Þjóðviljinn - 29.09.1987, Side 11
Eþíópía
Akall til þjóða heims
Forráðamenn hjálparstofnana telja unntað bjarga milljónum
mannslífa efkorn berststrax til Eþíópíu
Mæður með börn sín í flóttamannabúðum í Eþíópíu árið 1984. Ef ríki heims
bregðast skjótt við ákalli hjálparstofnana má koma í veg fyrir að sagan endur-
taki sig.
Tvær stofnanir á vegum Sam-
einuðu þjóðanna fóru þess á
leit við aflögufær ríki í gær að þau
gæfu korn í söfnun handa miljón-
um Eþíópíumanna sem óttast er
að hungur sverfi að í upphafi
næsta árs.
Forráðamenn Hjálparstarfs
Sameinuðu þjóðanna (UNDRO)
og Matvæla og Iandbúnaðar-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
(FAO) hafa í samráði við inn-
lendar hjálparstofnanir metið
ástandið slíkt að brýn þörf verði
fyrir 950 þúsund smálestir korns
um áramót í Eþíópíu. Pjóðir
heims hafa þegar gefið vilyrði
fyrir 200 þúsund smálestum en
betur má ef duga skal.
Miklir þurrkar hafa hrjáð Eþí-
MÖRFRÉTTIRi
Landsfundur
breska Verkamannaflokksins
hófst í gaer í Brighton. Ekki var
verið að tvínóna við hlutina held-
ur var ákveðið strax á fyrsta degi
að breyta reglum um val á fram-
bjóðendum flokksins og enn-
fremur kjörin nefnd til að vinna að
mótun nýrrar stefnu í ýmsum
málaflokkum. Hvað lyrra atriðið
varðar ber það helst til tíðinda að
stórlega er dregið úr áhrifum
verkalýðsfélaga við val f rambjóð-
enda. Hvað viðvíkur mótun
stefnu þá kvað nefndin ætla að
hafa hliðsjón af niðurstöðum
skoðanakannana sem ótvírætt
gefa til kynna að stefna Verka-
mannaflokksins í kjamorkumál-
um og skattamálum hafi verið af-
drifarík fyrir fylgi flokksins í þing-
kjörinu í júnímánuði síð-
astliðnum.
107 fórust
og að minnsta kosti 100 er sakn-
að eftir að aurskriða féll á fátækr-
ahverfi [ útjaðri Medellin, næst
stærstu borgar Kólombíu, á
sunnudaginn. Björgunarmenn
lögðu nótt við dag en þrátt fyrir
það eru litlar sem engar líkur á því
að fleiri finnist á lífi þar eð eðju-
lagið er hvorki meira né minna en
tólf metra djúpt. Að minnsta kosti
2 þúsund manns misstu heimili
sín.
Huldumaður
nokkur mun ríða fram á sjónar-
svið gamla keisarasetursins í
Moskvuborg í dag og rabba við
góða gesti úr Frankaríki. Hér er
átt við Míkhael þann Gorbatsjof
er verið hefur í sumarleyfi frá sjö-
unda degi ágústmánaðar. Hið
langa frí leiðtogans var farið að
vekja grunsemdir og töldu ýmsir
að hann ætti við veikindi að
stríða. Sá grunur var sem betur
fer ekki á rökum reistur.
Einhver ókyrrð
virðist vera á argentískum dátum
um þessar mundir því í tvígang
hafa nokkrir þeirra gert tilraun til
„uppreisnar". í gær hugðust
nokkrir fótgönguliðar læsa sig
inní herskálum sínum til að mót-
mæla því að yfirmaður þeirra var
leystur frá störfum. Sá hafði unn-
ið sér það til saka að neita að
leggja til atlögu við þátttakendur í
uppreisninni er átti sér stað á
páskum. Ekki tók langan tíma að
koma viti fyrir innilokunarmenn í
gær.
Hafnarverkamenn
í Kaupmannahöfn lögðu niður
vinnu í gær og vildu með því mót-
mæla því að bandarískt herskip
lá bundið við bryggju en grunur
lók á að um borð væru kjarnvopn.
Slíkt brýtur í bága við yfirlýsta
stefnu danskra stjórnvalda.
ópíumenn í sumar og búast menn
við algerum uppskerubresti í
norðurhéruðunum Tigre og Er-
itreu. í annað sinn á þrem árum.
Fulltrúi UNDRO í Eþíópíu,
Michael Priestley, sagði á blaða-
mannafundi nýverið að skjótra
aðgerða væri þörf, annars myndi
uppskerubresturinn leiða til
hungursneyðar. „Ástandið er
mjög slæmt. Miklar líkur eru á
því að sex miljónir manna verði
þurfi fyrir matgjafir allt næsta
ár.“
Peter Newhouse, starfsmaður
FAO í Róm, tók í sama streng:
„Við erum þeirrar skoðunar að
neyðin í Eritreu og Tigre verði
svipuð næsta ár og hún var árið
1984. Það verður að hefjast
handa þegar í stað eigi ekki illa að
fara. Ef við sitjum með hendur í
skauti þar til í árslok þá verður
um seinan að hjálpa fyrstu fórn-
arlömbunum.“
Alkunna er að skelfilegt ástand
ríkti í Eþíópíu árin 1984-85. Þá
fórust margir úr hungri þótt ríki
heims sendu um 1,2 miljónir smá-
lesta af korni til landsins.
Uppskera var góð sumrin 1985
og ‘86 og bjuggust menn ekki við
breytingum til hins verra fyrr en
eftir fjögur ár hið minnsta. Þurrk-
arnir í ár komu mönnum í opna
skjöldu en ef skjótt verður brugð-
ist við áköllum hjálparstofnana
eru góðar líkur á því að koma
megi í veg fyrir ómældar þjáning-
ar miljóna manna. -ks.
Glasnost í Sovétríkjunum:
Óháðir umbótahópar héldu
ráðstefnu í Moskvu
Fyrir nokkrum vikum komu
um 600 fulltrúar 50 óháðra sam-
taka af ýmsu tagi saman í Moskvu
á ráðstefnu sem á ekki sinn líka. I
fyrsta sinn í hálfa öld eða meir
gátu allskonar óháðir vinstrisinn-
ar, umhverfisverndarmenn,
menningarhópar, rætt mál sín án
þess að lagður væri steinn í þeirra
götu af hálfu yfirvalda. Þetta þyk-
ir mjög merkur áfangi í sögu glas-
nost, hinnar opnu umræðu, sem
Gorbatsjov flokksritari hefur
gert að sínum lykli að erfíðleikum
sovésks samfélags.
Þessi sögulegi fundur var hald-
inn í sal sem fenginn var að láni
hjá Moskvudeild Kommúnista-
flokksins. Sem fyrr segir voru þar
fulltrúar um 50 hópa af því tagi
sem sovésk málgögn eru farin að
kalla „óformlega". Ráðstefnunni
lauk á því, að samþykktar voru
áskoranir um að minnisvarði
verði reistur fórnarlömbum Sta-
líns og að óháðir þegnar fái að
keppa við frambjóðendur Kom-
múnistaflokksins í kosningum til
bæja- og sveitarstjórna.
Þeir sem fóru með skipulagn-
ingu þessarar ráðstefnu eru allir
stuðningsmenn Gorbatsjovs og
hans glasnost-stefnu. En þeir
segja að umbætur hans verði að
vernda fyrir vaxandi andstöðu
íhaldsafla og laumustalínista. Og
þá með nýjum lýðræðislegum
grasrótarsamtökum af ýmsu tagi.
Ráðstefnugestir létu og í ljós
áhyggjur af vaxandi rússneskri
þjóðrembu, sem er ein af skugga-
hliðunum á glasnost - m.ö.o. hið
aukna málfrelsi hefur meðal ann-
, ars ýtt undir „óformleg" samtök
' eins og „Pamjatj" (Minnið) þar
sem talsvert ber á fyrrgreindri
þjóðrembu og hatri á „annar-
legurn" áhrifum.
Þeir sem gengust fyrir ráð-
stefnunni í lok ágúst létu vest-
ræna blaðamenn ekkert vita af
henni fyrr en hennar hafði verið
getið að nokkru í sovéskum blöð-
um - en það var gert nú um miðj-
an september í vikublaðinu Og-
onjok, sem er eitt helsta málgagn
glasnostlínunnar.
Samtök
sósíalískra klúbba
Á ráðstefnunni var samþykkt
yfirlýsing um stofnun Sambands
sósíalískra klúbba. Þar er lýst
stuðningi við forystuhlutverk
Kommúnistaflokksins, sem ráð
er fyrir gert í stjórnarskrá lands-
ins. En því er við bætt, að flokk-
urinn sé ekki einn og óskiptur.
Þar séu bæði hrokafullir valds-
menn sem séu einangraðir frá ai-
menningi og sumir beri ábyrgð á
allskonar misferli í fortíðinni - og
svo heiðarleg og framsækin öfl.
Klúbbarnir vilja styðja þau öfl
með ýmsum hætti.
Ráðstefnan er fyrsti samstarfs-
vettvangur hinna „óformlegu"
hópa sem hefur mjög fjölgað á
þessu ári eftir að Gorbatsjov
hvatti í ávarpi til miðstjórnar
flokksins í janúar til víðtækrar
lýðræðisþróunar í Sovétríkjun-
um. Fyrst voru margir þessir hóp-
ar tengdir utangarðsmúsík og list-
um, m.a. rokki. Aðrir hópar eru
fyrst og síðast „grænir". Þeir hafa
mótmælt því hvernig staðið er að
virkjunum, eða þá eyðileggingu
gamalla húsa og náttúruvætta.
Enn aðrir hópar eru „rauðari“ -
m.ö.o. setja á dagskrá „betri sós-
íalisma". Sovéskt tímarit hefur
kallað þá „hefðbundna umbóta-
sinna" í þeim skilningi að þeir
vilji taka mið af sovéskri reynslu í
stað þess að slíta sig frá henni eins
og margir andófsmenn liðinna
ára gerðu, þegar umbótaviðleitni
þeirra var í engu svarað - nema
þá með ofsóknum.
Á ráðstefnunni í Moskvu voru
bæði meðlimir í Kommúnista-
flokknum og fyrrverandi pólitísk-
ir fangar, skáld og erfiðismenn.
ÁB
Dæmigerð sovésk fyrirsögn á umræðuþætti: „hvert er verið að kalla okkur .
Skóladagheimilið Völvukot
við Völvufell
vantar starfsfólk:
• Fóstru
• Fólk meö sambærilega menntun.
• Ófaglært fólk, m.a. í eldhús.
Upplýsingar í síma 77270.
Þriðjudagur 29. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Námskeið um
vökvakerfi
Ætlað starfandi málmiönaöarmönnum, einkum
þeim sem fást viö uppsetningu, viðhald og um-
sjón með vökvakerfum. Veröur haldið dagana 8.
t.o.m. 16. okt. kl. 8.30-16.00 í félagssal
Farmanna- og fiskimannasambandsins, Borg-
artúni 16. Þátttökugjald er 15.000.- kr. Innifalin
eru námsgögn og kaffi. Upplýsingar og innritun í
símum 687440 og 687000.
fm
8
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ
iðnaðarins