Þjóðviljinn - 07.10.1987, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 07.10.1987, Blaðsíða 3
FRETTIR Ólafsvík Bæjarstjórinn blendinn Kristján Pálsson bæjarstjóri hefur hunsað ákvarðanir meirihlutans í mörgum veiga- miklum málum og að lokum var mælirinn fullur. Það var ástæðan fyrir því að ég lagði fram bókun á síðasta bæjarstjórnarfundi þar sem ég dró mig út úr meirihluta- samstarfinu við lýðræðissinna og Alþýðuflokk og sagðist ekki lengur bera ábyrgð á störfum bæjarstjórans", sagði Herbert Hjelm, fulltrúi Alþýðubandalags- ins í bæjarstjórn Olafsvíkur við Þjóðviljann í gær. Herbert sagði að aðdragandi þessa hefði verið mjög langur, en bæjarstjórinn hefði margoft brot- ið þá reglu meirihlutans að hafa sameiginlega afstöðu í málum. Eitt af þeim málum var ákvörð- unin um framkvæmdahraðann við félagsheimilið, sem tekið var í notkun á 300 ára afmæli bæjarins. Fulltrúar A-flokkanna í meiri- hlutanum vildu fara hægt í sakirn- ar þar sem fjárhagsáætlun fram- kvæmdanna hafði verið vanáætl- uð um tug milljóna. Kristján Pálsson leitaði þá stuðnings minnihlutaflokkanna í bæjar- stjórn til að fá sínu framgengt. „Þessi bókun Herberts á fund- inum á mánudag kom mér mjög á óvart,“ sagði Kristján Pálsson, bæjarstjóri. „Mér finnst ekki mikil kurteisi í því að láta ekki samstarfsaðila vita fyrir fund að þessi bókun myndi koma fram. Þetta hefði átt að ræða fyrst á fundi meirhlutans." Kristján tel- ur það höfuðástæðu þess að meirihlutinn springur séu deilurnar um félagsheimilið. „Ég hélt satt að segja að öld- umar mundi lægja og menn mundu ná áttum um áframhald- andi samstarf. Ég vissi að það hafði verið kurr í meirhlutanum vegna þess að ég samþykkti ekki að hætta framkvæmdum við fél- agsheimilið í maí og leitaði því stuðnings Framsóknar og Sjálfs- tæðisflokks." Sveinn Þór Elenbergsson, for- seti bæjarstjórnar og annar af tveimur fulltrúum Alþýðuflokks í bæjarstjórn, segir það ekki rétt hjá Kristjáni að framkvæmdir við félagsheimilið séu eina málið sem braut á. „Slíkt er allt of mikil ein- földun á viðkvæmu og flóknu máli.“ Sveinn segir að bókun Her- berts hafi ekki komið sér á óvart en samstarf A-flokkanna í meirhlutanum hefur verið mjög gott að hans mati. „Ósamkomu- lagið hefur fyrst og fremst verið við bæjarstjórann en við fulltrúar Alþýðuflokksins vorum ekki til- búnir að slfta meirihlutasamstarf- inu með þessum hætti.“ Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans er fjárhagsstaða bæjarins afar slæm. Viðskilnaður fyrri meirihluta var mjög slæmur og afmælisveislan í sumar var kostn- aðarsöm. Fjárhagsstaðan er því hin eiginlega undirrót þess að uppúr slitnaði og einleikur Krist- jáns Pálssonar bæjarstjóra að mati þeirra Ólsara sem Þjóðvilj- inn ræddi við í gær. Þreifingar á milli flokka eru þegar hafnar um mindun nýs meirhluta. Óformlegar viðræður áttu sér stað milli krata og Al- þýðubandalagsmanna í gær og er fastlega búsist við því að annað hvort Framsókn eða Sjálfstæðis- flokkur komi inn í þær viðræður. „Það er enginn tilbúinn að ræða samstarf við Kristján og lýðræðissinna," sagði einn við- mælenda blaðamanns í gær, þannig að allt bendir til þess að Kristján muni verða að segja af sér sem bæjarstjóri. „Ég tel eðli- legast að þeir sem ekki eru slít- andi samstarfi ræði sín á milli,“ sagði Kristján í gær og á þá við að þetta er í annað skiptið á þessu kjörtímabili sem slitnar uppúr meirihlutasamstarfi, en áður höfðu kratar slitið samstarfi við íhald og Framsókn. Sú niður- staða að íhald og Framsókn fari í samstarf við Kristján þykir hins vegar afar ósennileg. Fyrir síð- ustu kosningar störfuðu A- flokkamenn og Framsókn saman í H-lista og þykir sú niðurstaða einna líklegust. -Sáf/Ólafsvík s Utvegsbankinn Ungkratar óhressir með Jón Aþingi ungra Alþýðuflokks- manna í SUJ um síðustu helgi kom fram megn óánægja með frammistöðu Jóns Sigurðssonar viðskiptaráðherra í Útvegs- bankamálinu. Spilakvöld í kvöld hefjast árleg spilakvöld Sóknar og Framsóknar í Sóknar- salnum. Sest verður niður kl. 20.30. Góð verðlaun eru í boði. Félögin halda spilakvöldunum áfram eftir hálfan mánuð. Stefán Valgeirsson Línumar skýrast um helgina Bréf á leiðinni til forystu Framsóknarflokksins „Ég get lítið láta hafa eftir mér á þessu stigi. Steingrímur er á ít- alíu og ég veit ekki hvar Páll er. En það er verið að ganga frá bréfí til þeirra. Ég læt heyra frá mér um þessi mál nú um helgina," sagði Stefán Valgeirsson þegar hann var inntur eftir því hvort hann mundi skipa sér í sveit stjórnar eða stjórnarandstöðu við nefndakjör á alþingi. „Steingrímur og Páll komu norður í síðustu viku til fundar við okkur fulltrúa úr Samtökum jafnréttis og félagshyggju. Þar voru um 10 manns á fundi en margir eru í göngum eða réttum á þessum árstíma. Þarna var rætt boð frá því í sumar til þingmanns samtakanna um að hann gengi í þingflokk Framsóknar. En ég læt frá mér heyra um þessi mál nú um helgina.“ -ÓP í ályktunardrögum var harmað hvernig Jón hefur staðið að mál- um kringum sölu bankans og tal- ið að hann hefði átt að ganga að kauptilboði Sambandsins sem fyrst hefði verið á vettvang. f drögunum sagði ennfremur að það ætti ekki að vera mál hagsmunahópa útí bæ hvernig staðið væri að sölu banka og endurskipulagningu bankakerfis- ins, heldur væri það pólitísk ákvörðun og á valdsviði við- skiptaráðherra. Éftir miklar umræður á þing- inu var ákveðið að sleppa þessari klausu úr lokaályktuninni, ekki aðallega vegna andófs við athugasemdirnar um Jón heldur vegna óeiningar um kauprétt SÍS-manna. Fulltrúar af Suður- nesjum voru helstu hvatamenn að því að láta málið niður falla. Érlingur Kristjánsson nýkjör- inn formaður SUJ var í hópi þeirra sem sömdu ályktunardrög- in. - m Fyrsti dagur Kirkjuþings. Séra Ámi Pálsson í Kópavogi ræðir við Sigurbjörn Einarsson biskup og konu hans Maqneu Þorkelsdóttur. (Mynd: EÓI) a Sjóður handa stórkírkjum Ifrumvarpi til laga um sóknar- gjöld, sem nefnd á vegum Kirkjumálaráðuneytisins er nú að leggja síðustu hönd á er m.a. að fínna það nýmæli, að myndað- ur verði sérstakur sjóður. Jöfnu- narsjoður kirkna. Skal ríkissjóð- ur leggja honum til upphæð er nemi ákveðnum hundraðshluta af sóknargjöldum þjóðkirkju- manna. Þetta kom fram í ávarpi Jóns Kirkjuþing sett í gær Sigurðssonar kirkjumálaráð- herra á Kirkjuþingi í gær. Sjóðnum er ætlað það hlutverk m.a., að standa að hluta til undir rekstrar- og viðhaldskostnaði þeirra kirkna, sem ríkið hefur sérstakar skyldur við en er ofviða viðkomandi söfnuðum. Er hér um að ræða Dómkirkjuna í Reykjavík, Hallgrímskirkju í Reykjavík, Hóladómkirkju og Skálholtskrkju, sem allar má með réttu kalla einskonar lands- kirkjur. Lagt er til að Kirkjuráð fari með stjorn sjóðsins og er það þáttur í því, að auka fjárhagslegt sjálfstæði kirkjunnar. Önnur mál, sem lágu við upp- haf 18. Kirkjuþings, sem sett var í Bústaðakirkju í gær er frumvarp um sóknar- og kirkjugarðsgjöld vegna laganna um staðgreiðslu- kerfi skatta og frumvarp um Sið- fræðistofnun þjóðkirkjunnar og háskólans. - mhg Nefndakjör á þingi Stjómarandstaðan fundar Skipan sumra nefnda veltur á Stefáni Valgeirssyni Igær hittust fulltrúar frá Al- þýðubandalagi, Borgaraflokki og Kvennalista til að ræða hvort þessir stjórnarandstöðuflokkar hefðu samvinnu um nefndakjör á alþingi, sem sett verður á laugar- dag. Ekki er enn Ijóst hvort Stef- án Valgeirsson skipar sér í sveit með stjórnarandstöðunni. Á alþingi sitja nú 63 þingmenn. I stjórnarflokkunum eru 41 þing- maður. Stjórnarandstöðuna skipa 21 þingmaður (Alþýðu- bandalag 8, Borgarflokkur 7 og Kvennalisti 6). Stefán Valgeirs- son rær svo einn á báti. íupp- hafi þingstarfa er skipað í fasta- nefndir þingsins. Þær eru allar 7 manna nema fjárveitinganefnd en í henni sitja 9 menn. Ef flokk- arnir þrír leggja fram sameigin- legan lista við kjör í þessar nefn- dir, skiptir ekki máli í hvorri fylk- ingunni Stefán Valgeirsson er. Stjómarandstaðan fær 2 menn í hverja nefnd og 3 í fjárveitinga- nefnd. Þó gætu mál skipast þann- ig að atkvæði Stefáns skipti máli í neðri deild. En alþingi kýs einnig í ýmsar nefndir og ráð sem starfa utan þings. Og þær eru sumar 5 manna, t.d. kjörstjórnir og bankaráð. Þá skiptir Stefán sköpum, skipi hann sér stjómar- megin, gæti stjórnarandstaðan misst 2. mann sinn á hlutkesti. í gær bám fulltrúar stjórnar- andstöðunnar saman bækur sínar um hvort hafa ætti samvinnu við nefndarkjör. Þar er viðkvæmasta málið skipan utanríkismála- nefndar. Allir flokkar vilja eiga þar fulltrúa og það er væntanlega erfiður biti að kyngja fyrir Al- þýðubandalag og Kvennalista að standa að kjöri fulltrúa úr Borg- araflokknum með hægrisinnaðar hugmyndir. Forsenda samvinn- unnar er því væntanlega háð því að Borgaramir sætti sig við að eiga ekki fulltrúa í nefndinni. ÓP Miðvikudagur 7. október 1987 ^JÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Orkustofnun BHMRímál BHMR ætlar að taka að sér málarekstur fyrir þá náttúmfræð- inga sem sagt hefur verið upp hja Orkustofnun. Stjórn Félags náttúmfræðinga fór fram á þetta við heildarsam- tökin og segir í frétt frá BHM að á það hafi verið fallist, enda varði niðurstaða málsins mikilvæg rétt- indi félagsmanna í BHMR.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.