Þjóðviljinn - 09.08.1987, Qupperneq 9
Áhrif Jónasar
Hallgn'mssonar
ð islenskf
veðurfar
Nú líöa lágt um fagurgrænar
hlíðar og litum vefa þokuslæður
mjúkar, elds á miðjum firði og
drögin dúkar, dalur hvítri læðu
innan tíðar. Þannig var ort og
þannig má e.t.v. yrkja sé maður
staddur á herbergi númer 209 án
rúmfata í Hótel Varmahlíð á
bleikjurauðu síðsumarkvöldi
með gluggann gegnt Glóðafeyki,
þessu fullkomnasta fjalli í gjör-
vallri íslandssögunni. Sólin situr í
Drangey og er út úr mynd en
ryðar silfurlita skýjabekkina sem
girða fjallið þvert, Lyngfótur og
höfuðblámi. Maður situr gegnt
þessu undri og horfir sig vímaðan
kvöld eftir kvöld, frá því klukkan
að ganga átta og allt til miðnættis
er lýsingin dofnar skyndilega og
næturbláminn tekur við. Undir
renna vötnin í kyrrstæðri spegil-
mynd himinsins og um vegina
kvíslast ljóskeilur bflanna, stöð-
ug stóðhrossin drúpa höfði eins
og unglingarnir í sjoppunni. En
öll þessi jarðnesku smáatriði
hverfa þó fyrir skýinu framan við
fjallið, kraftbirtingu guðdómsins
frammi fyrir hinni symmetrisku
helgimynd. Skýið og fjallið. Og
líklega er það þó aðallega skýið.
Maður horfir sig blóðlausan og
fellst að lokum á þá skýringu að
HALLGRÍMUR
HELGASON
SKRIFAR
mynd þessi sé dregin af sjálfum
Jónasi Hallgrímssyni, en hér,
ekki ófjarri fæðingar- og uppeld-
isstað hans, gæti áhrifa hans hvað
mest og er margreynt að veðurfar
dragi mjög dám af stfl þessa seint
oflofaða snilldardrengs, sem einn
íslendinga hefur ort á ítölsku. Og
sannfærður um þetta rýni ég enn
betur í þessa tásu, þetta lað,
þennan gufusöfnuð og fæ ekki
betur séð en að þar standi stórum
eldrauðum sólstöfum rituð eigin
hendi besta ljóðlína, ever:
„Heilsið öllum heima rómi blíð-
um”.
Varmahlíið er hinn mesti
vermireitur og líklega fallegasti
staður á þessari öld ef frá er talin
ein vika í Öskju árið 1961. Hitinn
er um og yfir tuttugu gráður í
skugga skógarins ofan við 23
steinsteyptar byggingar sem
reistar eru á 5 stöllum. Vel er bfl-
fært þeirra á milli og jafnvel um
rúnt að ræða sem getur orðið full-
ónæðissamur seint á kvöldin ef
þannig vill til með sjónvarps-
dagskrána. Það er því suðrænn
andi yfir þessum bæ og aðeins
kaffið sem spillir honum, en það
er hér jafn vont og annars staðar
á Norðurlandi. Ég er hér í mínu
sumarfríi sem að vísu er eyðilagt
fyrir manni af fyrrnefndum
Glóðafeyki. í sundlauginni
svamla þrjár þýskar skepnur með
kút og kork í hverju sínu haldi en
maður kemst þó oní og nær að
lokum að sölsa undir sig korkflot-
ann af þeim og lætur sig fljóta
sólþurrkaðan næsta klukkutí-
mann umvafinn hinu nýja og
fullkomna digital sándsýstemi
þeirra laugverja, alveg þar til
birtist út úr kvennaklefanum lát-
únsbolur þeirra Skagfirðinga, þá
missir maður jafnvægið og undan
skýlu skjótast korkplöturnar upp
fyrir vatnsborðið.
Upp í ælugult hótelherbergið
er maður svo mættur aftur og enn
það kvöld og lætur skýjafarið
skekja sál sína, lætur truflast af
rekkjuvoðum himnaskáldsins.
Morguninn eftir er ég vakinn ó-
sofinn af sólinni, sem aftur er
orðin gul og silast upp fyrir fjalla-
skörðin sem liggja eftir glugga-
kistunni endilangri. Það er ekki
vært og út á hlað skal maður þar
sem stelpurnar breiða hár sitt til
þerris og bændurnir silast á intum
sínum niður í part að hirða upp
baggana sem hvfla svo þungt á
þjóðinni, þeir liggja eins og
óbotnaðir vísuhelmingar á víð og
dreif um árbakkana. Inn á þetta
hlað rymur líka stór og mikil rúta
full af leiðinlegri útlendingum en
maður hafði áður ímyndað sér.
En framan á hana er ritað stórum
stöfum KJÖLUR og það nafn
orkar svo sterkt á mann að svo fer
að manni er troðið í aftasta sæti á
milli göngudeildar breska land-
hersins og fallegra finnskra hjóna
sem komast næst því að vera eðli-
leg í þessari þjóðahjörð. Breskir
bartalómar og franskir bónapart-
ar berjast innbyrðis um yfirráðin
á landakortunum og gamla
heimsveldið hefur að sjálfsögðu
betur þar sem þeir skilja gæds-
orðin og eru þegar að leggja á
ráðin um yfirtöku Hofsjökuls
þegar Frakkamir eru enn í Vatns-
skarði. Þulurinn dregur seiminn
inn Blöndudal og upp að virkjun.
Við erum komin á Kjalveg. Á
Kili. Orð sem ekki er hægt að
segja án þess að upp í hugann
komi beisklegur aldurtili. Hvflíkt
rímorð! Er til fullkomnara rím á
íslensku en þetta? Kili, tili. Og
það er að sjálfsögðu annar J.H.
sem kom því í kring auk þess að
útiloka alla aðra möguleika á rími
nema þá auðvitað handarinnar
dauðu og einu niðrí Blöndugili.
Yfir landi himinn heiður ríkir
og hafið mola af köldu borði sník-
ir. Það virðist sem svo að áhrif
Jónasar Hallgrímssonar á ís-
Ienskt veðurfar ætli að teygja sig
suður yfir hálendið að þessu
sinni. Undir skýlausum öræfa-
himni em jöklarnir eins og ný-
strekktur hvítur strigi í ramma
fjallanna. Á milli þeirra eru
Hveravellir, hádegisverður
Iandsins, og framundan blasa við
Kerlingarfjöllin, hrein snilld. ís-
land er alveg ótrúlegt og hvar em
nú íslendingarnir? Vei yður hass-
hausum höfuðborgarsvæðisins!
Hvar eru yðar augu? Hvar eru
yðar eyru? í stað útilegumann-
anna em komnir útilenskumenn-
irnir sem hafa myndað þétta
byggð í kringum hverasvæðið
sem bullar í kapp við þá sjálfa.
Hér er kofi Eyvindar og hver þar
sem áður Halla hár sitt þvó og
sér, eins og ort var. Nú er aftur
ort um þeirra hlutskipti og Bubbi
spyr hvort öræfafegurðin hafi
skapað þeim hamingjuna sem því
miður verður að svara neitandi í
þessu tilfelli og er þetta sjálfsagt
eina undantekningin frá þeirri
reglu. í dag fer fram í Eyvindar-
hver blautbolskeppni eigin-
kvenna þýska náttúrugripafél-
agsins og okkur matargestum á
óvart kemur Sabína Buttenwald
með búttuðum sigri sínum sjötta
árið í röð.
Áfram rúllar rútan og myndar í
sífellu nýja fjallahringi, nýjar
sýnir og sjónarhorn. Gróðurinn
er svotil allur rokinn burt sunnan
megin og maður veltir stemunum
fyrir sér og fjallrekstri Árnes-
inga. Suðurland heillar okkur
með regnboga Gullfoss og maður
er að mörgu leyti feginn að vera
kominn til byggða því grænar eru
sveitir lands (þvflík lína!) og mað-
ur verður alltaf að muna að lofa
gæsku gjafarans. Það er sem fyrr
Jónas Hallgrímsson sem hér er
samgróinn hverjum reit og rinda,
hefur helgað sér hvern blett allt
suður á Eyjafjallatind. Nútíminn
heilsar manni hins vegar með
fyrsta húsi i byggð: Nýja Kitsch-
hhöllin við Geysi, þessi úrkynj-
aða norska blanda af skíðaskála
og kirkjuskipi með útskurðar-
væmni í Edenstfl. Hvar eruð þér
arkitektar íslands? Og þeir eru í
stflsamkrullskringlum og
þjóðarbókhlöðuhlúnkum. Hvar
er sá sem þorir að taka af íslenskt
og sjálfstætt skarið? Hvar er
næsti Samúelsson. (Þetta eru asn-
ar, Guðjón.)
Nú er gamli sorrý Geysir girtur
og sápufirrtur orðinn, fær það
ekki lengur nema fyrir pening á
laugardögum klukkan þrjú. En af
hverju ekki að setja í hann te-
pakka og úthluta bollum, nei
selja bolla, leyfa útlendingunum
að fá að smakka Earl Grey í
Geysisvatni og hlífa þeim þar
með við innréttingunum á nýja
hótelinu. Því eins og enn eitt
skáldið sagði er Tíminn eins og
vatnið og vatnið er kalt eða heitt
eins og vitund mín sjálfs. Og tím-
inn er eins og te sem er blandað
vatninu og mér til hálfs.
Þegar í bæinn er komið fljóta
hins vegar á Tjarnarvatninu hinar
lýsandi sálir fómarlamba fyrstu
kjarnorkusprengjunnar, þúsund
litlar japanskar sólir. Éndurnar
sem sjálfar eru endurholdgaðar
sálir fórnarlamba ómerkilegs
stríðs á milli tveggja þýskra borg-
ríkja á seinni hluta sextándu
aldar, styggjast eilítið og halda
sig afbrýðisamar í hinum enda
Tjamarinnar. Á Gauknum þarf
maður svo að standa reiknings-
skil gjörða sinna, skrifa sinna,
nöldurs síns og leiðinda. Reynir
að kalla á J.H. sér til hjálpar, en
áhrif hans ná ekki svo langt
suður, og þó, kannski er hann í
röðinni fyrir utan.
Hallgrímur Helgason
Reykjavík, 6. ágúst 1987
P.S. í síðasta þætti kom leiðrétt-
ingarloppan nokkuð við sögu.
Kulnuðum módernlistum átti að
vera kulnuðum módemeistum.
Og Hjálmar Jónsson er úr Bólu
en ekki Bjólu. Fleiri villur voru
einnigsjálfsagðari eins og Konn-
ættin sem hljómar mun betur en
Konna-ættin. Með þökk.
Fóstrur
Okkur á Foldaborg vantar fóstrur og/eöa starfs-
stúlkur í hálfar og heilar stööur.
Foldaborg er nýtt 3ja deilda dagvistarheimili í
mótun.
Ef þú hefur áhuga á að vinna með okkur að
uppbyggingu uppeldisstarfsins þá hafðu sam-
band við Guðbjörgu eða Ingibjörgu í síma
673138.
Starf bæjarritara
Hér með er auglýst laust til umsóknar starf bæjar-
ritara á Akranesi. Háskólamenntun er æskileg.
Nánari upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri
og bæjarritari í síma 93-11211. Umsóknarfrestur
er til 15. ágúst n.k.
Bæiarstiórinn á Akranesi
Sunnudagur 9. ágúst 1987 ÞJÓÐViUINN - SÍÐA 9