á afturfótunum". Góöur vinur minn, sem bæði er mannfræð- ingur og greindur í betra lagi, hefur tjáö mér aö maðurinn hafi tekið upp á því milljón árum of snemma að fara aö ganga á afturfótunum, hryggsúlan hafi einfaldlega ekki verið tilbúin til að taka við álaginu og af því stafi þessi enda- lausa bakveiki sem alla er lifandi að drepa, ekki síst íslendinga. Margir góðir og grandvarir menn álíta að líkams- og jafnvel sálarheill íslendinga væri mun betur borgiö, ef þeir gengju enn á fjórum fótum einsog gert var í dentíð. Eitt af því sem mér hefur löngum þótt baga- legast við það að ganga bara á afturfótunum, er það hve erfitt getur reynst að halda jafnvæginu. Var raunar óhugsandi oft á tíðum, áður en mað- ur varð þorstaheftur. í gegnum tíðina hef ég æði oft litið búsmala landsmanna öfundaraugum vegna þess að hann ber gæfu til þess að ganga á fjórum fótum og heldur þess vegna jafnvæginu endalaust, einkum hestarnir, sem eru nú, þegar öllu er á botninn hvolft, mínar ær og kýr. En ekki þýðir að sýta orðinn hlut. Það er óum- flýjanleg staðreynd að flest okkar ganga á aftur- fótunum, svona öðru jöfnu, og þar við situr. Afleiðingin er eitt mesta böl sem hrjáir heimsbyggðina, sannkallað líkams-, sálar- og samfélagsböl. Eitt allsherjar jafnvægisleysi. Til eru þeir sem halda að jafnvægi sé fengið með því að standa í lóðréttri stellingu án þess að rjúka um koll, en það er nú öðru nær. Allsstaðar vantar jafnvægi. Það vantar jafnvægi í sálarlífið og sambúðina, kaupið og kjötverðið, inn- og útflutning, tekjur og gjöld, að ekki sé nú talað um lífríkið í sjónum umhverfis ísland, og svona mætti endalaust telja. Það sem hrjáir íslendinga öðru fremur er eitt allsherjar jafnvægisleysi, mér er nær að halda á flestum sviðum. Stundum er voðinn vís, þegar jafnvægi er ekki fyrir hendi, og þá skera landsfeður upp herör gegn jafnvægisleysinu og reyna að koma á jafnvægi. Eins og vænta má er einna brýnast að koma á jafnvægi í byggðum landsins. Fyrir nokkrum árum tóku menn að berjast fyrir því þjóðþrifa- máli og var herförin nefnd byggðastefna. Byggðastefnan snýst öðru fremur um það hvað sveitamenn eiga bágt að búa ekki í Reykjavík. Og það get ég persónulega og heilshugar tekið undir. Byggðastefnan er einkum fólgin í sam- göngubótum í dreifbýlinu, þannig að vegir eru malbikaðir þar sem fáir búa, að því er mér skilst til þess að auðveldara sé fyrir dreifbýlinga að komast til Reykjavíkur. Hinsvgar virðist ástæðulaust að viðhalda þeim vegum sem reykvíkingar aka mest um, hvað þá malbika þá. Það er talandi tákn, að ekki er enn búið að malbika Þingvallaveginn, þó um hann fari að jafnaði á sjötta hundrað bílar daglega á sumrin. Og ekki stendur til að malbika Grímsnesið frá Þingvöllum niður að Þrastaskógi og líklega talið óþarfi vegna þess að þann veg fara nær ein- göngu reykvíkingar. Og einsog vænta má er Gjábakkaheiðin yfir að Laugarvatni ófær mestan hluta ársins, vænt- anlega til að halda jafnvægi í byggð landsins. Ég fór eiginlega að hugsa um þetta þegar ég sá að til stóð að bora gat í gegnum nokkur fjöll vestur á fjörðum fyrir tæpan milljarð. Guð veit að mér finnst vestfirðingar alls góðs maklegir og ég er klár á því að reykvíkingar, sem eru upp til hópa gott og hjartahreint fólk, gleðjast með Vestfirðingum þegar þeir fara að aka um heimaslóðirnar neðanjarðar. En vafalaust verða samt einhverjir til með að hugsa sem svo: - Væri það nú nokkur goðgá þótt fjölförnustu vegum landsins umhverfis Reykjavík væri hald- ið í ökufæru standi, jafnvel þótt þeir séu nær eingöngu notaðir af fólki sem býr hérna á suð- vesturhorninu? Eða er það hluti af byggðastefnunni að skapa jafnvægi með því að gera reykvíkingum lífið leitt og gera höfuðstaðinn og umhverfi hans óbyggi- legri en dreifbýlið? Mér er sagt að það sem einkum hafi tafið fyrir síðustu stjórnarmyndun hafi verið deilur um það, hver ætti að verða samgöngumálaráð- herra. Mörgum þótti Ólafur Einarsson sjálfkjörinn til embættisins vegna náinna kynna af malbiki og eiginleikum þess. En annar maður, vænn og góður, settist í stólinn og nú væntum við þess að hann komi á jafnvægi í sálum vegfarenda á suðvesturhorni landsins með því að beita sér fyrir því að fjölförnustu ökuleiðir landsins verði gerðar ökufærar, en bíði með að bora göt í gegnum fjöll á útkjálkum með þúsundföldum tilkostnaði á kílómeter. Mundu það Matthías, að það þarf tvö lóð til að halda jafnvæginu. Það var lóðið.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.