Þjóðviljinn - 11.10.1987, Page 20
'f^öl Fjórðungssjúkrahúsið
) á Akureyri
Fóstru eða starfsmann með uppeidisfræði-
menntun vantar í fullt starf. Starfsreynsla á barn-
aheimili æskileg. Umsækjandi þarf að geta hafið
starf sem fyrst.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 96-
22100-299.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Læknastofa
Hef opnað stofu í Læknastofunni hf., Álfheimum
74. Tímapantanir í síma 686311 alla virka daga
milli kl. 9 og 17.
Árni J. Geirsson
Sérgrein: Gigtar- og lyflækningar
Arbær
Forstöðumaður og yfirfóstra óskast til starfa á
leikskólann Árborg, Hlaðbæ 17.
Til greina kemur 1/2 dags starf e.h.
Árborg er tvískiptur leikskóli í fallegu umhverfi.
Upplýsingar gefa framkvæmdastjóri og umsjón-
arfóstrur á skrifstofu dagvista barna sími 27277.
DTVARP Mjolnisholti 14 Brautarholti 3
Simi 62 36 10 (tvær linur)
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
AB/Keflavík og Njarðvík
Aðalfundur
verður haldinn miðvikudaginn 14. október klukkan 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, kosning fulltrúa á landsfund,
önnur mál.
Fundarstaður auglýstur síðar. Stjórnin
ABR
Greiðið félagsgjöldin
Alþýðubandalagið í Reykjavík hvetur félagsmenn til að greiða heimsenda
gíróseðla sem allra fyrst.
Stjómln
Alþýðubandalagið Reykjanesi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs verður haldinn laugardaginn 24. október kl.
14.00 í Þinghóli, Kópavogi.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnln
ÆSKULYÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
Fundaröð ÆFR
ÆFR gengst fyrir fundaröð í október um eftirfarandi málaflokka:
1) Þriðjudaginn 13. október: Byggðamál og stjórnun fiskveiða.
2) Fimmtudaginn 22. október: Umhverfis- og utanríkismál.
3) Þriðjudaginn 27. október: Dagvistun og menntamál.
Allir velkomnir - ÆFR
Landsliðið hefur náð frábærum árangri að undanförnu og þrátt fyrir tap gegn Portúgal er engin ástæða til að örvænta. Á
myndinni fagna íslendingar sigri yfir Norðmönnum.
Áð á sigurgöngunni
Eftir frábær úrslit íslenska
landsliðsins kom að því að liðið
beið lægri hlut, gegn Portúgal.
Eftir árangur, sem fæstir áttu von
á kom að því að íslenska liðið var
stöðvað.
Pað var ekki bjart útlitið eftir
stóra skellinn gegn Austur-
Þjóðverjum. Margir voru þá á því
að gefast upp. En íslensku lands-
liðsmennimir voru ekki á þeim
buxunum. Olympíuliðið reið á
vaðið með glæsilegum sigri gegn
Austur-Þjóðverjum og í kjölfarir
fylgdu tveir sigrar gegn Noregi.
Þessi árangur íslands kom á
óvart. í leikjunum gegn Noregi
lék liðið án lykilmanna og lands-
liðið að mestu án atvinnumanna.
Það var því ekki búist við miklu.
Áhugamennimir sem tóku sæti
atvinnumannanna skiluðu sínu
hlutverki einstaklega vel. Það
sem munaði þó mest um var að
íslenska liðið „lék með hjart-
anu“. Leikmenn vom ákveðnir í
að gefa ekki eftir og virðing fyrir
andstæðingnum var í lágmarki.
Það kæmi ekki á óvart ef að
áhugamennirnir fengju tilboð frá
erlendum liðum.
Skyndilega var staðan sú að ís-
land átti möguleika á sæti á Ol-
ympíuleikunum, nokkuð sem
menn áttu ekki von á. íslenska
Olympíuliðið hefur ekki áður
náð svo góðum árangri, enda yf-
irleitt litið á liðið sem B-lið ís-
lands. Það hefur þó breyst eftir
frábæra framistöðu í síðustu
leikjum. í Evrópukeppninni
skaust ísland upp fyrir sjálfa Evr-
ópumeistarana Frakka.
Tapið gegn Portúgal var vissu-
lega sárt. íslenska liðið lék mjög
vel, en ódýrt mark og misheppn-
uð dauðafæri komu í veg fyrir
frekari afrek íslendinga í
leiknum. En þó er engin ástæða
til að leggja árar í bát. íslenska
liðið hefur sýnt að það getur stað-
ið í hvaða liði sem er. Tap gegn
Portúgal hefði einhvern tímann
þótt eðlilegt og það sýnir einfald-
lega það að íslensk knattspyma
vex og dafnar með hverju árinu
og kröfumar sem gerðar em til
liðsins aukast jafnt og þétt.
Eftir tapið gegn Austur-
Þjóðverjum var mikið rætt um
stöðu Sigfried Held, landsliðs-
þjálfara. Margir töldu þá tíma
hans runninn út, þrátt fyrir góð
úrslit gegn Sovétmönnum og
Frökkum. Hann hefur nú heldur
betur styrkt stöðu sína.
Það er ánægjulegt að íslenskir
þjálfarar skuli aftur vera eftir-
sóknarverðir. íslandsmeistarar
Vals, sem hafa verið með erlenda
þjálfara undanfarin 15 ár, réðu
Hörð Helgason. Hann fær það
erfiða hlutverk að fylla í skarðið
sem Ian Ross skyldi eftir sig er
hann fór til KR-inga. Þetta er að
sjálfsögðu mjög jákvæð þróun og
sýnir það að íslenskir þjálfarar
em fyllilega samkeppnisfærir við
útlendingana.
íslensku liðin léku um síðustu
helgi síðari leiki sína í Evrópu-
keppninni í handknattleik.
Stjaman var að vísu búin að
tryggja sér sæti með tveimur
auðveldum sigmm í írlandi gegn
Yago. Viðureign Víkings gegn
Liverpool var leikur kattarins að
músinni. Yfirburðir Víkinga vom
ótrúlegir og ekki á hverjum degi
sem lið fær aðeins á sig 9 mörk í
Evrópuleik, en skorar 38!
Breiðablik er eina liðið sem er
úr leik. Skellurinn sem Blikarnir
fengu úti var sá versti í Evrópu-
keppni í langan tíma. Síðari
leikurinn var svo eins og við var
að búast. Bæði liðin vissu að Blik-
ar ættu ekki möguleika að vinna
upp 17 marka forskot. Leiknum
lauk með jafntefli, 19-19, og
danska liðið ekki svo sterkt að
Breiðablik hefði átt að tapa með
svo miklum mun. Það verður þó
að taka með í reikninginn að
þessir leikir voru fyrstu Evrópu-
leikir Breiðabliks og leikmenn
liðsins ekki með mikla reynslu
sem óneitanlega þarf í leiki sem
þessa.
Víkingur og Stjarnan eiga erf-
iða leiki fyrir höndum í Evrópu-
keppninnni. Bæði drógust þau
gegn sterkum liðum frá Norður-
löndum. Víkingar gegn dönsku
meisturunum Kolding og Stjarn-
an gegn Urædd. Möguleikar eru
þó vissulega fyrir hendi og með
góðum leik hér heima og stuðn-
ing áhorfenda ættu bæði liðin að
eiga möguleika á sæti í 3. umferð.
Nú er lokið tveimur fyrstu um-
ferðunum í íslandsmótinu í hand-
knattleik. Allt bendir til að
spennan verði mikil í vetur og
mótið skemmtilegt. Liðin eru
nokkuð jöfn og líklega munu 4-5
lið berjast um sigur í deildinni.
Nýliðarnir frá Akureyri komu á
óvart gegn Val. Þeir léku á
köflum mjög vel, en vantar
greinilega reynslu. FH og Víking-
ur hafa byrjað mótið af krafti og
sigrað í báðum leikjum sínum.
KA vann sinn fyrsta sigur gegn
vængbrotnu liði Fram og Blikarn-
ir virðast loks komnir í gang og
sigruðu Stjörnuna. Það eru þó
aðeins tvær umferðir búnar af
mótinu og of snemmt fyrir alla
spádóma.
Það virðast engin takmörk
fyrir því hvað hægt er að leggja á
eitt lið. Framarar hafa orðið fyrir
hverju áfallinu á fætur öðru.
Áður en keppnistímabilið hófst
voru þeir taldir með sigurstrang-
legustu liðum, en meiðsli hafa
sett strik í reikninginn. Sex leik-
menn eru meiddir, þaraf þrjár
stórskyttur sem hefðu án efa
skorað meirihluta marka Fram í
vetur. Atli Hilmarsson, Hannes
Leifsson og Egill Jóhannesson og
nú síðast Birgir Sigurðsson. Þeir
leika líklega ekki með fyrr en í
síðari umferðinni og möguleikar
Fram á íslandsmeistaratitlinum
heldur litlir.
ÍÞRÓTTASPEGILL
LOGI B.
EIÐSSON
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. október 1987