Þjóðviljinn - 29.09.1987, Side 5
ALÞYÐUBANDALAGK)
Kauptaxtar, verðbólga, raungengi, marxismi, auðvald og framtíðarsýn. Gunnar Guttormsson, Sigríður Stefánsdóttir,
Gunnlaugur Haraldsson, Steingrímur J. Sigfússon, Guðrún Ágústsdóttir, Jóhann Antonsson, Óttar Proppé, Nanna
Rögnvaldsdóttir og fleiri undir umræðum.
Alþýðubandalagið
I aivömum
alvörupólitík
Umrœður um grundvallarmál í pólitík á miðstjórnarfundi
Alþýðubandalagsins um helgina: sókn útúrpattstöðunni, -fyrsta
uppskera eftir erfitt sumar gagnrýni og sjálfsgagnrýni
Miðstjórnarfundur Alþýðu-
bandalagsins um helgina, sá
þriðji í sumar, mótaðist af hrein-
skilnum rökræðum um grund-
vallarmál í pólitfk vinstrimanna
þarsem fulltrúar reyndu að búa
til spurningar og svör um fram-
tíðina, ekki bara þá framtíð sem
liggur fyrir flokknum næsta mán-
uð frammað landsfundi, hcldur
þá framtíð sem blasir við í
stjórnmálum og öðru mannlífi
heima og heiman frammá næstu
öld.
Margir miðstjórnarmanna
voru bæði ánægðir og undrandi
að fundi loknum. Fyrri samkom-
ur miðstjórnarinnar í sumar,
Varmalandsfundurinn frægi um
miðjan maí og fundurinn í
Reykjavík í lok júní báru báðir
sterkan svip uppgjörs við fortíð-
ina með óvæginni gagnrýni á starf
flokksins og pólitík síðustu ár,
gagnrýni sem bæði var pólitísk og
persónuleg, þarsem rækilega
voru yfirgefnar allar gamlar sið-
venjur um kurteisi, málamiðlanir
og yfirborðseiningu útá við.
Menn hafa lýst þessum við-
brögðum flokksins við kosninga-
ósigrinum mikla í apríl við katla-
hreinsun eða við uppskurð, og
vissulega stendur hrossalækning-
in enn yfir í bland við ýmsar svipt-
ingar kringum álitlegar persónur
í formannsstól og aðra forystu.
Fundurinn um helgina bendir
hinsvegar til þess að nú sé að taka
við í flokknum annað stig í endur-
hæfingunni, tímabil málefn-
aumræðu og stefnuátaka. Það er
búið að hella úr skálum reiðinnar
og láta svipurnar dynja hver á
öðrum, og flokksmenn hafa -
svona nokkurnveginn - rifið
sjálfa sig uppúr þeirri letilegu
sjálfsblekkingu að ekkert sé að
þeim sjálfum eða flokknum, og
vandræðin bara að kenna vond-
um andstæðingum, fláráðum
fjölmiðlum og villuráfandi kjós-
endum.
í staðinn virðist komin sú
sannfæring að flokkurinn eigi sér
því aðeins réttlætingu að hann
endurskoði stefnu sína í grund-
vallaratriðum, ryðji burt líkum úr
lestinni og hleypi á skeið inní
framtíðina með vel útbúið hug-
myndanesti og nýja forystuskó.
Þetta heldur að minnsta kosti
bjartsýnn blaðamaður frá mál-
gagni sósíalisma þjóðfrelsis og
verkalýðshreyfingar eftir mið-
stjórnarfundinn um helgina.
EA og Varmaland
Fyrir fundunum lágu tvenns-
konar plögg. Annarsvegar álit
efnahags- og atvinnumálanefnd-
ar sem kosin var á síðasta lands-
fundi. f henni voru tíu valinkunn-
ir sæmdarmenn, og þeir skiluðu
af sér töluverðum texta snemma
árs, en á þessu áliti bar lítið eða
ekki í kosningabaráttunni. Á-
stæðurnar voru annarsvegar að
þrátt fyrir góða vinnu í nefndinni
kom álitið fullseint fram til að
hægt væri að rúlla því gegnum
flokksstofnanir fyrir kosningar
með viðeigandi umræðu og
breytingum, hinsvegar var kosn-
ingabarátta flokksins háð í hverju
kjördæmi fyrir sig án sameigin-
legrar heildarlínu.
Það sýnist sitt hverjum um
plaggið frá nefndinni og augljós
skoðanamunur kom í ljós á
miðstjómarfundinum um til
dæmis vaxtastefnu, eignarform á
fyrirtækjum, tillit til markaðar,
fiskveiðistefnu, kjarapólitík.
EA-skýrslan virðist hinsvegar
hafa sannað gildi sitt sem mið-
punktur umræðu og stefnu-
mótunar á sínum grundvallar-
sviðum.
Eftir starfshópavinnu og um-
ræður á fundinum um helgina var
ákveðið að búa til nýjan hóp
manna sem á að sjá um að koma
EA-skýrslunni til félaganna í
grunneiningum flokksins og efna
til samræðna um efni hennar þar
fyrir landsfund.
Varmalandsnefndin lagði líka
fram gögn fyrir fundinn, tillögur
um þau málefni sem meginá-
herslur eiga að liggja á í nóvem-
ber þegar landsfundarfulltrúar
safnast saman í Rúgbrauðsgerð-
inni. Vinna kringum þetta tengd-
ist mjög umræðum um
EA-skýrsluna, og að lokum var
því vísað til Varmalandsnefndar,
þingflokks og framkvæmda-
stjórnar að undirbúa landsfund
þannig að þar verði sjónum beint
að ferskri framtíðarsýn þarsem
sérstaklega verði gefinn gaumur
að stefnumörkun í verkalýðs- og
kjaramálum, byggðamálum, um-
hverfismálum, jafnréttismálum
og utanríkismálum um her og
frið.
Hausana af!
Það var líka rætt nokkuð um
hugsanlegar skipulagsbreytingar
með uppstokkun á flokkslögum.
Annarsvegar komu frá Vest-
fjörðum hugmyndir um að sam-
eina tvö flokksapparöt í eina
„flokksstjórn", annarsvegar
framkvæmdastjórnina, hinsvegar
„stjórn" flokksins (formaður,
varaformaður, ritari, gjaldkeri).
Inní þessu er tillaga um tvo vara-
formenn eða fleiri sem virðist
eiga nokkru fylgi að fagna þótt á
miðstjórnarfundinum hafi flestir
talið að um „flokksstjórnina“
Framhald á síðu 6
Harðskeyttir kvótafjendur frá Hellissandi og Grundarfirði: Skúli Alexandersson
og Ólafur Guðmundsson.
María Kristjánsdóttir og Álfheiður Ingadóttir velta vöngum yfir vaxtastefnu,
verðmyndunarkerfi og fjárfestingarsjóðum.
Nú, er þetta svona? Úlfar Þormóðsson galleríshölduður gefur Ólafi Ragnari
línuna glóðvolga úr DV.
Þriðjudagur 29. september 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5