Þjóðviljinn - 02.09.1987, Side 1

Þjóðviljinn - 02.09.1987, Side 1
Miðvikudagur 2. september 1987 192. tölublað 52. árgangur Fyrirtœkjasalan Ekki eins manns ákvörðun Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra: Það er ekki Jóns Baldvins að ákveða sölu á fyrirtœkjumríkisins, heldur þarf Alþingi að samþykkja lög um slíkt.Óskynsamlegt að ráðast á Lyfjaverslun ríkisins þar semheildarendurskoðunályfsöluerígangi. Hœpiðað skera niður við fatlaða að er ekki eins ráðherra, né ríkisstjórnar að taka ákvörð- Hafnarfjörður Flugvöllur áöskuhaug Flugmódelfélagið Þytur sœkir um að koma upp tveimur flugbrautum á gömlu öskuhaugunum við Hamranes Flugmódelfélagið Þytur hefur sótt um aðstöðu á öskuhaugunum við Hamranes í Hafnarfirði, til að koma þar upp tveimur flugbraut- um, 80 metra löngum. Öskuhaugarnir voru lagðir niður 1. júlí sl. og hefur sorpið verið urðað og sáð í jarðveginn. Stefnir Þytur að því að hefja framkvæmdir þarna næsta vor ef úr verður, að sögn Ágústs H. Bjarnasonar, félaga í Flugmódel- félaginu. í flugmódelfélaginu Þyt eru nú um eitt hundrað félagsmenn af öllu höfuðborgarsvæðinu. Fram til þessa hefur félagið verið með bráðabirgðaaðstöðu á Geirs- tanga í Elliðaárdal, en þar er nú orðið mjög þröngt um hópinn, auk þess sem ætlunin er að setja upp bílasölur í nágrenninu. „Aðstæður við Hamranes eru mjög ákjósanlegar og þegar sorp- ið er komið á kaf undir slétta vel- slegna grasflöt er vart hægt að hugsa sér ákjósanlegri staðsetn- ingu fyrir svona flugbrautir,“ sagði Ágúst. Bæjarráð taldi erindi Flug- módelfélagsins allrar athygli vert og vísaði því til bæjarverkfræð- ings, tómstundafulltrúa og skipu- lagsstjóra. -Sáf un um aS selja fyrirtaeki einsog Guðmundur Bjarnason, heil- Jóns Baldvins, i gaer. t.d. Lyfjaverslun ríkisins, sagði' brigðisráðherra, um sölulista „Til þess að ákvarða slíkt þarf Bankavaldiö f Nonna og Manna Kvikmynd sú eftir Nonnabókunum, sem unniðhefurveriðaðí sumar, gerirfleiriað kvikmyndaleikurum en efni stóðu til. Þessir tveir voru til þess dubb- aðiríFlateyádögun- um að leika virðulega fulltrúabankavaldsúr Reykjavík, sem eru komnirtil Akureyrar Nonnabókanna fy rir rúmum hundrað árum að skoða reikningana hjá vafasömum út- gerðarmanni og brask- ara. Þeireru Arnmund- ur Backmann hrl og sumarbóndi í Flatey og Árni Bergmann Þjóð- viljaritstjóri. Mynda- tökum í Flatey lauk á mánudag en lokið verður við myndina úti í Noregiívetur. Nánarverðursagt frá kvikmyndaævintýr- um í Flatey í næsta sunnudagsblaði Þjóð- viljans. Dagvistarmál EinkavæðlmT undirbúin Elínborg Jónsdóttir ístjórn Foreldrasamtakanna: Er verið að undir- búa sölu dagvistunarheimila til einkaaðila Andvaraieysi ráðamanna í dag- vistunarmálum hér í borg verður vart skilið öðruvísi en að með því að iáta allt drabbast nið- ur sé verið að undirbúa það að einkaaðilar fái dagvistarmálin í sínar hendur. Borgaryfirvöld verða að láta sér skiljast að það er ekki nóg að byggja dagvistunar- heimili - það verður að vera hægt að manna þau líka, sagði Elín- borg Jónsdóttir, í stjórn Foreldr- asamtakanna, er hún var innt eftir neyðarástandi í dagvistun- armálum í Reykjavík. - Þetta er ekkert nýtt vanda- mál, heldur upphlaðinn vandi, sem endar með lokun dagvistar- heimila. Menn halda að það sé nóg að reyna nýja auglýsinga- tækni og þá fáist fólk til starfa, í stað þess að taka á vandanum með þvi að hækka laun fóstra verulega og hefja fóstrustarfið til vegs og virðingar, sagði Elín- borg. Elínborg sagði að Foreldra- samtökin hefðu farið fram á við stjórn Dagvistar barna að hlut- lausum aðila yrði falið að gera rekstrarlega og uppeldislega út- tekt á starfsemi og hlutverki dag- vistunarheimila. - Það er ekki nóg að hyggja að þessum málum til skamms tíma. Dagvistarmálin verður að taka til gagngerrar endurskoðunar og það verður að móta skýra stefnu í þessum málum, sem miðist við þarfir bamanna og vekur fólk til umhugsunar um mikilvægi fóstrustarfsins, sagði Elínborg. - rk lagabreytingu og það er Alþingis að athuga slíkt og taka ákvarðan- ir þar að lútandi.“ Guðmundur sagði að almennt séð þá teldi hann vel athugandi að selja hlut ríkisins í ýmsum fyrirtækjum. „Ég tel að ríkið eigi að taka þátt í því að aðstoða við að koma nýjum atvinnugreinum á legg með því að leggja fram áhættufé og þegar fyrirtækið er farið að bera sig eigi ríkið að selja sinn hlut til að leggja í nýja at- vinnuuppbyggingu. “ Hvað Lyfjaverslun ríkisins varðaði þá sagðist Guðmundur telja afar óskynsamlegt að ráðast að henni, þar sem á vegum heilbrigðisráðuneytisins væri nú verið að vinna að heildarendur- skipulagningu lyfsölu í landinu. „Sala á Lyfjaverslun ríkisins verður því að skoðast í víðara samhengi og sem þátt í heildar- endurskoðun lyfsölunnar.“ Það hefur komið fram í Þjóð- viljanum að Jón Baldvin hyggst beita niðurskurðarhnífnum á Framkvæmdasjóð fatlaðra. Guð- mundur sagðist telja það afar hæpna ráðstöfun, enda hefði slík- ur niðurskurður ekki verið rædd- ur í ríkisstjórninni. -Sáf Hótel Örk Beðið um greiðslu- stöðvun Ragnar Hall: Barst beiðnifrá Helga H. Jónssyni um greiðslu- stöðvun ígœr HelgiH. Jónsson, eigandi Hótel Arkar, hefur farið fram á greiðslustöðvun á hótelinu. „Mér barst beiðni frá Helga í gær um greiðslustöðvun," sagði Ragnar Hall, skiptaráðandi. Beiðnin hefur ekki enn verið afgreidd en verður líkast til tekin ákvörðun um það í dag hvort greiðslustöðvun verður veitt. Ragnar sagði að ýmis gögn hefðu borist með beiðninni en hann sagðist ekki gefa neinar upplýsingar úr þeim að svo stöddu, hvorki um eignir hótels- ins né skuldir. Samkvæmt veðbókarvottorði frá 2. ágúst voru áhvílandi skuldir og lögtök á Hótel Örk 155 milljónir, auk 10 milljóna sem Vélaleiga Helga H. Jónssonar lánaði hótelinu. Við það bætist innheimtukostnaður auk ýmissa lausaskulda. Þjóðviljinn reyndi ítrekað að hafa samband við Hótel Örk í gær en f síma hótelsins var ekki svar- að. -Sáf

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.