Þjóðviljinn - 11.10.1987, Síða 5
Ránsfengurinn til sýnis á kaffihúsl. „Viltu kaupa þýfi?“ spurði annar
þjófurinn virðulega miðaldra frú. „Og hvað kostar það, drengur minn?“
ansaði hún...
Annar af bófum Þjóðviljans að störfum. Takið eftir þessari sak-
leysislegu tösku. Hún geymdi margan illa fenginn dýrgripinn.
Stálheiðarlegur þjófur skoðar bók. Augnabliki síðar var Barnasaga
Peter Handke komin ofaní vasann.
Engan grunaði neitt fyrr en
haukfránn Ijósmyndari kom upp
um bófana. - Fólkið á myndinni
er hins vegar blásaklaust.
um sig farið þrjár ferðir í búðina
og jafnan snúið aftur drekk-
hlaðnir var þeim farið að leiðast
þófið. Stendur ekki til að nappa
okkur? spurðu þeir ólundarlega
um leið og þeir tíndu gullbók-
menntir úr vösum og töskum.
Það ætlaði ekki að ganga áfalla-
laust, því afgreiðslufólk búðar-
innar trúði greinilega á heiðar-
leika mannkynsins og skipti sér
ekkert af mönnunum tveimur
sem komu í fjórða sinn á rúmum
klukkutíma.
Að endingu gafst annar þjófur-
inn upp á þeirri aðferð að nappa
einni og einni bók: Enda yrðu
búðin seint tæmd með því móti.
Hann brá sér þess vegna inn á
lagerinn og fékk vinsamlega lán-
aðan tóman pappakassa. Okkar
maður tók nú til við að raða ofan í
kassann þeim bókum sem hugur
hans stóð til. Þegar kassinn var
orðinn fullur rogaðist þjófurinn
svo með hann út án þess að nokk-
ur sæi ástæðu til að athuga málið.
Líklega hefðu þjófarnir haldið
áfram allan þennan dag og hinn
næsta ef vingjarnlegur ljósmynd-
ari hefði ekki hvíslað að af-
greiðslukonu: Ég held að þessi
maður sé að stela! Og hann benti
á helminginn af þjófaflokki Þjóð-
viljans. Maðurinn var umsvifa-
laust færður inn á skrifstofu versl-
unarstjórans til yfirheyrslu, - og
sannleikurinn kom í ljós: 30
bókum stolið á einum og hálfum
tíma, þ.e. ein bók á hverjum
þremur mínútum. Andvirðið
heilar 17.000 krónur - en til fróð-
leiks má geta þess að tímakaup
þeirra kumpána var þá upp á
5.600 krónur...
Álagningin virðist því með
minnsta móti - en enginn skyldi
hvattur til að reyna að stela úr
búðum - því árvökul augu ljós-
myndarans knáa munu ævinlega
fylgjast með öllu.
Þess skal að lokum getið að
bófunum var sleppt úr haldi - en
hins vegar fengu þeir tilboð um
að gerast vörslumenn í búðinni -
og nappa bókaþjófa!
-hj-
ÍÞRÓTTIR
Um helgina
Heil umferö
Um helgina er heil umferð í ís-
landsmótinu í handknattleik, 1.
deild.
í dag leika Þór og ÍR á Akur-
eyri og hefst sá leikur kl. 14. Val-
ur og KA leika einnig í dag, á
Hlíðarenda, en viðureign þeirra
hefst kl. 18.
Á morgun eru svo þrír leikir.
Víkingur og Stjarnan leika í
Laugardalshöll kl. 14 og á sama
tíma hefst leikur FH og KR í
Hafnarfirði. Breiðablik og Fram
mætast svo í Digranesi kl. 20.
Úrslitaleikimir í Reykjavík-
urmótinu í körfuknattleik fara
fram í Laugardalshöll á morgun.
ÍR og KR leika til úrslita í
kvennaflokki og hefst leikurinn
kl. 18.30. Að honum loknum
leika ÍR og ÍS í karlaflokki og kl.
21.30 hefst úrslitaleikurinn. Þar
mætast KR og Valur.
-ibe
Noregur
Dómararaunir
Frá Baldri Pálssyni, fréttaritara Pjóðviljans
I Noregi:
Allt getur gerst í knattspyrnu,
er oft sagt. En að línuvörður sé
rekinn út af og markverði kastað
af leikvelli af samherjum sínum í
sama leik, hlýtur að teljast til
undantekninga. Allt þetta, og
meira til gerðist þó í leik tveggja
norskra 8. deildarliða frá Dram-
men á dögunum.
Það voru liðin Tyr og BUL sem
leiddu saman hesta sína og eins
og venja er í 8. deildinni hafði
hvort liðið með sér sinn línuvörð.
Dómarinn hafði vart blásið til
leiks er í ljós kom að línuvörður
Tyrs var síður en svo hlutlaus.
Hann mótmælti kröftuglega með
miklum munnsöfnuði í hvert
skipti sem dómarinn dæmdi gegn
Tyr. Að lokum kastaði hann
flaggi sínu á völlinn og hoppaði á
því meðan hann hellti sér yfir
dómarann, sem þá sá þann kost
vænstan að leysa línuvörðinn frá
störfum. Annar hálfleikur byrj-
aði jafn líflega og sá fyrri endaði.
Fljótlega kom í ljós að menn
höfðu síður en svo notað hvfldina
til að róa sig niður. Fyrst fékk
einn leikmaður BUL að sjá rauða
spjaldið, fyrir óíþróttamannslega
framkomu. Eins og venja er yfir-
gaf hann völlinn. Svo létt gekk
það ekki er dómarinn dró fram
það rauða öðru sinni. Þá hafði
markvörður Tyr hlaupið út á vall-
armiðju til að skamma hann.
Markvörðurinn, sem áður hafði
fengið gult spjald fyrir óvið-
eigandi orðalag, varð öskuillur.
Hann harðneitaði að yfirgefa
völlinn. En meðspilarar hans
sýndu honum enga miskunn. Þeir
slengdu honum í jörðina og rifu
hann úr markmannsbúningnum,
til að annar gæti tekið stöðu hans.
Að því loknu köstuðu þeir hon-
um út fyrir hliðarlínuna og héldu
leiknum áfram.
Nokkrum mínútum síðar var
einn BUL-maður felldur af Tyr-
ara og á ný hófust hópslagsmál,
að þessu sinni milli andstæðinga.
Dómaranum var þá öllum lokið
og fannst skynsamlegast að flauta
til leiksloka og rölta heim á leið.
Og þetta líka...
Clive Allen
og Chris Waddle frá Tottenham leika
ekki með Englandi gegn Tyrklandi í
undankeppni Evrópukeppninnar.
Þeir eru meiddir og leika líklega ekki
með Tottenham gegn Norwich. Viv
Anderson, Manchester United mun
heldur ekki leika með Englendingum
en hann er meiddur á ökkla.
Vestur-Þjóðverjar
ætla í keppnisferð til Suður-Ameríku í
desember. Þar munu þeir leika gegn
heimsmeisturunum Argentínu og
Brasilíu. Vestur-Þjóðverjar töpuðu
fyrir Argentínu í úrslitleik Heimsmeist-
arakeppninnar 1986, 2-3 og eiga því
harma að hefna.
lan Rush
er illa haldinn af heimþrá. Hann sagði
í viðtali við ítalskt íþróttablað að hann
ætti í erfiðleikum með að ná tökum á
ítölskunni. Hann umgengst mest
Danann Micheal Laudrup og þeir tala
ensku. Hann er ekki ánægður með j
Juventus, en er þó ekki á förum.
Jorge Valdano
landsliðsmaðurinn frá Argentínu hef-
ur nú öðlast spánskan ríkisborgara-
rétt. Hann hefur búið á Spáni í 10 ár.
Þrátt fyrir það telst hann enn útlend-
ingur, a.m.k. hjá spánska knattspyrn-
usambandinu. Hvert lið má aðeins
hafa tvo útlendinga og fyrir hjá Real
Madrid eru þeir Hugo Sanchez og
Milan Jankovic. Valdano er ekki alls-
kostar ánægður með þetta sem hann
telur vera brot á stjórnarskránni.
Tony Cottee
leikmaður West Ham var í gær
dæmdur [ 4 og hálfs árs bann í alþjóð-
legum leikjum. Cottee var rekinn af
ieikvelli í vináttulandsleik Englands
og V-Þýskalands, U-21 árs.
HK tryggði
sigur I Reykjanesmótinu í handknatt-
leik, 5. flokk karla. HK sigraði FH í
úrslitaleik, 11-8. Stjaman hafnaði í 3.
sæti eftir sigur gegn Gróttu 11-10.
Udo Lattek
þjálfari Kölnar er hjátrúarfullur. Hann
klæðist ávallt blárri peysu í leikjum
Kölnar og mun ekki þvo hana fyrr en
Köln tapar leik. Peysan hefur reynst
vel því að Köln hefur enn ekki tapað
leik og peysan því ekki komist I kast
við þvottavél I rúma tvo mánuði!