Þjóðviljinn - 14.08.1987, Blaðsíða 10
HEIMURINN
Sovétríkin
Það hriktir í velferðarkerfinu
Félagslegt öryggi er dýrt og samt er því mjög ábótavant.
Niðurgreiðslum á matvælum var haldið uppi með tekjum af brennivíni á dögum Brésnévs -
Svipuð vandamál í austri og vestri, að frádregnu atvinnuleysinu
öldruðum fjölgar nú ört eins og í öðrum velferðarkerfum.
Sovétmenn hafa lengi
státað af sínu velferðarkerfi
- ókeypis heilsuæslu,
menntakerfi, eftirlauna-
kerfi, niðurgreiddu húsn-
æði og lágu verði á ýmsum
nauðsynjum. Nú er svo
komið að það hriktir í þessu
kerfi af ýmsum ástæðum,
fjárhagslegum og félags-
legum.
Hin opna umræða, glasnost,
sem Gorbatsjov hleypti af stað,
hefur m.a. leitt tii mikillar
gagnrýni á heilsugæslukerfið so-
véska, á sóðalega og yfirfyllta
spítala, á lélega lækna, á afleit
elliheimili og þar fram eftir göt-
um. Og uppi eru ýmsar hug-
myndir um úrbætur bæði á þessu
sviði og öðrum, sem munu að lík-
indum draga úr þeim mun sem er
á sovésku og vestrænu velferðar-
kerfi. En þó með einni stórri und-
antekningu.
Ekki atvinnuleysi
Hér er átt við atvinnuleysið.
Álagið á velferðarfjárlög Vestur-
landa hefur orðið mjög mikið á
undanförnum árum vegna lang-
varandi fjöldaatvinnuleysis. Ekki
er um slíkt vandamál að ræða í
Sovétríkjunum og sovéska
stjórnarskráin tryggir rétt til
vinnu. Þegar Gorbatsjov lét þess
nýlega getið í ræðu, að á næstu
tólf árum muni tækniþróun leiða
til þess að í sovéskum iðnaði
fækki stöfum um 15 miljónir, þá
lagði hann áherslu á að þetta fólk
mundi ganga í ný störf - og vel er
það mögulegt, einkum þegar
tekið er tillit til þess hve vanþró-
aðar ýmsar greinar þjónustu hafa
verið í landinu.
En þegar á dagskrá kemur í So-
vétríkjunum vísir að einkarekstri
í heilsugæslukerfi, viðleitni til að
blanda saman einstaklingsbund-
inni góðgerðastarfsemi og opin-
beru velferðarkerfi um leið og
verið er að draga úr niður-
greiðslum af ýmsu tagi, þá finnst
mörgum að hér sé að gerast
eitthvað svipað í Sovétríkjunum
og vestrænum velferðarríkjum.
Mannfjöldaþróun
og Brésnévs
Þrjár eru helstar ástæður taldar
fyrir því að þetta gerist: fjár-
skortur, vaxandi framfærsluþörf
og svo Leoníd Brésnév, sá sem
með völd fór í Sovétríkjunum frá
1964 og fram á þennan áratug.
Fyrstu ástæðurnar tvær eru vel
þekktar um allan heim. Fæðing-
um fækkar, meðalævi lengist,
mjög ört fjölgar ellilífeyrisþegum
og þarmeð vex mjög ört fjárþörf
velferðarkerfisins. En sá hluti
vandans sem snýr að Brésnév er
nokkuð sérstæður. Ómaksins
vert að skoða hann nánar.
Það er mikið talað um að tíma-
bil Brésnevs hafi verið tímabil
stöðnunar og víst dró úr hagvexti
á seinni hluta valdaskeiðs hans.
En á hans tíma urðu líka miklar
breytingar á búsetu og neyslu í
landinu. Árið 1964 bjó um helm-
ingur sovétborgara í sveitum, en
nú um þriðjungur og fer fækk-
andi.Árið 1964 var til sjónvarp á
fjórða hverju sovésku heimili, en
þegar hann lést áttu 9 af hverjum
10 fjölskyldum sjónvarpstæki og
þriðjungur litsjónvarpstæki.
Mótorhjólaeign tvöfaldaðist og
þvottavélaeign þrefaldaðist á
þessum tíma, ísskápar komu inn
á næstum því hvert sovéskt heim-
ili. Framleiðsla einkabfla óx úr
200 þúsundum á ári upp í 1,5 milj-
ónir. Miklar breytingar urðu á
mataræði, hlutur brauðs og kart-
aflna minnkaði, en neysla á
smjöri, eggjum, fiski og kjöti nær
tvöfaldaðist.
Niðurgreiðslu-
pólitíkin
Allt væri það í lagi, nema hvað
öll helstu matvæli voru greidd
niður og nú er ríkiskassinn að
sligast undir því álagi. í ríkisbúð-
um kostar kfló af kjöti kannski
1,85 rúblur (röskar hundrað
krónur á opinberu gengi), en það
kostar ríkið 4,80 rúblur að fram-
leiða þetta kfló af kjöti. Brauð
var greitt svo mjög niður, að
bændum þótti ráðlegt að ala gripi
sína á brauði fremur en að kaupa
fóður handa þeim.
Kostnaðurinn við þessar niður-
greiðslur er firnalegur eða um 70
miljarðar rúblna á ári, ca
fimmtungur ríkisútgjalda. Ogað-
ferðin til að rétta við fjárlögin var
eitt af stórslysum Brésnévstím-
ans: þjóðin eyddi um það bil fjór-
um sinnum meira í áfengi á dán-
arári Brésnévs en hún hafði gert
árið sem Khrúsjov fór frá.
Áfengið og
ríkiskassinn
Gorbatsjov var ekki að leika
sér þegar hann hóf hina miklu
herferð sína gegn áfengisbölinu í
fyrra. Hann vildi bjarga Rússum
frá glæpafaraldri, feiknalega tíð-
um slysum á vinnustað, fjölskyld-
uharmleikjum og svo því blátt
áfram, að brennivínsneyslan hef-
ur stytt meðalaldur karlmanna á
síðustu árum. Þegar Krúsjov fór
frá gat sovéskur karlmaður búist
við því að lifa í 67 ár, en á dögum
Brésnévs fór meðalaldur niður í
sextíu og þrjú. Og barnadauði fór
í vöxt, þótt aldrei væri það viður-
kennt á dögum Brésnévs - ekki
síst vegna alkóhólisma mæðra og
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
vanhirðu. Það er ekki fyrr en á
dögum glasnost að það er viður-
kennt að Sovétríkin séu nú í 50sta
sæti meðal þjóða heims að því er
varðar barnadauða.
Herferðin var nauðsynleg - en
sá er hængur á, að ríkiskassinn
var orðinn háskalega háður tekj-
um af brennivínssölu. Það var
upplýst á 27nda þingi Kommún-
istaflokksins, að helmingur af
söluskatti til ríkisins væru tekjur
af áfengissölu (en þessi skattur
gefur um 27% af tekjum ríkis-
sjóðs). Önnur 28% koma í kassa
þennan í skatti af ágóða ríkisfyr-
irtækja, og brugghúsin koma þar
mjög við sögu.
Með öðrum orðum sagt: fram-
lag Brésnévs til þeirra erfiðleika
sem hið sovéska velferðarríki á
nú við að glíma var að fjármagna
neysluþenslu með alkóhólisma.
Og það kostar mikla timburmenn
að snúa þeirri þróun við - bæði
vegna þess að með því að stór-
minnka áfengissölu eins og Gor-
batsjov hefur tekist, þá verður að
grípa til annarra ráða til að rétta
við ríkisbúskapinn - og svo vegna
þess tjóns á heilsu þjóðarinnar
sem þegar er orðið.
Sem fyrr segir: vandamál hins
sovéska velferðarkerfis og hinna
vestrænu eru um margt ólík, en
þeim svipar þó meir saman en
flestir hefðu haldið.
Velferðarríkin bera öll í sér vísi
að eigin kreppu: eftir því sem
þeim tekst betur til um heilsu-
gæslu (sem er náttúrlega sífellt að
verða fjárfrekari), þeim mun
meir fjölgar öldruðu fólki sem er
á framfærslu kerfisins. Og Sovét-
menn eru að sínu leyti að bregð-
ast við þessu nú á valdadögum
Gorbatsjovs með því að skapa
fleiri tækifæri ellilífeyrisþegum til
að þeir geti unnið hluta úr degi
eða tekið þátt í þeim tilraunum
með einkarekstur í smáum stfl í
sambandi við þjónustu, viðgerðir
og fleira, sem nú er verið að
bryddað upp á. -ÁB tók saman
Kennsla
Menntaskólann við Sund vantar stundakennara í
efnafræði 12 stundir á viku.
Upplýsingar veita deiidarstjóri, Hafþór Guðjóns-
son í síma 21647 og rektor skólans í síma 33419
eða 35519.
Rektor
Sjúkraþjálfara og
iðjuþjálfa
vantar við sérdeildir Hlíðaskóla.
Upplýsingar gefur skólastjori í síma 25080 eða
656280.
Heilsugæslustöð
á Þórshöfn
Heildartilboð óskast í innanhússfrágang á heilsu-
gæslustöð á Þórshöfn.
Innifalið í verkinu er t.d. múrhúðun, pípulagnir,
raflagnir, dúkalögn, málun, innréttingasmíði.
Verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg-
artúni 7, Reykjavík gegn 10.000.- kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 1.
sept. 1987 kl. 11.30.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, simi 26844