Þjóðviljinn - 11.10.1987, Side 9

Þjóðviljinn - 11.10.1987, Side 9
Unglingahús í miðbæinn LEIÐARI í spéspegli foreldranna Upp á síðkastið hafa fjölmiðlar verið að vakna til vitundar um það að unglingar fjölmenni í mið- bæinn um helgar á nýjan leik eftir nærfellt fimm ára hlé. Það er ekki vonum fyrr; þessi „breyting á unglingamenningunni" eins og vandamálabatt- eríið segir byrjaði í vor og hefur staðið síðan. Nývakinn áhuga má rekja til frétta af síðast- liðnu föstudagskvöldi, er þá þótti þar með órós- amasta móti, og sitthvað var skemmt af dauðum hlutum. Fréttamennskan af miðbæjarsamsafn- aðinum hefur enda sérhæft sig á sviði glerbrota- talningar. En málið snýst um fleira en brotnar rúður. Mikill meirihluti unglinganna fer í bæinn til að hittast og vera saman, sýna sig og sjá aðra, og ekkert nema gott um það að segja. En er eitthvað endi- lega víst að þau langi niðrí miðbæ? Hittast þau ekki bara þar vegna þess að þau hafa ekki að neinu öðru að hverfa? Það er enginn unglinga- skemmtistaður í miðbænum lengur, og því kann- ski ekki tilviljun að fjölgi á götum úti. Sú breyting hefur orðið á, síðan Hallærisplanið var og hét fyrir fimm árum, að krakkarnir sem sækja miðbæinn eru yngri, þau stoppa lengur og fara seinna heim. Mörg gera engar ráðstafanir um heimferð, og því gefur það auga leið hverja hættu þau setja sig í þegar þau leggja af stað fótgangandi um miðjar nætur í von um að húkka bíl. Miklar umræður spunnust um þvílík putta- ferðalög í Félagsmálaráði og víðar hér áður, og það er Ijóst að aðstæðurnar nú eru hinar sömu og þá, er ýmsir menn notfærðu sér þetta í kynferðis- legum tilgangi, gegn vilja unglingsins. Hér þarf að koma til stóraukið samráð foreldra um hæfilegan útivistartíma. Að sögn starfsfólks Útideildar eru krakkar í miðbænum um helgar allt niður í tólf ára. Það er náttúrlega óhæfa að for- eldrar horfi í gegnum fingur sér með slíkt, og með auknu samráði eiga foreldrar góðan leik í stöð- unni. Hvar erum við foreldrarnir annars meðan krakkarnir þvælast um miðbæinn fram á nætur? Ef marka má lýsingu Útideildar einkennast þessi föstudagskvöld af mikilli spennu, drykkju, há- vaða, slagsmálum og flöskubrotum, og vill Úti- deildin skoða þessi mál í samhengi við foreldrak- landrið; geysilegt vinnuálag, stress og neys- luæði. Unglingarnir eru spegilmynd af okkur full- orðna fólkinu þegar við slöppum af, segja þau. Sú spurning vaknar í framhaldinu hvort við þessi fullorðnu séum þvílík fyrirmynd að ástæða sé fyrir krakkana að steypa sér í sama mót. ( einum punkti að minnsta kosti hefur orðið afturför að þessu leyti á síðustu árum, en það er óhófleg vinnuþátttaka barna og unglinga. Það hefurfærst mjög í vöxt að krakkar vinni með skólanum, og það svo að ýmsir skólamenn kvarta yfir því að þau hafi engan tíma til að sinna náminu. Þau eru til sem þurfa að vinna með námi til að komast af, og síst skal það lastað. Hitt er eins og hver önnur della að krakkar séu að vinna með skóla til þess eins að geta keypt sér flottari föt og fjármagnað skemmtanir og ferðallög. Það er skemmtilegt og spennandi að vera ung- lingur. Spillið ekki þeirri ánægju fyrir ykkur með því að taka upp verstu lesti vinnubúðaþjóðfélags- ins of snemma. Það gefst nógur tími þótt síðar verði. HS Planið í nýrri mynd______ Yngri, og fdra seinna heim Edda Ólafsdóttir og Vilborgjónsdóttir, Útideild: Stór hópur unglinga á í erfiÖleikum með að koma sér heim um helgar Edda Ólafsdóttir og Vilborg Jónsdóttir, Útideild: Krakkarnir eru á margan hátt spegilmynd af okkur, fullorðna fólkinu og því sem við gerum þegar við slöppum af. (Mynd: Sig.) „Síðan samræmdu prófun- um lauk í apríl síðastliðnum hefurfjöldi unglingastór- aukist í miðbænum og þá sér- staklega á föstudagskvöld- um. Hér er aðallega um að ræða unglinga frá 17 ára aldri og allt niður í 12 ára. Það sem einkennir þessi kvöld er mikil spenna í lofti, drykkja, hávaði, slagsmál og flöskubrot.” Þetta er hluti af bréfi sem Úti- deild sendi Félagsmálaráði um miðjan síðasta mánuð til að vekja athygli á því ástandi sem hefur skapast í miðbæ Reykjavíkur um helgar, vegna óvenjumikils fjölda unglinga sem þar safnast saman. Útideild er hluti Félags- málastofnunar Reykjavíkurborg- ar og sinnir vettvangs- og leitar- starfi meðal unglinga. Deildin er til húsa í Tryggvagötunni og þar hittum við tvo starfsmenn í vik- unni, þær Eddu Ólafsdóttur og Vilborgu Jónsdóttur og spurðum nánar út í þessi mál. Mikill meirihluti krakkanna kemur niður í bæ til að sýna sig og sjá aðra, segja þær. Það hefur verið lítið um það að krakkar safnist saman niðri í bæ síðan Hallærisplanið var og hét, 1982 eða svo, en allt í einu hefur stór breyting orðið á í sumar. Hvað haldið þið aðséfjölmennt, svona að jafnaði? Fimmtánhundruð til tvöþús- und manns gætum við trúað. Stundum meira, stundum minna. Samkomustaðurinn er Austur- strætið, Lækjargatan og Hallær- isplanið. En náttúrulega er gamla Hallærisplanið ekki að endurtaka' sig í óbreyttri mynd. Það er margt ólíkt nú og þá, einkum það að krakkarnir eru yngri, þau koma seinna, eru lengur og fara seinna heim. Þið tiltakið heilmikinn óróleika í miðbœnum í bréfinu til Félags- málaráðs ... Flestir þeirra unglinga sem safnast saman í miðbænum eru ódrukknir og prúðir og koma til að hittast. Það er líka ljóst að fjöl- miðlar hafa verið iðnir við að auglýsa miðbæinn sem samkom- ustað fyrir unglinga, og það hefur ýtt undir aðsóknina. En við höf- um verið að velta fyrir okkur ástæðunum fyrir því að allur þessi fjöldi safnast saman og þeirri spennu sem þarna er, og viljum við líta á það í samhengi við þá miklu vinnuþrælkun sem á for- eldrunum er, neysluæði og álag. Það er spurning hvort krakkamir eru ekki að losa um spennuna á þennan hátt fyrir sitt leyti. Krakkarnir eru á margan hátt spegilmynd af okkur, fullorðna fólkinu, og því sem við gerum þegar við slöppum af. Þannig er áfengisneysla orðin viðurkennd leið meðal þó nokkurs hluta ung- linga og við höfum áhyggjur af að foreldrarnir séu farnir að láta sig hafa það. Því er oft haldiðfram aðforeldr- ar séu uppfullir af óöryggi þegar unglingarnir þeirra eiga í hlut... Þáð væri til mikilla bóta ef for- eldrar hefðu meira samráð sín í milli en nú er. Til dæmis eru úti- vistarreglur eitt af stærstu vand- amálunum í samskptum foreldra og unglinga, og foreldrarnir virð- ast alltaf vera að gefa meira og meira eftir. Þarna gæti ýmislegt orðið til hjálpar; til dæmis gætu foreldrar hringt í foreldra besta vinar barnsins síns; foreldrar kunningjahóps gætu hist og ráðið sínum ráðum; þá er allskonar fé- Iagsstarfsemi í hverfunum sem gæti komið inn í þessi mál s.s. foreldrafélög og skólarnir. Svo er til ráðgjafarþjónusta sem foreldr- ar geta leitað til. Unglingadeildin til dæmis, eða Unglingaráðgjöf- in. Er þetta ekki soldið séríslenskt ,fyrirbœri að unglingar vilja verða fullorðnir svo snemma? Þeir virðast hafa meiri fjárráð en jafnaldramir víða í nágranna- löndunum. Þau vinna mkið. Nú- orðið vinnur stór hópur með skólanum, og þá eru þau allt eins að safna fyrir fötum, skemmtunum, ferðalögum og svo framvegis. í einu orði sagt virðast þau sækja snemma í að líkja eftir okkur fullorðna fólk- inu. í félagsmiðstöðvunum víða á Norðurlöndunum er aðalmálið að losna við krakka sem eru löngu hætt að vera krakkar og orðin harðfullorðið fólk. Þetta er þveröfugt hérna. Hér er viss hóp- ur sem sækir félagsmiðstöðvarn- ar upp að 15 ára aldri, 15 og 16 ára eru þau í miðbænum, og þegar 17 ára aldrinum er náð þá taka öldurhúsin við. Koma seinna og fara seinna segið þið; hvað seint? Um það bil þriðjungur fer heim með síðasta strætó, hin seinna. Hluti fer heim á þriðja tímanum eða um þrjúleytið, en nokkur hluti er lengur og blandast þá þeim sem koma út af skemmtistöðunum í miðbænum. Og hvernig komm þtm sér heim? Að hluta til með leignbíhim ef þá er að fá. Mörg leggja af stað fótgangandi með það í huga að puttast heim, en það er oft drjúg- ur spölur. Að minnsta kosti fyrir þann hluta sem býr í Breiðholti og Árbæ, og nágrannasveitarfé- lögunum. Við höfum spurt þau um þessa hluti og það hefur sýnt sig að mörg gera engar ráðstafanir um heimferð. Mórallinn að „þetta reddist" virðist býsna lífseigur. Það var mikið rœtt um miðnœt- urstrœtó meðan Hallœrisplanið blómstraði fyrir nokkrum árum. Vœri til bóta að láta strœtó ganga eitthvað fram eftir nóttu? Það er nú eftir því hvernig á það er litið. Það má segja að það sé sjálfsögð þjónusta að hafa strætó fram á nótt, þar sem ótrú- lega stór hópur er í miðbænum um helgar. Á hinn bóginn má segja að það sé vandamál að krakkarnir séu svona lengi niðrí bæ, og spurningin er þá hvað langt á að ganga til móts við það, og þá kannski festa þetta ástand í sessi. Auk þess gagnast miðnæt- urstrætó bara krökkum í Reykja- vík. Eru mörg úr nágrannasveitarfé- lögunum í bœnum á föstudags- kvöldum? Við spyrjum þau gjarnan hvar þau eigi heima, og okkur finnst áberandi mörg koma frá ná- grannasveitarfélögunum. Að vísu höfum við enga sérstaka könnun til að styðja þess tilfinn- ingu okkar, en fyrir fimm árum gerðum við könnun meðal krakk- anna sem þá sóttu Hallærisplan- ið, og okkur virðist búsetuskipt- ingin svipuð nú og þá. Samkvæmt könnuninni kom í Ijós að tæpur helmingur ungling- anna voru Reykvíkingar, en í heild voru unglingar úr Garðabæ, Kópavogi og Hafnarfirði rétt tæp 40% þeirra unglinga sem í mið- bænum voru. Með öðrum orðum voru hlutfallslega fleiri frá þess- um sveitarfélögum en Reykjavík. Við drögum þetta ekki fram til að leika okkur með tölur og hlut- föll, heldur til að vekja athygli á því að allstór hópur virðist okkur nú sem þá eiga langt heim til sín, og þá freistast þau stundum til að húkka sér bfl. Þetta leiðir hugann að umræð- unni 1982 um málefni unglinga, og sérstaklega unglingsstúlkna, á Hallærisplaninu. Hún snerist ekki síst um þá hættu sem er því samfara þegar unglingar húkka sér far heim með ókunnugum mönnum, seint um kvöld eða að nótu til. Sá orðrómur var á sveimi, sem starfsfólk Útideildar fékk staðfest aftur og aftur að ýmsir menn misnotuðu sér þessar aðstæður í kynferðislegum til- gangi, gegn vilja unglingsins. Þessi hætta er enn til staðar, þar sem stór hópur unglinga á í erfið- leikum með að koma sér heim um helgar og því freistandi að húkka sér far heim. HS Innlit hjá Utideild Fyrst í bíó, svo i bœinn - Viðförumoftastíníubíóá föstudagskvöldum og svo eitthvað annað eins og til dæmis Freddabar. Svo þegar það er lokað þar förum við niðrí bæ, sögðu Sara og Ásta, en þær hittum við af til- viljun í Útideildinni fyrr í vik- unni. Að sögn þeirra er það mjög al- gengt að krakkar hafi það svona á föstudagskvöldum, fyrst í bíó og svo í bæinn, enda koma flestir þangað milli ellefu og hálftólf. Við spurðum hvað þær stopp- uðu lengi í bænum. Þær sögðust yfirleitt fara heim svona tvö hálfþrjú. „Annars fer slatti heim með síðasta strætó, og svo aftur klukkan þrjú. Afgangurinn blandast svo þessu eldra liði sem kemur af skemmtistöðunum,“ sögðu þær. Sara og Ásta eru nokkuð vel settar með að koma sér heim, þar sem önnur býr í Hlíðunum og hin í Vesturbænum. Við spurðum hvort þær vissu til að krakkar hefðu lent í vandræðum með að komast heim, en þær gerðu lítið úr því: „Það er miklu meira af ungu fólki að rúnta núna, og oft- ast þekkir maður einhvern." Við spurðum hvað þær sæju af fullorðnu deildinni í miðbænum á föstudagskvöldumj og þær til- tóku lögguna og Útideild. „Úti- deildina hittir maður nú allsstað- ar, og svo er soldið af löggum. Okkur finnst þær skipta sér of lítið af ef það eru slagsmál," sögðu þær. Af hverju allir niðrí bœ? „Það er ekkert annað að ske. Það er ekki opið nema til hálfeitt í félagsmiðstöðvunum og það er allt of stutt.“ Að endingu vildum við vita hvað væri efst á óskalistanum í miðbænum, og þær voru sam- mála um að það vantaði ung- lingaskemmtistað. HS Sara og Ásta, sextán og fjórtán ára: Förum niðrí bæ af því að það er ekkert annað að ske. Mynd: Sig. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. október 1987 Sunnudagur 11. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Unglingamir skipuleggi starfið sjálfir Áfundi íþrótta- og tómstunda- ráðs á mánudaginn var lagði Kristín Blöndal, fulltrúi Kvenna- listans, fram bókun í tilefni af fréttum um slæmt ástand í mið- bænum síðastliðið föstudags- kvöld. Til að fræðast nánar um þá hluti skal lesendum bent á viðtal við starfsfólk Útideildar hér á opnunni, en í bókun sinni ítrekaði Kristín þörfina fyrir unglingahús í miðbæ Reykjavíkur. Það er löngu tímabært að raun- hæfar úrbætur séu gerðar á fé- lagsaðstöðu unglinga í miðbæn- um, segir Kristín. Hugmyndin um unglingahús er orðin nokkuð gömul, en hún hefur alltaf skotið upp kollinum öðru hverju. Það er brýnast að koma upp tómstunda- aðstöðu fyrir þá unglinga sem nýta sér ekki þá aðstöðu sem fyrir er, hvort sem er í íþróttum eða innan félagsmiðstöðvanna. Unglingahús leysir að sjálf- sögðu ekki allan vanda; en það er að minnsta kosti lágmark að hafa eittbvað annað fyrir unglinga í miðbænum en götuna. Hvað finmtí þtr ungtingahús eiga að kjóða upp á? Mér finnst mestu máli skipta að unglingarnir sjálfir fái að skipuleggja starfið sem þar fer fram. Eg býst við að í slíku húsi þurfi að vera hægt að hlusta á músík, aðstaða fyrir hljómsveit- aræfingar, möguleikar á einhvers konar verkstæðum þar sem ung- lingarnir gætu fengið útrás fyrir sköpunarþörf sína. Þetta gætu verið sauma-, smíða- og leirverkstæði svo eitthvað sé nefnt. Leikhópaaðstaða, og jafnvel möguleikinn á því að stunda íþróttir. Þá sé ég fyrir mér sal þar sem ekki þarf að panta tíma, heldur verður hægt að hlaupa í skarðið eftir því sem eitthvað losnar. í svona húsi þarf líka að vera hægt að setjast niður og spjalla saman. Og er ungtingahús vœnleg leið til aðnátU krakka sem hvergi hafa fundið sér farveg? Já, ég held að grundvallarat- riðið sé að vera ekki að búa til eitthvert tilboð fyrir þau og segja þeim hvað þau eigi að gera, held- ur leyfa þeim að komast að því sjálfum. Ég held að það sem margir unglingar forðast í lengstu lög séu yfirráð fullorðna fólksins. Ef þau fá eitthvað til að byggja upp sjálf eru miklu meiri líkur á að þau myndu nýta sér það. Unglingar bregðast nú einu sinni missterkt við foreldravaldinu, og ég held að unglingahús á þessum nótum kæmi mjög til móts við það. Þú átt sjálf börn á ungtingsaldri og nú er stundum sagt að það sé annað en garnan að vera foreldri ungtinga... Það er þvert á móti mjög skemmtilegt, og ég upplifi það Kristín Blöndal: Mjög ánægjuleg lífsreynsla að eiga unglinga og hitta þeirra kunningjahóp. Mynd: Sig. sem mjög ánægjulega lífsreynslu að eiga unglinga og hitta þeirra kunningjahóp. En mér finnst meira og minna hjá öllum for- eldrum efasemdir um hversu langt á að ganga í því að láta krakkana ráða sér sjálf. Dæmi um það eru þessar eilífu spurn- ingar um útivistartíma og hver mörkin eigi að vera. Það væri mikil bót að því að foreldrar tækju sig saman um einhvern á- kveðinn tíma. Slíkt væri ekki bara stuðningur fyrir þau sjálf, heldur er það líka stuðningur við unglinginn að setja honum ein- hver mörk. Kunningjahópurinn setur á- kveðna pressu á krakkana að fara niðrí bæ, vera með og vera svo og svo lengi. Mér fannst stundum áður að krakkarnir væru að biðja um neitun þegar þau spurðu hvort þau mættu gera þetta eða hitt. Foreldrar verða vissulega að stjórna því hvað börnin eru lengi úti, en það er óþarfi að einbh'na á unglingsárin þegar við tölum um hvaða ábyrgð er lögð börnum á herðar. Mörg sex, sjö og átta ára börn bera þá ábyrgð að vera ein heima; hvernig er þá hægt að taka af þeim þessa sjálfsábyrgð seinna? UNGLINGAHÚS I MIÐBÆINN Ekkert forrœðishús Félagsmálaráð og fþrótta- og tómstundaráð hafa samþykkt að gerð verði tillaga fyrir gerð fjár- hagsáætlunar næsta árs um unglingahús í miðbænum. Gísla Árna Eggertssyni æskulýðs- fulltrúa hjá íþrótta- og tómstund- aráði og Snjólaugu Stefáns- dóttur forstöðumanni Unglinga- deildar Félagsmálastofnunar hefur verið falið að útfæra þessa tillögu. Unglingahús í miðbænum hefuroft áðurkomið til tals og því spurðum við Gísla Árna hvort hann væri bjartsýnn áframgang þessa máls. Já, það er vilji beggja ráðanna að skoða þetta mál af alvöru, sagði hann. Ætlunin er að halda úti starfsemi fyrir unglinga og hús sem þetta verður opið nánast all- an sólarhringinn, og þangað gætu krakkar leitað í vandræðum sem upp á kunna að koma. Við höfum skoðað svona hús bæði í Noregi, Danmörku og Svíþjóð, og þar hafa þau gefið góða raun. Fyrir hverja er húsið cetlað? í miðbæinn sækir ákveðinn kjarni unglinga sem virðist vera kominn út á hálan ís. Þessi kjarni er að stærstum hluta óháður öllum þeim fjölda sem sækir mið- bæinn. Vandamálið er að ná til þessa kjarna, og unglingahús kemur þar sem hluti af lausn. Það sem helst virðist hafa vald- ið andstöðu borgaryfirvalda fram til þessa er hræðsla við að slíkt unglingahús yrði einhver búlla eða sukkgreni. En það hefur sýnt sig erlendis að slíkt hefur ekki verið vandamál, enda þótt hús af þessu tagi tengist oft hópum sem eru mikið í sukki. Hvern þátt munu ungtingarnir eiga í rekstrinum ef af verður? Unglingahúsið verður ekki forræðishús. Það þýðir ekkert að koma upp svona húsi nema ung- lingarnir sjálfir taki virkan þátt í að móta og stjórna því sem þar fer fram. lþeim húsum sem við höfum skoðað úti eru ákaflega strangar reglur. Það er farið fram á skikkanlega umgengni og að brennivín og dóp sé víðs fjarri. Krakkarnir viðurkenna þessar einföldu reglur; þetta er þeirra hús og þau eru með á því að þau geti ekki rekið það ef þau eru í einhverju sukki. Og hlutur fullorðinna? Þama verður starfsfólk - eigum við að segja þrjú stöðugildi - ábyrgt fullorðið fólk, sem krakkamir geta leitað til með sín mál. Unglingahús þarf að vera á því formi að krakkar geti komið og fengið sér kaffi og eitthvað að borða, setið og spjallað, hlustað á músík og svo framvegis, en að öðm leyti ætla ég ekki að úttala mig um starfsemina, enda kæmi þá til kasta unglinganna sjálfra. Þama þarf að vera hægt að halda fundi og skipuleggja það sem þarf. Það hefur sýnt sig að í þess- um hópi sem við emm að reyna að ná til er fuilt af bráðduglegum krökkum sem hafa mjög skýrar hugmyndir um það sem þau vilja gera. Hvað er fleira á döfinni hjá íþrótta- og tómstundaráði? Stefnan er að halda áfram að byggja upp félagsaðstöðu í hverf- um borgarinnar. Eftir að íþrótt- aráð og Æskulýðsráð vom sam- Gísli Ámi Eggertsson: Þessi læti að undanfömu út af miðbænum eru bara vitleysa. (Mynd. Sig.) einuð er stefnan orðin meira í þá veru að fá betri yfirsýn yfir þá möguleika sem eru á tómstunda- starfi í hverju hverfi fyrir sig, og líta á tómstundamál unglinga sem eina heild. Á undanförnum árum hefur starfsemi félagsmiðstöðvanna þróast í þá átt að auka hlut ung- linga í ábyrgð og stjórnun stað- anna. Félagsmiðstöðvunum er ætlað að þjóna öllum unglingum, en ekki einhverjum sérstökum hópi. En þrátt fyrir allar félagsmið- stöðvar þá breytist ekki sú venja unglinga að fara niður í bæ. Við höfum stundum verið með mjög vandaðar skemmtanir, og krakk- arnir fara þá bara niður í bæ eftir að þeim er lokið, jafnvel þótt þær standi til klukkan að verða eitt. Þessi læti að undanförnu út af miðbænum eru bara vitleysa. Krakkarnir fara niður í bæ og búa sér til vettvang til að vera saman á eigin forsendum og það er í sjálfu sér ágætt. Það er líka rangt að slengja öllu sem miður fer í miðbænum á krakkana. Þarna eru skemmti- staðir um allt með fleiri þúsund gesti. Þetta fólk fer ekkert í ró- legheitum heim til sín eftir lokun, heldur þvælist um miðbæinn og blandast þessum krökkum og á sinn þátt í því sem miður fer. HS

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.