Þjóðviljinn - 11.10.1987, Síða 24
Stjörnurnar
trekkja
íslenska landsliðið í hand-
bolta er komið í heimsklassa
eins og þjóðin veit og hreykist
af. Því hefur mörgum þótt það
undarleg þróun síðustu árin
að æ færri áhorfendur láta sjá
sig á íslandsmótinu hér
heima. Það hefur verið skýrt
með því að helstu stjörnur
vorar skíni á erlenda grund,
enda eru nú tugir leikmanna
sem spila með erlendum lið-
um.
Það voru því gleðitíðindi
þegar kanónur á borð við Atla
Hilmarsson og Sigurð
Gunnarsson sneru heim og
markvörðurinn frækni Einar
Þorvarðarson - sem raunar
hefur viðurnefnið Einar Ver -
bættist (þann hóp.
Og nú þegar þykjast menn
merkja breytingar í átt til hins
betra, áhorfendur eru að taka
við sér og það er aftur orðið
kátt í höllinni... ■
Blaðamenn
læstir inni
Svo sem afrugluðum sjón-
varpsneytendum er kunnugt
stendur nú yfir mikil spurn-
ingakeppni milli fjölmiðlanna
á Stöð 2. Tveir eru í hverju liði
og er keppnin með útsláttar-
fyrirkomulagi þannig að í lokin
stendur eitt lið uppi sem sigur-
vegari. Fjölmiðlarnir taka
þessa keppni mishátíðlega,
en ekkert kemst þó í sam-
jöfnuð við undirbúning hjá
liðsmönnum eins dagblað-
anna, - og tekið skal fram að
ekki er um Þjóðviljann að
ræða. Þegar ritstjórinn frétti
hvað til stæði var hóað saman
fundi til að finna helstu
mannvitsbrekkurnar á blað-
inu. Tveir voru valdir og
snimmendis leystir frá störf-
um og lokaðir inni í herbergi.
Þar máttu þeir dúsa, æfa sig í
spurningaleikjum og lesa
uppsláttarbækur spjaldanna
á milli. Ritstjórinn metnaðar-
fulli sagði liðsmönnum sínum
að kaupa allar bækur sem
þeir vildu og yfirhöfuð beita
öllum tiltækum ráðum til að
sigra.
Og eftir margra daga strit
mættu kapparnir í stúdíó til að
verja heiðurs blaðsins. Þeir
töpuðu í fyrstu umferð... ■
Ragnhildur og
Salóme
óánægðar
Gamla brýnið, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, sigr-
aði þær Ragnhildi og Sal-
óme í slagnum um forseta-
embættið í efri deild þingsins.
Þar með er Ijóst að konur eru
rúnar öllum vegtyllum í Sjálf-
stæðisflokknum, enda er
jafnréttið skammt á veg komið
í flokki þar.
Þærstöllurmunu hinsvegar
naga sig í handarbökin yfir því
að hafa ekki samstillt kraftana
gegn Þorvaldi - báðar vildu í
stólinn og því fór sem fór. En
það má búast við að sjálfs-
tæðiskonur láti í sér heyra á
næstunni... ■
í vetur bjóða þaulvanir fararstjórar Flugleiða
nýja og gamalreynda farþega velkomna til hinnar
fögru eyjar GRAN CANARIA, þar sem náðugir
dagar fara í hönd á þægilegum gististöðum,
íslenskum Kanaríförum að góðu kunnir, t.d.
San Valentin Park, Bungalow Holican og
Bungalow Princess. Nýtt íbúðahótel bætist í
hópinn, Corona Blanca.
Beint flug án millilendinga til Gran Canaria:
Sunnudaginn 01.11 ’87 27 daga ferð
Föstudaginn 27.11 ’87 3ja vikna ferð
Föstudaginn 18.12 ’87 3ja vikna ferð
Föstudaginn 08.01 ’88 3ja vikna ferð
Föstudaginn 29.01 ’88 3ja vikna ferð
Föstudaginn 19.02 ’88 3ja vikna ferð
Föstudaginn 11.03 ’88 2ja vikna ferð
Föstudaginn 25.03 ’88 2ja vikna páskaferð
Föstudaginn 08.04 ’88 2ja og 3ja vikna ferðir
með heimflugi um Londont
*Tvær nætur í London og er gistingin ekki innifalin í
neðangreindu verði. Möguleiki er að framlengja dvölina í
London.
Verðdæmi: Miðað er við tvo í íbúð.
Flugvallarskattur er ekki innifalinn.
• Frá kr. 44.777 á mann í íbúð á Corona
Blanca í 27 daga, 1.-27. nóv.
• Frá kr. 37.376 á mann í íbúð á Corona
Blanca í tvær vikur.
Brottfarir 11. og 25. mars 1988 og 8. apríl 1988.
Upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
Lækjargötu, Hótel Esju og Kringlunni;
umboðsmenn um land allt og ferðaskrifstofurnar.
Upplýsingasími: 25 100.
FLUGLEIÐIR
fyrír þíg
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAl
- fólk sem kann sill fag!
Póslhússlrœli 13 - Sími 26900
FEBPft.
MtDSTÚDiN
Aðalstræti 9, Sími: 28133
Ferdaskrifstofa Snorrabraut 29 Simi 26100
(ttUXVTMC
Hallveigarstíg 1, Sími: 28388
FERÐASKRÍFSIOFAN
JIAFUS
Kirkjutorgi 4 Sími 622 011