Þjóðviljinn - 29.09.1987, Blaðsíða 13
FRA LESENDUM
KALLI OG KOBBI
Hættum veiðum
ogherinn burt
Húrra, húrra, húrra. Þrefalt
húrra fyrir því, hrópaði lýðurinn
og þeytti húfum sínum til móts
við skýin. Þeir sem engar báru
húfurnar, fleygðu hárkollunum
sömu leið. Og restin, er hvorugt
átti, var einungis himinlifandi og
hífuð í hjörtum. Eitt og eitt gleði-
tár sást renna niður kinnar móts-
gesta. Pað gerist nefnilega ekki á
hverjum degi að íslendingar
vinni jafn glæsilegan sigur og nú.
Landinn hafði, að sögn, betur í
glímunni við drepleiðinlegt nátt-
úruverndar skítafýlupakkið.
Sama liðið og fettir fingur vegna
hvalveiða í skyni vísinda.
Talið er af fróðum, að síðasti
geirfuglinn hafi einmitt verið veg-
inn í nafni fræðanna. Ákaflega
skemmtilegur og sjarmerandi
dauðdagi. Ekki satt? Nóg um
það. Grjóthólmaverjum hefur
loksins tekist að kenna Grænfrið-
ungavitleysingunum verðskuld-
aða lexíu og sýna þeim svart á
hvítu að víkingar norðurhafa láta
sko enga illa gefna útlenda iðju-
leysingja segja sér hvort 200
mílna landhelgismörkin verði
nýtt eður ei. Gildir einu þó svo
um flökkustofn sé að ræða. Öðru
nær. íslendingar skríða hinsvegar
líkt og sleikjur er herfram-
kvæmdir ber á góma. Hvað er
verið að minnast á soddan smá-
muni.
Já, margt er gasprað í dag.
Óskapleg börn geta menn nú ver-
ið. Ég segi ekki annað en það.
Sem kunnugt er, var á dögunum
gert að sumra mati tímamóta-
samkomulag við guðdómlegan
Kanann þess efnis að hann er
látinn lofa upp á æru og trú, tíu
fingur til guðs og fimm í... og ég
veit ekki hvað og hvað að beita
íslendingum engum viðskipta-
þvingunum, né kæra oss á alþjóð-
avettvangi í framtíðinni, en starfa
þess í stað með þeim að eflingu
gagna um stofnstærð, og öðru er
lýtur að konungi úthafanna, sem
frekar lítið er vitað um þrátt fyrir
margra áratuga, jafnvel alda
veiði.
Ég er þeirrar skoðunar að
ríkisstjórnin þar vestra sé vart
megnug að standa við gert sam-
komulag, þótt vilji af hennar
hálfu sé fyrir hendi. Einfaldlega
af þeirri ástæðu að Hólmabúar
kljást ekki eingöngu við Reagan
kvart Islending, ellegar Shultz.
Vissulega gætu þessir tveir
heiðursmenn veitt þjóð vorri
slæmt sár í skjóli valdsins. Nei, í
margþvættu málinu á almenni
skattborgarinn síðasta orðið.
Merkilegt nokk. Ég viðurkenni
fúslega að deilan er eitt allsherjar
rugl og framganga hérlendra
ráðamanna til skammar. En
breytir í annan stað ekki þeirri
staðreynd að fólkið er um þessar
mundir berst fyrir lffi hvala, ekki
aðeins við strendur íslands, einn-
ig meðal hvalveiðiþjóða al-
mennt, er enn til staðar, og af-
neitar sem fyrr vísindaveiðidell-
unni. Það mun þrýsta á um að-
gerðir og lýsa frati á bræðing
landanna tveggja.
Ég hef nokkuð ritað um marg-
tuggið málið, og mælt á móti
fengnum. M. ö. o. ekki tekið
undir þjóðarröddina svokölluðu,
af þeirri ástæðu einni að ég vil
ekki horfa á eftir mörkuðum okk-
ar og sérstöðunni í Vesturheimi,
vegna risa hafanna. Slíkt verður
bara ekki réttlætt. Eigi á meðan
landinn fær hvergi aðgang að öðr-
um jafngóðum, ellegar betri.
Reyndar leggur heilmikinn
fnyk af málamiðluninni er fyrr
var vikið að. Eins og menn ef-
laust muna lagði hæstvirtur utan-
ríkisráðherra í’ann út, er málið
virtist í óleysanlegum rembihnút,
svakalega reiður og vígalegur, en
tilkynnti þegnunum áður að
framkvæmdir á vegum hersins á
Keflavíkurflugvelli hefðu verið
stöðvaðar um óákveðinn tíma.
Ég fæ ekki betur séð en skipt hafi
verið á drápi stórfiskanna og
framgangi vígamaskínunnar á
Miðnesheiði. Nú var lag til að slá
tvær flugur í einu höggi. Lag sem
því miður var með engu móti
brúkað. Sem sagt, nú var lag til
að greina guðs útvöldum þjóð-
flokki frá því að íslendingar væru
hættir umdeildum veiðiskap sín-
um, sem hvort eð er skiptir þjóð-
arbúið sára litlu fjárhagslega og
þið Kanar mínir, athafnið ykkur
ekki frekar hér á grund, og hefði
verið fyrsta skrefið í þá átt að fæla
þjóðarskömmina burt frá Hólm-
anum. Að velja þá leið breytti
hvalamálinu á svipstundu úr
vondu, í gott og þarflegt.
Konráð Friðfinnsson
Bréf til fjármálaráðherra
Ég hef fengið lokað bréf frá
fjármálaráðuneytinu, dagsett 14.
september 1987, þar sem stendur
að allir hafi fjárhagslegt bolmagn
til að kaupa sér spariskírteini rík-
issjóðs.
Þó að ég hafi óskerta tekjutr-
yggingu, er reynist vera það rífleg
að ég get sparað peningaupphæð
sem um munar, til að grátkonan
V sem á drullusokkinn hafi meira
að bíta og brenna, ætla ég ekki að
stilla mitt óhóf.
Alþýðuflokkurinn hafði í
stefnuskrá að ríki og samvinnufé-
lög ættu að eiga og reka banka,
verslun og framleiðslutæki. En
nú virðast Hafskip, Kveldúlfur
og Alliance hafa sannað ágæti
hlutafélaga svo vel að allt þetta
vill forystulið flokksins afhenda
hlutafélögum og fáum útvöldum
einstaklingum.
Hefur flokkurinn glatað öllu
því sem upphaflega var hans, öllu
öðru en nafninu?
Jón Þorleifsson
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavik. Helgar- og kvöld-
varsla lyfjabúða vikuna
25.sept.-1.okt. 1987erí
Laugavegs Apóteki og Holts
Apóteki.
Fyrrnef ndaapótekið er opið
um helgar og annast nætur-
vörslu alla daga 22-9 (til 10
frídaga). Síðarnefnda apó-
tekið er opið á kvöldin 18-22
virka daga og á laugardögum
9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík.... ....sími 1 11 66
Kópavogur... ...,sími4 12 00
Seltj.nes .. sími61 11 66
Hafnarfj ,...sími5 11 66
Garðaþær... ...,simi5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík.... .... sími 1 11 00
Kópavogur... .... sfmi 1 11 00
Seltj.nes ....simil 11 00
Hafnarfj ,...sími5 11 00
Garðabær... ,...simi5 11 00
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspft-
allnn: alladaga 15-16,19-20.
Borgarspftalinn: virka daga
18.30-19.30, helgar 15-18, og
eftir samkomulagi. Fæðlng-
ardelld Landspítalans: 15-
16. Feðratimi 19.30-20.30.
Öldrunarlækningadelld
Landspítalans Hátúni 10 B:
Alla daga 14-20 og eftir
samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: virka daga 16-
19.30 helgar 14-19.30 Heilsu-
verndarstöðin við Baróns-
stig:opinalladaga 15-16og
18.30- 19.30. Landakots-
spftali: alla daga 15-16 og
18.30- 19.00 Barnadeild
Landakotsspítala: 16.00-
17.00. St. Jósefsspítall
Hafnarfirði: alla daga 15-16
og 19-19.30 Kleppsspital-
inn:alladaga 18.30-19 og
18.30- 19 SJúkrahúsiðAk-
ureyri: alla daga 15-16 og 19-
19.30. SJúkrahúsið
Vestmannaey jum: alla daga
15-16 og 19-19.30. SJúkra-
hús Akraness: alla daga
15.30- 16 og 19-19.30.
SJúkrahúsið Húsavfk: 15-16
og 19.30-20.
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavfk,
Seltjarnarnes og Kópavog
er í Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum
og helgidögum allan sólar-
hringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráðleggingar og tíma-
pantanir í sima 21230. Upp-
lýsingar um lækna og lyfja-
þjónustu oru gefnar í sím-
svara 16885.
Borg-jrspitalínn: Vakt virka
dapd kl. 8-17 og fyrir þá sem
ekki hafa heimilislækni eða
ná ekki til hans. Slysadeild
Borgarspítalans opin allan
sólarhringinn simi 696600.
Dagvakt. Upplýsingar um da-
gvaktlæknas. 51100. Næt-
urvakt lækna s. 51100.
Hafnarfjörður: Heilsugæsla.
Upplýsingar um dagvakt
lækna s. 53722. Næturvakt
læknas.51100.
Garðabær: Heilsugæsian
Garðaflöts. 656066, upplýs-
ingar um vaktlækna s. 51100.
Akureyrl: Dagvakt 8-17 á
Læknamiðstöðinni s. 23222,
hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá
Akureyrarapóteki s. 22445.
Keflavfk: Dagvakt. Upplýs-
ingar s. 3360. Vestmanna-
eyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
ÝMISLEGT
Bilananavakt rafmagns- og
hitaveitu: s. 27311. Raf-
magnsveita bilanavakt s.
686230.
Hjálparstöð RKl, neyðarat-
hvarf fyrir unglingaTjarnar-
götu 35. Sími: 622266 opið
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin
Ráögjöf i sálfræðilegum efn-
um.Sími 687075.
MS-félagið
Álandi 13. Opið virka daga frá
kl. 10-14. Sími 688800.
Kvennaráðgjöfln Hlaðvarp-
anum Vesturgötu 3. Opin
þriðjudaga kl.20-22, sími
21500, símsvari. SJálfshjálp-
arhóparþeirrasemorðið
hafafyrirsifjasþellum, s.
21500, simsvari.
Upplýsingarum
ónæmlstæringu
Upplýsingar um ónæmistær-
ingu (alnæmi) í síma 622280,
milliliðalaust samband við
lækni.
Frá samtökum um kvenna-
athvarf, simi21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir kon-
ur sem beittar hafa verið of-
beldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökln '78
Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjatarsima Samtakanna
'78 fólags lesbía og homma á
Islandi á mánudags- og
fimmtudagskvöldum kl. 21 -
23. Simsvari á öðrum tímum.
Síminner91-28539.
Fólag eldri borgara: Skrif-
stofan Nóatúni 17, s. 28812.
Félagsmiðstöðin Goðheimar
Sigtúni 3, s. 24822.
GENGIÐ
28. september
1987 kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar 38,940
Sterlingspund 63,462
Kanadadollar.... 29,544
Dönsk króna..... 5,5808
Norskkróna...... 5,8508
Sænskkróna...... 6,1116
Finnsktmark..... 8,8500
Franskurfranki.... 6,4332
Belgískurfranki... 1,0344
Svissn.franki... 26,0992
Holl. gyllini... 19,0789:
V.-þýsktmark.... 21,4972
Itölsklíra..... 0,02966
Austurr. sch.... 3,0559
Portúg. escudo... 0,2730
Sþánskur peseti 0,3197
Japansktyen..... 0,27452
Irsktpund....... 57,302
SDR............... 50,2939
ECU-evr.mynt... 44,5104
Belgiskurfr.fin. 1,0270
KROSSGÁTAN
T 2 T □ 4 5 3 7
r-i L J •
9 n L3 11
12 ' 13 14
• 18 L. J
17 19 20
41 n 22 ii
24 r m J
Lárótt: 1 bæklingur4
teygjanleg 8 sívalningnum
9 trjátegund 11 gerlegt 12
bjálkar 14 sýl 15 úrgangs-
efni17húð19svefn21
hópur 22 vont 24 púkar 25
guðir
Lóðrótt: 1 smyrsl2grátur3
illan 4 teyg 5 stökk 6 spyrja
7 skvampar 10 yfirhafnir 13
kjáni 16 samtals 17 berja 18
svelgur 20 erlendis 23 svik
Lausn á síðustu kross-
gátu
Lárétt: 1 þing4magi8
árdegið9efni11rann12
kjammi 14sa 15menn17
þlóti 19 ýti 21 rum 22 nota
24 árin 25 pakk
Lóðrótt: 1 þrek2nána3
grimmt 4 merin 5 aga 6 gins
7 iðnaði 10 fjólur 13 mein 16
nýta 17 þrá 18 ómi 20 tak 23
op
Þriðjudagur 29. september 1987 jÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13