Þjóðviljinn - 07.10.1987, Page 8
MENNING
Tónlist
Áhugi á Gísia
endurspeglar
tvöfalt
siðgæði
Rúnar Þór gefur út plötu sem hann
tileinkar Gísla á Uppsölum
„Með forvitni og upphefð
veð eltumst um hans orð
með frystikistu og ákefð
frömdum við þetta morð“
segir í texta á plötunni „Gísli“,
sem Rúnar Þór Pétursson sendi
frá sér nýverið. Gísli er önnur
sólóplata Rúnars, hin hét Auga í
vegg og kom út árið 1985.
- Gísli? Afhverju heitir platan
það?
Platan heitir eftir Gísla á Upp-
sölum. Það var farið illa með
Gísla, þjóðin velti sér uppúr hon-
um og lífi hans, fyrir tilstilli fjöl-
miðla. Ef endilega þurfti að sýna
sjónvarpsþáttinn með honum,
finnst mér að það hefði átt að
gerast eftir að hann var dáinn.
Gísli fékk engan frið eftir að
Ómar tók þetta fræga viðtal við
hann. Fólk út um allt land var að
senda honum alls konar dót, sem
það taldi nauðsynlegt, en var alls
óþarft fyrir Gísla. Hvernig held-
urðu að það sé að geta ekki sofn-
að fyrir suði í frystikistunni og
öðrum rafmagnstækjum, eftir að
hafa búið einn, við einföldustu
lífsskilyrði, langt í afdal? Fólk
taldi sig vera að gera þetta í góð-
gerðaskyni, en ég hald að það
hafi truflað líf hans um of. Það
var of seint að gera Gísla að nú-
tímamanni. Skrítið, því fólk nán-
ast dýrkaði hann einsog hann var.
Samt var ekki linnt látunum við
að reyna að breyta lífi hans.
Margir halda að þessi texti sé árás
á fréttamenn. En textinn er um
Gísla og mitt álit á málunum.
Textinn er gagnrýni á fréttamenn
og fjölmiðla en ekki árás. Nú er
búið að gera vídeóspólu með
kallinum og ég er á móti því.
Svona kallar eiga að fá að vera í
friði.
Þráinn Karlsson í hlutverki sínu ( Varnarræðu mannkynslausnara.
Rúnar Þór Pétursson. Mynd: Sig.
Eitt lag getur
verið á við
einbýlishús
- Af hverju semurðu lög og
hvernig verða lögin og textarnir
til?
Þetta er bara sterk Iöngun til að
koma einhverju frá sér. Ætli það
sé ekki svipað og þegar mann
langar til að fára að byggja. Þá
byrjar maður á því að kaupa
timbur. Seinna hrærir maður
steypuna. Þannig getur eitt lag
verið á við einbýlishús. Eða heila
blokk. Ég hef ekki gert annað en
spila í rúmt ár. Það er raunveru-
lega eina vitið, þó viss þreyta geri
vart við sig á köflum. En það
heldurméríþjálfun oggefurhug-
myndir í sambandi við lög, texta
og útsetningar. En ég spila lög,
bæði eftir sjálfan mig og aðra, og
er í hljómsveitinni Xsplendid, og j
„Bandinu hennar Helgu“, sem er j
tríó. Við spilum þrjú kvöld í viku
á Hrafninum, og hljómsveitin
spilar tvisvar í mánuði í Holly-
wood. Við höfum líka spilað
mikið úti á landi. Þannig það er
nóg að gera. En sjálfur vinn ég
best eftir miðnætti. Nóttin er
minn tími. Ég þarf ekkert að bíða
eftir andanum. Lögin mín eru um
lífið og tilveruna, einsog það
kemur mér fyrir sjónir í það
skiptið. Ég hef það oft á tilfinn-
ingunni að ég hefði átt að verða
prestur eða lögfræðingur. Það er
misjafnt hvernig lögin verða til.
Stundum sem ég tíu texta við eitt
lag, og þá kemur í ljós að þeir
passa við eitthvert annað lag. Og
öfugt. Stundum smellur allt sam-
an. Það gerðist þegar ég samdi
„Reykjavík" sem er á nýjustu
plötunni. Lögin eru á ýmsum
aldri á „Gísla“, frá 2-3 mánaða og
uppí 5-7 ára. Textarnir eru á svip-
uðum aldri.
- Hvernig vildi útgáfa plöt-
unnar til?
Við í Xsplendid gáfum út plötu
fyrir 6 mánuðum og þá samdi ég
við TONY, útgáfufyrirtækið, um
gerð annarrar plötu, þá var ekki
víst hvort það yrði sólóplata. En
ég er nokkuð ánægður með út-
komuna. Það er líka fullt af góðu
fólki með mér, bæði hljóðfæra-
leikarar og söngvarar. Eftir á,
finnst manni alltaf að hægt hefði
verið að gera betur, en ég held að
hún komi vel út, lagalega séð.“
-ekj.
Leiklist
„Er það einleikið"
í ieikferð
Þráinn Karlsson sýnir á Norðurlandi
Sýningin „Erþaö einleikið",
sem eru tveir einþáttungar
eftir Böðvar Guðmundsson,
og Þráinn Karlsson einleikur,
voru frumsýndir í Gerðubergi
fyrir tæpu ári í tilefni 30 ára
leikafmælis Þráins. En hann
fékk Böðvar til að skrifa ein-
þáttungana, „Varnarræða
mannkynslausnara" og
„Gamli maðurinn og kven-
mannsleysið" sérstaklega
fyrirsig. Þávoru nokkrarsýn-
ingar í haust í boði Leikfélags
Akureyrar, en nú ber það til
tíðinda að Þráinn er að fara í
leikferð um Norðurland með
verkið. Á föstudag verður sýn-
ing á Hvammstanga og á
laugardag á Skagaströnd.
Síðan hugsar Þráinn sérað
gera víðreist um landshlut-
ann.
Þráinn Karlsson er fæddur á
Akureyri, nam fyrst járnsmíði,
en hóf leikferil sinn hjá Leikfé-
lagi Akureyrar 1956. I mörg ár
hefur hann látið til sín taka á
leiklistarsviðinu, hann var með
Alþýðuleikhúsinu frá byrjun,
starfaði í Þjóðleikhúsinu, áhuga-
leikfélögum á Norðurlandi, lék í
fjölmörgum sjónvarpsleikritum
og bíómyndum, t.d. Utlaganum,
Hrafninn flýgur og Stella í orlofi.
En hugur Þráins hefur stefnt í
aðrar áttir, hann var útgerðar-
maður, gerði út á handfæri og
vetrarvertíðir frá Keflavík, var á
togara, varð sér úti um vélstjóra-
réttindi, vann sem smiður, og
fæst við leiklistarkennslu og leik-
stjórn.
„Til að gera sér og áhorfendum
dagamun eftir 30 ára leikferil á-
kvað Þráinn að leggja út í enn
magnaðri listrænan lífsháska, en
nokkru sinni fyrr með því að leika
einleik á vegum eigin leikhúss,"
segir í leikskrá sýningarinnar. En
Þráinn og Böðvar hafa átt sam-
vinnu í mörg ár, allar götur síðan
„Krummagull" og „Skolla-
leikur“, voru frumsýnd. Þórhild-
ur Þorleifsdóttir er leikstjóri sýn-
ingarinnar, en Jón Þórisson hefur
gert leikmynd. Og þá hlýtur að
vera komið að Norðlendingum
að fylgjast með leikferð Þráins í
vetur. Én hann mun sýna þar sem
því verður við komið.
-ekj.
Tónlist
Tónleikar
endurteknir
Vegna fjölda tilmæla verða
tónleikar Kristins Sigmunds-
sonar og Jónasar Ingimund-
arsonar, sem voru í síðustu
viku í Norræna húsinu, endur-
teknir á sama stað nú á mið-
vikudagskvöldið7. októberog
hefjastþeirkl. 20.30.
A efnisskránni eru fjórir laga-
flokkar og skal fyrstan nefna
„Ástir skáldsins" - Dichterliebe
eftir Robert Schumann við ljóð
H. Heine. íslenski hluti tónleik-
anna er helgaður Jóni Þórar-
inssyni en eftir hann flytja þeir
félagar lögin þrjú „Songs of Love
and Death“. Þá koma Söngvar i
Don Kikota eftir M. Ravel en
tónleikunum lýkur á flokki laga
eftir Bandaríkjamanninn Irving
Fine, er hann nefnir „Childhood
Fables for Grownups".
Jónas Ingimundarson og Kristinn
Sigmundsson.
Þess má geta að húsfyllir var á
tónleikunum á þriðjudagskvöld-
ið og undirtektir frábærar.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 7. október 1987